Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Qupperneq 38
38 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987. Dægradvöl Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni: „Erum að sækja í okkur veðrið" segir Ægir Ólafsson, starfsmaður félagsins að gera lífið ánægjulegt," sagði hann. Hafði lengi haft áhuga á svona félagi „Markmiðið er náttúrlega að koma fólki saman og bæta úr ein- angrun eldra fólks sem býr eitt,“ sagði Pétur H. Ólafsson aðspurður um markmið félagsins. Hann er einn af stofnfélögunum og sagðist lengi hafa haft áhuga á svona félagi. „Ég fóma mér eins og ég get í þágu fé- lagsins. Þetta er ákaflega skemmti- legt og gefur mér mikið,“ sagði Pétur. Hann sagði að það væri algengt að fólk kæmi eitt fyrst en kæmi síð- an með fleiri með sér í næsta skipti. „Þannig hefur félagið dafnað og vax- ið á undanfömu ári. Það er mikið af fólki úti í bæ sem er eitt og hefur ekkert við að vera og það er sjálf- sagt að bjóða upp á eitthvað eins og þessa starfsemi okkar.“ - En nú em Reykjavíkurborg og bæjarfélögin í nágrenninu með alls kyns starfsemi fyrir aldraða, er það ekki nóg? „Þú verður að athuga það að oft- ast miðast sú starfsemi við fólk sem er orðið 67 ára gamalt og komið á eftirlaunaaldur. Þeir sem em milli sextugs og 67 ára þurfa líka eitthvað fyrir sig, enda hætta sumir að vinna um sextugt. Svo er líka ágætt að hafa eitthvert val. Ég veit að það taka margir þátt í félagsstarfseminni hjá borginni einhverja daga vikunn- ar en koma svo líka hingað," sagði Pétur. Aðspurður sagði hann að aðsóknin væri að aukast í opna húsið hjá þeim. „Þetta er í fæðingarhríðunum hjá okkur. Dansæfingamar em mjög vinsælar eins og sjá má á aðsókn- inni þar sem mættu yfir 100 manns á mánudagskvöldið og stigu dans.“ Við verðum bara að vona að fæð- ingarhríðimar gangi vel hjá félaginu og að þær taki ekki alltof langan tíma. -SJ Dansinn stiginn á dansæfingu í Sigtúni og er ekki annað aö sjá en eldri borgaramir beri sig fagmannlega að á dansgóKinu. Dörnunni sveiflað með glæsibrag á dansæfingu hjá Félagi eldri borgara. Fyrir rúmu ári var stofhað í Reykjavík Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni þar sem lág- marksaldur meðlima er 60 ára. Það vom um 700 manns sem stofhuðu félagið en nú em félagar um 4.600. Félagið hefur því dafnað vel á þessu tæpa ári sem það hefur starfað. Formaður félagsins er Snorri Jóns- son. Nú í vetur hefur verið opið hús hjá félaginu í Sigtúni þar sem félag- ar koma saman, taka í spil, tefla eða fá sér bara kafifibolla. Spilamennsk- an er vinsæl hjá félaginu og á þriðjudögum er spiluð félagsvist en á fimmtudögum er það bridge. Á mánudögum er danskennsla sem Hermann Ragnar Stefánsson sér um, þar var „svaka stuð“ eins og ungl- ingamir mundu eflaust segja þegar við litum þar inn sl. mánudagskvöld. Okkur langaði að forvitnast nánar um félagið og fórum því inn i Sigtún og ræddum við gesti á opnu húsi. Reynum að gera lifið ánægju- legt „Við erum að sækja í okkur veðrið og erum með ýmsar nýjungar núna Bridge nýtur mikilla vinsælda hjá Félagi eldri borgara og vom margir alvarlega þenkjandi yfir spilunum sínum. efitir áramótin. Það er ekki allt kom- ið af stað en það stendur jafhvel til að vera með ljósmyndaklúbb og sönghóp. Síðan er að fara af stað námskeið í silkimálun. Þetta eru allt nýir klúbbar en fyrir áramótin var bara opið hús hjá okkur og þá réð fólk hvemig það eyddi tímanum hér í Sigtúni," sagði Ægir Ólafsson en hann er starfsmaður félagsins. Við spurðum hann hvemig starísemi félagsins væri fjánnögnuð? „Við fáum aðstöðuna hér í Sigtúni frítt en kafifisalan er á vegum hússins. Síðan borgar hver félagi árgjald sem var 500 krónur fyrir árið 1986.“ Meðlimir í Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni gera fleira heldur en að hittast og spila á spil eða tefla. Sl. sumar vom famar nokkrar ferðir út fyrir bæinn og vom þær vel sóttar. Nafii félagsins miðast við Reykja- vík og nágrenni en skilgreining á því svæði getur verið teygjanleg, enda hefur komið í Ijós að fólk af Suðumesjum, Selfossi og Akranesi hefur komið í opna húsið í vetur. „Félagið er ekki bara tómstunda- félag heldur höfúm við líka athugað ýmis hagsmunamál eldra fólks. Við höfum verið með lögfræðiaðstoð og útvegað félagsmönnum afslátt í ýms- um verslunum og í leikhús sem hefur verið mjög vinsælt," sagði Ægir. Við spurðum hann hvort þau hefðu hugsað sér að beita sér gagnvart hinu opinbera eða borginni um það að bæta aðstöðu fólks yfir sextugt. „Nei, ekki beinlínis. Við höfum aug- un opin fyrir ýmsum málum sem snerta eldra fólk. Við nennum ekki að standa í pólitík, heldur viljum við bara koma saman, hitta kunningja og spjalla. Markmiðið er að reyna Ægir Ólafsson, starfsmaöur Félags eldri borgara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.