Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1987, Page 34
34
LAUGARDAGUR 14. MARS 1987.
Skák
DV
Einvígi Karpovs og Sokolovs í Linares:
Biskups-
fórnirnar
bitu ekki
á Karpov
Anatoly Karpov jók forskot sitt í
einvíginu við Andrei Sokolov í Lin-
ares er hann knúði fram sigur í
sjöttu einvígisskákinni eftir níutíu
leiki. Skákin var sú innihaldsríkasta
i einvígi þeirra félaga til þessa með
fórnum og flugeldasýningu og síðar
áhugaverðu endatafli. Sokolov átti
heiðurinn af flækjum miðtaflsins er
hann kastaði tveim biskupum í op-
inn dauðann án mikillar umhugsun-
ar. Karpov revmdist hins vegar
vandanum vaxinn og tókst með hár-
fínum varnarleikjum að bægja hættu
frá. Eftir sat Sokolov með vonda
stöðu - hrók gegn tveim léttum
mönnum Karpovs í endatafli - en
honum tókst að þæfa taflið og eftir
u.þ.b. 75 leiki voru „séifræðingar“
farnir að spá jafntefli. Sokolov var
aftur á móti orðinn óþolinmóður eft-
ir svo langa og hetjulega vöm og
gat ekki stillt sig um að sækja með
f-peði sínu. Það hefði hann betur
látið ógert þvi að Karpov tókst að
notfæra sér nýja veikleika í stöðu
hans og er skákin átti að fara í bið
eftir níutíu leiki gafst Sokolov upp.
Sjöunda skák einvígisins var
ósköp dauf í samanburði við þá
sjöttu. Eins og fv-rr tefldi Karpov
Caro-Kann vöm gegn kóngspeðs-
byrjun Sokolovs og með nokkuð
snoturri tilfærslu tókst honum að
einfalda taflið. I framhaldi skákar-
innar mátti Sokolov gæta að sér svo
hann yrði ekki undir í baráttunni
en hann náði að halda jafhvæginu.
Samið var um jafntefli eftir 41 leik.
Að loknum sjö skákum hefur
Karpov unnið tvær en fimm hefúr
lokið með jafntefli. Staðan 414—2 Þi
Karpov í vil. Þeir tefla 14 skákir,
þannig að Karpov nægja þrír vinn-
ingar til viðbótar til þess að ná
andspæninu gegn Kasparov. Eftir
gangi einvígisins að dæma ætti hon-
um ekki að verða skotaskuld úr þvi.
Eins og dæmin sanna er Sokolov
háll sem áll í flækjum miðtaflsins
en er mönnum fækkar á borði stenst
hann ekki Karpov snúning. Ekki
má þó vanmeta Sokolov, því að víst
er að hann gefst ekki upp þótt á
móti blási. Hann var jú tveim vinn-
ingum undir í einvíginu gegn
Jusupov en sneri á hann á elleftu
stundu.
Sokolov fékk áttundu skákinni,
sem tefla átti á fimmtudag, frestað
fram á sunnudag. Hvor hefur rétt á
að fresta tveimur skákum. Vafalaust
notar hann frídaginn til þess að
dusta rykið af nýjum vopnum, því
að drottningarindverska vömin, sem
hann hefur teflt til þessa með svörtu,
hefur ekki reynst honum vel og hann
hefur heldur ekki fengið miklu áork-
að með hvítu gegn Caro-Kann vöm
Karpovs. Lítum á sjöttu og sjöundu
skákir einvígisins.
Sjötta einvígisskákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Andrei Sokolov
Drottningarindversk vöm.
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6
5. b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. Rc3 d5 8.
cxd5 Rxd5 9. Bg2 0-0 10. Rxd5 exd5
11. 0-0 Rd7 12. Hcl He8 13. Hel c5
Það er makalaust að þeir félagar
skuli ávallt tefla sömu byrjanimar í
þessu einvígi og ekki þær fjömgustu
sem skákborðið býður upp á. í 4.
skákinni lék Sokolov 13. -Bd6 í stöð-
unm en textaleikurinn sást í 2.
skákinni og reyndar einnig í fyrsta
einvígi Karpovs og Kasparovs. Nið-
urstaðan er og verður ávallt sú sama:
Hvítur á ívið betra og þægilegra
tafl en svartur getur gert sér vonir
um að ná jafntefli með því að tefla
nákvæmt.
