Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Page 19
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987. 19 TILHEYRIR ÞÚ Kostnaðurinn hverfandi Vegna yfírgengilegs kostnaðar við rekstur fangelsa í New York hafa yfirvöld fundið upp á því að gefa föngum kost á að sitja af sér dóma heima. Aðferðin við þessa fanga- gæslu á sér stoð í hátækni geimald- ar. Fylgst er með föngunum fyrir til- stuðlan senditækis sem komið er fyrir um ökkla þeirra. Fangaverð- irnir nema boðin frá föngunum allan sólarhringinn og vita ná- kvæmlega um allar ferðir þeira. „Við höfum breytt heimilum sakamanna í fangelsi," segir Don Richtberg, yfirmaður rafeinda- fangelsa í New York, hróðugur. Talsmaður dómsmálaráðuneytis- ins bandaríska segir að yfirvöld í 20 ríkjum Bandaríkjanna noti raf- magnaða „keðju og kúlu“ til að halda aftur af um 900 föngum sem sekir hafa orðið um smáþjófnaði og ítrekaða ölvun á almannafæri. Senditæki um ökklann Margir fangelsisstjórar eru þeirr- ar skoðunar að mögulegt sé að nota þessa aðferð til að gæta fanga sem eiga alvarlegri brot á sakaskrá sinni. Senditækin, sem höfð eru á ökkla fanganna, senda boð til móðurt- ölvu sem skráir allar ferðir þeirra og lætur vita ef fangarnir fara út af sporinú. Margir þeirra stunda vinnu eða hefur verið gert að gang- ast undir meðferð. Fangar fá senditækið um ökkl- ann með svipuðum skilyrðum og þegar mönnum er sleppt til reynslu. Þrisvar til fjórum sinnum á ári er ferill þeirra skoðaður og þá skorið úr um hvort þeir eru hæfir til að hafa senditækið áfram eða sviptir því og settir inn á ný. Enn er ekki komin full reynsla á hvort þessir fangar leiðast síður út á glæpabrautina en þeir sem sleppt er til reynslu án stöðugs eft- irlits. Enn sem komið er bendir þó flest til að fangarnir með senditæk- in haldi sig frekar á mottunni en hinir. Stöðugt vaxandi kostnaður við rekstur fangelsa varð til þess að þetta kerfi var fundið upp. Fang- elsi í stærstu borgum Bandaríkj- anna eru af yfirfyllast af smáglæpamönnum sem allt eins geta verið utan múranna ef fylgst er með þeim. Mannréttindasamtök eru þó ekki eins hrifin af þessari aðferð og fangelsisstjórarnir og benda á að þetta gæti orðið upphafið að nán- ara eftirliti með borgurunum. í Oregon var fyrst árið 1985 farið að refsa mönnum sem hvað eftir annað höfðu gerst sekir um ölv- unarakstur og smáþjófum sem ekki voru taldir hættulegir með því einu að koma eftirlitsbúnaðinum fyrir á ökkla þeirra. Þetta þótti gefa góða rauna þvi menn sem afplána dóma af þessu tagi geta eftir sem áður stundað vinnu. „Við gefum þessum mönnum fyr- irmæli um hvernig þeir eiga að haga sér og hvert þeir megi fara,“ segir fangelsisstjórinn. „Það merkilega er að þeir kunna því vel enda margir svo ístöðulausir að þeir verða að hafa einhverja til að segja sér fyrir verkum." Sendibúnaðurinn er af þrem gerðum. Sá vinsælasti er á stærð við vindlingapakka og þykir þægi- legur. Stjórnarskrárbrot? Eftirlitsmaður fangelsismála í ' Bandaríkjunum segir að álitamál geti sprottið af því að ef til vill hafa fangar lagalegan rétt til að neita að bera sendibúnaðinn og geta þá krafist þess að sitja inni í staðinn. Þá segir hann varast beri að ganga lengra í eftirliti með föng- um sem sleppt er til reynslu því það geti stangast á við stjórnarskrána sem á að tryggja friðhelgi einkalífs- ins. Reuter/GK Mitsubishi Colt '82, ekinn 80.000 km. Verð kr. 200.000,-. Útb. 50.000,-, eftirst. til 10 mán. Vín- rauður. Chrysler Le Baron Medallion '81, forstjóramubla með öllum auka- hlutum, silfurgrár og rauður. Glæsilegur bill. Skoda Rapid '86, gullfallegur bill i toppstandi, útvarp/segulband. sportfelgur o.fl. Mitsubishi Colt '82, ekinn aðeins 63.000 km. Verð kr. 210.000,-. Útb. 70.000,-, eftirst. til 10 mán. Silfur- grár. Saab 900 GL, 3ja dyra, '80, ekinn aðeins 79.000 km, einn eigandi, sérlega fallegur bill. Verð kr. 250.000,-. Útb. 70.000,-, eftirst. til 10 mán. Ford Escort Laser '85, ekinn 26.000 km, blásanseraður, sumar- og vetr- ardekk, útvarp og segulband. Góð kjör. Sakamenn rafeindafanstelsi Notaðir bílar í séiHokki! Chrysler Le Baron T/C '81, alvöru- skutbíll, 6 cyl. sjálfsk., vökvastýri, rafdrifnar rúður, voltistýri o.fl. Einn eigandi. Gott eintak. Mitsubishi Galant GLX '82, ekinn 63.000 km, sjálfskiptur. Fallegur bill i toppstandi. Verð kr. 310.000,-. Útb. 90.000,-, eftirst. til 10 mán. Peugeot 505 disil, 8 manna '84, sjálfskiptur, vökvastýri o.fl. Glæsi- legur bill á góðum kjörum. Fiat Uno 45 '84, ekinn 43.000 km. Verð kr. 200.000,-. Útb. 60.000,-, eftirst. til 10 mán. Opið í dag 1-5 SKODA Ú$a> fficrrtcc- UPEUCEOT |chrysler| JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 Polaroid á einstöku verði: LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF Laugavcgi 178 - Reykjavik • Simi 68S811 En hvað sem því líður þá er kostnaðurinn við fangagæslu með rafeindabúnaðinum mun minni en við hefðbundna fangagæslu. Það kostar að jafnaði um 3000 krónur á dag að geyma hvem bandarískan fanga í steininum. Kostnaðurinn við tölvugæsluna er hins vegar innan við 200 krónur á dag. Nú er einnig rætt um það í Bandaríkjunum að dæma menn til að bera -senditæki um ökklann í stað þess að dæma menn fyrst til fangavistar og sleppa þeim síðan til reynslu. „Fangelsið hjá okkur er allt of lítið og ég tel það vænlegan kost að taka upp dóma sem felast í eftir- liti í stað fangavistar," segir B.J. Snitker, fangelsisstjóri í Oregon. HINUM BREIÐA MEIRIHUJTA?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.