Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
Utlönd
Á bak við myndavélina
til tilbreytingar
Þessi einbeitti Ijósmyndari er þrátt fyrir fagmannlega tilburði á bak viö mynda-
véiina ekki einn af þessum harðskeyttu frá stórblöðunum, sem svo miklar
sögur fara af. Raunar er hann vanari að standa framan við myndavélina,
starfs síns vegna. En þetta er enginn annar en Francois Mitterrand Frakklands-
forseti sem þessa daga er i heimsókn á Spáni til viðræðna við Felipe Gonzalez
forsætisráðherra og fleiri áhrifamenn á Spáni. Þegar þessi mynd var tekin
hefur Frakklandsforseti þó greinilega gefið sér tíma frá viðræðunum til þess
að bæta nokkrum myndum í einkaalbúmið sitt. Simamynd Reuter
33bíla
árekstur
Shoni Vabeon, DV, Vhx
Það sem menn hræðast hvað
mest í umferðinni hér erlendis og
sem fslendingar eru blessunarlega
lausirvið ámalarvegum sínum eru
göklaárekstrannr svokölluðu.
Þegar ökuhraðinn er kominn vel
yfir hundraðið og ekki er ekið eft-
ir aðstæðum þarf h'tið út af bera
til að illa fari.
Þetta gerðist einraitt á hrað-
brautinni milli Vínar og Iinz núna
um daginn. Þar skullu saman tvær
bifreiðar sem, samkvæmt vitnura,
höfðu verið í kappakstri áhundrað
og sextíu kílómetra hraða. Skyggni
var mjög lélegt á þessum slóðum
vegna þoku og var stundum ekki
nema tuttugu metrar. Skullu því
naestu bílar hver á eftir öðrum á
þá tvo fyrstu og á endanum voru
komnir þama tuttugu og sjö bflar
í eina kös, þar á meðal tvær rútur
og einn tankbíll.
Þegar björgunaraðgerðir voru
hafnar myndaðist hnútur á hinni
akbrautinni vegna forvitni öku-
manna. Var ekki að sökum að
spyrja að þar varð sex bíla árekst-
ur sem kostaði eitt mannslíf En
alls slösuðust fjórtán manns alvar-
lega. Þess má geta að hraðbrautin
var lokuð í báðar áttir í fimm
klukkutíma þar til slysstaðurinn
hafði verið hreinsaður.
Peningamarkaður
Tina Turner frammi fyrir tiu þúsund áhorfendum á einum hljómleikum sin-
um i Frankfurt þar sem hefur verið húsfyllir hjá henni æ ofan i æ og uppselt
á fimm hljómleika. Sfmamynd Reutcr
Troðið hús hjá finu Turner
Rokkdrottningin Tina Tumer er á
heimsferðalagi og efiiir víðast á viðko-
mustöðum sínum til hljómleika. Þessa
dagana er hún í Frankfurt og þarf
rokksöngkonan ekki að kvarta undan
viðtökum því að þar seldist upp á fimm
hljómleika hennar. Mun hún hafa við-
komu í fjölda Evrópulanda áður en
hún leggur leið sína síðan til annarra
heimsálfa.
Vikið úr þingsal
fyrir móðganir
Forseti sambandsþingsins í Bonn
vísaði einum þingmanna róttækl-
inga út úr þingsalnum á þingftmdi
í gær fyrir mógðandi frammíköll.
Þegar Hans Klein (úr flokki kristi-
legra demókrata Kohls kanslara)
var að sveija embættiseið sem ráð-
herra yfir málefhum þróunarhjálpar
V-Þýskalands við þriðja heimsríki,
kallaði Eckhard Stratmann (39 ára),
þingmaður Græningja, frammí.
Þegar Klein lagði hönd á helga
bók og sór við nafii guðs, kallaði
Stratmann, að þetta væri guðlast. -
Seinna skýrði hann þau orð fyrir
fréttamönnum á þá lund að þá hefði
hann haft í huga stuðning Kleins
við innrás Bandaríkjamanna í
Grenada á sínum tíma, og lina af-
stöðu hans til stefhu S-Afríkustjóm-
ar í kynþáttamálum.
Stratmann kvaðst ekki mundu
biðjast afsökunar á þessum frammí-
gripum.
Philipp Jenninger þingforseti gerði
Stratmann brottrækan úr þingsaln-
um og bannaði honum að koma þar
inn fyrir dyr aftur næstu tvo dagana.
Sömuleiðis var 15 fulltrúum „Hins
listans", sem er bandalagsflokkur
Græningja, vísað út úr efri deild-
inni, en þangað höfðu þeir borið inn
kröfuspjöld með slagorðum og
hindrað þingmenn í að komast upp
í ræðustólinn.
