Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. 19 Rannsóknir á eyðniveirunni: Undarlega margbrotin Eftir því sem vísindamenn eyða meiri tíma í að rannsaka eyðniveiruna þá kemur æ betur í ljós hve margbrotin hún er og ill viðureignar. Veiran hefur í sér miklu fleiri litn- inga og þar af leiðandi fleiri eigin- leika en nokkurn óraði fyrir þegar rannsóknir á henni hófust. Margbreytileiki eyðniveirunnar veldur ef til vill mestu um hve erfið- ur viðureigar þessi sjúkdómur er. Þetta er hægfara smitsjúkdómur sem verður nánast óviðráðanlegur þegar hann verður að faraldri. Þrátt fyrir erfiðleikana við að rannsaka eyðniveiruna hefur tekist að safna mikilli þekkingu á hegðun hennar. Fáir gera ráð fyrir að hægt verði að ráða niðurlögum þessa vá- gests í bráð. Visindamenn eru þó sammála um að það takist með tíð og tíma og eftir því sem rannsóknirn- ar verða umfangsmeiri þá bætist við þekkingu manna á öðrum veirusjúk- dómum. Sérfræðingarnir segja að einhver mikilvægasta uppgötvunin í rann- sóknunum á eyðniveirunni sé hvað litningar hennar séu flóknir og stöð- ugt bætast við ný afbrigði. Aðrar þekktar veirur af sömu ætt og eyðni- veiran hafa þrjá litninga. Eyðniveir- Nærmynd af eyðniveirunni. an hefur í það minnsta átta litninga og talið er að fleiri eigi eftir að fmnast. Enn er ekki vitað hvert er hlutverk litninganna fimm sem eru umfram þá sem áður voru þekktir. Þó er vitað að einn þessara litn- inga, sem meðal vísindamanna er kallaður tat, getur valdið skyndilegri og mjög örri fjölgun á veirunum. An þessa litnings virðist veiran ekki geta fjölgað sér. Því standa einkum vonir til að finna megi lyf sem eyðir þessum litningi en það hefur ekki tekist. Rannsóknirnar hafa einnig leitt í ljós að eyðniveiran eyðileggur ekki bara ónæmiskerfi líkamans. Hún getur einnig lagst á heilafrumur og frumur í miðtaugakerfinu. Sé þetta rétt getur veiran borist frá manni til manns eftir fleiri leiðum en hingað til hefur verið talið. Til þessa hefur verið gengið út frá að hún berist aðeins með blóði og sæði en margt bendir til að smitleiðirnar geti verið fleiri. Snarað/GK Nú opnum við ÚTSÖLUMARKAÐ í KJALLARANUM. OPIÐ í DAG TIL KL. 16.00. Verðið í kjallaranum er svo sannarlega á botninum. Opið: virka daga kl. 10-18 Föstudaga kl. 10-19 Laugardaga ki. 10-16 Smiðjuvegi 2, Kópavogi Simar 79866, 79494 VERÐFr^KR S5S5SS®; Sterio hllorQUG?—---—

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.