Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Síða 26
26 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. fþróttir • Brynjar Kvaran. Erfittaðtaka við hlutverki Einars Steön Kristjánssan, DV, Roetodc „Ég er mjög ánægður með margt það sem íslenska liðið heíur sýnt hér á mótinu en alls ekki sáttur við sætið sem við uppskárum," sagði Brynjar Kvaran, markvörð- ur íslands. „Það var gríðarlega erfitt að taka við hlutverki Einars Þorvarðarsonar en ég er samt þokkalega sáttur við mina frammi- stöðu. Eg lék óneitanlega undir álagi og þrýstingi. Það var mjög slæmt að missa þrjá mikilvæga leikmenn íyrir leikinn gegn Svíum. Sérstaklega Alfreð sem var búinn að standa sig mjög vel á mótinu.“ -JÖG Sársvekktur Steön Kristjánssœi, DV, IJcstodc „Ég er sársvekktur,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson eftir leik- inn við Svíþjóð. „Við höfðum gullið tækifæri til að ná öðru sæti en það háði okkur að stór hluti liðsins skyldi hverfa úr mótinu. Liðið tók því miklum breytingum fyrir hvem leik en mestum fyrir Svíaleikinn. Við náðum þvi ekki samstiUingu. Þetta er vandinn sem við var að etja. Það er kaldhæðni örlaganna að lenda í 6. sæti eftir að hafa unnið Pólland og gert jafii- tefli við Sovétmenn og A-Þjóð- verja." -JÖG Bogdan vildl láta Tobba leika Stón Ktístjánssan, DV, Rœtodc Bogdan landsliðsþjálfari vildi endilega láta Þorbjöm Jensson leika á móti Svíum en Þorbjöm kom til Rostock á fostudaginn. Þorbjöm vildi hins vegar ekki leika - taldi það ekki sanngjamt gagnvart strákunum. Þá hafði Bogdan líka fullan hug á því að fa Kri6tján Sigmundsson út til Rostock þegar Einar Þor- varðarson fór til Spánar. Af því gat þó ekki orðið. -SMJ V-Þjóðverjar voru prúðastir - á Eystrasaltsmótinu Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc Á Eystrasaltsmótinu vom liðum veitt refsistig fyrir óprúðmannlega framkomu leikmanna inni á vellinum. Fyrir gult spjalt var liði veitt 1 refsi- stig, brottrekstur gaf 3 stig, rautt spjald vegna 3ja brottvikninga 10 stig og rautt spjald vegna brots 20 stig. Samkvæmt þessari stigagjöf varð röð liðanna þannig: 1. V-Þýskaland.............55 stig 2. ísland.......................57 3. Svíþjóð......................73 4. A-Þýskaland..................84 5. Sovétríkin...................99 6. Pólland.....................101 • Eins og menn sjá bersýnilega er umtalsverður munur á þeim þjóðum sem jámtjaldið aðskilur. Vestur-Evr- ópumenn hafa án efa verið prúðari á leikvelli í þessari Eystrasaltskeppni sem nú heyrir sögunni til. Vafasamt er þó að draga einhliða ályktun af þessum tölum því tilviljun getur ráðið miklu í handknattleik eins og í öðrum íþróttagreinum. -JÖG Sovétmenn unnu Eystrasaltsmótið - gjöisigraðu A-Þjóðverja i urslitaleik Slefin Kristjánsgan, DV, Rostodc Sovétmenn lögðu A-Þjóðveija að velli í úrslitaleik Eystrasaltsmótsins með 27 mörkum gegn 17. Staðan í leikhléi var 10-9 Sovét- mönnum í vil. Fyrri hálfleikurinn var því mjög jafii en það var raunar Frank Wahl sem hélt