Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 5
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. 5 Fréttir Sandgerði: Klögumál vegna löndunarpláss Eigendur togarans Hauks GK hafa ritað haíhamefnd Sandgerðishrepps bréf og krafist skýringa á því hvers vegna togara þeirra var synjað um umbeðið löndunarpláss í vikunni og hvers vegna togaranum Sveini Jóns- syni GK, sem búið var að landa úr, hefði verið leyft að liggja i plássinu. Þetta er mikið hitamál þar syðra og hafa eigendur Hauks GK fært sig yfir í Njarðvíkurhöfn og landa þar. Þeir sneru skipinu strax þangað þegar þeim var synjað um löndunarplássið. „Það er rétt að okkur hefur borist þetta bréf og það verður tekið fyrir á næsta fundi hafnamefndar og ég get ekkert sagt um málið fyrr en um það hefúr verið fjallað í nefndinni," sagði Magnús Magnússon, formaður hafn- amefndar Sandgerðis. Þórhallur Gíslason hafnarvörður var á vakt þegar þetta gerðist. Hann sagði í samtali við DV að ekki hefði verið búið að afgreiða Svein Jónsson GK þegar þeir á Hauki GK báðu um þetta umrædda pláss. Þeim var boðið sama pláss og þeir hafa oftast landið í en vegna þess að þeir ætluðu að landa í gáma vildu þeir stærra pláss. En það sem gerði útslagið með að Sveinn Jónsson GK var ekki færður var að búið var að rífa stykki úr vélinni til viðgerðar og því var hreinlega ekki hægt að hreyfa skipið. „Mér býður nú í gmn að þeir hafi alltaf viljað flytja sig yfir til Njarðvík- ur og hafi bara notað þetta tækifæri til að réttlæta það. Ég tel að þeir hafi þama sýnt óliðlegheit," sagði Þór- hallur Gíslason. Fyrir Sanagerðishöfn skiptir það miklu máli fjárhagslega að togarinn Haukur GK flytji sig ekki yfir til Njarðvíkur vegna þess að togararnir greiða 25-30 þúsund krónur í hafnar- gjöld eftir venjulegan túr. -S.dór TJ1 stendur a» pantn skammhytítir, fyrlr pj ISiirnr,lumenn, snm kunns aí hjfa Ahuga. Um er aí rrta b*»! plst'tlur o", revolvers. t>at nr aS snqja hlainar ! sknftt nta rfilettu. Byssurnar oru af gertinnl LtAMA og 'ramlnlOilar ,! Spínt. hír eru talUar mjSa vant)a5ar, sérstaklega ‘ hnrlí nr saman vnrfi 03 ga'ðl. fyrlrhugaS cr að panta fyrstu byssurnar snemma ( mars. IJsíns: Model XV Pistola, cal.22, hlaSln t skoftl, fl skota, hlaup- lengd 94 mm og verð ca. 18000 kr. Mode! XXVI Revolver. cat.22, 6 skota hlauplengd 4 eða 6 tommur og yerí ca. 25000 kr. Nánarl upplýslnjar hjá Frlðrik B 6unnarssynt, SRD, herb. 136. Þessi auglýsing hangir uppi á lögreglustöðinni. Þar er áhugamönnum um skammbyssur bent á að brátt verði fluttar inn byssur eftir pöntunum. DV-mynd GVA Lögreglumenn: Heimilt að eiga og nota skammbyssur Lögreglumenn, sem lokið hafa skóla, hafa heimild til að eiga og nota skammbyssur til skotæfinga, sam- kvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Bjarka Elíassyni, yfirlögregluþjóni í Reykjavík, en nú hangir uppi á lög- reglustöðinni auglýsing þess efnis að brátt standi til að panta skammbyssur fyrir þá lögreglumenn sem áhuga hafa. Sagði Bjarki að meðferð skotvopna væri kennd í lögregluskólanum og því kunnátta á þessu sviði hluti af starfs- skyldu lögreghmianna. Því væri lögreglumönnum heimilt að eiga