Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Page 18
18 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. Þrotabú prentsmiðjunnar Hóla hf. Eignir þrotabúsins, fasteign, vélar, tæki o.fl., eru til sölu. Leitað er kaupanda, eins eða fleiri, í sameiningu að öllum eignunum í heild. Væntanlegum kaupendum gefst kostur á að endurnýja tilboð sín eða gera ný til og með 30. janúar 1987. Hlöðver Kjartansson hdl. skiptastjóri. Lögmenn, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði, sími 50611. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Langar ykkur ekki að breyta til? Okkur bráðvantar hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til afleysinga. Góð vinnuaðstaða og léttur vinnu- andi meðal starfsfólks. Að sjálfsögðu bjóðum við upp á góð launakjör og gott húsnæði. Mikil vinna ef ósk- að er. Ef þið hafið áhuga þá hafið samband við hjúkrunarforstjóra í síma 96-71166 og heima í síma 96-71417. Sjúkrahús Siglufjarðar. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Félagsstarf aldraðra hjá Reykjavíkurborg. Félags- og tómstundastarf aldraðra hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar auglýsir eftir forstöðu- manni í Furugerði 1. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu í félagsmálum. Laun skv. kjarasamningum starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Staðan er 50% og vinnutími frá 13.00-17.00. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar. Upplýsingar gefur Anna Þrúður Þorkelsdóttir í síma 36040 eða 39225. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Styrkur til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Finnlandi Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islendingi til háskólanáms eða rannsóknastarfa í Finnlandi námsárið 1987-88. Styrkurinn er veittur til níu mán- aða dvalar og styrkfjárhæðin er 1.400-2.200 finnsk mörk á mánuði. Umsóknum um styrkinn skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 22. febrúar nk., á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Umsókn fylgi staðfest afrit prófskírteina, meðmæli og vottorð um kunnáttu í finnsku, sænsku, ensku eða þýsku. 21. janúar 1987, Menntamálaráðuneytið. Félagsstofnun stúdenta auglýsir: Útboð II - uppsteypa og frágangur Félagsstofnun stúdenta óskar eftir tilboðum í upp- steypu og annan frágang að „tilbúnu undir tréverk" vegna 1. áfanga nýrra stúdentagarða við Suðurgötu í Reykjavík. Jarðvegsskiptum í lóð er lokið. Stærð þessa 1. áfanga er u.þ.b. 5300 m2 eða um 16.500 m3. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 1988. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofunni FERLI H/F, Suðurlandsbraut4, Reykjavík, frá og með þriðju- deginum 27. janúar 1987 (eftir hádegi) gegn 25.000,- króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut, Reykjavík, þriðjudaginn 24. febrúar 1987 kl. 11.00 aðviðstöddum þeim bjóðendumer þess óska. Félagsstofnun stúdenta. Menning Vel heppnuð kynning á íslenskri menningu í Dusseldorf Vilhjálmur Bergsson - „list sem tjðir mismunandi lífssvið". Um næstu mánaðamót lýkur mikilli norrænni menningarkynn- ingu sem staðið hefur yfir í Diissel- dorf í Þýskalandi síðan í september 1986 og hafa menn líkt henni við „Scandinavia Today“ herferðina í Bandaríkjunum að umfangi. Framlag íslands var í fyrsta lagi einkasýning Vilhjálms Bergssonar listmálara, sem búsettur er í Diisseldorf, fyrirlestur Ulrichs Gro- enke, prófessors við Kölnarháskóla, um íslenska menningu á miðöldum, íslenskt sönglagakvöld með Eiði Gunnarssyni, bassasöngvara við Óperuna í Aachen, og Agnesi Bald- ursdóttur píanóleikara og loks fór fram kynning á íslenskri nútíma- ljóðlist, aðallega skáldskap Steins Steinarr, Baldurs Óskarssonar og Guðbergs Bergssonar. Marita Bergsson þýddi ljóðin og las þau upp ásamt Matthias Friedrich leikara. Meðan á norrænu menningar- kynningunni stóð voru myndverk eftir Helga Gíslason myndhöggvara einnig til sýnis í Galleri Vömel í Dusseldorf. Loks kynnti Heimir Áskelsson orgelleikari verk eftir íslensk tón- skáld og verk eftir Atla Heimi Sveinsson var flutt á kynningu á norrænni nútímatónlist. Steinunn Sigurðardóttir var einnig á staðnum og las upp úr verkum sín- um og sýndar voru litskyggnur frá íslandi. Miklar víðáttur... Af