14. Be3 Bb7 15. Bh3 cxd4 16. Bxd4 RfB
17. Hc2 Bb4 18. Hfl Ba6 19. Rh4
Nýr leikur og hvorki betri né verri
en 19. Bb2, sem Karpov lék í 2. skák-
inni. Þá vildi hann skorða d-peðið
með riddaranum en nú ætlar hann
honum annað hlutverk.
19. -Bf8 20. Rf5 Re4 21. Re3 Dd6 22.
Dcl Had8 23. Hdl
Karpov beinir spjótum sínum að
stöku peði svarts á d-línunni.
23. -Dh6 24. Bg2 Rg5 25. Db2
Auðvitað var d-peðið ekki hollt átu
þó ekki væri nema vegna 25. Bxd5
Bxe2 26. Hxe2 Hxd5 o.s.frv. Karpov
valdar e-peð sitt betur.
25. -Rh3+ 26. Kfl Rg5 27. Kgl Rh3+
28. Kfl Rg5 29. h4 Re4 30. Rg4 De6 31.
Bh3
Hótunin er 32. Rf6+ og vinna
drottninguna og eftir t.d. 31. -Kh8
kæmi 32. Kg2 og aftur hótar hann
riddarahoppi. Sokolov hugsaði sig
um stutta stund og hristi magnaða
fléttu fram úr erminni.
8
7
ó
5
4
3
2
1
31. -Ba3!!? 32. Dxa3 Bxe2+ 33. Hxe2
Rxg3 +
Þriðja mannsfómin í þrem leikj-
um! Þennan mann má Karpov ekki
þiggja - eftir 34. fxg3?? Dxe2+ 35.
Kgl Dxdl + 36. Kg2 Dxd4 em báðir
hvítu hrókamir fallnir í valinn og
svartreitabiskupinn að auki.
34. Kg2! Dxe2 35. Dcl! Rh5 36. Kh2!
Þrír snjallir vamarleikir og sókn
svarts er að renna út í sandinn.
Karpov hefur tekist að sýna fram á
vankanta fómanna. Nú hefur hann
tvo létta menn gegn hrók og tveim
peðum og í þessari stöðu em Iéttu
mennimir sterkari.
36. -Hd6 37. Dd2 Dfi 38. Re5 Df4+ 39.
Dxf4 Rxf4 40. Bd7 Hd8 41. Bb5 Re6
Biðleikur Sokolovs.
42. Bb2 a6 43. Bfl
Tilgangslaust var 43. Bxa6 vegna
43. -Ha8 og nær peðinu aftur.
43. -Hc8 44. Hd2 d4 45. Bg2 Rf4 46.
Bfi d3 47. Rc4 Hh6 48. Kg3 Re2+ 49.
Bxe2 dxe2 50. Hxe2 b5 51. Re3 He6 52.
Hd2 h5 53. Kf4 Hc7 54. Hd5 ffi 55. Ba3(?)
Anatoly Karpov hefur tveggja vinninga forskot í einvíginu við Sokolov.
Skák
Jón L. Árnason
Hvers vegna ekki 55. Hxh5? Það
er eins og yfirburðir Karpovs fjari
smám saman út eftir þennan leik.
55. -g6 56. Bc5 Kf7 57. b4 Ke8 58. Hdl
Hd7 59. Hal Hd2 60. Kfi Kf7 61. a4
Öll peðauppskipti færa svartan
nær jafnteflinu en aðrir leikir liggja
ekki á lausu.
61. -bxa4 62. Hxa4 g5 63. Ha3 Kg6 64.
Kg2 gxh4
' Margir vildu gagnrýna þennan
leik því að svartur slítur peðastöðu
sína sundur. Ekki er að sjá að hvítur
eigi auðvelt með að brjótast í gegn
ef svartur heldur peðakeðjunni óslit-
inni.
