Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Síða 20
20 / LAUGARDAGUR 14. MARS 1987. Kórstúlka Rut Magnússon er í hugum margra útlend koma sem syngur ákaflega skrýtna tónlist. Þeir sem fylgjast með í tónlistarlífinu vita þó að hún hefur víðar komið við og hún er potturinn og pannan í mörgu af þvi sem gert hefur verið hér á undanförnum árum. Eitt af þessum uppátækjum er Sin- fóníuhljómsveit æskunnar og fyrir störf sín að málefnum hennar hlaut Rut Menningarverðlaun DV í ár. Hún hefur og margt fleira á sinni könnu. Þar á meðal er framkvæmda- stjórn fyrir Listahátíð og er hún í því starfi komin langan veg frá því að vera kórstúlka hjá föður sínum í Carlisle á Englandi. Það er Sinfóníuhljómsveit æsk- unnar sem á hug Rutar allan þegar við setjumst niður að ræða umsvif hennar í tónlistarlífinu. Hvaða hljómsveit er þetta? Upphafið „Sinfóníuhljómsveit æskunnar er hljómsveit fyrir unga hljóðfæraleik- ara í tónlistarskólum þegar þeir eru komnir vel á veg í náminu. Hún var stofnuð í janúar 1985 í sambandi við ár æskunnar hjá Sameinuðu þjóðun- um og tónlistarár Evrópuráðsins. Hljómsveitin er þó fyrst og fremst sprottin upp úr Zukofsky-námskeið- unum sem voru haldin hér árlega á árunum 1977 til 1983. Þau stóðu í hálfan mánuð nema árið 1982, þá stóð það í heilan mánuð. Zukofsky- námskeiðin voru opin nemendum alls staðar að úr heiminum. Við urð- um að hafa þann hátt á vegna þess að á þessum árstima voru margir af bestu nemendunum í útlöndum eða voru í vinnu sem er svolítið sérstakt fyrir ísland. 1 Ijósi reynsiunnar af námskeiðun- um var ákveðið að tengja þau hugmynd um að stofna unglinga- hljómsveit sem skipuð væri nemend- um úr tónlistarskólunum. Hljómsveitin varð til eftir að ég skrifaði greinargerð um hvernig við hugsuðum okkur að hafa hljómsveit- ina. Með í þessu voru Jón Nordal og Stefán Edelstein. Ég fór með þetta á fund samtaka skólastjóra tónlistar- skólanna og það var samþykkt. Við hófum starfið strax og fyrsta nám- skeiðið var í febrúar 1985 og annað um haustið. Einnig var námskeið fyrir blásara um áramótin 1985-86. Einkaframtak Sinfóníuhljómsveit æskunnar er íjármögnuð á ýmsan hátt, m.a. með námsgjaldi sem hver þátttakandi greiðir. Við reynum að hafa það eins lágt og hægt er til að útiloka engan frá að vera með. Tónlistarskólar landsins fá tilkynningu um að leitað sé eftir fólki í sveitina. Tónlistarskól- arnir borga nokkuð til rekstursins, eftir því sem þeir geta, en árgjald þeirra skóla, sem eiga nemendur í hljómsveitinni, er nú 9.000 krónur. Éinnig er leitað til einstaklinga sem studdu Zukofsky-námskeiðin á sínum tíma. Síðan eru það fyrirtæk- in. Framlag þeirra er mjög mikil- vægt. Ég reiknaði það út að hlutur þeirra í rekstri hljómsveitarinnar er um 55%. Án þess sem frá þeim kemur væri ekki gerlegt að reka hljómsveit- ina. Þá fengum við 70 þúsund krónur í styrk frá ríkinu árið 1985. Við höfum reynt að fá styrk tekinn inn á fjárlög en það hefur ekki tek- ist. Styrkurinn, sem við fengum í þetta eina sinn, var veittur fyrir til- stuðlan Ragnhildar Helgadóttur menntamálaráðherra. Við erum al- veg klár á því að framtíð Sinfóníu- hljómsveitar æskunnar er ekki trygg fyrr en við fáum árviss framlög á fjár- lögum. Sönnunin fyrst Frá því í mars á síðasta ári hefur verið unnið að því að stofna Sinfón- íuhljómsveit æskunnar formlega. Fyrsta árið hefur verið eins konar tilraunaár. Nú er kominn tími til að gera hljómsveitina að fastri stofnun. Þetta hefur verið ævintýri en nú þarf að finna henni fastan grund- völl. Það eru liðin tvö ár síðan fyrstu tónleikamir voru haldnir. Ég held að það hafi verið rétt að hafa þennan hátt á frekar en að stofna hljómsveit- ina fyrst og hlaupa svo til ríkisvalds- ins og biðja um peninga. Það er miklu sterkara að sýna fyrst fram á að þetta er hægt og nú hefur hljóm- sveitin tvímælalaust sannað tilveru- rétt sinn.“ - Hvaða máli skiptir það að fá Menningarverðlaun DV þegar rekst- ur hljómsveitarinnar er kominn á þetta stig? „Það beinir öðru fremur athyglinni að þessu starfi. Öll umfjöllun um hljómsveitina hjálpar okkur.