Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. Útlönd Hér eru nokkrir (rönsku hjálparstarfsmannanna sem rænt var í Sómal- íu á föstudagskvöldið. Vopnaðir menn réðust inn í flóttamannabúðirnar þar sem Frakkarnir störfuðu við hjúkrunarstörf og höfðu þá á brott með sér. Símamynd Reuter Frökkum rænt í Sómalíu Engar fréttir hafa borist af írönsku hjálparstarlsmönnunum tíu sem rænt var úr flóttamannabúðum í Norður-Sómalíu á föstudagskvöldið. Að sögn vitna sögðu mannræn- ingjamir, sem voru vopnaðir, að líf gíslanna væru ekki í hættu. Kváðust þeir ræna fólkinu til að vekja at- hygli á því sem væri að gerast á svæðinu. Undanfamar vikur heíúr verið ókyrrð í kringum borgina Hargeisa, þar sem skæruliðar hafa gert árásir samtímis sem íbúamir hafa mótmælt matvælaskorti. Fyrir tveimur vikum náðu skæmliðar á vald sitt Burao í nokkrar klukkustundir en sú borg er hundrað og sextíu kílómetra fyrir austan Hargeisa. Engin samtök hafa, að því er síð- ast fréttist, lýst yfir ábyrgð á mannráninu. Boli vann á ippon Spænski nautabaninn, Jose Ortesa Cano, reið ekki feitum hesti frá viður- eigninni við bolann hér á myndinni þegar hann ætlaði að sýna listir sínar i San Cristobal i Venezuela á laugardaginn. Og munaði raunar ekki nema hársbreidd að það væri nautabaninn en ekki boli sem endaði ævi sina á leikvanginum. Eins og myndin ber með sér náði boli aö krækja ööru hom- inu i gegnum aöra buxnaskálm nautabanans, þröngar eins og þær voru þó. Auk þess varpaöi boli matadomum til jarðar, sem á júdómáli væri kallað að sigra á ippon, og endurtók bolinn þann leik svo að nautabanlnn var borinn lurkum lamlnn út af lelkvanginum en þó ekki hættulega særður ef frá er talið stoltið og brækumar. simamynd Reuter Fjffdjarft mannran I háskólanum í Beirút, þaðan sem fjórum bandarískum prófessorum var rænt um helgina, hefur verið lýst yfir verkfalli til þess að mótmæla mannr- áninu. Samtök hinna kúguðu í heiminum, eins og þau nefria sig, hafa lýst yfir ábyrgð á töku gíslanna, að því er seg- ir í útvarpsfréttum í Líbanon. Báðu samtökin Bandaríkjaforseta að hætta afskiptum af Persaílóastríðinu. Hót- uðu þau einnig að drepa einn gíslanna ef Líbana í haldi í Vestur-Þýskalandi yrði ekki sleppt. Ránið á prófessorunum fjórum var eitt hið fífldjarfasta í langan tíma. Furðulostnir stúdentar sögðu að það hefði verið eins og í kvikmynd frá Hollywood og einn prófessoranna fjögurra bað eiginkonu sína, er hann var dreginn burtu af mannræningjun- um, að hafa ekki áhyggjur þar sem þetta væri aðeins grín. Það voru fjórir snyrtilegir menn, vopnaðir bandarískum rifflum, sem komu í lögreglubíl að háskólalóðinni á hádegi á laugardaginn og kváðust komnir til að ræða öryggismál við erlent starfslið. Höfðu háskólayfirvöld farið fram á viðræður við lögreglu varðandi aukið öryggi fyrir starfsliðið og efaðist því enginn um að mannræn- ingjamir væru lögreglumenn. Um kvöldið komu svo ræningjamir til fundar við prófessorana fjóra sem ásamt eiginkonum sínum og einum starfsmanni háskólans biðu lögregl- unnar. Beindu ræningjamir rifflum sínum að höfði prófessoranna og drógu þá með sér út í lögreglubílinn og óku Prófessoramir fjórir, sem rænt var í Beirút á laugardaginn, Robert Polhill, á brott. Jesse Tumer, Mrthileshwar Singh og Alann Steen. - Símamynd Reuter Tveir líbanskir lögreglumenn aka bifreið sinni í gegnum aðalhlið háskólans í Beirút en þaðan var fjómm bandarískum prófessomm rænt á laugardaginn. Að sögn vitna komu mannræningjarnir, dulbúnir sem lögreglumenn, i lögreglubíl inn á háskólalóðina. _ símamynd Reuter Grænfriðungar á Suður- skautslandi Vísindamenn úr umhverfisvemd- arsamtökum Grænfriðunga komu til Suðurskautslandsins um helgina en tilgangur ferðalags þeirra er að vekja athygli á tillögu Grænfriðunga um að Suðurskautslandið verði frið- lýst sem eins konar þjóðgarður alheimsins. Grænfriðungur, skip samtakanna, varpaði akkeri við Evans-höfða á ross-eyju og áhöfhin hófst þegar handa við að skipa upp á land farm- inum sem er aðallega byggingarefhi fyrir bækistöð leiðangursmanna. Gert er ráð fyrir að það taki um einn mánuð að reisa bækistöðina. Næstu sjö mánuðina ætla leiðang- ursmenn að rannsaka fiskistofria, kríl og áhrif kuldans á mannslíkam- ann. Geldof verðlaunaður Julius Nyerere, fyrrum forseti Tanzaníu, sést hér afhenda rokkstjörnunni, Bob Geldof, „Þriðja heims“-verðlaunin fyrir árið 1986 á sérstakri ráðstefnu sem undir helgina var haldin f London. - Viðurkenninguna fékk Geldof fyrir framtak hans til fjársöfnunar til þess að létta á hungursneyðinní I Afr- íku. „Life Aid“-hljómleikamir, sem Geldof gekkst fyrir og sjónvarpað var beint til poppmúsíkaðdáenda viða um heim, björguðu mörgum úr greipum hungurvofunnar. Simamynd Reuler

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.