Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1987, Side 48
FR, ETTASKOTIÐ
-----------------------------•—-----
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
MANUDAGUR 26. JANÚAR 1987.
ísafjörður:
Fiskvinnslu-
fólk hótar
verkfalli
Verkalýðsfélagið Baldur á ísafirði
hefur aflað sér verkfallsheimildar. Á
fundi í félaginu, sem haldinn var á
sunnudag, var skorað á stjóm félags-
ins að nota hana ef ekkert mjakaðist
í deilu fiskvinnslufólks innan félagsins
og viðsemjenda þeirra alveg á næs-
tunni.
Deilan á ísafirði snýst, eins og deila
Verkakvennafélagsins Snótar og við-
semjenda þess í Vestmannaeyjum,
aðallega um að fá starfsaldurshækk-
anir inn í samninga fiskvinnslufólks,
-^í'n þær voru teknar út í jólafostusamn-
ingunum.
I Vestmannaeyjum hefur verið boð-
aður samningafúndur kl. 13 í dag.
Deiluaðilar ákváðu fyrir helgina að
færa samningaviðræðumar heim til
Vestmannaeyja.
Farmannadeilan:
Enn situr
allt fast
Ekkert hefur mjakast í farmanna-
deilunni yfir helgina. Deiluaðilar áttu
óformlegan fund með sáttasemjara á
sunnudag þar sem samþykkt var til-
laga Guðlaugs Þorvaldssonar sátta-
semjara að láta Kjararannsóknar-
nefhd gera hlutlægt mat á tilboði
skipafélaganna sem farmenn hafa í
raun hafhað. í dag kl. 14 hefur svo
verið boðaður sáttafundur í deilunni.
Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemj-
ari sagði í morgun að enn væri þungt
fyrir fæti og ekkert það hefði gerst um
helgina sem yki sér bjartsýni á lausn
---Meilunnar. Farmenn hafiia alfarið
þeim hugmyndum skipafélaganna að
breyta vinnutíma undirmanna sem
þau telja forsendu þess að hækka
grunnkaup undirmanna á farskipum.
-S.dór
Ávallt feti framar
68-50-60
plBÍUASrö
ÞRÖSTUR
SÍDUMÚLA 10
Varðskip var 1,2 sjómílur fiá slysstað í ísafjarðardjúpi:
Miðunartækið
var í viðgerð
Miðunartæki var ekki um borð í
varðskipinu Óðni þegar flugvélin
TF-ORN fórst í Isafjarðardjúpi í síð-
ustu viku. Varðskipsmenn gátu því
ekki miðað út neyðarsendingu flug-
vélarinnar.
Þegar fyrst heyrðist í neyðarsend-
inum, klukkan 19.58 á miðvikudags- „Miðimartækið var bilað. Það var
kvöld, var varðskipið stattaðeins 1,2 búið að taka á annan mánuð að fá
sjómílur frá þeim stað þar sem væng- það úr viðgerð," sagði Þröstur Sig-
endi og lík flugmannsins fundust á tryggsson, skipherra í stjórnstöð
floti klukkan 23.50. Varðskipið Landhelgisgæslunnar.
greindi neyðarsendingamar í stutta Varðskipið fékk miðunarstöðina
stundöðruhvorutilklukkan 22.30. aftur um borð síðastliðinn laugar-
dag. Sama tækið er notað til að miða
út neyðarsendingar gúmbjörgunar-
báta.
„Það sýður á flugmönnum og sjó-
mönnum. Að þetta skuli heita leitar-
og björgunarskip," sagði kunnur
flugmaður í morgun. -KMU
Slökkviliðsmenn vinna að því að ná manninum út en hann reyndist fótbrotinn eftir áreksturinn. DV-mynd Már Oskarsson
Fastur í bíl efdr árekstur
Magnús Gislason, DV, Suðumesjum;
Ökumaður Ladabifreiðar klemm-
dist fastur í bíl sínum eftir árekstur
er varð við Flugvallarveg í Njarðvík
á sunnudag og þurfti að spenna flak-
ið í sundur til að ná honum út.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að ökumaður jeppa, sem kom úr
gagnstæðri átt, missti vald á bíl sín-
um er hann ætlaði fram úr vörubíl
og skall jeppinn framan á Lödunni.
Þrennt úr Lödunni var flutt á slysa-
deild.
„Við vorum í fyrstunni að hugsa
um að klippa þá bílhluta í sundur
sem þrengdu að ökumanninum en
sáum skjótt að einfaldara og fljót-
legra væri að spenna flakið í
sundur," sagði Stefán Eiríksson,
slökkviliðsstjóri á vakt á Keflavík-
urflugvelli, í samtali við DV en
slökkviliðið var kallað út til að losa
manninn.
LOKI
Var þá hundur í Sverri
eftir allt saman?
Veðrið á morgun:
Hvass-
viðri á
landinu
Á þriðjudaginn verður norð-
austangola eða hvassviðri á
landinu. Smáslydduél á Vestfjörð-
um norðantil en skýjað á Norður-
og Austurlandi. Sums staðar létt>
skýjað sunnanlands. Hiti verður á
bilinu 4 til 1 stig.
Loðnu-
kvótinn
aukinn
Um helgina ákvað sjávarútvegsráð-
herra að stækka loðnukvótann um
100.000 lestir og var það gert að höfðu
samráði við Hafrannsóknarstofnun.
íslendingar mega veiða 85% af þessu
magni, eða 85.000 lestir, en Norðmenn
15.000 lestir. Um helgina var búið að
veiða um 600.000 lestir af loðnu en
eftir þessa stækkun er loðnukvótinn
orðinn um 1.070.000 lestir.
-ój