Þeir vildu andmæla lögum um
stofnun eftirlitsnefndar um gagn-
njósnir þar sem róttæklingar fá ekki
að hafa fulltrúa.
Hestur sleginn
á sex milljónir
Snorri Vatsson, DV, Vin;
Á ári hveiju fer fram hér í Austurríki
fjársöfnun til styrktar fötluðum böm-
um og stendur hún frá jólum og fram
í mars. Gengur hún undir nafhinu
Ljós i myrkri.
Söfnuninni lauk með uppboði í
beinni útsendingu úr sjónvarpssal.
Uppboðsmuni höfðu ýmis fyrirtæki og
sveitarfélög gefið og mátti síðan bjóða
í, bæði úr salnum og einnig símleiðis.
Meðal þeirra muna sem boðnir vom
upp má nefiia gullsleginn plötuspilara,
gullslegna myndavél og bréf frá Albert
Schweitser til konu hans. Einn af þeim
munum sem fóm á hvað hæstu verði
var skrautteppi mikið, hnýtt af tveim
fötluðum mönnum og haföi verkið tek-
ið allt síðasta ár. Fyrir teppið fengust
um það bil sex hundruð þúsund íslen-
skar krónur.
En hápunktur kvöldsins var þegar
boðinn var upp gæðingur af lipiz-
zanerkyni. Þetta kyn er notað í
spænska reiðskólanum í Vínarborg
sem er heimsfrægur fyrir reiðlistarsýn-
ingar sínar. Enda fór svo að tilboð
bárust víða að úr heiminum, meðal
annars frá Skotlandi, og var hesturinn
sleginn á tæpar sex milljónir íslenskra
króna. Alls söfhuðust um tíu milljónir
íslenskra króna sem eflaust eiga eftir
að koma sér vel fyrir mörg böm.
Róstur í Bangladesh
Það hefur verið róstusamt í Bangladesh undanfarið og hefur æ ofan í æ komið
til árekstra milli lögreglu og heittrúaðra múslima sem hafa haldið uppi kröfum
um að Bangladesh verði lýst múslímskt lýðveldi í likingu við íran undir stjóm
ayatollanna. Þessi mynd er frá Dhaka, höfuöborg Bangladesh, eftir að lög-
regla hafði gripið til barefla til þess að halda aftur af æstum kröfugerðarmönn-
um. Yfir fjörutíu meiddust í róstunum þar í gær. Símamynd Reuter
Skattalækkunar
í Danmörku ekki
að vænta í bráð
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahcín;
í fyrirspumatíma í danska þinginu
sagði Poul Schlúter, forsætisráð-
herra, að skattalækkun væri fyrst
hugsanleg eftir fjögur til fimm ár.
Væri lækkun persónuskatta þá efst
á óskalistanum. Skattalækkunin
væri þó háð því að ríkisstjóminni
heppnaðist að koma stefiiu sinni í
efnahagsmálum í gegn.
Árið 1986"vom fjárlög ríkisins hag-
stæð um nær átta milljarða danskra
króna og eykur það að sögn
Schlúters von um væntanlega
skattalækkun. Þó sé ströng út-
gjaldastefna, stöðnun í neyslu, aukin
framleiðsla og útflutningur, ásamt
lækkun vaxtaútgjalda ríkisins,
grundvöllur skattalækkana. Vill
Schlúter ekki útiloka að í lok næsta
kjörtímabils, ef hann situr þá við
stjóm, verði hægt að tala um skatta-
lækkun. Ekki sé þó unnt að lofa
neinu eins og stendur.
Skattaprósentan í Danmörku, 51
prósent, er sú næst hæsta í heimin-
um en hæst er hún í Svíþjóð.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur 9,5-11 Lb
óbund. Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 13-20 Sp.vél.
18mán. uppsögn 19-20,5 Bb
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4-7 Sp
Innlan verðtryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb, Lb.Úb. Vb
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,54 Ab.Úb
10-22
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 5-6 Ab
Sterlingspund 9,5-10,5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskarkrónur 9-10 Ab.Bb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 18,75-20 lb
Vidskiptavíxlar(forv.)(1) 21,75-22 eðakge
Almenn skuldabréf(2) 20-21,25 Ab.lb, Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 20-21 Ib.Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5árum 6-6,75 Lb
Til lengri tima 6,5-6,75 Ab.Bb,
Lb.Sb, Úb.Vb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 16,25-21 Ib
SDR 7,75-8.25 Lb.Úb
Bandarikjadalir 7,5-8 Sb.Sp
Sterlingspund 12,25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5,75-6,5 Bb.Lb, Úb.Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-6,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 1614 stig
Byggingavísitala 293stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði7,5%1.jan.
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113 kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 450 kr.
Hampiðjan 140 kr.
Iðnaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavixla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn
birtast í DV á fimmtudögum.