Þjóðveijunum á floti lengst af. Hann skoraði 5 af 9 mörkum þýska liðsins í hálfleiknum. í síðari hálfleik yfirspiluðu Sovét- menn síðan A-Þjóðveija og vakti ágætur leikur þeirra athygli og jafii- framt dólgslæti þjálfarans. Framkoma hans þótti ekki Ráðstjómarríkjunum til sóma enda risu áhorfendur upp og bauluðu og blístrpðu á hvem hans geming. Furðu vakti að lélegir dómar- ar leiksins skyldu ekki ávíta þjálfar- ann fyrir „kjaftbrúkið" - venjulega em slíkar kempur kældar með rauðu spjaldi. • Markahæstir Sovétmanna voru Alex- ander Karschakewitsch með 7 mörk og Georgij Swirdenco með 6. Markahæstir A-Þjóðverja voru Frank Wahl með 6 mörk og Riidiger Dorchardt með 6/2. -JÖG • Maradona er bersýnilega mannlegur. Hann þarf að leggja hart að sér eins og aðrir keppnismenn. Hér er knatt- spyrnugoðið með tungu úti á kinn og í þann veginn að snúa á japanskan andstæðing sinn. Mynd þessi er úr góðgerðarleik S-Amerikumanna og Japana sem fór fram á laugardag til styrktar Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF. Ameríkumenn sigruðu þá japönsku með einu marki gegn engu. Símamynd/Reuter ■ Igor Belanov i i i I Fáeinum dögum eftir að Sovét- Imaðurinn Igor Belanov hafði verið kjörinn knattspymumaður Evr- lópu hélt hann í keppnisför með * félagsliði sínu, Dynamo Kiev, til | Vestur-Þýskalands. Hinn 26 ára Jgamli sóknarleikmaður fékk að I kynnast sviðsljósinu á þessum ■ dögum. Fréttamenn og umboðsað- |ilar stórliða fylgdu hvarvetna á Ihæla hans. Þjálfara Kiev þótti þessi ágengni afar hvimleið og sagði hann blaða- I mönnum, og öðrum er heyra vildu, “að Igor Belanov væri ekki sölu- I vamingur. I „Belanov er lykilleikmaður í so- |véskri knattspymu, afþeimsökum Ier mikilvægt að hann leiki í sínu heimalandi. En ef einhver hefúr Iáhuga þá er Oleg Blochin heimilt að leika með félagsliðum í Vestur- | Evrópu.“ |_ 'JÖGJ Leikurinn í tölum Stefin Kristjánssan, DV, Rœtodc •Kristján Arason: 10 skot, 5 mörk/1, 4 varin/1,1 skot framhjá og bolta tap- að 1 sinni. •Guðmundur Guðmundsson: 6 skot, 4 mörk, 2 skot varin og 1 línusending. •Júlíus Jónasson: 8 skot, 4 mörk, 4 skot varin, bolta tapað 1 sinni. •Páll Ólafsson: 9 skot, 3 mörk, 4 skot varin, 2 framhjá, 1 bolti unninn, 3 boltum tapað, 2 línusendingar. t •Karl Þráinsson: 2 skot og 2 mörk. •Þorgils Óttar: 5 skot, 2 mörk,-2 skot varin og 1 framhjá, 1 línusending og víti fiskað 2 sinnum. •Sigurður Sveinsson: 5 skot, 1 mark/1, 4 varin/1, bolta tapað 1 sinni, 1 línusending. •Geir Sveinsson: Bolti unninn 1 sinni, víti fiskað 1 sinni. •Bjami Guðmundsson: 1 bolti unn- inn og 1 tapaður, 1 víti fiskað. •Héðinn Gilsson: Kom ekki við sögu. íslenska liðið skoraði 21 mark í 56 sóknum. Sóknamýting er því 37,5 %. Sænska liðið skoraði 23 mörk í 52 sóknum. Sóknamýting 44,2 %. •Brynjar Kvaran varði 11 skot. Mats Olson varði hins vegar 20 skot og 2 víti. Leikmenn úr hvom liði vom út af í 4 mínútur. JÖG Atli sá rautt Afli Hlmaissan, DV, V-Þýskaiandi: Það var lítið á döfinni í v-þýskum íþróttaheimi um