Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987.
Útlönd
ísmyndalist
í Cran-Montana í Sviss hafa menn að
undanförnu búið sig undir heims-
meistaramótið á skíðum 1987 sem
þar á að fara fram. Hér á myndinni
fyrir ofan sést listamaðurinn leggja
síðustu hönd á ísstyttu, sem er tákn
mótsins, en hún stendur við aðalgöt-
una inn í bæinn. - Slmamynd Reuter
Umsjón:
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir og
Guðmundur G.
Pétursson
Fagna nýju ári
Það voru Kinverjar, sem fundu upp
raketturnar og púðurkerlingarnar,
enda eru þær öðru nafni oft kallaðar
„kinverjar". Þeirra dagatal er frá-
brugðið okkar, meðal annars að þvi
leyti að það er loks núna fyrst sem
áramótin renna upp hjá þeim og nýtt
ár byrjar. Að sjálfsögðu er þá sprengt
mikið af „kinverjum" og flugeldareg-
nið er gífurlegt. Á öðru hverju götu-
homi í Peking eru settir upp
söluturnar, sem selja flugelda og púð-
urkerlingar, og á myndinni hér fyrir
ofan eru nokkrir ungir Kínverjar að
byrgja sig upp. - Símamynd Reuter
15 fórust í
aurskriðu
Fimmtán fórust og fjörutíu og
fimm slösuðust þegar aurskriða féll
yfir nær fimmtíu heimili í einu af
fjallaþorpum Andesfjalla. Björgun-
arsveitir leituöu í gær tíu sem
saknað var til viðbótar.
Leirskriðan féll eflir að stífla brast
á föstudag. Flóðbylgjan færði með
sér leir og stórgrýti yfir þorpið
Chuschi, sem er suðaustur af höfuð-
borginni Lima (675 km). Um 340
manns misstu heimili sín í þessum
hamförum. - Stíflan brast þegar yfir-
borð uppistöðulónsins að baki henni
hækkaði eftir miklar úrhellisrign-
ingar.
Það var í Ayacucho-héraði sem
skæruliðar Maoista hófu baráttu
sína í Perú 18. maí 1980 með því að
brenna kjörkassa í forsetakosning-
unum þegar lýðræði var innleitt í
Perú að nýju eftir tólf ára herstjóm.
Eðvarð ÞórEðvarðsson, íþróttamaður ársins:
„Æfi 6 tíma á dag
botóaréttog
„Þú kemst ekki á heimsafrekslista og setur ekki vel á annað hundrað
Islandsmet eða Norðurlandamet eins og Eðvarð án þess að hugsa um hvað þú
lætur ofan í þig“, segir þjálfari Eðvarðs, Friðrik Ólafsson. Með eftirtektarverðri
samvinnu og skipulegri uppbyggingu hefur þeim tekist að ná stórkostlegum
árangri og stefna enn hærra. Veigamikill þáttur þjálfunarinnar er heilbrigt
mataræði. Það hefur áhrif á alla starfsemi líkamans, hvort sem um er að ræða
skaphöfn, taugaviðbrögð, styrk eða annað.
Mjólkin er ómissandi uppistaða í daglegu fæði allra þeirra sem hugsa um
andlegt og líkamlegt heilbrigði. Hún er ótrúlega auðug uppspretta af fjölbreyttum
bætiefnum. Úr mjólkinni fáum við kalk, magníum, zink, Aog B vítamín,
steinefni, amínósýrur og fjölmörg önnurefni, sem eru líkamanum
lífsnauðsynleg.
Vegna þessa mikilvægis mjólkurinnar verður aldrei of oft brýnt fyrir ungum
sem öldnum að tryggja líkamanum nægilegt magn af mjólk eða
mjólkurmat á hverjum degi.
MJOLKURDAGSNEFND
íþróttamaður ársins, Eðvarð Þór
Eðvarðsson, sem hefur skipað sér
sess á meðal besta sundfólks í heimi
er vel meðvitaður um mikilvægi
mjólkur í alhliða líkamsuppbyggingu.
Engir sætudrykkir geta komið í stað
mjólkurinnar. Mjólk eða mjólkurmatur
er sjálfsagður hluti af hverri máltíð.
* íMeð mjólk er att við nymjólk, létfejólkog undanrennu).