Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Síða 33
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987.
45
Portúgalski forsætisráöherrann Anibal Savacao Silva og Karl prins
kanna heiðursvörð síðastliðinn miðvikudag.
Karl erfðaprins af Bretlandi og eiginkonan, Diana prins-
essa, eru að ljúka fjögurra daga opinberri heimsókn í
Portúgal. Þar hafa þau vakið mikla athygli og haft nóg
að gera við að heilsa fyrirmönnum kanna heiðursverði
og mæta í opinberar athafnir. Hápunkturinn var kvöld-
verðarboð í Ayuda Palace þar sem Diana mætti með
glitrandi kórónu svo sem hefðin býður. Höfuðfatið sat
ágætlega og Di varð landi og þjóð til mikils sóma að
sögn erlendra fréttastofa. Hjónin snúa aftur til Bretlands
nú um þessa helgi.
Mario Soares forseti tók á móti ungu hjónunum á flugvellinum og er
hérna að sýna Diönu flugvallarbygginguna. Prinsessan brosir kurteis-
lega og bitur af einhverjum ástæðum sjálfa sig vandlega í vörina.
Konunglega svitan í Qualuz Palace þar sem erfðaprinsinn Karl og Diana
eiginkona hans munu hafa næturstað meðan hin opinbera heimsókn
stendur yfir.
Kalli og Di
í Portúgal
Huggu-
legar
hangi-
endur
Það er yfirleitt aðeins ein
tegund örlaga er bíður
þeirra sem fæðast í þenn-
an heim sem þriflega
vaxin önd í landi gulverj-
anna - Kína. Leiðin
liggur beint í maga ein-
hvers neytandans þar í
landi - að vísu með við-
komu á hinum ýmsu
vinnslustigum. Þarna er
kínverskur verkamaður
að hengja upp endur sem
þannig eru verkaðar,
kryddaðar og látnar
þorna vel áður en hin eig-
inlega matreiðsla getur
hafist. Þær eru greinilega
ófáar endurnar þarna
hinum megin á hnettin-
um.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Dustin
Hoffman
er fluttur frá New York með fjöl-
skylduna. Þetta er vegna þess
að hann telur börnin fá mun
þægilegra umhverfi i úthverfi
Lundúna heldur en á Manhatt-
an og hefur karl keypt stærðar
hús alveg við útjaðar Lundúna-
borgar. Undanfarin ár hefur
fjölskyldan lítið sést með Dustin
þar sem hann þeysist um heim-
inn en nú á að verða breyting á
þvi lika. Tómstundum hefur
hann alltaf eytt i faðmi fjölskyld-
unnar og á næstunni er skipu-
lagi þannig hagað að
samverustundum fjölgar að
mun en leiklistin færist niður í
annað sætið.
Charlene Tilton
elskar falleg föt og mætti nýlega
á dansleik íklædd dáfögrum
snjakahvítum loðfeldi. Upp úr
hálsmálinu stóð svo perlu-
skreyttur háls og eitthvað glitr-
aði i eyrunum að auki. Svo
sannarlega i sínu finasta pússi
og með i för var eiginmaðurinn
- Nick Allen - og var kappinn
kirfilega klæddur í blúnduskyrtu
og bróderaðan leðurjakka i
kábojstílnum.
Mario Jutare
er ekki vinsælasti maður í Món-
akó og hefur reyndar komið
Rainier fursta til þess að hug-
leiða mannrán í fyrsta skipti á
ævinni. Mario er nýjasti elsk-
hugi Stefaníu prinsessu og þykir
ekki par fínn - með nauðgunar-
dóm og fleira fagurt á samvisk-
unni. Myndirnar, sem nú birtast
í öllum helstu timaritum heims-
ins af kauða, ætla Rainier lifandi
að drepa og vill karl láta ræna
Mario hið skjótasta - og koma
í hendurnar á skeleggum hár-
skera sem snyrta myndi strýið á
toppstykkinu svo sómi væri að
verkinu. Það er margt sem feður
og furstar þurfa að vafstra í
þessa dagana.