Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1987, Side 36
36
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987.
AEmæli
Sextugur verður mánudaginn 6. apríl
Björn Önundarson tryggingayfir-
læknir. Hann er kvæntur Sigríði
Sigurjónsdóttur. Björn og kona hans
taka á móti gestum á afmælisdaginn
í Félagsheimili rafveitunnar við Ell-
iðaár milli kl. 17 og 19.
Tilkyimingar
Frumsýning á Galdraloftinu
Hugleikur frumsýnir á Galdraloftinu,
Hafnarstræti 9, nýjan íslenskan4sjónleik
,.Ó þú. ástarsaga pilts og stúlku“ eftir þær
Ingibjörgu Hjartardóttur. Sigrúnu
- Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur.
■ Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Frum-
sýning verður í kvöld kl. 20.30 og er
uppselt á hana. Næstu sýningar verða á
þriðjudags- og fimmtudagskvöld.
Tónleikar Kantötukórsins
í dag. 4. apríl, kl. 17 heldur Kantötukórinn
tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík.
stjómandi er Pavel Smid. Á efnisskránni
eru: kórsöngur, einsöngur. orgelleikur og
básúnuleikur. Meðal höfunda má nefna:
Fyrirlestur um Finnland og
öryggismál Norðurlanda
Mánudaginn 6. apríl nk. mun Dr. Klaus
Törnudd flytja fyrirlestur um Finnland og
öryggismál Norðurlanda (Finland and
Nordic Security) í boði Félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands. Klaus Törudd er
stjórnmálafræðingur að mennt og hefur
unnið bæði sem háskólakennari og í utan-
ríkisþjónustu og utanríkisráðuneyti
Finnlands. Hann starfar nú í utanríkis-
ráðuneytinu og er jafnframt dósent í
stjórnmálafræði við háskólann í Helsinki.
Hann hefur skrifað margar tímaritsgrein-
ar og bækur, einkum á sviði alþjóðastjórn-
mála. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu
101 í Odda og hefst kl. 17.15. hann verður
fluttur á ensku og er öllum opinn.
Burtfararprófstónleikar
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur burt-
fararprófstónleika mánudaginn 6. apríl kl.
18 í húsnæði skólans að Laugavegi 178,
4. hæð. Kristján Vadimarsson gítarleikari
flytur verk eftir Luis De Narvaez. Silvius
Leopold Weiss, Leo Brouwer, William
Walton og F. Moreno Torroba. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
„Eru tígrisdýr í Kongó?“
19. mars sl. frumsýndi Alþýðuleikhúsið
leikritið Eru tígrisdýr í Kongó? í veitinga-
húsinu í Kvosinni. Hér er á ferðinni nýtt
verk eftir Finnana Johan Bergum og
Bengt Ahlfors sem frumsýnt var í Helsinki
sl. haust og er uppfærsla Alþýðuleikhúss-
ins sú fyrsta utan Finnlands. Leikritið
fjallar um hinn skelfilega sjúkdóm eyðni
frá sjónarhóli hins almenna borgara. Leik-
stjóri verksins er Ingá Bjarnason en
rithöfundana tvo leika þeir Viðar Eggerts-
son og Harald G. Haraldsson. Uppselt
hefur verið á allar sýningar til þessa.
Næstu sýningar verða í dag. 4. apríl. kl.
13. 8., 9. og 10. apríl kl. 12 og 11. apríl kl.
13 stundvíslega. Miðaverð er kr. 750 og í
því er innifalið leiksýningin, léttur hádeg-
isverður og kaffi. Miðapantanir eru í síma
15185 og tekur símsvari við pöntunum all-
an sólarhringinn.
J.S. Bách, N. Hanff, F. Mendelson, Marc-
ello og A. Mozart. Orgelleikari: Pavel
Smid. Básúnuleikari: Oddur Bjömsson.
Einsöngvarar: Magnús Steinn Loftsson,
tenór, Magnús Baldvinsson, bassi, Dúfa
Einarsdóttir, alt, og Friðrik Kristinsson,
tenór.
Vorfagnaður Atthagafélags
Strandamanna
verður haldinn í Domus Medica í kvöld,
4. apríl, kl. 21. Hljómsveitin Upplyfting
leikur fyrir dansi. Mætum öll.
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund fimmtudaginn 9. apríl kl. 20.30
í félagsheimili Kópavogs. Gestur fundar-
ins verður Þórunn Magnúsdóttir og talar
hún um sjókonur.