sjálf- ir skammbyssur af hlaupvíddinni cal. .22 til að nota á skotæfingum. Ef lög- reglumenn þyrftu síðan að bera skammbyssur við einhver tækifæri hér innanlands sæi embættið þeim fyrir skotvopnunum. Um leyfi til annarra en lögreglu- manna til að eiga og nota skammbyss- ur Qallar dómsmálaráðuneytið. -ój Hagnaður Flugleiða 434 milljónir króna Verulegur hagnaður varð af rekstri Flugleiða á árinu 1986. Nam hann 434,2 milljónum króna samkvæmt árs- reikningi sem kynntur verður á aðalfúndi næstkomandi fóstudag. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 277,7 milljónum króna. Sölu- hagnaður eigna nam 156,6 milljónum króna. Rekstrarhagnaður án fjár- munatekna og fjármagnsgjalda nam 349,8 milljónum króna. Afskriftir námu 311,2 milljónum króna. Félagið skuldaði í árslok 3.344 millj- ónir króna. Eignir félagsins voru metnar á 4.145 milljónir króna. Eigið fé nam því 801 milljón króna. Eiginfjárstaðan var jákvæð í árs- byrjun 1986 um 286,6 milljónir króna sem jafngildir 335,9 milljónum króna í lok ársins miðað við 17,2% verðlags- breytingu innan ársins. Milli ára hefur eiginfjárstaðan því batnað í raun um 465,1 milljón króna. -KMU I tilefni breytinga í húsgragnadeild veitum viö pessa dagana 20-40% AFSLATT AF YMSUM HÚSGÖGNUM OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM í dag kl. 9-16. TÆKIFÆRIÐ Verið velkomin. Komiðj sjáið og sannfærist. Matvörumarkaður 1. hæð - Rafdeild 2. hæð Húsgagnadeild 2. og 3. hæð - Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð - Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-grillið Leikfangadeild 2. hæð Sérverslanir í JL-portinu Verslið þar sem úrvalið er mest og kjörin best. Munið JL- kaupsamningana. Munið bamagæsluna 2. hæð /A A A A A A 1 :cc. zpiljjr Jón Loítsson hf. ________________ Hringbraut 121 Sími 10600 Udi lUUUUUIII llllh I Lada 1600 Canada '82. Ekinn að- eins 63.000 km. Verð kr. 110.000, útb. 20.000, eftirst. til 10 mán. Dodge Aspen SE '79. Ekinn 100.000 km, 6 cyl„ sjálfsk., vökvastýri, út- varp/segulband. Verð aðeins 170.000, útb. 40.000, eftirst. til 10 mán. Audi 100 '77. Verð kr. 120.000. útb. 20.000, eftirst. til 10 mán. Chrysler LeBaron '78. Lúxusvagn með öllum aukabúnaði, ekinn að- eins 89.000 km. Verð 250.000, útb. 80.000, eftirst. til 12 mán. Dodge Aries 2ja dyra '82. 4 cyl„ framdrifinn, sjálfskiptur, vökva- stýri, litað gler o.fi„ einn eigandi. - toppbill. Alfa Romeo Alfasud '80. Fallegur bíll með nýupptekinni vél. Verð kr. 150.000, útb. 30.000, eftirst. til 10 mán. Fiat 127 '82. Ekinn aðeins 43.000 km - einn eigandi, mjög góður bill. Verð kr. 150.000, útb. 50.000. eft- irst. til 10 mán. Audi 100 Avant 5 cyl. '78. Fallegur bill og i góðu standi, verð kr. 240.000, útb. 50.000, eftirst. til 10 mán. Daihatsu Charade Runabout '82. Ekinn aðeins 46.000 km. Verð kr. 180.000, útb. 70.000, eftirst. til 10 mán. Willys árg. '65. B-20 Volvo vél og gírkassi. Ágætisjeppi, nýskoðaður. verð kr. 150.000, útb. 30.000, eft- irst. til 10 mán. Opiðí dag 1-5 0SKODA {///(/ J?í///í </ ■peuceot JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 UÉU DJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.