blaðaúrklippum að dæma virð- ist þessi íslenski menningarútflutn- ingur hafa vakið talsverða athygli. f bréfi segir Vilhjálmur Bergsson að íslandskynningin hafi fengið mesta umfiöllun í þýskum fiölmiðlum, ásamt sýningunum „Im Lichte des Nordens“ og „Glas in Schweden 1915-1960“. í Rheinische Post, sem er eitt stærsta blaðið í Diisseldorf, ber gagnrýnandi saman myndir Þórar- ins B. Þorlákssonar á norrænu samsýningunni og myndir Vilhjálms Bergssonar: „Hið bjarta ljós í lands- lagsmynd Þórarins vekur grun um miklar víðáttur að baki sjóndeildar- hringsins. Bergsson.. .byggir myndir sínar upp jafnt með óreglulegum formum sem kristalformum, líkt og sjá má ef horft er í smásjá. Böðuð ljósi svífa þau hljóðlátt í víddum alheimsins." Westdeutsche Zeitung segir um listamanninn: „Hann fæst við undir- stöður lífsins í list sinni. Venjulega eru þær sagðar vera örsmáar og ólýsanlegar. Bergsson skapar úr þeim litaglaðan og fiölþættan sjón- heim.. .í heild er hér um að ræða leyndardómsfullan heim sem opnast manni einungis eftir mikla umhugs- un.“ Önnur blöð fara einnig vinsamleg- um orðum um sýningu Vilhjálms Bergssonar í Benrath höll. Bæði sjálfstæð og evrópsk Rheinische Post gerði síðan úttekt á hinum íslenska þætti norrænu menningarkynningarinnar með eft- irfarandi hætti: „Það var sannarlega strax ljóst með sýningu málarans Vilhjálms Bergssonar hversu sjálf- stæð og um leið evrópsk menning þessarar litlu og fiarlægu eyþjóðar getur verið. Einnig á þjóðlagakvöldi Eiðs Gunnarssonar óx undrun og hrifhing jafnt og þétt, líkt og á síð- asta atriði íslensku menningarkynn- ingarinnar þar sem lesið var úr verkum íslenskra nútímaskálda. Marita Bergsson, sem þýtt hefur ljóð eftir ýmis þýðingarmestu ljóðskáld þessarar fiarlægu eyþjóðar, las upp ljóðin (sem voru) næstum undan- tekningarlaust á háu stigi. Landið fsland, sérstaða legu þess og tilvist- ar, framar öllu öðru samhangandi menningarsaga þess og áberandi menningaráhugi þjóðarinnar, gekk sem rauður þráður í gegn.“ _aj Glæsilegt „debut“ Tónleikar Grétu Guðnadóttur og Jónasar Ingimundarsonar i Norræna húsinu 20. jan- úar. Efnisskrá: Fritz Kreisler: Preludium og alle- gro; Johannes Brahms: Sónata i G-dúr, nr. 1 op. 78; Eugéne Ysaye: Sónata fyrir einleiks- fiólu op. 27 nr. 2; Maurice Ravel: Tzigane. í jólafríinu hafa nokkrir af okkar alefnilegustu strengleikurum leikið á tónleikum, ýmist einir eða saman. Sakir fiarveru varð undirritaður af þeim öllum nema þeim síðustu í röð- inni, „debuttónleikum" Grétu Guðnadóttur fiðluleikara. Ekki er Gréta með öllu ókunnug þeim sem á annað borð hafa fylgst með ungu tón- listarfólki á undanfomum árum. Hún er ein úr úrvalshópnum sem gerði garðinn frægan undir nafninu Tónlist Eyjólfur Melsted Strengjasveit Tónlistarskólans en ein- leikstónleikar þessir voru hennar fyrstu. Vanmetinn sakir vinsælda Efiiisskrá hennar á þessum tónleik- um var hreint ekki af léttara taginu, fiögur verk hvert öðm erfiðara. Fyrst var það gamii góði Kreisler. Það var kannski vegna vinsælda hans og róm- antísks stíls, sem ekki átti nákvæm- lega samleið með framúrstefnum sdmtímans, að Kreisler var lengi van- metinn. En nú taka ungir fiðluleikarar verk hans gjama upp á verkefnaskrá og þá fyrst og fremst vegna þess að þau gefa hverjum fiðlungi færi á að sýna hvað í honum býr. Þar sýndi Gréta strax að hún hefur nýtt náms- tíma sinn vel. Að koma samleikandanum til að springa út Brahmssónatan fannst mér ívið of þung í heildina tekið. í adagiokaflan- um átti það út af fyrir sig ekki illa við en olli því að uppljómun síðasta kaf- lans, allegro, var daufari en efhi stóðu til. Fágun og vöndun leiksins sat í fyrirrúmi, en á kostnað tilþrifanna í þessu tilviki. Og ekki var slegið af, því að loknu hléi kom Ysayesónatan fyrir einleiksfiðlu. Þar náði Gréta sér virki- lega á strik og lék með einstökum glæsibrag. Tzigane Ravels einkenndist af til- þrifamiklum leik, hlöðnum góðri tækni en jafhframt innlifun. Þar var líka samvinna Grétu og Jóasar hvað allra best. Jónas er einn þessara ein- stöku meðleikara sem komið geta samleikendum sínum til að springa út og meðleikur hans átti sinn þátt í að gera þessa „debuttónleika“ Grétu Guðnadóttur svo afar glæsilega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.