Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Síða 39
MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 1987.
39
Dægradvöl
„Það gengur Ijómandi vel á þessu borði“ var svarið sem við fengum frá þeim Ragnheiði Sigurðardóttur, Stein-
grimi Aðalsteinssyni, Óskari G. Sigurðssyni og Áslaugu Árnadóttur. DV-mynd GVA
Ánægðir spilarar
Þau Ragnheiður Sigurðardóttir,
Steingrímur Aðalsteinsson, Óskar G.
Sigurðsson og Áslaug Ámadóttir voru
að koma í fyrsta skipti í Sigtún í
bridgespilamennsku hjá Félagi eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni. Þau
voru öll sammála um að það væri
skemmtilegra að spila bridge en fé-
lagsvist þó það væri líka ágætisspil
út af fyrir sig.
Óskar sagðist gera ýmislegt sér til
dægrastyttingar annað en að spila.
„Ég fer í sund daglega og leikfimi
tvisvar í viku hjá VR. Svo hef ég spil-
að hjá VR einu sinni í viku en líkar
ekki vistin sem er spiluð þar. Þetta
er einhvers konar laumuspil sem ég
held að sé bara fyrir krakka og gamal-
menni. Ég hef aldrei vitað til þess að
spilum sé laumað milli fólks enda fer
öll spennan úr spilinu þannig," sagði
Óskar.
Steingrímur sagðist telja að það
væri úr nógu að velja fyrir eldra fólk,
það væri undir fólkinu komið hvað
gengi og hvað ekki.
-SJ
Hér eru oft háðar miklar omistur
spilatækur.
Þeir Friðjón og Fjölnir sögðust oft
hittast í Sigtúni til að tefla. „Hér eru
oft háðar miklar orrustur sem eru þó
alltaf í góðu,“ sagði Friðjón.
En hvers vegna í Sigtúni? „Þetta
passar mér bara vel, annað félagsstarf
miðast yfirleitt við eldra fólk en ég er.
Mér finnst starfsemin hér hafa gengið
mjög vel miðað við hvað þetta er
nýtt,“ sagði Fjölnir. Þeir sögðu að það
væri misjafnt hversu oft í viku þeir
kæmu en Friðjón mætir líka stundum
í félagsvistina. Fjölnir sagðist líklega
koma einu sinni til tvisvar auk þess
sem hann væri í danskennslunni. Frið-
jón sagðist líklega koma oftar. Nú
fannst þeim komið nóg og vildu fá að
halda áfram að tefla án yfirheyrslu
blaðamannsins.
-SJ
Við eitt horðið í Sigtúni innan um tefla. Sá síðamefndi sagði skýringuna
alla bridgespilarana voru þeir Friðjón vera þá að hann hefði ekki spilað
Júlíusson og Fjölnir Bjömsson að bridge í 46 ár og þvi væri hann varla
Friðjón Júliusson og Fjölnir Björnsson niðursokknir i taflið en Pétur H.
Ólafsson fylgist spenntur með. DV-mynd GVA
„Skemmti-
legtað
horfa á“
- segir Elín Jónsdóttir
„Nei, mér finnst alls ekki leiðinlegt
að fylgjast með öðrum spila. Reyndar
finnst mér skemmtilegt að horfa á
aðra spila og hef því ekki yfir neinu
að kvarta," sagði Élín Jónsdóttir þeg-
ar við spurðum hvort henni líkaði
ekki illa að komast ekki að í spila-
mennskunni. Við tókum nefnilega
eftir því að hún hafði staðið dágóða
stund og fylgst með gangi mála á einu
borðinu þar sem verið var að spila
bridge. Það stóð líka heima, um leið
og við höfðum fengið svarið hjá henni
var komið að henni að leysa einn spil-
arann af.
Elín sagðist spila allt en þætti einna
skemmtilegast að spila rommí. Hún
sagðist ekki koma mjög oft í Sigtún
og í eitt skipti þegar hún kom til að
spila voru bara fjórir á staðnum þann-
ig að þá varð minna úr en til stóð.
Nú var nóg af fólki og Elín greinilega
hin ánægðasta með að komast í lauf-
létta spilamennsku. -SJ
Elin Jónsdóttir, ánægð með spilin að því er virðist.
ALTERNATORAR
STARTARAR
NÝIR OG VERKSMIÐJUENDURBYGGÐIR í
Chevrolet Nova, Blaser, Malibu, Oldsmobile dísil,
Ford Bronco, Fairmont, Maveric, Dodge
Dart, Aspen, Ramcharger, Wagooner, Cherokee,
Hornet, AMC, Toyota, Datsun, Mazda, Mitsub-
ishi, Lada, Fiat, Land Rover, M. Benz o.fl. o.fl.
Einnig tilheyrandi varahlutir.
Mjög hagstætt verð. Póstsendum.
BÍLARAF HF.
Borgartúnl 19. Síml 24700.
UTSALA
Opið: Föstudaga kl. 10-19.
Virka daga kl. 10-18. Laugardaga kl. 10-16.
Sendum í póstkröfu.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi,
á horni Skemmuvegar. Simar 79866, 79494.
morgna
.. ..heilsunnar vegna
Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777
ARGUS/SÍA 401-003