Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. Fréttir Þyngri byrðar á afurðasölur - ríkið sparar 18 milljónir, segir fjármálaraðherra „Ég var þeirrar skoðunar og er reyndar enn að það séu ekki efiii til að auka við niðurgreiðslur," sagði Þorsteinn Pálsson fjánnálaráðherra er DV spurði um þá ákvörðun ríkis- stjómarinnar frá því í íyrradag að auka niðurgreiðslur á búvörum til að hleypa 22% hækkun á launalið bænda ekki frekar út í verðlagið en orðið er. „Það sem samkomulag varð hins vegar um var að það er hætt að greiða niður vaxta- og geymslu- kostnað. Þeir fjármunir sem notaðir hafa verið í því skyni fara í að greiða niður útsöluverð. Ríkissjóður sparar reyndar á þessu 18 milljónir króna á næstu þremur mánuðum. Það hefur lengi verið keppikefli mitt að fá þessu breytt á þennan veg að ríkið hætti að borga afurðasölun- um fyrir að geyma kjöt og færa þá peninga yfir í niðurgreiðslu á útsölu- verði. Það náðist fram með þessu." - Hvað gerist eftir þessa þrjá mán- uði? Er þetta ekki bara tímabundin ákvörðun? „Nei. Það er auðvitað ljóst að það er verið að leggja þyngri byrðar á afurðasölumar og þær verða að reyna að mæta þessu með hagræð- ingu í rekstri. Við væntum þess að þetta hafi áhrif í þá vem að örva afurðasölurn- ar tií frekari sölustarfsemi. Ég hef verið þeirrai- skoðunar að það væri kolvitlaus pólitík að borga þessum fyrirtækjum fyrir að geyma kjötið. Það drægi úr hvata til þess að selja. Auðvitað getur þetta á síðara stigi haft einhver verðlagsáhrif," sagði Þorsteinn. -KMU Fjölmenni var á ráðstefnunni um íslenska skipaiðnaðirnn. Ráðstefna um íslenska skipasmíðaiðnaðinn í gær var haldin Qölmenn ráðstefna um íslenskan skipasmíðaiðnað, stöðu hans og ffamtíð. Að ráðstefnunni stóðu Félag dráttarbrautaeigenda, Háskóli íslands, iðnaðarráðuneytið, Landssamband útvegsmanna, Málm- og skipasmiðasambandið, Samband málm- og skipasmiðja og Verkfræð- ingafélag íslands. Albert Guðmundsson iðnaðarráð- heira flutti ávarp í upphafi ráðstefn- unnar. Síðan vom flutt erindi um tæknistig íslenska skipaiðnaðarins, nýsmíðaþörf og viðgerðir og endumýj- unarþörf fiskiskipaflotans, tilurð og meðferð útboða og samninga um verk- efhi, fjármögnun skipaiðnaðarverk- efha, þörf skipaiðnaðarins fyrir menntað starfsfólk og loks vom pall- borðsumræður undir stjóm Magnúsar Bjamffeðssonar. -S.dór Kreditkoit og Visa í t'maritaslaginn Greiðslukortafyrirtækin Visa ísland og Eurocard hafa nú gert ráðstafanir til að taka þátt í útgáfuslag tímarit- anna sem gefin em út hér á landi. Visa Island mun á næstunni hefja í samvinnu við Harald J. Hamar útgáfu á tímariti sem nefhist Vild. Er fyrir- hugað að tímaritið komi út fjórum sinnum á ári. Þá hafa Kreditkort hf. gert samning við Herdísi Þorgeirsdóttur, eiganda og ritstjóra tímaritsins Heimsmyndar, Iðjuþjálfar boða til verkfalls Iðjuþjálfafélag íslands hefur boðað til verkfalls þann 26. mars hafi samn- ingar ekki tekist fyrir þann tíma. Iðjuþjálfar komu saman til fundar á mánudaginn var til að greiða atkvæði um hvort boða ætti til verkfalls. Á kjörskra vom 11, þar af greiddu 9 at- kvæði og samþykktu verkfallsboðun. -S.dór um að bjóða 27.000 korthöfum upp á nær helmingsafslátt af ársáskrift Heimsmyndar. Munu Kreditkort hf. sjá alfarið um innheimtuna á umrædd- um áskriftum þannig að þær verða dregnar af þeim korthöfum sem þess óska. Þá munu Kreditkort hf. taka á móti beiðnum um niðurgreiddu áskriftimar og koma þeim til skila. „Ég stefni að því að upplag Heims- myndar verði komið upp í 30.000 eintök í árslok,“ sagði Herdís Þor- geirsdóttir við DV í gær. „Með þessum samningi við Kreditkort hf. liggja fyr- ir sannanlegar upplýsingar fyrir auglýsendur um útbreiðslu blaðsins því kortaf|öldinn staðfestir hana, auk þess sem Heimsmynd verður seld áfram í lausasölu. Þessi samningur gefur Kreditkort- um hf. engan rétt til íhlutunar í rit- stjórnarstefnu blaðsins." -JSS Stöð 2 gefur út tímarit Væntanlegt er á markaðinn nýtt tímarit, útgefið af Stöð 2. Tímaritinu verður dreift ókeypis til allra áskrif- enda stöðvarinnar og að auki selt í lausasölu. Efnið verður að megin- hluta kynningar á dagskrá sjón- varpsstöðvarinnar, greinar um leikara sem við sögu koma, innlenda dagskrárgerð og fleira. Ráðgert er að tímaritið komi út mánaðarlega. -EIR Safnahúsið hentar vel fyrir Hæstarétt - dómarar hafa samþykkt tillögu húsameistara „Það er álit húsameistara að Safha- húsið henti að mörgu leyti vel fyrir starfserhi Hæstaréttar og það sé í virðuleika sínum ákjósanlegur rammi um starfsemi Hæstaréttar.