Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987.
Fréttir
Gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Skiptamál en
ekki refsimál
„Á þessu stigi mólsins er gjaldþrot
Kaupfélags Svalbarðseyrar skipta-
mál en ekki refsimál," sagði Halldór
Kristinsson, sýslumaður í Þingeyj-
arsýslu og skiptaráðandi í þrotabúi
Kaupfélags Svalbarðseyrar. DV
spurði hann hvemig stæði á því að
engin lögreglurannsókn hefði verið
sett af stað til að rannsaka rekstur
Kaupfélags Svalbarðseyrar en þar
morar allt af meintum misferlum.
„Það er ekki gert róð fyrir lög-
reglurannsókn í lögum nema ef það
kemur fram í meðferð búsins að um
misferli sé að ræða og verður það
þá lagt til saksóknara," sagði Halld-
ór ennfremur.
Hann bætti við: „Tíminn fram að
þessu hefur farið í að meta kröfur
og fyrsti skiptafúndurinn hefur verið
haldinn þannig að það er ekki girt
fyrir neina lögreglurannsókn, gerist
þess þörf.“
- Nú liggur fyrir hjá kaupfélaginu
staðfest skattsvik og meint fölsun
ársreikninga, innbrot í kjötgeymslu,
bókhaldsóreiða, týnd skuldabréf og
lán sem kaupfélagsstjóri og gjaldkeri
tóku sér án vitundar stjómar til að
byggja sér einbýlishús. Hefúr þetta
ekki komið fram í meðferð búsins
og ef svo er, er það þá ekki næg
ástæða til að óska lögreglurann-
sóknar?
„Ég vil hvorki né get tjáð mig um
þetta, það sem þú nefnir. Ég get
ekki farið að útskýra þetta gjald-
þrotamál í einstökum liðum. Við
erum að skoða það í heild sinni.“
Lögreglurannsókn?
- Nú finnst mörgum sem mál Kaup-
félags Svalbarðseyrar minni nokkuð
ó Hafskipsmálið en í því síðamefnda
var gengið af óvenjumikilli hörku
að rannsókn málsins og menn settir
í gæsluvarðhald. Hefur lögreglu-
rannsókn ekki komið til greina í
Svalbarðseyrarmólinu?
„Um svona nokkuð get ég heldur
ekki tjáð mig en menn ættu að hafa
í huga að gæsluvarðhald er alvarlegt
mál.“
- Má búast við skýrslu frá skipta-
stjóra í gjaidþrctamáli kaupfélagsins
Kaupfélagið Svalbarðseyri.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
og átti sér stað í Hafskipsmálinu?
„Ég get ekki svarað þessari spum-
ingu öðmvísi en að vitna í 91. grein
gjaldþrotalaganna þar sem segir að
telji skiptastjóri að þrotamaður eða
aðrir kunni að hafa gerst sekir um
refsivert athæfi skal hann tilkynna
það til ríkissaksóknara sem kveður
á um rannsókn málsins. Sú rann-
sókn skal fara fram að hætti opin-
berra mála.“
Halldór bætti við að ó fyrsta
skiptafúndinum, sem haldinn var á
dögunum, hefði fúndurinn ákveðið
að skiptastjóri gæfi kröfuhöfum á
skiptafimdi skýrslu um allar hugs-
anlegar málshöfðanir af hálfu
búsins.
- En þarf ekki fleiri en einn skipta-
stjóra í málið? Það vom t.d. tveir
skiptaráðendur í Hafskipsmálinu og
nokkrir skiptastjórar.
„Það er skiptafúndur sem ákveður
hver og hversu margir skiptastjórar
em. Skiptafúndurinn í þessu máli
kaus að hafa Hafstein Hafsteinsson
einan til að vera skiptastjóri. Að
sjálfsögðu kallar Hafsteinn sér svo
aðstoðarmenn eftir þörfúm þannig
að hann er ekki einn í málinu. Það
má ekki skilja það svo,“ sagði Hall-
dór
Upphaf málsins
Beðið var um opinbera rannsókn
á rekstri Kaupfélags Svalbarðseyrar
í febrúar sl. Það gerði Aðalsteinn
Jónsson, bóndi á Víðivöllum í
Fnjóskadal. Aðalsteinn skrifaði rík-
issaksóknara langt bréf þar sem
hann rökstuddi meint misferli í
rekstrinum.
„Þetta mál snýst um meint bók-
haldssvik, skattsvik og fjárdrátt.
Stjóm félagsins hefur tekið óskiljan-
lega lint á málum, miðað við þær
upplýsingar sem hún hefur fengið frá
kjömum endurskoðendum undan-
farið. Sumt er að fymast og ég tel
ekki forsvaranlegt að það sé hylmt
svona yfir þetta lengur."
Þetta sagði Aðalsteinn í samtali
við DV 17. mars um beiðni sína um
opinbera rannsókn. Ríkissaksóknari
bað sýslumanninn á Húsavík um að
jdirheyra stjómendur kaupfélagsins
um efiii bréfsins.