65. Rfl Hc2 66. Rh2 Hc4 67. Rfi Kf7
68. Kh2 Hf4 69. Kg2 Hee4 70.Rd2 He6
71. Rfl Hg4+ 72. Kh3 Hf4 73. Ha2
Hfi + 74. Kg2 Hd3 75. Re3 Kg6 76. Hal
Svartur ætti að halda jafntefli á
þessa stöðu ef hann teflir áffarn af
skynsemi. En nú er eins og Sokolov
bresti þolinmæði og hann eyðileggur
stöðu sína í nokkrum leikjum.
76. -f5?! 77. Kh2 f4?? 78. Hgl+ Kf7 79.
Rg2
Framrás f-peðsins var stórlega
vanhugsuð. Sokolov tapar nú peði
og enn heldur hann áfram að tefla
veikt. Nú er 79.-HÍ6 best.
79. -Hc6? 80. Rxf4 Hfi 81. Rh3!
Hótar riddaraglennu á g5. Svarta
staðan er töpuð.
81. Kf6 82. Hel Hf5 83. He4 a5 84. Be3
axb4 85. Hxb4 Ha6 86. Hxh4 Haa5 87.
He4 Hfb5 88. Kg3 Ha8 89. Kh4 Hg8
Hér fór skákin í bið í annað sinn
en Sokolov gafst upp án þess að tefla
áfram. Fyrr eða síðar fellur h-peðið
einnig og hvítur vinnur auðveldlega
með tvo létta menn og peð gegn
hrók.i. Þama fór Sokolov illa að ráði
sínu eftir frumlega fléttu og fræki-
lega vöm lengst af í endataflinu.
Sjöunda einvígisskákin
Hvítt: Andrei Sokolov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Bc4
Eftir 5. Rf3 RgfB 6. RxfB RxfB 7.
Re5 jafnaði Karpov taflið auðveld-
lega með 7. -Be6 í þriðju skákinni
og með 7. -Rd7 í fimmtu skákinni.
Það skyldi þó aldrei vera að Caro-
Kann vöm Karpovs sé skotheld?
5. -RgfB 6. Rg5 e6 7. De2 Rb6 8. Bd3
h6 9. R5fi c5 10. dxc5 Bxc5
Hinn möguleikinn er 10. -Rbd7,
sem leiðir iðulega til flóknara tafls,
nema leiknum fylgi jafiiteflisboð.
11. Re5 Rbd7 12. Rgfi Dc7!?
Venjulegra er að hróka strax, því
að stundum er drottningunni ætlað-
ur staður á e7. Eftir 12. -0-0 hefur
Karpov e.t.v. óttast 13. Bd2 ásamt
langri hrókun, sem er skarpasta
framhald hvíts. Með textaleiknum
leggur hann gildru. Ef nú 13. Bd2?,
þá 13. - Rxe5 14. Rxe5 Bxf2+! 15.
Kxf2 Dxe5! 16. Dxe5 Rg4+ og vinnur
drottninguna aftur með peð í kaup-
bæti
13.0-0 0-014. Bd2 Bd6!? 15. Rxd7 Bxd7
16. Hael Hfd8 17. Re5
17. -Bb5!
Skemmtilegur leikur sem jafnar
taflið léttilega.
18. Bxb5 Bxe5 19. Dxe5 Dxe5 20. Hxe5
Hxd2 21. Bd3 Hc8
Hrókurinn er lokaður inni í her-
búðum hvíts en hvítur hefur engin
tök á að veiða hann. Næsti leikur
er nánast þvingaður því að svartur
hótar að ná undirtökunum með
Rd7-c5.
22. Heel b5 23. a3 Rd5 24. Hdl Hxdl
25. Hxdl a5 26. g3 b4 27. axb4 Rxb4
28. c3 Rxd3 29. Hxd3 Hb8
Staðan er jafntefli en þeir þráast
við enn um stund.
30. Hd2 a4 31. Kfl Hb3 32. Ke2 a3 33.
bxa3 Hxa3 34. Kd3 Kf8 35. Kc4 Ha8
36. Kb3 Hb8+ 37. Kc2 Hc8 38. Hd7
Ke8 39. Hb7 Hc5 40. Hb8+ Ke7 41.
Hb7+ Ke8
- Og samið um jafhtefli.
-JLÁ