Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1987, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987. 23 Fréttir Skák: Jóni L genjgur vel í Israel Jón L. Ámason stórmeistari tekur nú þótt í sterku skákmóti í ísrael og er hann í 4. til 5. sæti með 3,5 vinn- inga eftir 6 umferðir. í 1. til 2. sæti eru þeir Speelman frá Englandi og Green- feld frá fsrael með 4,5 vinninga, í 3. sæti Viktor Kortchnoi með 4 vinninga. 11. umferð tapaði Jón L. fyrir banda- rískg alþjóðameistaranum Rhoda, í 2. umferð gerði hann jafntefli við Farago fró Ungverjalandi, í 3. umferð sigraði Jón Bimboin írá ísrael, í 4. umferð vann hann Greenfeld frá ísrael, í 5. umferð gerði hann jaíhtefli við enska stórmeistarann Speelman og í 6. um- ferð gerði Jón svo jafhtefli við Gurevich. Mótið fer frarn í Beersheba í ísrael og er í 11. styrkleikaflokki. Það er lokað 12 manna mót. -S.dór Aiþýðusamband Suðuriands: Verslunar- menn gengu af fundi Á 9. þingi Alþýðusambands Suður- lands um helgina bar það til tíðinda að verslunarmenn gengu af fundi þeg- ar ljóst var að tillaga þeirra um að leggja sambandið niður náði ekki fram að ganga og var vísað ffá. Þess í stað var samþykkt að fela nýrri stjóm sam- bandsins að auka sem mest og efla allt samstarf félaganna innan sam- bandsins. Sigurður Óskarsson frá Hellu, frá- farandi formaður, var endurkjörinn formaður Alþýðusambands Suður- lands til næstu tveggja ára. -S.dór Eldri borgarar og Aurasálin Regína Thorarensen, DV, Selfcissi: Eldri borgarar á Selfossi fóm nýlega í Þjóðleikhúsið til að sjá Aurasálina. Fór Bessi Bjamason sérlega vel með aðalhlutverkið. Þetta var bráðskemmtileg sýning. Þyrftu svona leikrit að vera fleiri því mikil upplyfting er að því að sjá þau. Samtals fóm 96 eldri borgarar að sjá leikritið og bar öllum saman um það, sem sjaldgæft er að heyra, að ekki væri hægt að gera upp á milli leikar- anna vegna þess hve þeir væm allir jafngóðir. Lýst eftir vitnum að árekstri Lýst er eftir vitnum að árekstri sem varð á Miklatorgi föstudaginn 13. fe- brúar sl. en þar rákust saman bifreið- imar X-1528, rauð Mercedes Benz vömbifreið, og R-23639, drapplituð ný Lada. Vömbílnum var ekið utan í Löduna en ökumaður vömbílsins ber því við að hafa ekki tekið eftir því og hélt hann áfram fór sinni þar til ökumaður annars bíls stöðvaði hann á gatnamót- um Njarðargötu og Hringbrautar og sagði honum frá árekstrinum. Vöm- bílstjórinn fór ekki til baka en lét lögregluna á Selfossi vita. Slysarannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík biður þá sem sáu árekstur- inn, svo og manninn, sem stöðvaði vömbíhnn, að hafa samband við sig. í EITRUÐU ANDRÚMSLOFTI SPILLTRA STJÓRNMÁLA — ÞURFUM VIÐ Á AÐ HALDA STERKU AFLI — í STAÐ ÞESS SJÁLFSTÆÐISFLOKKS SEM NÚ GENGUR FRAM í TVENNU LAGI, OG HEFUR AFHJÚPAÐ ÁSÝND HINS TVÖFALDA SIÐGÆÐIS... ÞETTA STERKA AFL ER ALÞÝÐUFLOKKURINN — ENDURNÝ JUNARAFL ISLENSKRA STJÓRNMÁLA. JJ FUNDUR I KVOLD KL. 20.30 VEITINGAHÚSIÐ FÓGETINN AÐALSTRÆTI 10 Á NÆSTUNNI: AKRANES, GRANDAKAFFI, AKUREYRI, HÓTEL SELFOSS, SAUÐÁRKRÓKUR, PATREKSFJÖRÐUR, GAUKUR Á STÖNG, KÓPAVOGUR. NU ÞURFUM VIÐ LIÐ SEM SPILAR SAMAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.