Yfirheyrslur hófust
Niðurstaðan úr þeim yfirheyrslum
varð sú að ríkissaksóknari sendi rík-
isskattstjóra upplýsingar um málið,
sem leiddi til rannsóknar á bókhaldi
Kaupfélags Svalbarðseyrar. Sú
rannsókn leiddi aftur til þess síðar
að margir höfðu vantalið tekjur og
fengu aukaálagningu frá skattstjór-
anum í Norðurlandsumdæmi eystra.
Engar upplýsingar hefur verið hægt
að fá um það hversu mikil auka-
álagningin hefúr verið.
Þann 28. ógúst sl. skýrði DV frá
því að stjóm Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar hefði farið fram á gjaldþrota-
skipti og næmi gjaldþrotið 126
milljónum samkvæmt hjálögðum
reikningum.
Kaupfélagið hafði þá verið með
greiðslustöðvun í fimm mánuði þar
á undan. „Ég get ekkert sagt um það
á þessu stigi málsins,“ sagði Halldór
Kristinsson sýslumaður við DV um
það hvort hann ætlaði að láta rann-
saka rekstur kaupfélagsins með grun
um það að þar hefðu átt sér stað
saknæmir hlutir.
„Málið er ekki á okkar vegum
ennþá,“ sagði Jónatan Sveinsson
vararíkissaksóknari við DV að lok-
inni rannsókn ríkisskattstjóra.
Og Jónatan bætti við: „Málið
verður ekki hjá okkur nema að
skiptaráðandi sendi það til okkar,
komi til gjaldþrots, og þá að hann
telji ástæðu til að lóta rannsaka
ákveðna þætti með tilliti til saka-
dómsmeðferðar.11
Til upprifjunar í Hafekipsmálinu
þá kom beiðni um gjaldþrot 6. des-
ember 1985. Það var svo 6. maí sem
skiptaráðendur sendu ríkissaksókn-
ara skýrslu þar sem grunur lá fyrir
um meint misferli. Fimmtán dögum
síðar, eða þann 21. maí, tók Rann-
sóknarlögregla ríkisins forráðamenn
Hafekips og setti þá í gæsluvarðhald.
inn á borð til ríkissaksóknara, ems
DV-mynd JGH
Samkomulag
náðist um sigl-
ingu Akraborgar
„Við erum með þessu eiginlega að
ýta vandanum á undan okkur en um
það náðist samkomulag vegna sér-
stæðra starfa áhafnarmeðlima Akra-
borgar," sagði Helgi Ibsen,
framkvæmdastjóri Skallagríms, út-
gerðarfélags Akraborgar, en um
helgina náðist samkomulag um það
að siglingar Akraborgar hæfust að
nýju, enda þótt deila undirmanna á
farskipum sé enn óleyst. Undirmenn á
Akraborg eru í stéttarfélagi þeirra.
Sagði Helgi að það hefði lengi verið
áhugamál forsvarsmanna Akraborgar
að Ákraborgin stöðvaðist ekki vegna
verkfalla farmanna enda vinna um
borð í skipinu ólík því sem er um borð
í fraktskipunum. Framhaldið sagði
Helgi verða það að menn myndu nú
setjast niður og reyna að semja og
takmarkið væri að ljúka samningum
við alla starfemenn Akraborgar fyrir
31. maí. -ój
Gleðskapur í
miðborginni
Mjög erilsamt var hjá lögreglunni í
Reykjavík aðfaranótt laugardagsins.
Margt ungt fólk safnaðist saman í
miðbænum að loknum dansleikjum og
stóð glaumurinn fram undir morgun.
Nokkrar rúður voru brotnar og vitað
er að tveir menn urðu sárir eftir átök.
Meiðsli þeirra voru þó ekki alvarleg.
Lögreglan telur að ástæður þessara
óláta séu einkum að prófiun var að
ljúka í mörgum skólum og veður með:
eindæmum hagstætt til útiveru.
Aðfaranótt sunnudagsins var meiri
ró yfir bæjarlífinu. Þó kom til átaka
á tveim skemmtistöðum þannig að
flytja varð tvo á slysavarðstofuna.
Þeir voru þó ekki alvarlega slasaðir.
GK
Samningar á
heimavelli
Samningaumleitanir Verkakvenna-
félagsins Snótar og vinnuveitenda í
Vestmannaeyjum hafa staðið yfir hjá
sáttasemjara í nærri tvær vikur án
árangurs. Nú hafa deiluaðilar ákveðið
að fara heim til Vestmannaeyja og
reyna að ná sáttum þar. Ekki er
ákveðið hvort einhver fulltrúi ríkis-
sáttasemjara fer til Eyja að stýra
samningamálunum en samningafund-
ur hefur verið boðaður í deilunni í
dag, mánudag. -S.dór
I dag mælir Dagfari
Hrafninn flýgur
Á hinu háa alþingi hefur verið rif-
ist mikið siðustu vikuna. Aðallega
út í Sverri vegna Sturlu. Og eins út
í Sturlu vegna Sverris. En seint á
fimmtudaginn tók umræðan nýja
stefiiu. Eiður Guðnason gerði að
umtalsefni að margan embættis-
manninn mættl reka ef ætlunin væri
að reka alla þá sem eyddu fram úr
íjárlögum. Nefndi Eiður sérstaklega
fræðslu- og skemmtideild sjónvarps-
ins sem er undir stjóm Hrafiis
nokkurs Gunnlaugssonar sem fræg-
ur er um allan heim og þó einkum
í Svíþjóð. Ekki var Eiður Guðnason
fyrr búinn að sleppa orðinu en Hrafn
tók til við að úthúða Eiði af sama
myndarskapnum og menn hafa verið
að úthúða Sverri og Sturlu undan-
farinn hálfan mánuð. Bendir allt til
þess að deila þeirra Eiðs og Hrafhs
geti orðið jafhtvísýn og spennandi
eins og Sturlumálið og er það mikið
gleðiefni fyrir þjóðina, sem var hvort
sem'er orðin leið og rugluð á fjasinu
út af fræðslustjóranum.