“ - Vita fáir að þessi hljómsveit er til? „Nei, ég held að svo sé ekki. Við . fáum fimm til sex hundruð manns á tónleika. Fyrstu tónleikana héldum við í Hamrahlíðarskólanum fyrir fullu húsi en tónleikarnir nú voru í Háskólabíói. Þetta er starfsemi sem mörgum þykir vænt um eins og sést á aðsókninni. Það er líka rétt að taka fram að á námskeiðum hljómsveitarinnar eru alltaf góðir kennarar. Þarna hafa t.d. Bernharður Wilkinson og Josef Ognibene kennt tréblásurum og málmblásurum frá upphafi. Það eru um sextíu æfingatímar á þessum hálfa mánuði og bætast þeir við ann- að nám þátttakenda. Það koma krakkar frá skólum utan Reykjavíkur og hljómsveitin greiðir fargjaldið þannig að allir standa jafnt að vígi. Það er unnið vel á þess- um hálfa mánuði." Gagnrýni - Nú kom fram gagnrýni á að þú fékkst verðlaunin en ekki Zukofsky. Hvað finnst þér um það? „Já, svona gagnrýni sýnir fyrst og fremst að verðlaununum hefur verið veitt athygli. Það er einnig mjög eðlilegt að þessi gagnrýni komi fram. Á hitt ber að líta að það hafa margir lagt sitt af mörkum við uppbyggingu hljómsveitarinnar. Paul Zukofsky hefur stjórnað henni og einnig Mark Redmann. Það gefur augaleið að Sin- fóníuhljómsveit æskunnar er ekki eins manns verk. Ég vil hins vegar halda því fram mér til málsbóta að ég hef unnið að málum hennar allan tímann og haft umsjón með rekstri hennar.“ - Nú er það heldur fátítt að menn sjái fyrir sér unglinga við að leika klassíska tónlist. Er það ekki undan- tekning ef unglingar hafa áhuga á klassískri tónlist? „Nei, þetta er alger vitleysa. í tón- listarskólum landsins eru um 8 þúsund nemendur, auk þeirra sem æfa með lúðrasveitum og kórum. Þetta er því ekkert annað en mis- skilningur. Hann kann kannski að stafa af því að popptónlistin er meira áberandi í fjölmiðlum og hún glymur á götum úti. Hvað mundi fólk segja ef það heyrði bara Bach og Hándel eða Beethoven þegar það gengur um Austurstrætið eða Laugaveginn? Það er svo mikið af þessu sem kallað er „musak“ og við tökum sem sjálf- sögðum hlut. Hópurinn er stór Mér virðist það vera mjög stór hópur ungs fólks sem leggur stund á klassíska tónlist. Sá hópur er miklu stærri en sá sem tekur þátt í að fram- leiða popptónlist." - Er hlutverk Sinfóníuhljómsveit- ar æskunnar þá fyrst og fremst að vera eins konar uppeldisstofnun fyrir þá sem eru í henni? „Já, hún hefur það hlutverk og einnig að gefa þessum unglingum — Rut Magnússon Rut Magnússon. Mér hættir við að vasast í of mörgu. tækifæri sem þeir fá ekki annars staðar. Ein ástæðan fyrir að hljóm- sveitin var stofnuð er að enginn einn tónlistarskóli í landinu er nógu stór til að geta rekið unglingahljómsveit af þessari stærð. Tónlistarskólinn í Reykjavík kemst ef til vill næst því en samt vantar þar nemendur á viss hljóðfæri. Eini möguleikinn er því að hljómsveitin sé úr öllum tónlistar- skólunum. f hljómsveitinni fá nemendur líka undirbúning fyrir nám í öðrum löndum. Það gildir það sama um þessa starf- semi og t.d. íþróttir að krakkar, sem eru þama með, eru ekki í óreglu og því ekki til vandræða fyrir þjóðfélag- ið. Tónlistaruppeldi hefur einnig þá þýðingu." - Nú ert þú talsvert áberandi í tón- listarlífinu sem söngvari og vegna starfsins fyrir Tónlistarfélagið, Sin- fóníuhljómsveit æskunnar, Tónverk og svo mætti áfram telja... „Já, ég sé um tónleikahald á vegum Tónlistarfélagsins en ég er hætt að syngja. Hins vegar kenni ég söng í Tónlistarskólanum, bæði þeim sem eru að læra söng eingöngu og einnig þeim sem eru í almennu tónlistar- námi. Skipulagsmálin Líf söngvarans er takmarkað. Það kemur að því að röddin fer að láta undan og tími er kominn til að hætta. Þetta varð líka til þess að við Kristín Sveinbjarnardóttir stofhuð- um Tónverk. Við höfðum unnið saman áður og önnuðumst m.a. söng- hátíðina 1983 á vegum Tónlistarfé- lagsins. Við vorum meira og minna farnar að vasast í skipulagningu á tónleikahaldi. í framhaldi af því fengum við áhuga á að hjálpa tónlist- armönnum við að skipuleggja tón- leika. Tónverk vinnur með Tónlist- arfélaginu við þessa skipulagningu. Við gefum mánaðarlega út skrá um tónleika á höfuðborgarsvæðinu og sendum það til fjölmiðla og þeirra sem annast tónleika. Þetta skipulag nær bæði til íslenskra tónlistar- manna og þeirra gesta sem hingað koma. Við höfum einnig verið að reyna að skipuleggja samvinnu milli íslenskra tónlistarmanna og starfs- bræðra þeirra á Norðurlöndunum. Við erum t.d. að vinna að bæklingi um Kristin Sigmundsson og Jónas Ingimundarson til kynningar á þeim á Norðurlöndunum og víðar. Tækifæri íslenskra tónlistarmanna eru takmörkuð og verða það alltaf. Það getur aldrei orðið alveg sam- bærilegt við það sem gerist hjá stórþjóðunum vegna þess að mark- aðurinn hér er miklu minni. íslenskir tónlistarmenn verða að komast út, bæði til að kynna íslenska tónlist og sjálfa sig. Við megum hins vegar ekki hafa minnimáttarkennd vegna þess að við erum fámennari þjóð.“ Nútímatónlist - Nú hefur þú lengst af verið þekkt hér á landi fyrir að syngja nútíma-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.