Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Side 17
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
17
Japanskir listmunir sækja á
Japönsk listaverk hafa aldrei notið
sömu virðingar á Vesturlöndum og
kínversk. Ástæðan er öðru fremur
sú að Kínverjar lögðu öldum saman
stund á leirmunagerð og myndlist
meðan Japanir voru uppteknir af
innanlandserjum og ástunduðu út-
nesjamennsku í listum.
En Japanir hafa þó átt sína lista-
menn á liðnum öldum. Það voru
japanskir leirmunir sem hollenskir
kaupmenn fluttu til Evrópu á 17. öld-
inni. Þessi verk höfðu þá þegar áhrif
á evrópska myndlist og eru eftirsótt
af söfnurum. Það kom m.a. fram á
uppboðum hjá bæði Sotheby og
Christie í Lundúnum í síðustu viku.
Bandaríkjamenn stórtækir
Ef frá eru taldir nokkir enskir lista-
verkasalar þá voru Bandaríkjamenn
í meirihluta. Þeir hafa einkum hug
á leirmununum. Japanir láta sig
heldur ekki vanta. Áhugi þeirra
snýst þó mest um sverð og aðra hluti
úr málmi. Þá má ekki gleyma að á
meginlandi Evrópu er einnig nokkur
áhugi á japanskri list.
Verð hefur farið hækkandi á síð-
ustu árum. Þó virðist sem dýrustu
munirnir, sem einkum eru úr fíla-
beini, hafi ekki hækkað í verði.
Dæmi um hið andstæða er þó fíla-
beinsmynd af konu með barn.
Myndin var gerð fyrir einni öld og
kostaði þá nokkur þúsund krónur.
Nú er verðið komið yfir hálfa milljón.
Hjá stóru uppboðsfyrirtækjunum í
Lundúnum gætir þess nú æ meira
að uppboðin eru að aukast að um-
fangi á sama tíma og þeim fækkar.
Þetta er gert til að auðvelda kaup-
endum frá öðrum löndum að sækja
uppboðin. Uppboðin nú vitna um
þessa þróun.
Eitt frægasta japanska listaverkið
á uppboðinu hjá Christie nú er vasi
sem kenndur er við Hamton Court.
Hann er frá lokum 17. aldar og kom
til Englands árið 1696 eftir að María
prinsessa og ríkisarfi á Englandi fór
til Hollands á fund Williams III heit-
manns síns. Það eina sem prinsessan
sá í Hollandi og þótti merkilegt var
þessi framandi vasi. Á báðum upp-
boðunum voru vasar í þessum stíl
og seldust á góðu verði.
Kaupmenn á 17. öldinni komust
fljótt að því að japanskir listmunir
voru góð verslunarvara og létu gera
þá til útflutnings. Einkum voru það
Hollendingar sem stóðu að þessu
enda voru þeir í meiri metum i Japan
en aðrir kaupmenn. Því má rekja
sögu margra þessara muna til Holl-
ands.
Vandlátir Japanir
Japanir hafa ekki mikinn hug á að
eignast þessa muni aftur og þeir eru
Japanskur dýrgripur.
Kenndu ekki
öðrum um.
Hver bað þig
að hjóla í myrki
og hálku?
taldir mjög vandlátir i vali sínu á
öðrum munum. Þeir sækjast helst
eftir gripum sem eru eldri en vasarn-
ir sem Hollendingar létu gera. Á
uppboðunum voru munir sem eru
meira en þúsund ára gamlir og voru
gerðir undir sterkum kínverskum
áhrifum. Þetta eru munir sem komið
hafa til Vesturlanda á síðari árum
og eru taldir hafa mikið menningar-
sögulegt gildi i Japan.
Snarað/GK
Pú öetur oröiö
ímithali
og notiö fullra
hltmninda strax
ÞÓTT BORGUN HLUTABRÉFANNA HEFJIST EKKI
FYRR EN EFTIR 2ÁR, OG DEILIST ÞÁ Á 10 ÁR.
FYRSTU 2 ÁRIN GREIÐIR ÞÚ AÐEINS VEXTII
Arnarflugsklúbburinn
Hver sem kaupir hlutabréf fyrir kr. 100 þúsund
- færaðild að Arnarflugsklúbbnum.
• Drykkir um borð eru þá fríir.
• Farangursheimild hækkar úr
20 kg í 30 kg.
• Afsláttur fæst af gistingu á
'hótelum í Amsterdam, Hamborg
og á nokkrum stöðum hérlendis.
• Herbergi má halda lengur en
almenntleyfistá þessum hótelum.
• Afsláttur fæstá bílaleigum í Amster-
dam, Hamborg, Sviss og hérlendis.
• Klúbbfélagar hafa aðgang að VIP ROOM
á Schiphol flugvelli.
Gullkort
Sá sem kaupir einnar milljónar króna hlutabréf
nýtur alls sem greint er frá hér að
framan og fær eina meginlandsferð
fyrir tvo árlega í 12 ár, á svo lágu verði
að það verður ekki tilgreint í neinni
auglýsingu. Þá ferð má fara hvenær
* sem er að vetri til (1/10 - 31/3).
Enn er þess ógetið sem mörgum
ykir hvað mestu skipta.
IAPA skírteini
Kaup á 500 þúsund króna hlutabréfi veita aðild
að Arnarflugsklúbbnum og afnot af IAPA skírteini
í eitt ár. (IAPA = International Airline Passenger
Association).
Skírteinið veitir
» 10-40% afslátt af hótef-
gjöldum um allan heim.
• Verulegan afslátt af flugfar-
gjöldum erlendis.
15-40% afslátt af bílaleigu-
gjöldum erlendis.
• Ferðaslysatryggingu á alveg sérstökum kjörum.
Arnarflug hf. er nú endurskipulagt fyrirtæki
Starfsfólki hefur verið fækkað um helming og sá
•ýk æinn rekstur verður stundaður, sem við teljum að
Vvskili hagnaði: Evrópuflugið. Þegar hlutafjársöfnun
lýkur að þessu sinni,verður hlutafé alls
kr. 230 milljónir, þ.e. ámóta og andvirði
lítils skuttogara.
Stærra er fjárhagsdæmið ekki, en mjór
er mikils vísirog mörgum hluthöfum
gengur það eitt til að gerast þátttak-
endur í hinum unga, en ört vaxandi
ferðamannaútvegi landsmanna.
Aðrir leggja megináherslu á, að einungis fyrir
atbeina Arnarflugs njóta íslendingar kosta
samkeppninnar í áætlunarflugi til meginlandsins.
Nánari upplýsingar fást hjá Guðbrandi
Leóssyni á skrifstofu félagsins og hjá
Fjárfestingarfélaginu.
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477