“ Svo segir í bréfi húsameistara ríkis- ins sem Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra birti í heild með skriflegu svari við fyrirspum Jóns Sveinssonar varaþingmanns um hvað liði framkvæmd þingsályktunar um könnun á hvort Safhahúsið við Hverf- isgötu í Reykjavík henti Hæstarétti sem dómhús er starfsemi Landsbóka- safhs og Þjóðskjalasafns flyst úr húsinu. „Eftir að hafa kannað þarfir Hæsta- réttar, svo og aðstæður í Safnahúsinu við Hverfisgötu, var gengið frá tillögu í janúar 1987, svo og rýmisáætlun er sýnir samanburð á núverandi húsa- kosti Hæstaréttar (568 fermetrar) og því rými er Hæstiréttur fengi til ráð- stöfunar í Safnahúsinu (1.888 fermetr- ar). Tillagan var kynnt dómurum Hæstaréttar og hafa þeir fyrir sitt leyti samþykkt öll meginatriði tillögunnar. Tillagan byggist á því að nánast engu er breytt í innra skipulagi húss- ins,“ segir í bréfi húsameistara. Þar er lauslega áætlað að 30-40 milljónir króna þurfi til endumýjunar áður en Hæstiréttur geti flutt i húsið. -KMU Tillaga á moti bílbeltasektum Tillaga er komin fram á Alþingi um að mönnum skuli ekki refsað fyrir að brjóta gegn því ákvæði umferðarlaga sem skyldar menn til að spenna bíl- beltin. Ólafur Þ. Þórðarson, Fram- sóknarflokki, og Pálmi Jónsson, Sjálfstæðisflokki, flytja tillöguna. Er húist við að atkvæði verði greidd um hana á mánudag. Efri deild hefúr þegar samþykkt frumvai'pið með bílbeltasektum og allsherjamefnd neðri deildar hefur mælt með þeim. Pálmi Jónsson stendur einnig að breytingartillögu ásamt átta öðrum þingmönnum þess efnis að þyngdar- mörk vörabifreiða, sem stjóma megi án meiraprófs, verði áfram 5.000 kg en ekki 3.500 kg, eins og framvarpið gerir ráð fyrir. I sömu tillögu er lagt til að þyngdar- mörk eftirvagna og tengitækja, sem draga megi án sérstaks prófs, verði ekki 750 kg heldur 1.400 kg. Guðrún Helgadóttir, Alþýðubanda- lagi, hefur flutt breytingartillögu að beiðni Öryrkjabandalagsins um að ekki megi stöðva eða leggja ökutæki á merktu stæði fyrir bifreiðir fatlaðra. -KMU Flugleiðir hf.: Þotuhreyfil! brotnaði við gangsetningu - torkennilegt hljóð í hreyflinum á leiðinni til íslands Um síðustu helgi, þegar DC 8 þota frá Flugleiðum var á leið frá Evrópu til Keflavíkurflugvallhr, heyrðu far- þegar torkennilegt hljóð í einum hreyfli þotunnar. Þeim var svarað að allt væri í lagi. Flugmenn urðu varir við að eitthvað var að einum hreyflinum og gerðu viðvart um það þegar heim kom. Sama kvöld var hreyfillinn gang- settur vegna skoðunar og brotnaði þá eitthvað í hreyflinum og varð að skipta um hreyfil í þotunni, að sögn Kristins Halldórssonar, flugvirkja hjá Flugleiðum hf. Hann segir að hér hafi ekki verið um neitt stórmál að ræða. Aðrar heimildir DV segja að túrb- ína hreyfilsins hafi sprangið við gangsetninguna. Kunnáttumaður tjáði DV að flugmenn liefðu séð á mælum ef einhver hætta hefði verið á að hreyfillinn brotnaði í fluginu. Hefðu þeir þá getað slökkt á hreyfl- inum og ekkert væri auðveldara en að fljúga á hinum þremur heim til íslands. Kristinn Halldórsson sagði að flugvirkjar Flugleiða hf. hefðu ekki opnað hreyfilinn og myndu ekki gera það. Hann verður sendur til skoðun- ar og viðgerðar hjá verksmiðju í París. Að sögn Guðmundar Pálsson- ar, yfirmanns flugrekstrardeildar Flugleiða hf„ kostar svona hreyfill frá 150 og upp í 200 þúsund dollara. -S.dór Harður árekstur á Njálsgötunni i fyrradag. Toyota bifreið var á leið vestur Njálsgötuna er hún ók framhjá vörubíl sem var lagt þannig að hann stóð langt ut á götuna. Ökumaður Toyota bifreiðarinnar sveigði framhjá vörubiln- um en lenti þá á Lancer bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Við áreksturinn kastaðist önnur bifreiðin á þá þriðju, mannlausa bifreið sem var lagt í stæði við götuna. Ekki urðu teljandi meiðsl á mönnum. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.