Frjálsíþróttadeild Ármanns
Hlutavelta, flóamarkaður og kökubasar
verður sunnudaginn 5. apríl kl. 14 í bíla-
geymslu nýja Seðlabankahússins (Kolap-
ortinu). Góðir vinningar í boði, m.a.
ökukennsla, úttekt á hárgreiðslustofu,
snyrtistofu og margt fleira.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund þriðjudaginn 7. apríl kl. 20.30
í Sjómannaskólanum. Gestur fundarins
verður Kristín Guðmundsdóttir, formaður
Bandalags kvenna í Reykjavík, og mun
hún flytja erindi, þá verður tískusýning
frá Elísubúðinni. Nýirfélagar velkomnir.
íslendingar gegn fasisma
Flokkur mannsins efnir til opins borgara-
fundar undir yfirskriftinni „íslendingar
gegn fasisma" í dag, laugardag, kl. 15 í
Tónabíói. Allir hugsandi Islendingar sem
annt er um framtíð þessarar þjóðar eru
hvattir ti! að mæta á fundinn.
Steinunn Þórarinsdóttir sýnir
á Kjarvalsstöðum
I dag, 4. apríl, kl. 14 opnar Steinunn Þórar-
insdóttir myndhöggvari sýningu í Kjarv-
alssal, Kjarvalsstöðum. Á sýningunni eru
26 verk úr ýmsum efnum svo sem járni,
blýi, gleri og leir. Hér er um að ræða bæði
frístandandi höggmyndir og veggmyndir.
Þetta er 5. einkasýning Steinunnar og sú
stærsta hingað til en Steinunn hélt síðast
einkasýningu 1984, en auk þess hefur hún
tekið þátt í fjölda samsýninga bæði heima
og erlendis. Flest verkin eru unnin árið
’86 en Steinunn hlaut starfslaun Reykja-
víkurborgar þá. Steinunn hlaut menntun
sína í Englandi og á Italíu og kom heim
frá námi 1980. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 14-22 en henni lýkur 20. apríl.
Fermingarbörn í Leikhús
kirkjunnar
Um síðustu helgi fór sr. Rúnar Egilsson,
Mosfellsprestakalli í Grímsnesi, með hóp
af fermingarbörnum sínum í Leikhús
kirkjunnar að sjá Kaj Munk. í kapellu
Hallgrímskirkju gefst ekki færi á viðamik-
illi útfærslu. Einfaldleikinn ræður ríkjum
eins og best á við. Hlýlegar smámyndir
bregða ljósi á æviferil Munks, sjálfur
Ný bílasala, Bílabankinn sf.
Opnuð hefur verið glæsileg bílasala, Bíla-
bankinn sf. að Hamarshöfða 1, sími 673232.
Þar stendur til boða stór og bjartur sýn-
ingasalur og gott útivistarsvæði. Bíla-
bankinn sf. veitir aðstoð og ráðleggingar
varðandi frágang verðbréfa er varða kaup
og sölu bifreiða. Einnig er veitt aðstoð við
umskráningu er sparar viðskiptavini bæði
Jazzpíanistar í Heita pottinum
Lifandi jasstónlist er leikin hvert sunnu-
dagskvöld i Heita pottinum, en svo nefnist
nýstofnaður jassklúbbur, sem hefur aðset-
ur sitt í Duus-húsi við Fischersund.
Undanfarnar helgar hafa verið haldnir
þrennir jasstónleikar fyrir fullu húsi. Á
sunnudagskvöldið kl. 21.30 leikur Tríó
Egils B. Hreinssonar ásamt Sigurði Jóns-
syni tenórsaxófónleikara, Tómasi R.
Einarssyni (bassi) og Guðmundi R. Einars-
syni (trommur).
Takk til Suður-Afríku
Dúettinn Takk er nú á förum til Suður-
Afríku og Zimbabwe í hljómleikaferð.
Ferðin, sem stendur yfir mestan hluta af
aprílmánuði, er í beinu framhaldi af út-
gáfu hinnar nýju hljómplötu Takk sem
heitir Mirrored Image. Bandaríska útg-
áfufyrirtækið Refuge gefur plötuna út
undir merkinu Fortress. Platan er um
þessar mundir að fara á markaðinn í
Bandaríkjunum og Afríku og er þegar
komin út hér á landi, hún er seld núna á
vegum Krýsuvikursamtakanna til hjálpar
ungum eiturlyfjaneytendum. Um 12 hljóm-
leikar eru fyrirhugaðir í Afríku, bæði
meðal svartra og hvítra. 1 för með Takk
verður Birgir J. Birgisson, lagahöfundur
og hljómborðsleikari, og mun hann sjá um
hljómborðin af sinni alkunnu snilld.
