Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Side 35
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987. 35 [_________________skák Viktor Kortsnoj og endatöflin „Því eldri sem skákmaðurinn er því meira kann hann fyrir sér í enda- töflum," segir gömul skákspeki. Þessi orð áttu vel við á IBM-ofur- mótinu á dögunum því að aldurs- forseti mótsins, Viktor Kortsnoj, bar af öðrum keppendum er fram í enda- tafl var komið. Nokkra hafði hann undir er jafntefli virtist borðliggj- andi úrslit en reyndar mátti hann þola eitt tap í nokkuð jafhri enda- taflsstöðu og það gegn sér miklu yngri skákmanni, Jóhanni Hjartar- syni, sem lét lögmálið um aldurinn og endatöflin ekki á sig fá. Kortsnoj varð 56 ára gamall 23. mars sl. og er því kominn af léttasta skeiði. Áhorfendur á IBM-mótinu urðu þó vitni að því að hann lætur aldurinn ekki há sér þegar hann er sestur fyrir framan taflborð. Þá er ekkert gefið eftir - lagt út í þær flækjur sem völ er á og haldið áfram eins lengi og kostur er þótt leik- mönnum finnist dauð jafhteflisstaða vera komin upp á borðinu fyrir löngu. Þannig vann hann Margeir í fyrstu umferð - hitti ávallt á besta leikinn í lok setunnar þótt hann væri orðinn tímanaumur. Það var eins og hann hefði réttu aðferðina í fingrunum. Og áhorfendum fannst með enn meiri ólíkindum hvemig hann svo sneri á Timman tveimur umferðum síðar. Flestir vom hættir að fylgjast með skákinni, nema kannski með öðm auganu, því að svo jafnteflisleg þótti hún. Meira að segja biðstaðan var almennt álitin jafhtefli. En Kortsnoj hélt ótrauður áfram að tefla og á endanum tókst honum að knýja fram hárfínan sigur. En hvers vegna er Kortsnoj svo snjall í lokaþætti skákarinnar sem raun ber vitni? Sú skýring að hann sé orðinn gamall nægir ekki ein og sér því að hann hefur löngum verið erfiður viðureignar í endatöflunum þótt honum fari fram með aukinni reynslu. Hitt er líklegra að einmitt í endatöflum njóti styrkur hans sín best: Hann er þekktur fyrir að geta reiknað út þvingaðar leikjaraðir öðrum mönnum nákvæmar og betur og í endatöflunum er það einmitt nákvæmnin sem gildir. Enginn verður hins vegar sterkur í endatöflum án þess að tileinka sér ákveðna tækni og þekkja grundvall- arstöður. Til þess er nauðsynlegt að eyða töluverðum tíma. „Taktík og byrjanafræði fær að jafíiaði mesta athygli ungra skákmanna en ég hafði annan háttinn á. Ég beindi einkum athygli minni að endatafli en grúskaði lítið í byrjunum," segir Kortsnoj um uppvaxtarár sín. Og þetta hafa sterkustu skákmenn heims almennt tileinkað sér. Karpov setur fram þá rökréttu athugasemd að endatöflin standi ávallt fyrir sínu og þeirra lögmálum verði ekki breytt en einn nýr leikur í flókinni byrjun geti á hinn bóginn gjörbreytt mati manna á stöðunni. Því sé tímanum betur varið til þess að rannsaka endatöfl heldur en byrjanir. Annars getur Kortsnoj ekki þakk- að kunnáttunni einni góðan árang- ur, heldur er það baráttugleðin og harkan, sem einmitt gerir hann svo viðsjárverðan í jöfrium endatafls- stöðum. Margir hefðu t.a.m. verið búnir að semja jafhtefli í skák hans við Timman er aðeins biskupar og hrókar voru eftir á borðinu eftir til- tölulega fáa leiki. En þeir héldu áfram að tefla og raunar segir mér svo hugur um að hvorugur þessara baráttujaxla hafi látið sér koma til hugar að bjóða jafntefli. Svo fór að Kortsnoj náði að knýja fram sigur. Það er fróðlegt að sjá hvemig það atvikaðist. Hvitt: Jan Timman Svart: Viktor Kortsnoj Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 RfB 5. 