Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1987, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1987, Page 38
38 LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987. Sænskur sigur á um- deildu svæðismóti Bent Larsen er fjúkandi reiður út í danska skáksambandið vegna svæðismótsins sem haldið var í Gausdal. í viðtali við Ekstrabladet á . dögunum segir hann að hann muni ‘ íramvegis ekki tefla fyrir hönd Dan- merkur í heimsmeistarakeppninni eða á ólympíumótunum. Larsen seg- ir að svæðismótið hafi verið skipu- lagt svo illa og með svo skömmum fyrirvara að hann og fleiri snjallir skákmenn á Norðurlöndum hafi ekki átt þess kost að vera með. Sjálf- ur var Larsen búinn að þiggja boð um að tefla á jólaskákmótinu í Hast- ings og æru sinnar vegna gat hann ekki gengið bak orða sinna og teflt í staðinn á svæðismótinu. Sömu sögu má segja um Margeir Pétursson og einnig Helga Ólafsson sem nú teflir á stórmeistaramótinu í Wijk aan Zee í Hollandi. Norðmaðurinn Amold Eikrem, sem verið hefur helsta driffjöður norsks skáklífs um árabil, hljóp und- ir bagga á síðustu stundu og bauðst til þess að halda svæðismótið. Ann- ars hefði mátt búast við að mótið hefði alls ekki verið haldið. Eikrem á góða að þar sem eru hótelstjórar á fjallahóteli einu í Gausdal, nálægt Lillehammer. Þar hefur Eikrem haldið fjölda skákmóta við góðan orðstír þótt mörgum finnist dvölin upp til Qalla harla tilbreytingarlaus. Hótelstjórar buðu honum aðstöðu í I'" janúar eða í maí. Svæðisforseti Nor- ræna skáksambandsins, Eero Helme, sagði of seint að halda mótið í maí og því var Eikrem nauðugur einn kostur. Svæðismótin em fyrstu skrefin í heimsmeistarakeppninni. Efstu menn komast áfrarn á millisvæða- mót, þaðan liggur leiðin yfir í áskorendamót, svo áskorendaeinvígi og þá er aðeins eftir einn skákmaður sem hefur unnið sér rétt til þess að skora á heimsmeistarann. Það er mismunandi eftir svæðum hversu margir efstu menn komast áfram á millisvæðamót. Meginreglan er sú að því sterkari sem svæðin eru því 06111 menn komast áfram. Sam- kvæmt því ættu a.m.k. þrír menn að komast áfram á millisvæðamót úr norræna svæðismótinu. Eins og reglumar eru nú kemst þó aðeins efsti maður áfram en sá er lendir í 2. sæti þarf að heyja einvígi við sæt- unga sinn úr öðru svæðismóti. Þessu hefur verið mótmælt og Campoma- nes hefúr haft um það fögur orð að reyna að bæta úr þessu. Ákvörðun um það verður tekin á fúndi FIDE i febrúar. Staðan var sem sagt sú í Gausdal að enginn vissi hversu margir kæmust áfram á millisvæða- mót. Hvílík vitleysa! Annað var það varðandi fyrir- komulag mótsins sem var gjörsam- lega út í hött. Þar tefldu 18 skákmenn í einum flokki 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. í raun var því enginn að tefla í sama mótinu og þegar barist er um sæti á millisvæða- móti kann það varla góðri lukku að stýra. íslensku skákmennimir mót- mæltu þessu harðlega en töluðu fyrir daufum eyrum. Skák Jón L. Ámason En víkjum að sjálfú mótinu. Jó- hann Hjartarson var einn íslending- anna sem stóðu fyrir sínu í fyrstu umferðunum. Hann vann þrjár fyrstu skákir sínar og tefldi vel en síðan hrökk hann í jafiiteflisgír. Næstu fjórum skákum hans lauk með jafntefli og er hann svo tapaði fyrir Svíaninn Hellers í næstsfðustu umferð náði landi hans, Thomas Emst, vinningsforskoti. Hann hafði 6 v. fyrir síðustu umferð en Jóhann, Hellers, Agdestein, Mortensen og sá er þetta ritar höfðu 5 v. Eins og jafiian í Monrad-mótunum skipti svo síðasta umferðin sköpum. Emst tefldi við landa sinn, Hector, og lauk skák þeirra með jafntefli, þó eftir harða baráttu. Hellers vann Mortensen, undirritaður vann Ag- destein og Jóhann lagði Guðmund Siguijónsson að velli. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Emst (Svíþjóð) 6!4 v. 2.-4. Jóhann Hjartarson, Hellers (Svíþjóð) og Jón L. Ámason 6 v. 5. L. Karlsson (Sví- þjóð) 5 Vi v. 6.-9. Agdestein (Noregi), Mortensen (Danmörku), Ögaard (Noregi) og Hector (Svíþjóð) 5 v. 10.-11. Yrjöla (Finnlandi) og Tiller (Noregi) 4/i v. 12.-14. Guðmundur Siguijónsson, J. Kristiansen (Dan- mörku) og Rantanen (Finnlandi) 4 v. 15. Höi (Danmörku) 3 Zi v. 16.-17. Sævar Bjamason og Östenstad (Noregi) 3 v. 18. J.Chr. Hansen (Fær- eyjum) Vi v. Og þá var sest niður og reiknuð stig. Þau em fundin þannig að vinn- ingatala andstæðinganna er lögð saman og af einhverjum ástæðum dregnir frá tveir, sá efsti og sá neðsti. í ljós kom að Jóhann hafði hagstæð- asta stigatölu þeirra sem deildu 2. sæti en Hellers hafði einu stigi meira en undirritaður og var honum því dæmt 3. sæti. Slíkur stigaútreikning- ur hlýtur að vera afar hæpinn mælikvarði á styrk skákmanna en kannski er hvort eð er ekki hægt að taka svona mót alvarlega. Besta skák Jóhanns á mótinu var sjálfsagt gegn sigurvegaranum, Emst: Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Thomas Emst Kóngsindversk vöm 1. d4 RfB 2. c4 g6 3. Rf3 Bg7 4. g3 0-0 5. Bg2 d6 6. 0-6 Rc6 7. Rc3 a6 8. h3 Hb8 9. Be3 Svíinn er þekktur fyrir að þekkja skákbyrjanir flestum mönnum betur og því bryddar Jóhann upp á fremur fáséðum leik. Annars tefldi t.d. Kortsnoj þannig nokkrum sinnum hér á árum áður en nú hefúr leikur- inn fallið úr tísku. 9. - b5 10. Rd2 Ra5 11. cxb5 axb5 12. b4 Rc4 13. Rxc4 bxc4 14. b5 d5 15. a4 Bf5 Nýjung Emst en nægir ekki til þess að jafna taflið. Hér hefur verið leikið 15. - Bd7 sem Jóhann hugsaði sér að svara með 16. Rxd5!? Rxd5 17. Bxd5 Bxh3 18. Bxc4 sem gefúr hvít- um sterka stöðu fyrir skiptamun. ■ 16. a5 Dd7 17. h4 Forðar h-peðinu svo hann geti svarað 17. - Re4 með 18. Bxe4 dxe4 19. a6 (eða 19. Ha4!?). Jóhann hefirr reiknað flækjumar, sem nú fara í hönd, nákvæmlega. 17. - Rg4 18. Bf4 e5 19. dxe5 d4 20. Bc6! Dd8 21. Bg5 66 22. ex66 Bx66 23. Bxf6 Einnig kom 23. Re4 til greina. Nú verður hvíti riddarinn utangátta en frelsinginn á a-línunni er afar ógn- andi. 23. - RxfB 24. Ra2 d3 25. Da4! Dd4 26. e3 Dg4 27. a6 Þetta peð stöðvar svartur ekki með góðu en ef hann getur gefið skipta- mun fyrir það og fengið hvitreita- biskupinn verður hann ánægður. Hann hefur viss gagnfæri á kóngs- væng sem ekki má vanmeta. Þannig var 27. - Rh5!? e.t.v. betri tilraun og ef 28. Bd5+ þá 28. - Be6 - fóm á g3 liggur í loftinu. 27. - Be6 28. a7 Ha8 29. Rc3 Rh5 Hjartaasmn lá á gólfinu Hér er frægt spil sem kom fyrir á ólympíumótinu í Torino árið 1960 milli sveita Kanada og Englands. Austur gefur/allir á hættu. Á1072 K854 DG84 54 G9 G63 973 52 G1086 972 62 D10754 D9 K108 ÁKD3 ÁK83 Það vom gömlu stjömumar, Reese og Schapiro, sem héldu á n-s spilunum fyrir England og eftir nokkrar sekúnd- ur vom þeir komnir í þrjú grönd. Vestur spilaði út tígulgosa og háð- fuglinn Schapiro skoðaði blindan. „Hmmm,“ sagði hann. „Þetta gæti orðið skemmtilegt spil að spila. Óvenjuleg skipting. 