Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987.
3
Fréttir
Lufthansa tilnefnt
til íslandsflugs
Vestur-þýsk stjómvöld tilkynntu ís-
lenskuni stjómvöldum í síðustu viku
að flugfélagið Lufthansa hefði verið
tilnefnt til íslandsflugs samkvæmt
loftferðasamningi þjóðanna.
Tilkynningin, bendir til þess að
óform Lufthansa um Islandsflug í sum-
ar verði að veruleika. Flugfélagið
hafði með bráðabirgðaflugáætlun fyrir
áramót tilkynnt að það ætlaði að
fljúga til íslands um helgar frá 25. maí.
Áður en flugið getur hafist þarf flug-
félagið að tilkynna íslenskum flug-
málayfirvöldum um fargjöld og áætlun
með minnst eins mánaðar fyrirvara,
að sögn Birgis Guðjónssonar, deildar-
stjóra í samgönguráðuneytinu.
Þessi tilnefning Sambandslýðveldis-
ins á Lufthansa nú var reyndar ekki
nauðsynleg. Tilnefning á Lufthansa
hefur verið fyrir hendi í 30 ár, að sögn
Birgis.
Um hugsanlegt íslandsflug breska
flugfélagsins British Midland hefúr
íslenskum yfirvöldum ekkert borist.
-KMU
Hótel Örk: Ekki gott að tefla ef gestagangur er mjög mikill.
Hveragerði:
Paradís
skákmanna?
„Það er viss áhugi fyrir þessu innan
hreppsnefndarinnar þó engar fastmót-
aðar áætlanir hafi enn verið settar
fram,“ sagði Hafsteinn Kristinsson,
oddviti í Hveragerði, í samtali við DV.
Hér er um að ræða áhuga hrepps-
nefndarmanna ó að gera Hveragerði
að paradís skákmanna með stofnun
skákskóla og stórmótum þar sem álit-
leg verðlaun myndu laða skákmeist-
ara að. „Svo er það annað mál hvort
hreppurinn hefur bolmagn til að ýta
þessu myndarlega úr vör,“ sagði Haf-
steinn oddviti.
Helgarskákmótið, sem haldið var á
Hótel Örk um síðustu helgi. þótti tak-
ast vel þótt komið hafi á daginn að
hótelið er ekki ákjósanlegasti skáksal-
ur veraldar. Stöðugur straumur gesta
truflaði skákmennina og nálægð
sundlaugarinnar bætti ekki úr skák.
„Við höfum aðra staði þar sem hægt
er að tefla, til dæmis Hótel Ljósbrá
þar sem næði er betra.'1 sagði Haf-
steinn oddviti. „Skákmennirnir gætu
þá búið á Hótel Örk milli skáka og
látið fara vel imi sig. Hér er einnig
margs konar aðstaða til íþróttaiðkana
og heilsuræktar sem skákmennirnir
gætu notfært sér." -EIR
Stal krítarkorti
frá flugfreyju
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Maður nokkur var nýlega hand-
tekinn á Akureyri er hann reyndi að
svíkja út vörur. Hafði hann falsað
greiðslukort til að greiða vörumar
með.
Maðurinn, sem er góðkunningi lög-
reglunnar, mun vera nýkominn frá
Færeyjum. Hann stal kreditkorti frá
flugfreyju i vélinni sem hann kom með
hingað til lands, brevtti nafninu henn-
ar á kortinu og hóf svo úttektartil-
raunir á Akureyri.
Maðurinn hafði skellt sér í Sjallann
skömmu eftir að hann kom til Akur-
evrar. Þótti hann grunsamlegur mdð ý
kortið og var því handtekinn. Þá
komst upp um kauða. Hann er utan-
bæjarinaður og hefur áður komist í
kast við lögin.
4x4 klúbburinn:
Jeppar á Sprengjsandi
4x4 klúbburinn mun fara á 40 jeppum
norður Sprengisand um aðra helgi og
er þetta stærsta skipulagða hópferðin á
vegum klúbbsins til þessa. Ferðin er
farin i samvinnu við Bílaklúbb Akur-
eyrar en ætlunin er að jeppamir verði
á bílasýningu fyrir norðan á sunnudeg-
inum.
Á fóstudagskvöldið lcggia jeppamir
upp og á allur hópurinn að koma sér i
Nýjadal um kvöldið. Þar verður gist um
nóttina og síðan lagt af stað noi-ður
Sprengisand á laugmdeginum. Vonast
hópurinn til að samfelldur snjór verði
alla þessa leið til að ekkert jaritnisk
þurfi að verða. -FRI
ooi
100004
Ekkcrt slor cða þanníg, því nú vcrður fyrstí
vínníngurínn tvöfaldur cða ?
Slcpptu þcssu tækífærí, cf þú þorírl