Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987. Kj arabarátta okkar er ekki siðlaus - segir Kristján Thorlacius, formaður HÍK Kristján Thorlacius hefur á ný tekið sér stöðu við kennarapúl- tið. Hann segist þó ekki enn vera búinn að ná sér að fullu eftir síð- ustu samningatörn enda haft fáa daga til að ná aftur vinnulaginu í kennslunni. Samt er hann sestur á ný við kennsluna og vinnur nú hörðum höndum við að vinna það upp með nemendum sínum sem tapað- ist i verkfallinu sem hann hafði forystu fyrir. Kennarar hafa sætt gagnrýni frá félögum sínum í öðrum starfs- stéttum fyrir kröfuhörku og að sæta færis á kosningavori til að ná fram meiri kjarabótum en aðr- ir launþegar hafa fengið. Guðmundur J. Guðmundsson hefur lýst efasemdum sínum um ,.siðfræðina“ að baki kröfum kennara og sagt að þeir vilji við- halda launabilinu sem átti að minnka í jólaföstusamningunum svokölluðu. Ekkert siðleysi „Því fer víðs fjarri að við kenn- arar höfum gerst sekir um sið- leysi í kjarabaráttu okkar,“ svarar Kristján þessum ásökun- um. „Hitt er annað mál að við byggjum kjarabaráttu okkar á ákveðinni siðfræði sem ég skammast mín ekkert fyrir. Okk- ar siðfræði eða málstaður hefur ekki aðeins notið stuðnings kennara heldur einnig foreldra ognemenda. í stuttu máli erum við einfald- lega að berjast fyrir bættum skóla. Þar höfum við verið á tals- verðu undanhaldi á síðustu árum vegna þess að við höfum átt í samkeppni við stofnanir utan rík- isgeirans. Þetta kom skýrt fram þegar við létum athuga hve stór hluti kennara í raungreinum hefði kennararéttindi. Niður- staðan kom jafnvel okkur sjálfum á óvart. Við lögðum vissulega áherslu á það að byrjendur fengju meira en aðrir en það er ekki nóg því það verður líka að tryggja að þeir sem hafa reynslu rjúki ekki í burtu. Það hefur verið sár reynsla á undapförnum árum að margir ágætir menn hafa yfírgefið okk- ur. Skil ekki Guðmund J. Satt best að segja skil ég ekki orð Guðmundar J. Guðmunds- sonar. Hann talar um að við séum að „klifra upp bakið á öryrkjum og gamalmennum". Ég hreinlega skil ekki þessi orð. Það litla sem ég skildi þó var þegar hann tal- aði um að lágmarkslaun væru laun sem nægðu fyrir nauðþurft- um. Það kann að vera að við höfum notað vitlaus heiti þegar við vorum að tala um lágmarks- laun en þá hafa þeir líka gert það hjá ASÍ því ég man ekki betur' en að þeir töluðu um lágmarks- laun ófaglærðra verkamanna og lágmarkslaun iðnaðarmanna. Ég get ekki séð að þeir hafi verið að tala um neitt annað en það sem við vorum að tala um. Það var samið um að lágmarks- laun iðnaðarmanna skyldu vera 30% hærri en lágmarkslaun ófag- lærðra verkamanna.“ Nú sögðuð þið í lokin á þessum samningum að þið stefnduð að meiri hækkunum í næstu samn- ingum. Óttist þið ekkert að mæta andúð fyrir meiri kröfuhörku en aðrir hópar sem jafnvel eru verr settir en kennarar? „Þessir samningar byggja á bókun um að það skuli endur- skoða launakerfi kennara. Það þarf í sjálfu sér ekki að fela í sér að laun kennara hækki einhver ósköp þar með. Það er margt í þessu kerfi sem við erum ekki alls kostar ánægðir með. Svo dæmi sé tekið þá höfum við mjög barist fyrir endurmenntun kenn- ara. Þar hefur ekki verið nógu vel gert og er þetta þó sú stétt sem þyrfti öðrum fremur á því að halda. Það er einnig staðreynd, sem við kennarar gerum okkur grein fyrir, að kennsluskyldan þarf að vera mismunandi. Þar er ekki sama hvað kennt er því vinnuá- lagið er mjög mismunandi. Þessu þarf að breyta og einnig ýmsu öðru þótt það snerti ekki beinar kauphækkanir.