Sannast hér sem fyrr að illt er að
egna óbilgjaman. Hrafn Gunnlaugs-
son lætur ekki þingmanninn og
útvarpsráðsmanninn Eið Guðnason
vaða ofan í sig að óþörfu. Hrafii
hefúr þetta að segja um Eið: Hann
er rógberi sem misnotar aðstöðu sína
og ofcækir stálheiðarlega menn að
ósekju. Það er gott að vita til þess
hvers konar innræti þessi þingmaður
hefur að geyma áður en gengið er
til kosninga, sérstaklega þegar haft
er í huga að Alþýðuflokkurinn ætlar
að gera þennan mann að mennta-
málaráðherra ef flokkurinn kemst
til valda.
Svo mörg vom þau orð og Hrafii
ætlaði nú um helgina að ræða við
fjölskyldu sína og samstarfsmenn og
íhuga hvort ekki væri réttast að
kæra þingmanninn fyrir atvinnuróg.
Bendir hann á að eyðsla hans og
skemmtideildarinnar hafi aðeins far-
ið sex prósent fram úr fjárhagsáætl-
un sem ku vera stórsigur fyrir Hrafri
og persónulegt met eftir því sem
hann segir sjáfur.
Nú er rétt að taka fram að ánægju-
legt er að heyra að Hrafn Gunn-
laugsson hafi hugsað sé að ræða við
fjölskylduna. Ef menn þurfa að geta
þess í blöðunum þegar þeir mega
vera að því að tala við sína nánustu,
hlýtur það að teljast til undantekn-
inga hjá svona önnum köfnum
mönnum og ber að þakka Eiði fyrir
að eiga þátt í því að fjölskyldan heyri
í Hrafrii. Hitt er einnig fióðlegt fyrir
almenning að sjá það og lesa hvílík-
ir kærleikar ríkja milli útvarpsráðs-
manna og starfcmanna Ríkisút-
varpsins. Og það er óneitanlega
nýstárlegt að uppgötva að það flok-
kist undir atvinnuróg hjá útvarpsr-
áði ef sagt er frá því, að deildir
Ríkisútvarpsins fari fram úr áætlun-
um.
Nú er ekki gott að átta sig á því
hvers vegna Hrafn bregst svon°
ókvæða við. Hann segir sjálfur frá
því að hann hafi farið sex prósent
fram úr áætlun, sem nemur í krónum
um það bil fjórum milljónum. Bless-
aður fræðslustjórinn fyrir norðan fór
sjö prósent fram úr fjárlögum og
hefiir þó ekki hótað neinum mála-
ferlum. Hvað þá að hann hafi hugsað
sér að tala við fjölskylduna.
Sturla fékk reisupassann hjá ráð-
herranum og telst það nokkur ósigur
eftir þvi sem manni skilst á umfjöll-
un um það mál. Hrafn segir það hins
vegar stórsigur fyrir sig að eyða §ór-
um milljónum umfram heimildir.
Sínum augum lítur hver á silfiið.
Manni finnst einhvem veginn að
óþarfi sé fyrir sigurvegarann í sjón-
varpinu að æsa sig út af því niður í
rass þótt Eiður Guðnason veki at-
hygli á þessum stórsigri. Hvað þá
að láta það raska svo ró sinni að
taka upp á því að tala við íjölskyld-
una af því tilefiii.
En sem sagt, Hrafn tók þann kost-
inn að svara Eiði fullum hálsi og
einhverja næstu daga munum við fá
að heyra hvort af málsókninni verð-
ur. Það gætu orðið æsispennandi
málaferli í kjölfarið á kaffibauna-
málinu þar sem sannast hefur að
sannleikanum er hver sárreiðastur.
Eitt er víst að ef Hrafn getur orðið
reiður þegar stórsigra hans er getið,
þá getur Eiður líka orðið bæði leiður
og reiður þegar hann er sakaður um
róg fyrir að segja sannleikann um
aðra. Hann mun taka á móti Hrafiii
og þessi orrahríð gæti orðið yrkisefni
í blóðrautt sólarlag og ódýran
skemmtiþátt hjá sjónvarpinu.
Kannski er leikurinn til þess gerður.
Dagfari