Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjalst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1987.
Sturia Krisfjánsson:
Engin rök
hjá Sverri
Jón G. Hauksson, DV, Akureyrt
„Það komu engin rök fram hjá
Sverri á Alþingi í gær, að því er mér
fannst. Mér fannst hann tæta upp ólík-
legustu hluti, sem engu máli skipta í
stöðunni," sagði Sturla Kristjánsson,
fyrrverandi fræðslustjóri í Norður-
landsumdæmi eystra, um umræðumar
á Alþingi í gær.
- Hvað hyggst þú gera á næstunni?
„Ég veit það ekki.“
- Attu von á því að það verði rann-
sókn í málinu?
„Mér sýnist að af rannsókn verði.
Ég sé ekki betur en að þingmennimir
sjálfir stefni núna að því.“
Fræðsluskrifstofan:
Starfsemin
í lágmarki
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri;
Starfsfólk fræðsluskriístofunnar á
Akureyri mætir enn í vinnu, nú þegar
rúm vika er liðin frá því að Sturlu
Kristjánssyni fræðslustjóra var vikið
úr starfi. Már V. Magnússon, starfs-
. ^maöur á skrifstofunni, sagði í morgun
að það væri ekki hægt að afgreiða
neitt formlega, þar sem fræðslustjóra
vantaði, en fólkið hefði sinnt því nauð-
synlegasta.
Um alþingisumræðumar í gær sagði
Már: „Mér fannst þetta hljóma eins
og ráðherra þyrfti að fara sjö ár aftur
í tímann til að finna rök fyrir skyn-
diákvörðun sinni.“
Stunginn með
brotinni flösku
Átök milli tveggja manna á gistihúsi
í Brautarholti 22 í nótt enduðu með
því að annar maðurinn stakk hinn
' ^með brotinni flösku í bakið.
v Meiðsli mannsins vom ekki eins
mikil og á horfðist í fyrstu og voru
báðir mennimir í fangageymslum lög-
reglunnar í nótt vegna rannsóknar
málsins.
-SJ
Ávallt feti framar
68-50-60
ÞRDSTUR
SÍÐUMÚLA 10
LOKI
Sverris saga hin nýja er
aö verða á við gömlu
Sturlungu!
Viðræðum slitið í farmannadeilunni:
Tilgangslaust
að halda áfram
áá
„Ég h't svo á að málið sé komið í
svo mikinn hnút að tilgangslaust sé
að halda áfram. Ég veit ekki hvenær
viðræður geta farið aftur af stað en
það verður örugglega biðtími fram
eftir vikunni,“ sagði Guðmundur
Hallvarðsson, formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur, eftir að slitnaði
upp úr viðræðum undirmanna á far-
skipum og skipafélaganna.
„Guð má vita hvað nú tekur við í
þessari deilu eða hvenær viðræður
geta aftur hafist. Eins og mál standa
nú er tilgangslaust að halda áfrarn,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins.
Það sem olli þessum straumhvörf-
um í viðræðunum var að í fyrradag
höfðu deiluaðilar náð samkomulagi
um ákveðin atriði í deilunni hvað
varðar vinnufyrirkomulag undir-
manna. Skjalið var vélritað hjá
fulltrúum skipafélaganna og þegar
þeir svo skiluðu því á fúndi hjá sátta-
semjara hafði orðalagi verið breytt
og fyrtust sjómenn við, höfnuðu
skjalinu og lögðu fram upphafskröf-
ur sínar. Fulltrúar skipafélaganna
neituðu að halda viðræðum áfram
ef færa ætti viðræðumar til upphafs-
ins og þar með slitnaði upp úr. Sama
var þótt orðalaginu væri aftur breytt
til .upphafs síns.
Þeir Guðmundur Hallvarðsson og
Þórarinn V. Þórarinsson sögðust
hvomgur óttast lög sem bindu enda
á deiluna.
-S.dór
Hann gaf ekki mikið í aðra hönd fyrsti róðurinn hjá þeim félögum á Sigrúnu RE, Inga Arnasyni og Kristni
Bjarnasyni, tíu þorska og þrjá rauðmaga. Við sjávarsíðuna hefur rauðmaginn stundum verið kallaður „vorboö-
inn ijúfi“ og það er afar sjaldgæft að rauðmagi veiðist svo snemma, þorri ekki einu sinni genginn í garð.
-S.dór/DV-mynd S
Framsóknarmenn:
Ríkið ráði
bankanum
„Það getur enginn nema ríkið
staðið að þeim bankaskyldum, sem
Búnaðarbanki og Útvegsbanki hafa
gegnt. Það þarf enginn að halda að
til dæmis Sameinaðir verktakar hefðu
sömu sjónarmið í bankarekstri," segir
Páll Pétursson, formaður þingflokks
framsóknarmanna. Þeir vilja að Bún-
aðarbankinn yfirtaki Útvegsbankann.
Sjálfstæðismenn vilja á hinn bóginn
sameina þessa banka, stofna hlutafé-
lag upp úr sameiningunni og losa
þannig ríkið úr bankanum á næstu
þrem árum. Þetta er viðhorf sjálfstæð-
ismanna eftir að sameining Útvegs-
banka, Iðnaðarbanka og Verzlunar-
banka fór út um þúfur.
„Við féllumst á tillögu þeirra um að
reyna þessa þriggja banka sameiningu
en vissum raunar að hún gengi aldrei
upp. Við áttum hins vegar von á að
þetta tæki aðeins nokkra daga eða í
mesta lagi fáeinar vikur. Nú er þetta
búið að dragast í tvo mánuði, þjóðar-
búinu mjög til skaða,“ segir Páll.
„Það er ekki tími til þess að velta
þessu máli undan sér lengur og við
höfúm ekki breytt ályktun okkar um
yfirtöku Búnaðarbankans á Útvegs-
bankanum. Við erum samt að fjalla
um málið í þingflokknum. En ég tel
alveg fráleitt, hreint útilokað, að ætla
einkabanka það hlutverk sem þessir
tveir bankar hafa rækt,“ segir formað-
ur þingflokks framsóknarmanna.
-HERB
Veðrið á morgun:
Dálítii súld
á Suður- og
Vesturlandi
Það verður víðast suðvestlæg átt
á landinu. Á Suður- og Vesturlandi
verður dálítil súld og 4-7 stiga hiti
en þurrt og heldur svalara á Norð-
vestur- og Austurlandi. Við norð-
austurströndina má búast
slydduéljum fram eftir degi.
við
Rafmagns-
bilun
í Holtunum
í nótt varð rafmagnsbilun í Holt-
unum og rafmagnslaust í hverfinu í
nokkrar klukkustundir. Rafmagn kom
aftur á um klukkan átta f morgun.
Hjá Raftnagnsveitu Reykjavíkur fen-
gust þær upplýsingar að ekki væri
vitað hvað biluninni olli en rafmagni
var veitt á hverfið „eftir öðrum leið-
eins og komist var að orði hjá
Rafmagnsveitunni, meðan verið er að
.leita orsaka bilunarinnar.
-S.dór
f
I