“ Ekki pólitískt verkfall - Átti verkfall kennara að vera kosningaverkfall? „Nei, það var ekki ákveðið að boða verkfall á þessum tíma vegna þess að kosningar voru á næsta leiti. Við gátum einfald- lega ekki valið annan tíma. Við fengum þessi nýju lög um áramót. Þá var ákveðið að láta reyna á það í mánuð hvort ríkis- valdið vildi semja við launamála- ráð BHM sem við erum aðilar að. Þegar það kom í ljós að engir samningar náðust var annað- hvort fyrir okkur að hrökkva eða stökkva. Við tókum þessa á- kvörðun í janúarlok og eftir að sú ákvörðun var tekin að fara fram á heimild félagsmanna til að boða verkfall var okkur ljóst að undirbúningurinn tæki aldrei minna en mánuð. Og þegar fé- lagsmenn hafa samþykkt að boða verkfall þurfa að líða minnst 15 sólarhringar þar til verkfall getur hafist. Þessi kjaradeila hlaut því að skella á svo skömmu fyrir kosningar. Ég vil einnig taka það fram að ríkisvaldið vildi binda samninga við tvö ár og það leist okkur illa á, að vera komnir með verkfalls- rétt en að þurfa að bíða í tvö ár til að fá einhverja úrbót. Verk- fallið var því ekki pólitískt og ' ekki flokkapólitískt og ekki vegna þess að kosningar voru á næsta leiti. Það vildi bara svo til að verkfall okkar bar upp á sama tima og kosningabaráttan var að komast í algleyming. Ég vísa út í hafsauga öllum hugmyndum um að við höfum gengið erinda andstæðinga ríkis- stjórnarinnar og ætlað okkur að koma höggi á stjómina skömmu fyrir kosningarnar." Hef aldrei ætlað mér for- ystuhlutverk - Nú hefur þú verið mjög áber- andi í kjarabaráttu kennara síðustu árin. Hvað varð þess valdandi að þú lentir í eldlín- unni? „Það æxlaðist nú þannig að fyrir sjö árum, þegar félag okkar var stofnað, lenti ég í því að vera varaformaður þess. Ég hafði aldr- ei hugsað mér að taka þar forystu en þegar sá sem fyrstur var form- aður ákvað að hætta þá lögðu hann og ýmsir aðrir í stjórninni að mér að gefa kost á mér í form- annssætið. Ég lét tilleiðast og síðan hefur það farið svo að ég hef gefið kost á mér þrisvar sinn- um. Nú er ég hins vegar ákveðinn í að hætta og hef lýst því yfir að ég gefi ekki kost á mér við næsta formannskjör sem verður í vor.“ - Nú hefur þú ættarnafnið Thorlacius eins og fleiri sem hafa verið framarlega í kjarabaráttu ríkisstarfsmannna. Gengur þessi baráttugleði í ættir? „Faðir minn, Sigurður Thorlac- ius, var mikill baráttumaður fyrir kennara og formaður samtaka þeirra um tíma. Hann var einnig fyrsti formaður BSRB og var það í 20 ár eða þar til hann lést. Kristján Thorlacius, sem nú er formaður BSRB, er föðurbróðir minn. Ég get nú ekki svarað fyrir ættina, hvers vegna þaðan hafa komið menn sem hafa verið í for- ystu fyrir opinbera starfsmenn. Ég get bara svarað fyrir mig að ég lenti í þessu óvart. Ég hafði engan metnað í þessa átt. Það var