Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1987, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1987, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 24. JANUAR 1987. 27 Ekkert almennilegt vaxmyndasafn getur án Hitlers verið. DV-myndir Ragnar vaxmyndasafnið á sínum tíma. í Vísi þann fjórtanda júlí 1951 er viðtal við Óskar þar sem hans segir frá tilurð þessa merka safns. Óskar segist hafa farið til Dan- merkur sextán ára gamall og þá meðal annars heimsótt' vaxmynda- safnið þar og orðið óskaplega hrif- inn. Mörgum árum seinna, þegar Óskar var orðinn útgerðarmaður, og í sæmilegum álnum, fórst eitt skipa hans, línuveiðarinn Jarlinn, og með því tuttugu og þriggja ára gamall sonur Óskars sem hét Óskar Theo- dór. Eftir hann var lítilsháttar arfur sem Óskar og börn hans ákváðu að nota til að stofna vísi að vaxmynda- safni. í stríðslok sneri Óskar sér af alvöru að þessu máli og fékk vin sinn, Maríus Petersen, og unnustu sína og síðar eiginkonu, Ebbu, til þess að vinna að safninu. Þau fengu enskan mann, Richard Lee að nafni, ágætlega listfengan, eins og segir í viðtalinu, til þess að koma hingað og gera vaxmyndir af íslendingunum. Mun Lee hafa dvalið hér í hálft ár við að vinna myndirnar. Vaxmyndirnar af Vilhjálmi Stef- ánssyni landkönnuði og Óskari Theodór voru gerðar eftir myndum og af útlendingunum erlendis. Ric- hard Lee gerði einungis höfuðmynd- irnar, en að öðru leyti voru myndirnar gerðar af sama fyrirtæki og gerir vaxmyndir fyrir Madame Tussaud-safnið. Vaxmyndirnar eru listavel gerðar og líkjast fyrirmyndum sínum mjög. Þórbergur Þórðarson sagði víst ein- hverju sinni að Stalín væri góð- menni, það sæist á svipnum. Þar að auki hefði hann verið góður við börn og hunda og þannig væru ekki vond- ir menn. Og víst er Stalín góðlegur á svip, með svo skelfing falleg augu og vingjarnlegt bros. Hvað það segir okkur um innrætið skal hins vegar ósagt látið hér. Skammt frá Stalín stendur Hitler keikur og sýnu þungbrýnni en félagi hans. Og Churchill, með hálfreyktan, stóran vindil í brjóstvasanum, er á svipinn eins og hann hafi tapað stríð- inu. Safnið gaf Óskar ríkinu árið 1951, eins og áður sagði, til minningar um son sinn. Vaxmyndir i húsnæðishraki í áðurnefndu viðtali í Vísi spyr blaðamaður Óskar hver kostnaður- inn hafi verið við að koma safninu upp. Óskar svarar þannig: „Ég hirði ekki um að segja neitt um þetta en það hefir kostað þá að- ila sem að því unnu mikla vinnu og þá sérstaklega mr. Lee. Og ekki má gleyma þeim Ólafi Friðrikssyni og Öscari Clausen sem hafa innt af höndum allerilsamt og mikið starf í þágu vaxmyndasafnsins. Safnið kom hingað til lands fvrir einu ári og hafði ég þá ekkert húsrúm fyrir það en ég vil þakka Bimi Ólafs- syni ráðherra að bann lét safnið fá húsnæði í Þjóðminjasafninu og Kristján Eldjárn tók á móti því og er það í eins góðri umsjá og frekast verður á kosið. Það eru tilmæli okkar gefenda að safninu verði vel við haldið og aukið eftir sem aðstæður leyfa.“ Því miður hefur ekki verið hægt að verða við þessum tilmælum gef- enda. Eins og fram kom áður eru vaxmyndirnar í húsnæðishraki og verði ekkert að gert er útlit fyrir að þær hrekist aftur undir plastpoka í geymsluherbergi Þjóðminjasafnsins. Er sorglegt til að vita að þetta bráðskemmtilega safn skuli ekki fá að njóta sín en þurfi að kúldrast í geymslu, svipt öllum vaxtarmögu- leikum. En er á meðan er og á næstunni verður sýning á vaxmyndasafninu opnuð almenningi og verður opin þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga frá klukkan hálf tvö til fjögur. Heimsókn í vaxmynda- safnið er vel fyrirhafnarinnar virði. Það er gaman að sjá þá augliti til auglitis, kallana, sem sópaði svo mjög að á sínum tíma. Sjón er sögu ríkari, segir máltækið. - VAJ Bryndís Sverrisdóttir, starfsmaður í Þjóðminjasafninu, ásamt feðgunum Óskari Halldórssyni og Óskari Theodóri. Vaxmyndasafnið gaf Óskar Halldórsson islenska ríkinu til minningar um son sinn sem fórst ungur í sjóslysi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.