helgina. Enda lék handknattleikslandslið þýskra á Baltic-mótinu í Rostock og Wismar. Knattspymumenn hafa einnig átt náðuga daga enda hlé á keppni og veður óhagstætt til æfinga. Þó vom nokkrir leikir í neðri deildum handboltans og þeirra á meðal leikur Leverkusen, lið Atla Hilmarssonar, við Altjúhrden á úti- velli. Heimamenn sigmðu, 21-20, eftir mikinn darraðardans. Vom sextán leikmenn reknir af velli í tvær mínútur en þrír fengu að líta rautt spjald í leiknum. Þeirra á meðal Atli Hilmarsson. „Ég hef sjaldan eða aldrei orðið vitni að lakari dómgæslu," sagði Atli í samtali við DV, „en maður jafiiar sig fljótt. Ég kem því galvask- ur í landsleikina á Flugleiðamótinu og það verður gaman að takast á við verkefiii með liðinu eftir nærri árs fjarvem." -JÖG Lineker og Hughes úr leik - og forskot Barcelona minnkar Það gengur allt á afturfótunum hjá Barcelona núna. Liðið mátti um helg- ina leika án enska landsliðsmannsins Gaiy Lineker sem er meiddur á hné. Börsungar gerðu því aðeins marka- laust jafntefli við Real Valladolid, að vísu á útivelli. En ekki er öll sagan sögð. Welska markavélin, Mark Hug- hes, verður í leikbanni gegn Real Madrid sem verða næstu andstæðing- ar þeirra Börsunga. Hughes fékk að líta fjórða gula spjaldið á tímabilinu og verður hann því að hvíla í næstu viðureign. „Toppslagur" spænsku deildarinnar verður því að fara fram án þeirra Lineker og Hughes. Terry Venables þjálfari er hins vegar með einvalalið á sínum snærum og þarf því ekki að stynja eða horfa í gaupnir sér. Þeir munu líklega leika gegn erki- fjendunum, fóstbræðumir Steve Árchibald og Bemd Schúster. Regin- fjendur þessir frá Madrid léku á hinn bóginn við hvem sinn fingur um helg- ina. Þó ekki fyrr en upp var staðið. Osasuna náði nefrnlega foiystunni í viðureign þessara liða með ágætu ,marki Michael Robinson. Það tók Madridbúa rúmar 60 mínútur að jafna og tæpar 90 mínútur að sigra. Mörk þeirra gerðu þeir S-Ameríkumennimir Jorge Valdano og Hugo Sanchez. Espanol, liðið í þriðja sæti spænsku deildarinnar, náði aðeins jöfiiu heima gegn Real Sociedad, 2-2. Barcelona heldur enn forystunni, er með 36 stig. Real Madrid bítur í hæla Börsunganna með 35 stig en Espanol er tveimur sigrum neðar með 31 stig. •Aðrir leikir í spænsku deildinni: Sabadell-Cadiz.....................1-0 Sevilla-Real Mallorca..............2-1 Athletic Bilbao-Racing........... 1-2 Real Murcia-Real Betis.............3-0 Sporting-Athletico Madrid..........1-1 Las Palmas-Real Zaragoza...........1-1 -JÖG •Lineker og Hughes. r i i i j Siggi Gunn j I feríupp- i I sku'6 i | Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc | INú er ljóst að Sigurður Gunnars-1 son þarf að fara í uppskurð 8.1 febrúar. Hann er með spmngu í I liðþófa í hné. . I „Þetta hefúr háð mér í nokkuð | * langan tíma og nú verð ég að fara a að gera eitthvað í málinu. Égl reikna með því að verða frá æfingu I og keppni í mánuð,“ sagði Sigurð- ■ ur Gunnarsson. | -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.