0-0 Rxe4 Opna afbrigðið af spænska leikn- um hefur reynst Kortsnoj vel og það hefur verið lengi í vopnabúrinu. Les- endur DV ættu að minnast fjöl- margra skáka Kortsnojs við Karpov, þar sem þetta afbrigði varð uppi á teningnum. 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. Be3 Algengasta framhaldið nú á dög- um er 9. Rbd2, sem reyndist Karpov svo vel í lokaeinvíginu við Kortsnoj (Merano 1981). Þannig tefldi Tal einnig gegn Kortsnoj á IBM-mótinu og vann snoturlega þótt ekki hafi hann átt sigurinn byrjumnni að þakka. Annars er 9. c3 sígilda framhaldið en þannig lék t.a.m. Ljubojevic gegn Kortsnoj á IBM-mótinu. Reyndar tefldu þeir ekki áfram í sígildum stíl, því að eftir 9. - Bc5 10. Rbd2 gerði Kortsnoj sig sekan um makalausan klaufaskap. í stað 10. - 04) 11. Bc2 Rxf2!?, sem kemur vel til greina, lék hann strax 10. - Rxf2? 11. Hxf2 f6 12. De2! 04) og var þá búinn að tapa leik miðað við hefðbundnu leiðina. Og biskup hvíts stendur betur á b3 en c2 í þessu afbrigði. Þrátt fyrir þetta tókst Kortsnoj með ótrúlegri seiglu og útsjónarsemi að halda jafh- tefli. Aðrar jafíiteflisskákir átti Kortsnoj ekki í mótinu! Skák Jón L. Árnason 9. - Be7 10. c3 Dd7 11. Rbd2 Hd8 12. Rxe4?! Þessi uppskipti leiða sannanlega ekki til ávinnings. Það er engu lík- ara en að Timman sé að tefla til jafhteflis?! Næstu leikir eru svo gott sem þvingaðir. 12. - dxe4 13. Dxd7+ Bxd7 14. Rg5 Rxe5 15. Bd4 Bxg5 16. Bxe5 0-0 17. Bxc7 Hc8 18. Bb6 Hfe8 Þá eru aðeins hrókar og biskupar eftir á borðinu og einhverjir færu vafalaust að slíðra sverðin. Samt er hér nokkur möguleiki til þess að sprella, því að peðin stangast ekki á - hvítur á peðameirihluta á drottn- ingarvæng en svartur á kóngsvæng. Hvítur eygir von um að koma sér upp frelsingja drottningarmegin en færi svarts á kóngsvængnum eru aflrænni. Bent Larsen segir að fjögur peð gegn þremur sé sterkari meiri- hluti en þrjú peð gegn tveimur. Samt má ekki vanmeta drottningarvængs- meirihlutann. Sterkur frelsingi gæfi hvítum yfirhöndina. 19. Hfel h5! 20. Bd4 Bc6 21. He2 Svarið við 21. a4 yrði 21. - b4! og ef 22. cxb4, þá 22. - Bd2 23. He2 Bxb4 og nær að skorða umframpeð hvíts drottningarmegin. 21. - Hcd8 22. h3 h4 23. a4 b4! 24. Bc4 Bb7 25. Hael bxc3 26. Bxc3 BfB! Snjall leikur, einmitt þegar hvítur virtist una glaður við sitt. Eftir upp- skipti á f6 fær svartur tvípeð en miðborðsstaðan styrkist og að auki fær svartur möguleika til þess að þrýsta eftir hálfopinni g-línunni. Til greina kemur nú 27. He3 en Timman kærir sig kollóttan. 27. BxfB gxfB 28. f3 Hd4 29. b3 f5 30. fxe4 Hexe4 31. Hxe4? Einkennilegur leikur þvi að hvítur lagar svörtu peðastöðuna sjálfvilj- ugur. Betra er 31. Kf2 og þá tapar hvítur skákinni varla. 31. - fxe4 32. Kf2 Hd2+ 33. He2 Hxe2 34. Bxe2 a5! Auðvitað! Samkvæmt grundvall- arreglunni í biskupaendatöflum setur svartur peð sitt á friðhelgan reit fyrir hvíta biskupnum og skorð- ar um leið tvö hvít peð með einu. Svartur hefur náð yfirhöndinni því að hann hefur tvö skotmörk, á b3 og g2, og til vara á a4 og h3. En það er óvíst að þetta nægi til vinnings. 35. g4? Forðar peðinu úr sjónmáli bisk- upsins en er þessi leikur ekki misráðinn? Ekki gekk 35. g3? vegna 35. -e3 + ! 36. Kxe3 hxg3 37. Bf3 g2 og vinnur. En mun betra virðist 35. Ke3 Kg7 36. Kf4. T.d. 36. - Bd5 (ef 36. - e3, þá 37. Bf3!) 