Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. 3 Skólastarf er nú komið i eðlilegt horf hjá framhaldsskólum landsins eins og þessi mynd, sem tekin var í MR, sýnir. Nemendur veröa nú að taka sig á til að vinna upp glataðan tima en meðal þeirra hugmynda sem ræddar eru nú er að taka hluta af páskafríi þeirra undir kennslu. DV-mynd BG Framhaldsskólamir vinna upp verkfallið: Kennt á frídögum og um páskana Eftir rúmlega tveggja vikna verkfall framhaldsskólakennara, þar sem 11 kennsludagar töpuðust, eru forráða- menn skólanna nú að velta fyrir sér leiðum til að vinna tapið upp. DV hafði tal af nokkrum þeirra og helstu hugmyndir sem lagðar hafa verið fram eru kennsla á frídögum, svo sem laug- ardögum, og kennsla að einhverju leyti í páskafríinu, þó ekki á ramm- heilögustu dögunum þar. Ömólfur Thorlacius, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, sagði í samtali við DV að hugmyndir um hvemig kennslutapinu yrði mætt yrðu ræddar meðal kennara á fundum í dag. Hins vegar væri ljóst að ekki kæmi til lenging á önninni, nemendur vildu það allra síst þar sem margir þeirra hefðu þegar ráðstafað sér í vinnu í vor. „Mér líst betur á að nemendur fái kennslu í páskafriinu og kennsla á laugardögum kemur vel til greina. En um þetta verður að semja við kennara og fá leyfi hjá menntamálaráðuneyt- inu.“ sagði Ömólfur. Hann bætti því síðan við að í samræðum sínum við aðra skólameistra hefðu svipuð sjón- armið komið fram. Guðmundur Sveinsson, skólameist- ari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sagði í samtali við DV að þeir hefðu sloppið betur en aðrir þvi af þessum 11 dögum sem töpuðust hefðu 3 verið svokallaðir sæluvikudagar og því að- eins um 8 daga að ræða sem vinna þyrfti upp. Hann reiknaði með að fjór- ir af þessum dögum næðust í páska- fríinu og hinn hlutinn með því að seinka prófum, þó ekki þannig að önn- in lengdist því eftir sem áður yrði lokadagur skólans hinn 22. maí nk. Guðmundur sagði einnig að þeir mundu ekki taka upp kennslu á laug- ardögum fram að prófum. Slíkt hefði verið reynt eftir verkfallið 1985 en gefist illa þar sem svo margir nemend- anna væru í vinnu um helgar. Gísli Ólafur Pétursson, aðstoðar- skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, sagði í samtali við DV að þeir væru að reyna að átta sig á ástandinu eftir verkfallið. f dag yrði fundur þar sem hugmyndir kennara yrðu ræddar en helst taldi hann, eins og aðrir, að kennsla á frídögum og um páskana kæmi til greina. -FRI GEFÐU GÚÐA GJÖF FRÁ SEGLAGERÐINNI ÆGI 3 manna tjald. Súluhæö 150 cm. Breidd 150 cm. Lengd 275 cm. Verð kr. 6.995,- Svefnpokar, margar gerðir. 4- 15° til + 15°.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.