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Skólasýning Ásgrímssafns hefur verið
opnuð. Sýningin er opin almenningi á
opnunartíma safnsins: sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgang-
ur er ókeypis.
stendur hann gjarnan álengdar og riíjar
upp liðna tíð. Verkið er að hluta byggt á
endurminningum hans, að hluta á ræðu-
safni hans. Brugðið er upp myndum frá
samskiptum Kajs við fósturforeldra sína,
íjölskyldu, sóknarbörn og útsendara of-
beldisins. Fermingarbörnin voru ákaflega
ánægð með sýninguna, fannst hún
skemmtileg jafnframt því að vera mjög
umhugsunarverð.
tíma, fyrirhöfn o.fl. o.fl. Við Hamarshöfða
eru einnig vel þekkt þjónustufyrirtæki
fyrir bíla s.s. Bílastillingar Björns Stefens-
sonar, Réttingaverk, Réttingamiðstöðin,
Bílaverkstæði Agnars, Bílamálun, Bíla-
ryðvörn, Mazda-umboðið Bílaborg. Eig-
endur Bílabankans eru Guðmundur
Aðalsteinn Gunnarsson og Guðmundur
M. Sigurðsson.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Aurasálin. Nú eru aðeins eftir tvær sýn-
ingar á gamanleiknum Aurasálinni eftir
Moliére i þýðingu og leikstjórn Sveins
Einarssonar. Aurasálin verður sýnd á
stóra sviðinu í kvöld kl. 20.
Hallæristenór, gamanleikurinn eftir Ken
Ludwig í þýðingu Flosa Ólafssonar og
leikstjórn Benedikts Árnasonar, verður
sýndur á stóra sviðinu á laugardagskvöld
k'l. 20.
Rympa á ruslahaugnum, barnaleikrit
Herdisar Egilsdóttur, verður sýnt í stóra
sal Þjóðleikhússins á laugardag og sunnu-
dag kl. 15, á miðvikudag kl. 16 og á
fimmtudag kl. 15.
í smásjá, leikrit Þórunnar Sigurðardóttur
í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar, verður
sýnt í kvöld og á miðvikudagskvöld kl.
20.30 á litla sviðinu.
Íslenska óperan
sýnir óperuna Aidu eftir Verdi í kvöld kl.
20. Fáar sýningar eru eftir. Sú breyting
verður á hlutverkaskipan að Hjálmar
Kjartansson tekur aftur við hlutverki
Lonungs af Eiði Gunnarssyni sem hefur
sungið það frá miðjum febrúar. Vegna
sýningar, sem féll niður sunnudaginn 29.
mars, er þeim sem áttu miða bent á að
hafa samband við miðasölu Óperunnar,
hafi þeir ekki gert það nú þegar.
Leikfélag Reykjavíkur
Land míns föður sýnt í kvöld kl. 20.
Dagur vonar sýning laugardagskvöld kl.
20.
Þar sem Djöflaeyjan ris sýnt í Skemm-
unni laugardags- og sunnudagskvöld kl.
20.
Tapað - Fundið
Leðurhanskar töpuöust
Tapast hafa uppháir svartir leðurhanskar
fyrir utan símstöðina í Kirkjustræti þann
31. mars sl. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 37044 gegn fundarlaunum.
Fressköttur týndur
Rauðbrúnn og hvítur fressköttur tapaðist
á þriðjudaginn sl. frá Lokastíg 6. Hann
er eyrnamerktur R-6526. Þeir sem hafa
orðið varir við hann eru vinsamlegast
beðnir að hringja í síma 23091.
Gleraugu töpuðust
Gleraugu með brúnni snúru í rauðu hulstri
töpuðust. Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 14822.
Utboð
Fljótshlíöarvegur,
Kirkjulækur - Deild
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint
verk. Lengd vegarkafla 2,7 km, fylling og burðarlag
23.200 m3.
Verkinu skal lokið 1. september 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
6. april nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14.00 þann 27. april 1987.
Vegamálastjóri
t
Innilegar þakkir sendum viö þeim sen sýndu okkur samúð og vin-
áttu við andlát og útför
Bjarnleifs Bjarnleifssonar.
Maria G. Jóhannesdóttir
Erla Strand Einar Strand
Guðmundur R. Bjarnleifsson
Soffía H. Bjarnleifsdóttir
Bjarnleifur Á. Bjarnleifsson
Ólafía K. Bjarnleifsdóttir
og barnabörn.
Asa Þorsteinsdóttir
Snorri S. Konráðsson
Lilja Gunnarsdóttir
Magnús L. Sigurösson