Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 7
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. 7 Utlönd Amishfólkið í erfðafræðirannsókn: Geðsjúkdómar liggja í ættum Ættfræðin í lagi Þegar lagðar eru saman nýjustu aðferðir í erfðafræðirannsóknum og ættfræðileg gögn frá Amishfólkinu þá kemur í ljós að geðveilur eins og þung- lyndi ganga í það minnsta að hluta í arf frá kynslóð til kynslóðar. Þetta er í fyrsta sinn sem unnt reynist að rekja geðsjúkdóma til erfða svo óyggjandi sé. Geðhvörf koma yfirleitt fram á aldr- inum 15 til 35 ára hjá einum af hundraði manna. Sjúkdómurinn ein- kennist af ofvirkni og þunglyndi á víxl. Þegar ofvirknin er hvað mest ræður sjúklingurinn sér vart fyrir vinnugleði og athafnasemi þannig að hann gefur sér vart tíma til að sofa og borða. I þunglyndisköstunum fyllist hann von- leysi og sektarkennd sem í sumum tilvikum getur leitt til sjálfsmorðs. Vísindamenn hafa lengi litið svo á að sjúkdómurinn gæti verið arfgeng- ur. Ekki hefur þó reynst unnt að prófa tilgátuna til þessa. Hjá Amishfólkinu eru aðstæður þannig að þar er auð- veldara en meðal annara þjóðfélags- hópa að skera úr málinu. Þar er líf manna kyrrlátt og því leyn- ir sér ekki þegar fram koma einstakl- ingar með afbrigðilega hegðun. Utanaðkomandi þættir, sem geta örv- að geðhvörfin, eru þar einnig fátíðir. Þar er einkum átt við ofdiykkju, eitur- lyfjafíkn, atvinnuleysi, hjónaskilnaði og ofbeldi. Öll eru þessi fyrirbæri nán- ast óþekkt meðal Amishfólksins. Einangraður hópur Þá eru fjölskyldur þar stórar - að jafiiaði eiga hver hjón sjö böm - og til em nákvæmar upplýsingar um ætt- ir manna. Þá er Amishfólkið einangr- aður hópur. I Lancastersýslu eru 12.500 manns sem teljast til þessa hóps. Allir geta rakið ættir sínar til 20 til 30 hjóna sem komu þangað frá Evrópu snemma á 18. öldinni. Sárafáir af öðr- um ættum hafa blandast í þennan hóp síðan. Geðhvörf eru síst algengari hjá Amishfólkinu en öðrum þjóðfélags- hópum. I rannsókn Egelands fundust aðeins 32 tilfelli. I ættum þeirra alfra hefur þessi sjúkdómur komið fyrir áður. Frá árinu 1880 er vitað um 26 sjálfsmorð hjá Amishfólkinu. Það fólk tilheyrir allt íjórum ættum. Rannsóknin beindist fljótlega að einni ætt. Til hennar telst 81 maður. Fjórtán þeirra liafa einkenni geð- hvarfa og fimm hafa aðrar geðveilur. Fastheldni á forna siði er einkenni Amishfólksins. Það er fátítt að rekast á blaður- skjóður í hópi Amishfólksins í Lanc- astersýslu í Pennsylvaníu. Enn fátíðara er að sjá menn fara með háv- aða og látum eða ráða sér ekki fyrir gleði. Það ef einnig afar fátítt að menn séu mjög þunglyndir og sjálfsmorð þekkjast vart. Líf Amishfólksins varð þekkt um víða veröld eftir að kvikmyndin Vitnið var sýnd fyrir tveim árum. Hún vakti m.a. mikla athygli hér á landi. Þetta er kyrrlátt samfélag manna sem vilja vera í friði. „Líf þessa fólks er í hrópandi andstöðu við lífsstíl ann- arra manna á þessum slóðum," segir Janice Egeland, sérfræðingur í félags- legri læknisfræði. Hún hefur dvalið meðal Amishfólksins undanfarinn ald- arfjórðung. „Þegar það gerist að fólk sýnir óeðli- legar geðsveiflur þá er haft á orði meðal Amishfólksins að þetta sé í blóðinu," segir Egeland. Og hún bætir því við að flest bendi til að þessi skýr- ing eigi við rök að styðjast. Geðhvörfin virðast vera arfgeng. Tekin voru blóðsýni úr öllum þessum mönnum og litningar í blóðfrumunum greindir og kom sama misfellan alls staðar fram. Talið er að helmingslíkur séu á að afkomendur manna af þess- ari ætt erfi sjúkdóminn og aðeins lítill hluti þeirra fái einkenni hans. Þar er talið að utanaðkomandi þættir geti ráðið miklu. Þessar niðurstöður kunna að leiða til þess að fram komi öruggt lyf til að lækna sjúkdóminn. Þegar eru til lyf sem draga úr áhrifunum í mörgum til- vikum. Snaraö/GK Við bætum við vélum og sætum Núgerum við sem flestum kleiftað komast I skemmtilega páskaferð: Við bætum við heilli flugvel til Mallorca og aukasætum í lúxusferðina til Thailands - tveir heillandi möguleikar á ógleymanlegu páskaleyfi þar sem dvalarlengd er í hámarki miðað við vinnutap. í notalegu loftslagi gefst þér kostur á þægilegu strandlífi, skemmtilegum skoðunarferðum eða könnun framandi slóða. Verðið erlægra enáðurhefurþekkstfyrirsambærilegarferðir. Gerðu samanburð -þetta páskatækifæri borgar sig að grípa sem fyrst ef nokkur tök eru a! Aukavél. 13.-27. 2vikur -7 vinnudagar. Flogið er til Mallorca í beinu leiguflugi og dvalistþar í þægilegum íbúðum. Við minnum á frábæra golfvelli ínæsta nágrenni og skorum á íslenska kylfinga að taka nú hraustlegt forskot á sæluna. Verðkr.: 6 í 3ja herb. íbúð 4 í 2ja herb. íbúð 3 í 2ja herb. íbúð 2í2jaherb. íbúð 19.900.- 23.300.- 24.400. - 25.400. - Barnaafsláttur: 2ja-12árakr. 13.000,- 12-15árakr. 9.000,- Miðað við flug, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslenska fararstjórn. Samvirmuferdir - Landsýn Aukasæti. 10.-26. apríl. 2vikur -7 vinnudagar. Flogið er til Kaupmannahafnar og þaðan með SAS tilBangkok, þarsem gist verður í hinu glæsilega Hotel Montien í hjarta borgarinnar. Síðan erhaldið til Pattaya strandarinnarog dvalistá Ftoyal Cliff, 5 stjörnu lúxushóteli í 10 daga. Þetta er frábært tækifæri til að uppgötva Asíu og reyna eitthvað nýtt, íslenskur fararstjóri verðurþér til trausts og halds. Verðkr. 58.700.- Innifalið erflug, gisting Í2ja manna herbergi, aksturtH og frá flugvöllum erlendis og islensk fararstjórn. Aukavika í Singapore: Aðeinskr. 9.900.- Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 91 -28899 Hótel Sögu við Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 ■ 96-27200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.