44-2-2. Reese, sem venjulega er erfitt að koma úr jafnvægi, skoðaði hönd sína aftur. „Ég er víst aðeins með 12 spil, er það ekki?,“ sagði hann. „Það er nú frekar skrítið, er það ekki?“ Síðan leit hann niður og viti menn, á gólfinu lá hjartaásinn. Auðvitað hefði Reese sagt annað en þrjú grönd við tveggja granda opnun- inni, ef hann hefði séð hjartaásinn. Hvort þeir Schapiro hefðu komist í hjartaslemmuna, sem aldrei er hægt að tapa, verður aldrei upplýst. Schapiro var fljótur að vinna fimm grönd þegar hjartaásinn hafði bæst við spil Reese. Hins vegar var ekki ólíklegt að Kanada-parið á hinu borð- inu færi í slemmu og græða þar með töluvert á spilinu. Og eins og líklegt var, þá vom Kanadamennimir fljótir í slemmu, en þeir höfnuðu i sex gröndum, ekki sex hjörtum. En Kanadamaðurinn fékk aðeins 11 slagi og England græddi því 13 stig á spilinu. Auðvitað gat sagnhafi unnið slemmuna með þvi að tvísvína laufinu, en hann valdi aðra leið. Bridgedeild Barðstrendingafélagsins Staðan í sveitakeppni félagsins eft- ir 6 umferðir er þessi: 1. Þorsteinn Þorsteinsson 129 stig, 2. Þórarinn Árnason 109, 3. Ágústa Jónsdóttir 103, 4. Sigurður Kristjáns- son 97, 5.-7. Sigurður Isaksson, Viðar Guðmundsson og Jón Carlsson 93 stig, 8. Arnór Ólafsson. Mánudaginn 26. janúar verða spil- aðar 7. og 8. umferð. Spilað verður í Ármúla 40 og hefst keppni stundvís- lega kl. 19.30. Reykjavíkurmótið í sveita- keppninni Að loknum 12 umferðum af 21 í Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni, þar sem 6 efstu sveitirnar komast í úrslitakeppnina um Reykjavíkur- homið en 13 efstu í íslandsmótið, er staða efstu sveita þessi: 1. sveit Páls Valdimarssonar, BR, 234 stig 2. sveit Pólaris, BR, 228 stig 3. sveit Samvinnuferða/Landsýnar, BR, 222 stig 4. sveit Atlantik, BR, 203 stig 5. sveit Delta, BR, 202 stig 6. sveit Ólafs Lárussonar, BR, 198 stig 7. sveit Jóns Hjaltasonar, BR, 197 stig 8. sveit Sigfúsar A. Árnasonar, TBK, 187 stig 9. sveit Sigtryggs Sigurðssonar, BR, 186 stig 10. sveit Aðalsteins Jörgensen, BR, 186 stig 11. sveit Sigurðar Sigurjónssonar, BR, 184 stig 12. sveit Sigmundar Stefánssonar, BR, 176 stig 13. sveit Fram, BR, 168 stig 14. sveit Guðmundar Thorsteinsson- ar, BFB, 167 stig Næstu fjórar umferðir verða spil- aðar næsta laugardag og sunnudag í Sigtúni 9 og hefst spilamennska kl. 13 báða dagana. Frá Bridgefélagi Tálknafjarð- ar Eftir tvö kvöld af þremur í hrað- sveitakeppni félagsins er staða efstu sveita: 1. sveit Ævars Jónassonar 1073 stig 2. sveit Björns Sveinssonar 1060 stig 3. sveit Sigurðar Skagfjörð 980 stig Vestfjarðamótið í sveitakeppni 1987 verður haldið á Isafirði helgina 30.-31. maí og verður væntanlega með hefðbundnu sniði, þ.e. allir spila við alla. Nánar síðar. Frá Bridgefélagi Akureyrar Akureyrarmótið í tvímennings- keppni hófst sl. þriðjudag. 