Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháö dagblað
FOSTUDAGUR 13. FEBRUAR 1987.
Iðnaðarráðherramir framan við Hótel
Sögu i gær. DV-mynd S
Kiöfluviikjuii
reistíKenýa?
..Hann er með ráðgjafanefnd með sér
ég hef skipað memi til þess að ræða
við hana. Það er hugsanlegt að um eitt-
hvað verði samið á mánudag." sagði
Albert Guðmimdsson iðnaðarráðherra.
sem tók í gær á móti starfsbróður sínum
frá Kenýa. K.X.K. Biwott. Kenýamenn
hafa þegar reist 60 megavatta gufuaflsr-
afstöð og ætla að byggja aðra til. Slík
stöð er á borð við Kröfluvirkjun.
..Þetta geta verið stór verkefni sem
hentað gæti íslenskum verktökum.
Þama er um að ræða miklar boranir
og \Trkjun. ef vel tekst til." sagði Al-
bert. ..Xýsiálendingar hafa annast þessi
" verk og fengu gufuaflsstöðina sem þegar
hefur verið byggð. Það var boðið í hana
héðan en við fengum hana ekki. Nú er
að siá hvort ekki gengur betur.
-HERB
Alexander
mætti ekki
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráðherra mætti ekki til þingfunda í
gær. Hann hafði beðið um fjarvistar-
leyfi.
Ekkert varð því úr umræðu um hús-
næðismál sem þingmenn höfðu búið
' ^sig undir. Spumingum um það hvort
húsnæðislánakerfið sé hrunið, sem
stjórnarandstöðuþingmenn hafa full-
yrt. hefur Alexander því ekki enn
svarað.
-KMU
SKREYTINGAR
við öll tækifæri
Opið frá kl. 10-19
alla daga vikunnar.
GARÐSHORNM
Suðurhlíð 35
sími 40500
við Fossvogskirkjugarðinn.
LOKI
Er fækkun framsóknar-
manna ekki á stefnuskrá
flokksins?
Forysta Framsóknarflokksins:
Neitaði að taka
á móti stuðnings
mönnum Stefáns
Jón G. Hauksson, DV, Akureyn:
„Þeir neituðu að taka á móti okk-
ur,“ sagði Haraldur M. Sigurðsson,
kosningastjóri Stefáns Valgeirsson-
ar, í morgun. „Þeir ætla greinilega
að kljúfa flokkinn til frambúðar.“
Forystumenn Framsóknarflokks-
ins, sem þinga nú á hótel KEA á
Akureyri, neituðu í gær að taka á
móti um hundrað stuðningsmönnum
Stefáns Valgeirssonar sem ætluðu
að afhenda þeim bréf.
Haraldur sagðist hafa rætt við Pál
Pétursson, formann þingflokks
Framsóknarflokksins, um leyfi til að
koma og afhenda bréfið. „Það tók
þá langan tíma að komast að niður-
stöðu sem varð svo loks sú að þeir
vildu ekki taka á móti okkur.“
Ekkert varð því úr mótmælagöngu
stuðningsmanna Stefáns að Hótel
KEA. Haraldur vildi ekki segja að
svo stöddu hvað stæði í bréfinu sem
aldrei var afhent. En heimildir DV
herma að þar hafi verið undirskrift-
arlisti fólks sem ætlaði að segja síg
úr Framsóknarflokknum.
Halló, litla þjóð í Hafnaifirði
Halló, litla þjóð heitir leik- og söngvaspil sem frumsýnt verður í Hafnarfirði nú um helgina. Höfundar eru Magnea
Matfhiasdóttir og Benóný Ægisson. Hér sést eitt atriði úr verkinu: nokkrir ungir menn leika nokkra unga menn
sem ræða málin. DV-mynd Brynjar Gauti/-ai
Veðrið á morgun:
Hæg norð-
austlæg
aust-
átt
og
læg
Á laugardaginn verður hæg
norðaustlæg og austlæg átt. Skýj-
að og dálítil él á Norðaustur- og
Austurlandi en léttskýjað víðast
annars staðar. 1-4 stiga frost við
sjávarsíðuna en 4-8 stiga frost inn
til landsins.
Yfírmenn á farskipum:
Samninga-
viðræður
ávegamótum
Segja má að samningaviðræður yfir- j
í
Segja má að samningaviðræður yfir-
manna á kaupskipimum og skipafélag-
arrna séu á vegamótum eftir samninga-
ftmdinn í gær. Þá voru í fyrsta sinn
nefndar kauptölur en áður hafði verið
imnið að flestu öðru varðandi samning-
ana. Töluvert ber í milli varðandi
kaupkröfúmar. í dag er boðaður annar
frmdur sem er afar þýðingarmikill. Ef
ekkert mjakast á þeim fúndi varðandi
kaupið er talið víst að yfirmenn boði
verkfall á morgun, laugardag, með viku
fyrirvara. -S.dór
Hitaveíta Akureyrar:
Greiðir 26
milljónir í
lántöku-
kostnað
Jcm G. Haukssai, DV, Akuieyii
Fjárhagsáætlun Hitaveitu Akureyrar
hefur verið lögð fram. Það vekur at-
hygli að hitaveitan þarf að greiða hvorki
meira né minna en 26 milljónir í lán-
tökukostnað á árinu, svo sem stimpil-
gjöld og fleira.
Af 265 milljóna króna tekjum Hita-
veitu Akureyrar þarf rúmlega 56 millj-
ónir króna í rekstur og 9 milljónir í
framkvæmdir. Afgangurinn, um 200
milljónir, auk nýrra lána sem hitaveitan
tekur upp á 77 milljónir, fer í afborgan-
ir og vexti.
Fiskmarkaður
stofnaður í
Reykjavík
í gær var stofnað hlutafélag um fisk-
markað í Reykjavík og verður hann
staðsettur i Faxaskála. Hlutafjárloforð
eru þegar orðin upp á 11 milljónir króna
og búið er að panta markaðstæki sem
þarf til að hefjíxst handa. Reiknað er
með að það taki 2-3 mánuði að innrétta
Faxaskála svo að hægt verði að byrja.
Ágúst Einarsson í Hraðfrystistöðinni
er stjómarformaður hins nýja hlutafé-
lags en hann hefúr verið eirrn aðal-
hvatamaðurinn að stofnun fiskmarkaða
á Islandi.
Nú er ljóst að tveir fismarkaðir verða
opnaðir á svipuðum tíma bví allt gengur
samkvæmt áætlun hjá Hafhfirðingiun
og er markaðshús þeirra svo til fúll-
byggt. -S.dór
„Það stendur sem ég hef sagt, að kosn-
ingar verða 25. apríl,“ segir Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í sam-
tali við Timann í morgun.
Tekist hefúr samkomulag um að hér
eftir verði arrnar laugardagur í maí lög-
bundinn kjördagur í stað síðasta
sunnudags í júrú. -KMU