37. Bc4 e3 38. Kxe3 Bxg2 39. Kf4 Bxh3 40. Kg5 og heldur jafntefli. Eða 36. - Kg6 37. Kg4 e3 38. Kxh4 Bxg2 39. Kg3 Bd5 40. Bc4 og aftur virðist hvítur ekki í vand- ræðum með að halda sínu. 35. - f6! 36. Ke3 Kf7 37.Bc4+ Ke7 38. Kd4 Kd6 39. Bb5 Engu breytir 39. Bfl Bd5 40. Bc4 Ba8 41. Bfl Bb7 og hvítur lendir í leikþröng, þar sem 42. Bg2?? strand- ar á 42. - e3! 43. Be2 Bg2! o.s.frv. 39. - e3! 40. Kxe3 Bg2 41. Kf4 Bxh3 42. g5 Ke7! Þannig kemst Kortsnoj hjá því að tapa h-peðinu og nú getur Timman nagað sig í handarbökin fyrir óná- kvæmnina í 35. leik. 43. gxfB + KxfB 44. Bc4 Bc8 45. Bd5 h3 Biðstaðan. Ekki jafntefli, eins og flestir spáðu, heldur á svartur hár- fínan vinning. 46. Bc4 Ke7 47. Kg3 Kd6 48. b4 Timman gerir sér grein fyrir því að hann tapar ef hann bíður átekta. T.d. 48. Kh2 Kc5 49. Bf7 Kb4 50. Kg3 Bf5 51. Kh2 Bc2 52. Kxh3 Bxb3 53. Bg6 Bxa4 54. Kg3 Bb5 55. Bc2 Bc4 56. Kf2 Bb3 57. Bbl a4 58. Ke3 Kc3 o.s.frv. 48. - axb4 49. Bb3 Kc5 50. Kh2 Kb6 51. Kg3 Ka5 52. Bc2 Be6 53. Kh2 Bd7 54. Bb3 Kb6! Kóngurinn snýr við, því að 54. -Bxa4 55. Be6 hefði einungis leitt til jafhteflis. 55. Kg3 Kc5 56. Kh2 Kd6 57. Kg3 Be6 58. Bc2 Kc5 59. Bdl Kc4 60. Kh2 Kc3! 61. a5 Þvingað, því að svartur hótaði 61. - Kd2 og skríða svo ffarn með frels- ingjann. En nú sækir Kortsnoj einfaldlega peðið og heldur svo áfram þar sem frá var horfið. Tim- man fær ekkert að gert. 61. - Bc8 62. Kg3 Kd4 63. Bb3 Kc5 64. Ba4 Be6 65. Kh2 Kd6 66. Kg3 Kc7 67. Bc2 Kc6 68. Ba4+ Kb7 69. Bb5 b3 70. Bd3 b2 71. Kh2 Kc6 72. Kg3 Kc5 73. Kh2 Bc8 74. Kg3 Kb4 Og hér gafst Timman upp. -JLÁ Giöf sem kemur á óvart Vasasjinvarp frá Sínclair - ensk gæðavara. Sniðug fermingargjöf, gengur fyrir rafhlöðum eða rafmagni. Tæki sem þú hehir með þér hvert sem er. Staðgrverð 11.600,- Greiðsluskilmálar. Opið laugardaga Verslunin Grensásvegi 50 - sínii 83350. St. Jósefsspítali, Landakoti Fóstrur Skóladagheimilið Brekkukot auglýsir eftir tveim fóstr- um. Upplýsingar í síma 19600/260 alla virka daga frá kl. 9-15. Reykjavík 2.4. 1987. Vestmannaeyjabær auglýsir stöðu for- stöðumanns safnahúss lausa. Háskóla- menntun í bókasafnsfræðum er æskileg. Safnahús Vestmannaeyja hýsir bókasafn bæjarins, eitt elsta bókasafn í landinu, byggðasafn og listmuna- safn, svo og skjalasafn í rúmgóðu og nýlegu húsi. Frekari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 98-1088 og 98-1092 á vinnustað. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum Amaldur Bjarnason Frá Grunnskólum Kópavogs Innritun 6 ára barna (börn fædd 1981) fer fram í skól- um bæjarins mánudaginn 6. apríl og þriðjudaginn 7. apríl kl. 13-16. Innritun skólaskyldra barna og ungl- inga sem flytjast milli skólahverfa, flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum fer fram sömu daga á skólaskrif- stofu Kópavogs, Hamraborg 12, 3. hæð, kl. 10-12 og 13-15, sími 41988. Skólafulltrúi Námsstyrkur við Kielarháskóla Borgarstjórnin í Kiel veitir íslenskum stúdent styrk til námsdvalar við háskólann þar í borg næsta vetur, að upphæð 870 þýsk mörk á mánuði í 10 mánuði, frá 1. okt. 1 987 til 31. júlí 1 988, auk þess sem kennslu- gjöld eru gefin eftir. Um styrk þennan geta sótt stúdentar, sem hafa stund- að háskólanám í a.m.k. tvö ár. Umsækjendur verða að hafa góða kunnáttu í þýsku. Umsóknir skal senda skrifstofu Háskóla Islands eigi síðar en 31. maí 1987. Umsóknum skulu fylgja náms- vottorð ásamt vottorðum a.m.k. tveggja manna um námsástundun og námsárangur. Umsókn og vottorð skulu vera á þýsku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.