40 pör eru í mótinu, sem spilað er eftir barómet- er-fyrirkomulagi, með þremur spilum milli para. Að loknum 7 umferðum (af 39) er staða efstu para þessi: 1. Símon I. Gunnarsson - Jón Stef- ánsson 149 stig 2. Gunnlaugur Guðmundsson - Magnús Aðalbjörnsson 97 stig 3. Árni Bjarnason - Kristinn Krist- insson 80 stig 4. Anton Haraldsson - Ævar Ár- mannsson 79 stig 5. Arnar Jónsson - Örlygur Örlygs- son 75 stig 6. Björgvin Leifsson - Ormar Snæ- björnsson 65 stig 7. Frímann Frímannsson - Pétur Guðjónsson 53 stig 8. Sigfús Aðalsteinsson - Ragnar Gunnarsson 48 stig 9. Kári Gíslason-Sigfús Hreiðarsson 46 stig Mótinu verður framhaldið næstu þriðjudaga. Frá Bridgefélagi Reyðarfjarð- ar/Eskifjarðar Eftir fyrstu tvær umferðirnar í að- alsveitakeppni félagsins er staða efstu sveita: 1. sveit Trésíldar 50 stig 2. sveit Árna Guðmundssonar 50 stig 3. sveit Jóhanns Þórarinssonar 36 stig 4. sveit Hauks Björnssonar 29 stig 10 sveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni og spila allir v/alla, tvo íeiki á kvöldi. Frá Bridgesambandi íslands Minnt er á að frestur til að sækja um þátttöku í landsliðskeppni í kvennaflokki og flokki yngri spilara, f. eftir ’62, rennur út 10. febrúar. Keppnir þessar eru opnar öllum spil- urum. Sérstaklega er minnt á ákvæði landsliðsnefndar, að umsóknum verður að fylgja stutt yfirlit yfir kerfi viðkomandi para. Pörin geta sent þessi yfirlit í pósthólf 272 - 121 - Reykjavík (pósthólf Bridgesam- bandsins) um leið og umsóknir. Landsliðskeppnir þessar, sem haldnar verða helgina 21.-22. febrúar í Sigtúni 9, verða með Butler-sniði, þ.e. tvímenningur með sveitakeppn- isútreikningi. Að keppni lokinni mun landsliðsnefnd velja pör úr báð- um flokkum til áframhaldandi keppni í mars. Álls sóttu 8 pör um rétt til þátttöku í Evrópumótinu í tvímenningskeppni sem haldið verður í París helgina 27.-29. mars nk. ísland á rétt á að senda 7 pör þannig að Bridgesam- bandsstjórn verður að velja þátttak- endur eins og auglýst var. Val á þessum 7 pörum.mun liggja fyrir um helgina en nokkur af stigaefstu pör- um Bridgesambandsins sóttu um. Meistarastigaskrá Bridgesam- bandsins er tilbúin til prentunar og verður væntanlega dreift til félag- anna í næstu viku. I skránni er að finna nöfn tæplega 3 þús. spilara sem hlotið hafa stig í keppnum innan- lands og eru á skrá hjá einhverju hinna 50 félaga innan vébanda sam- bandsins. Skrifstofa BSÍ mun frá og með 2. febrúar nk. verða til húsa að Sigtúni 9 í Reykjavík. Nýtt símanúmer skrif- stofunnar er: 91-68 93 60. Gjalddagi árgjalda félaganna til Bridgesambandsins var 15. janúar sl. Enn eiga nokkur félög óuppgert við sambandið. Er því hér með komið á framfæri að félögin standi klár að þessum gjöldum. Greiðslu má koma í póshólf 272 - 121 - Reykjavík eða beint til Ólafs Lárussonar. Og að lokum Guðmundarsjóður- inn. Framlögum má koma á hlaupa- reikning nr. 5005 í aðalbanka Útvegsbankans. Sjóðurinn er til styrktar húsakaupum BSÍ. Bridgefélag Breiðholts Nú stendur yfir aðalsveitakeppni félagsins með þátttöku 12 sveita. Síð- astliðinn þriðjudag var aðeins spiluð ein umferð og var smáuppákoma í tilefni 10 ára afmælis félagsins. Að þremur umferðum loknum er röð efstu sveita þessi: 1.-2. sveit Steindórs Ingimundarson- ar 55 stig 1.-2. sveit Guðmundar Baldurssonar 55 stig 3. sveit Baldurs Bjartmarssonar 53 stig 4. sveit Burkna Dómaldssonar 48 stig 5. sveit Bergs Ingimundarsonar 46 stig 6. sveit Rafns Kristjánssonar 45 stig Næsta þriðjudag heldur keppnin áfram. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.