Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 4. APRIL 1987. 5 Stjómmál „Ber ekki róg á milli manna,“ segir Guömundur Einarsson. DV-mynd EJ Ólga á Djúpavogi: Þingmaður sagður saka heimamenn um leti „Þessir menn halda að þeir séu enn- þá í Reykjavík. En þeir fá að vita að það þarf að beita öðrum brögðum til að komast á þing fyrir landsbyggð- ina,“ sagði Ólafur Ragnarsson, sveit- arstjóri á Djúpavogi. Þar í bæ er mikil ólga meðal heimamanna vegna um- mæla er Guðmundur Einarsson, frambjóðandi Alþýðuflokksins lét falla á Höfn í Hornafirði fyrir skömmu. „Við höfum fjölda vitna að því að Guðmundur sagði að ástandið hér á Djúpavogi væri að lagast vegna þess að hér væru menn loks famir að vinna allt árið. Við viljum hins vegar koma þeim skilaboðum til þingmannsins að framleiðsla á mann hér á Djúpavogi er með því mesta sem þekkist á landinu," sagði Ólafur sveitarstjóri. Guðmundur Einarsson alþingismað- ur kannaðist ekki við að hafa viðhaft umrædd ummæli er DV bar þau undir hann þar sem hann var staddur á kosningaskrifstofu Alþýðuflokksins á Egilsstöðum í gær. „Þessi saga um Djúpavog var mér sögð þar á staðnum af heimamanni. Það hefur ekki hvarflað að mér að bera nokkurn róg um byggðir þessa kjördæmis á milli manna. Ég tel þetta vera pólitískan rógburð og hef reyndar heyrt fleiri gróusögur á kreiki varð- andi framboð mitt og annarra. Það er kannski viðurkenning á því að menn óttist framboð Alþýðuflokksins í þessu kjördæmisagði Guðmundur Einars- son. -EIR ...gela hœglega endaö meö hrœöiiegri martröö! VAKNAÐU MAÐUR! Sofandaháttur við stýrið, almennt gáleysi og kæruleysi öku- manria eru langalgengustu orsakir umferðarslysa. Flest slysin, verstu óhöppin, mestu meiðslin og flest dauðsföllin verða þegar skilyrði til aksturs eru best, bjart, þurrt, auðir vegir o.s.frv. Þá slaka ökumenn á - og stefna sjálfum sér og öðrum vegfarend- um í stórkostlega hættu. Breytum þessu strax! (Niðurstaða úr könnun Samvinnutrygginga á orsökum og afleiðingum umferðarslysa). 5AMVINNU TRYGGINGAR -gegngáleysi OPIÐ í DAG KL 13-17. annn umboðið SKEIFUNNI 8 - SÍMJ 688850

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.