Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. Minning Sæmundur froða allur Útfararstjóri: Þorsteinn J. Vilhjálmsson DV-mynd Kristján Ari Örlög Sæmundar froðu. Hann sést hér ei meir. Hann var bókstaflega hugur manns, þessi bíll; eins og ágætasti bankastjóri eða bifreiðaeftirlits- maður í þjónustu hins opinbera. Það er með trega að ég tilkynni að fylgdarmaður allra tíma, Sæ- mundur froða, er allur. Blóa eldingin, riddari götunnar, tor- færutröllið ógurlega, blái skugg- inn, er ekki lengur á meðal vor. Hann var kvaddur í kyrrþey í vik- unni, að ósk aðstandanda hans. Athöfnin var einföld og látlaus. Staðurinn var nöturlegur. Það var kalt í veðri. Síðan sjötíu og eitt Sæmundur froða kom í heiminn á því herrans ári 1971, framleiddur undir merki Fords sóluga og skrúf- aður saman af breskum bjórber- serkjum. Eftimafnið var Escort. Það reyndust orð að sönnu. Tólf árum seinna voru straumlín- ur þessa glæsivagns löngu komnar úr tísku og snerpa hans nokkuð i rénun. Liturinn var næstum það eina sem ekki hafði látið á sjá, þá - svo fallega blór, eins og heiðskír himinninn. Einmitt þess vegna fékk Sæmundur viðurnefnið froða. Útlitið lofaði eiginlega meiru en hann gat í raun staðið við. Sölumaðurinn á bílasölunni fór heldur ekki í neinar grafgötur með að þrjátíu þúsund nýkrónur væru raunverð farartækisins. Það var síðar sem óvandaðir menn tóku Sæmund í karphúsið og gerðu á honum þær breytingar sem smám saman settu mark á aksturslag hans. Dauðvona sjúklingur Þetta byrjaði með því að prúð- búinn sumarlögreglupiltur lét draga Sæmund upp í port lögreglu- stöðvarinnar. Sakargiftin var límd í framrúðu hans: græn frá árinu áður. Upp úr því lenti hann í úti- stöðum við þorpara sem gaf sig út fyrir að vera bifvélavirki. Sá dytt- aði að Sæmundi þannig að Eftirlit- inu líkaði. En fyrir eitt og annað smávegis heimtaði maðurinn stórfé. Dólgurinn neitaði síðan skiljanlega að staðfesta svikin með nótu. Sorgarsaga er réttnefni á þessum viðskiptum. Reikningurinn var jafnóskiljanlegur og námslán íslenska lánasjóðsins. Þarna var kannski strax ljóst í hvað stefndi.Tímans tönn var að beygja Sæmund í ryðrautt duftið. En líkt og sjúklingur, sem berst við illkynjað mein, gafst Sæmundur ekki upp, ekki fyrr en forvarnarað- gerðir fúskarans brugðust alger- lega. Þá var líka öllu lokið. Það er svo margt Það er margs að minnast eftir á. Þótt stöðugt drægi af Sæmundi komst hann alltaf á leiðarenda hvar sem sá áfangastaður var. Hann var keyrður áfram á verstu vegum landsbyggðarinnar, jafnvel þó ekki heyrðist mannsins mál vegna barsmíða í vélarrúminu. í einni slíkri ferð brotnaði hann reyndar algerlega niður en ekki fyrr en komið var á leiðarenda. Svoleiðis var Sæmundur. Viðkunn- anlegur vélvirki var þá fenginn til að sinna sjúklingnum. En allt kom fyrir ekki. Kalda stríðið Sæmundur virtist staðráðinn í að ná sér niðrá mér, eina aðstandand- anum, áður en yfir lyki. Ekki leið á löngu áður en hann neitaði alfar- ið að kveikja á sér í rigningu. Verri var hann í frosti. Skömmu síðar var hann bara alls ekki til viðræðu hvernig sem viðraði. Þá brá ég á það ráð að láta draga hann í gang nauðugan. Jafnvel þá var þijóskan eins og hjá samninga- nefndunum í farmannadeilunni. Það þurfti að drattast með hann um hverfið þvert og endilangt til þess að fá hann af stað. Þetta var daglegt stríð. Fólk í nágrenninu reif sig á fætur fyrir allar aldir til að fylgjast með ósköpunum. Ekki nóg með það. Þegar Sæ- mundur var á annað borð kominn í gang var ekki um annað að ræða en að halda honum gangandi allan daginn. Þannig gekk hann stund- um stanslaust tíu til tólf tíma á sólarhring og var kannski skiljan- lega orðið heldur betur heitt í hamsi. Við suðumark Gangverkið í Sæmundi, undir það síðasta, var þó hreinasta para- dís miðað við stýrisútbúnaðinn eða fjaðrirnar, svo ekki sé minnst á gírana. Hann féllst á að fara aftur á bak með slíkum hljóðum sem hrjáðir kettir geta einir kreist upp úr sér. Að taka af stað áfram í fyrsta gír var ekki til umræðu. Annar var líka útilokaður. Sá þriðji reyndist þannig afarkostur- inn. Og af stað drattaðist Sæmund- ur með þvílíkum rykkjum að ófrísk kona hefði farið í gang ó stundinni. Við svo búið mátti ekki standa. Mér var orðið jafnheitt í hamsi og Sæmundi eftir daginn. í bræði minni reif ég af honum númerin og lagði þau beygluð inn í endur- skoðað bifreiðaeftirlitið. Þeir tóku mér vel, enda Sæmundur einn af þeirra allra eftirminnilegustu kúnnum - vafalaust dauðfegnir að losna við hann úr viðskiptum. Banahöggið Það var ekki fyrr en nýlega sem samviskubit tók að naga mig. Sæ- mundur hírðist á afviknum stað, númerslaus og öllum gleymdur. Útlit hans minnti mig á augnaráð slitna bangsans sem ég henti einu sinni í ruslið. Svona kemur maður ekki fram við tryggan lífsförunaut sem verður vegna aldurs að draga sig í hlé. Ég sé það nú. Því var hans vitjað í hinsta sinn. Þar fór maðurinn með ljáinn, eins og sloppinn út úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Kveðjuathöfnin var fá- menn og látlaus. Hún var stutt, aðeins eitt högg. Sæmundur froða var allur. Blái skugginn sést hér á götum ei meir. Kannski verður hann notaður í umbúðir utan um grænar baunir. Klökkur settist ég upp í nýja bíl- inn, Guðbjart, og ók á brott. Himinninn er ekki lengur blár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.