Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚÁR 1987.
13
Neytendur
Umbúðir á
148 kr. kg
„Mig langar til þess að láta í ljós
óánægju mína með það fyrirkomulag
þegar umbúðimar eru vigtaðar með
vörunni og seldar á sama verði og
varan sjálf. T.d. má nefna eggja-
bakkana, en þeir vega 50 g og eru
seldir á 148 kr. kg eins og eggin,“
sagði öldruð kona, Jóhanna Bjöms-
dóttir, er hún leit inn hjá okkur á
Neytendasíðunni.
Hún hafði einnig ýmislegt að at-
huga við að þegar lækkun yrði á
kjötverði skilaði það sér ekki til
neytenda nema þeir keyptu kjöt í
heilum og hálfum skrokkum. Hún
sagðist sjálf ekki hafa tækifæri til
þess að kaupa kjöt í heilu, þannig
að hún nýtur ekki verðlækkunar-
innar sem skyldi. Jóhanna þarf að
lifa á ellilaunum eingöngu og segir
að það gangi ekki vel.
Þá benti Jóhanna einnig á að
dagstimpla vanti á egg og einnig að
það vanti mikið á að þau séu geymd
við bestu skilyrði. Egg em kælivara,
sagði Jóhanna, og eiga að geymast
í kæli en ekki í stæðum inni í miðri
versluninni.
Við erum Jóhönnu hjartanlega
sammála. Höfum reyndar skrifað um
það í mörg ár að egg séu kælivara
og eigi ekki að geymast í upphitaðri
verslun, en því miður höfum við tal-
að fyrir daufum eyrum. Eggin em
ekki komin í kælihillur verslananna.
Eggjaseljendum virðist ekki vera
ljóst að á einum sólarhring í upphit-
aðri verslun eldast eggin eins mikið
og á heilli viku í kæligeymslu. Þess
vegna fáum við oft gömul egg í versl-
unum.
Neytendur fara því fram á að egg-
in verði dagstimpluð, geymd í kæli
og að umbúðimar séu ekki vigtaðar
með eggjunum. -A.BJ.
Hver bakki vegur um 50 g og kostar því um 7,40 kr. Það er verð rúmiega
hálfs eggs þannig fyrir hverja tvo bakka, sem neytandinn kaupir, tapar
hann einu heilu eggi.
Starfsfólk Mothercare á íslandi.
Þriggja vikna bleiu-
skammtur er 168 stk.
Verslunin Mothercare á íslandi,
sem er til húsa á Laugavegi 13, býð-
ur nú upp á heimsendingu á bleium.
Sendur er heim þriggja vikna forði í
senn. Það em 168 bleiur, vísindalega
útreiknuð bleiunotkun, átta bleiur á
dag.
Heimsendingin er viðskiptavinin-
um að kostnaðarlausu og nær til alls
höfuðborgarsvæðisins.
Hjá Mothercare er hægt að velja
um þrjár bleiustærðir:
Fyrir börn sem eru 0-5 kg kostar
skammturinn 2.000 kr.,eða 11,0 kr.
stk. Fyrir börn sem em 5-12 kg kost-
ar bleiuskammturinn 2.500 kr., eða
14,88 kr. stk. og fyrir böm sem eru
þyngri en 12 kostar þriggja vikna
bleiuskammtur 3.000 kr., eða 17,85
kr. stk.
Fyrsta Mothercareverslunin var
stofnuð í Englandi árið 1961. Mot-
hercare á Islandi var opnuð fyrir
rúmu ári.
Verslunin sérhæfir sig í alls kyns
vörum og fatnaði fyrir yngstu börn-
in, allt frá fæðingu. Mörgum þykir
sem slíkur varningur sé dýrari hér á
landi en annars staðar. Við spurðum
Kristínu Pálsdóttur hjá Mothercare
um verðlagningu á barnafatnaði.
Hún sagði að í Bretlandi væri eng-
inn söluskattur greiddur af bama-
fatnaði en hér á landi er greiddur
25% söluskattur af barnafatnaði. Þá
er mishár tollur af barnafatnaði og
vörum fyrir börn. Kristín nefndi sem
dæmi að það væri 80% tollur af ör-
yggisbarnastólum.
-A.BJ.
JVÖ
MYÞREP
úr bemhörðumpeningum
Kjörbókin hefur tryggt sparifjár-
eigendum hæstu ávöxtun sem
fáanleg hefur veriö af óbundnu
sparifé. Og nú bætum við enn um
betur : Þegar innstæða hefur legið
á Kjörbókinni í 16 mánuði hækka
vextir í 20,9% allt frá innleggs-
degi og í 21,5% að loknum 24
mánuðum. Vaxtaþrepin gilda
frá 1. janúar 1987.
Við minnum á aðra helstu kosti
Kjörbókarinnar:
- Háir vextir, og lagðir við höfuð-
stól tvisvar á ári.
- Innstæðan er algjörlega
óbundin.
- Ársfjóðungslegur samanburður
við ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðra reikninga tryggir
hagstæðustu kjör. Ef ávöxtun
verðtryggðu reikninganna
reynist hærri er greidd uppbót.
Hún greiðist einnig ofan á 16
og 24 mánaða vaxtaþrepin.
- Vaxtaleiðrétting við úttekt
reiknast eingöngu af úttektar-
upphæðinni, þó ekki af vöxtum
síðustu tveggja vaxtatímabila.
- Úttektir lækka ekki vextina á
þeirri fjárhæð sem eftir stendur.
- í Landsbankanum er stöðugt
haft auga með öllum hræringum
á vaxtamarkaðnum, því að
Kjörbókinni er ætlað að vera í
fararbroddi.
Ársávöxtun á Kjörbók varð
20,62% árið 1986, sem jafngildir
verðtryggðum reikningi með
5,51% nafnvöxtum.
Pú færð nánari upplýsingar um
Kjörbókina þína í næstu spari-
sjóðsdeild bankans.
Taktu nœstu tvö skref í
beinhörðum peningum.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Þetta litla tæki er ótrúlega fjölhæft
og léttir mjög alla bókhaldsvinnu
heimilisins.
DV-mynd S
Vasatölva fyrir
heimilisbókhald
Komin er á markað vasatölva sem
er sérstaklega hönnuð með heimilis-
bókhald i huga. Tækið er lítið. aðeins
20 sentímetra langt. og þvi mjög með-
færilegt.
Það getur gevmt í minni 15 útgjalda-
liði s.s. matvæli, fatnað, húsaleigu,
rafmagn, bíl eða bara hvað sem er.
Það hefúr einnig sér greiðsluliði. 2
tegundir greiðslukorta. 2 bankareikn-
inga og reiðufé. Auðvelt er t.d. að
stepima af ávísanareikninga með tölv-
unni.
Tölvan er mjög auðveld í notkun.
Ef einhverju er eytt er upphæðin sleg-
in inn og loks stutt á viðeigandi hnapp
(einn hnappur er íyrir hvern útgjalda-
lið). Um mánaðamót er svo ýtt á takka
og birtist þá öll evðsla tímabilsins sam-
anlögð ásamt ábendingum um hverjir
útgjaldaliðimir voru.
Með slíku tæki ætti því að vera leik-
ur einn að fylgjast með útgjöldum
heimilisins og henda reiður á í hvað
peningarnir fara. Tækið gengur fyrir
rafhlöðum, kostar 3.100 krónur og
fæst í Lömpum h/f, Skeifunni 3b.
-PLP