aldrei minn draumur að standa í kjarabaráttu." Ár í guðfræði - En var kennslan draumastarf- ið? „Já, draumastarf og drauma- starf ekki. Að loknu stúdents- prófi var ég eitt ár í guðfræði, fyrsta veturinn sem ég var í Há- skólanum. Það var nú meira af því að ég vissi ekki alveg hvað ég átti að gera. Ég ætlaði mér þó ekki að verða prestur. Það hafði ég á hreinu. Hins vegar voru þetta forvitni- leg fræði og ég hafði gaman af að vera í guðfræðinni þetta eina ár. Þennan vetur, sem ég var þar, kenndi ég með náminu og ákvað þá að búa mig undir að verða kennari og fór í BA-nám. Ég hef verið meira og minna við kennslu frá því að ég var í guðfræðinni veturinn 1960 til 1961. Fyrst með námi og síðan var ég kennari við Gagnfræða- skóla Austurbæjar og síðast yfirkennari þar. Haustið 1980 byrjaði ég að kenna hér við Árm- úlaskólann og hef verið hér síðan. Ég lærði sögu við Háskólann óg valdi hana vegna þess að mig langaði til að læra sögu. Ég hef engar nánari skýringar á því. Með sögunni lærði ég dönsku og valdi hana vegna þess að ég vissi að það var auðveldara að fá kennslu í tungumálum en sög- unni. Laun kennara hafa versn- að Á þessum árum var kennslan betur launuð en nú. Ég hef í mínu starfi getað fylgst með því hvem- ig kjörin hafa versnað. Fyrir 1970 var þetta betur launað starf og þó sérstaklega fyrst eftir 1963 þegar hinn frægi kjaradómur kom þegar Gunnar Thoroddsen var fjármálaráðherra. Þá fengu allir ríkisstarfsmenn verulegar kjarabætur. Upp úr 1970 fór aftur að halla undan fæti og hefur gert það meira og minna síðan. Ástæðurn- ar fyrir þessu eru m.a. að kennurum hefur fjölgað mjög, sérstaklega framhaldsskólakenn- urum. Ég er reyndar viss um að kjör þeirra hafa versnað meira en kjör grunnskólakennaranna. Framhaldsskólunum fjölgaði mjög upp úr 1970 þegar fjöl- brautaskolarnir komu til sög- unnar. Þessi fjölgun hefur orðið til þess að launin hafa lækkað. Það er eins og minna komi til skipta þegar fleiri eru um hituna. Þá hefur feluleikurinn með taxtana haft verulega slæm áhrif á kjör ríkisstarfsmanna. Við njót- um hvergi yfirborgana eða launaskriðs sem ýmsir hópar á hinum almenna vinnumarkaði hafa notið, en þó ekki allir. Þegar kjaradómur hefur ákveðið okkur laun þá hefur hann fylgt taxta- hækkunum en ekki raunveruleg- um hækknum. Þetta hefur verið bölvaldurinn til þessa.“ Áróðursbragð -1 viðtölum sem þið samninga- menn kennara áttuð við fjölmiðla meðan verkfallið stóð þá stilltuð þið samningamönnum ríkisins upp sem eins konar dragbítum sem hindruðu að kennarar næðu rétti sínum. Erþetta úthugsað áróðursbragð? „Þetta er alltaf svona í kjara- baráttu. Það getur þó vel verið að óvenjumikið hafi borið á þessu í okkar deilu. En staðan var líka þannig að það gekk hvorki né rak lengi vel. Þegar menn ríkisins féllust á einhverjar hækkanir tóku þeir þær aftur annars staðar þannig að um raunverulegar hækkanir var ekki að ræða fyrr en verkfall var skollið á og áhrif þess farin að koma í ljós. Ég er ekki viss um að þessi „Satt best að segja skil ég ekki orð Guðmundar J. Guðmundssonar. “ * „Eg vil ekki taka undir þessar ljótu sögur um Indriða."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.