Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1987, Blaðsíða 2
64
MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1987.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27.
Starfsfólk vantar á vakt- hlutavinna.
Upplýsingar gefur forstöðumaður alla virka daga frá
kl. 10.00 til 14.00. Sími 685377.
SKAGAMENN ATHUGIÐ
Húsnæði óskast
Þroskaþjálfa, sem er að flytja á Akranes, vantar 3ja-4ra
herb. íbúð á leigu strax. Fyrirframgreiðsla kemur til
greina. Uppl. veitir Eyjólfur í síma 93-7780 á daginn
og 93-7708 á kvöldin.
Mosfellshreppur -
Fóstrur!
Fóstrur óskast til starfa á dagvistarheimili Mosfells-
hrepps. Um er að ræða tvær og hálfa stöðu á leikskól-
anum Fllaðhömrum og tvær og hálfa stöðu á
barnaheimilinu Hlíð. Stöðurnar eru lausar frá 1. júní
eða eftir nánara samkomulagi. Laun samkvæmt kjara-
samningum STAMOS. Upplýsingar gefa forstöðu-
menn á leikskólanum Hlaðhömrum, sími 666351, og
á barnaheimilinu Hlíð, sími 667375.
STYRKIR ÚR MENNINGAR- 0G
FRAMFARASJÓÐI LUDVIGS
ST0RR
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningar-
og framfarasjóði Ludvigs Storr fyrir árið 1987. Sjóður-
inn var formlega stofnaður árið 1979 en tilgangur
hans er, eins og stendur í skipulagsskrá: „Að stuðla
að framförum á sviði jarðefnafræða, byggingariðnaðar
og skipasmíða með því að styrkja vísindamenn á sviði
jarðefnafræða, verkfræðinga, arkitekta, tæknifræðinga
og iðnaðarmenn til framhaldsnámssvo og að veita
styrki til rannsókna á hagnýtum úrlausnarefnum í
þessum greinum".
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu Háskólans og ber
að skila umsóknum fyrir 1. júní nk.
Breid
síðan
Mannréttindaverðlaun
til dæmds
Mannréttindasamtök á Spáni hafa
veitt indíánahöfðingjanum Leonard
Peltier viðurkenningu fyrir „að verja
lýðræðið, frið, og mannréttindi“.
Peltier afplánar nú lífstíðarfangelsi
fyrir að hafa drepið tvo af mönnum
morðinga
bandarísku alríkislögreglunnar.
Það var Marquett Peltier, 13 ára
sonur höfðingjans, sem veitti viður-
kenningunni viðtöku í Madrid á
Spáni.
Óperusjúkir Bretar
Þjóðaróperan enska hefur upplýst
að aðsókn að sýningum hennar hafi
aldrei verið meiri en á þessu leikári.
Um 300 þúsund manns hafa sótt
óperuna og sætanýting hefur verið
87%
Mestrar hylli naut nútímaóperan
Akhnaten eftir Philip Glass. Allir
miðar, sem í boði voru, seldust. Fast
þar ó eftir fylgdi Aida eftir Verdi. Á
þær sýningar seldust um 99% mið-
anna. Á þrjár aðrar óperur var
nýtingin yfir 90%.
Kennedy í það heilaga
Christopher Kennedy mun senn
hvað líður ganga að eiga Sheilu
Brenner. Christopher er 23 ára gam-
all, sonur Roberts heitins Kennedy.
Þetta er fyrsta Kennedybrúðkaupið
á þessu ári.
Það er Edward Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður sem heldur veisl-
una fyrir bróðurson sinn og hefur
hann látið út ganga opinbera til-
kynningu þess efnis.
Erfðaskrá listamanns.
Erfðaskrá breska myndhöggvar-
ans Henrys Moore hefur nú verið
opnuð. í henni lagði listamaðurinn
svo fyrir að engar nýjar afsteypur
yrðu gerðar af verkum hans og þau
verk sem hann hafði ekki að fullu
lokið við skyldu standa óbreytt.
Moore lést í ágúst á síðasta ári.
Eignir hans eru metnar á um 80 millj-
ónir króna. Eru þá ekki talin með
verkin sem geymd eru í Borgarlista-
safninu í Leeds þar sem Moore ól
mestan sinn aldur.
Terry Friedman, safnvörður í
Leeds, segir að Moore hafi verið
mjög annt um að fá sjálfur að fylgj-
ast með þegar afsteypur voru gerðar
af verkum hans og því hafi hann
verið mjög mótfallinn því að nokkuð
yrði átt við verkin eftir hans dag.
KOSNINGASJÓÐUR
B0RGARAFL0KKSINS
Hægt er að senda framlög
á tékkareikning
nr. 1234
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS
LAUGAVEGUR 105 - 105 REYKJAVÍK
BOKGAKA^^
FLOKKURJNNK^W
-nokkarmeð/natíð
SUHai 7. UM. 1M Iteykjavlk. SlnH B1-M M 2S Nnr. IttMIK
Myndhöggvarinn Henry Moore.
Rock Hudson skömmu fyrir andlátið.
Ótti við
eyðniveiru
í húsi
Rocks Hudson
Eftir lát Rocks Hudson var talið að
fast að 300 milljónir króna fengjust
fyrir hús hans í Beverly Hills. Nú
er hins vegar komið á daginn að
þetta er verulega ofmetið. Fasteigna-
salar á svæðinu telja gott að selja
húsið fyrir 100 milljónir.
Einn fasteignasalinn sagði að fólk
væri hrætt við að fara inn í húsið
af ótta við að smitast af eyðni. Hud-
son lést sem kunnugt er úr þeim
voðalega sjúkdómi.
Húsið hefur verið til sölu undan-
farna sex mánuði en ekkert gengið
þrátt fyrir mjög hagstætt verð. Húsið
er mjög glæsilegt í suðurevrópskum
stíl og ætti að öllu eðlilegu að vera
löngu selt.
Bob Geldof með tónleika í Noregi.
Bob
Geldof í
Sandafirði
Rokkgoðið og bjargvætturinn Bod
Geldof hefur fallist á að fara um
Noreg með tónleikahaldi í vor.
Fyrstu tónleikarnir verða í ráðhús-
inu í Sandafirði í lok maí.
Það er Ungmennafélag Sanda-
fjarðar sem hefur veg og vanda af
tónleikahaldinu. Félag þetta hefur á
undanförnum árum víða verið rómað
fyrir afrek sín við að laða frægar
poppstjörnur til landsins. Þar má til
telja kempur á borð við Dire Straits,
Manfred Mann og Nasaret, að
ógleymdum okkar mönnum í Mezzo-
forte.
Róðhúsið í Sandafirði tekur 600
manns í sæti og seldust miðarnir á
tónleika Geldofs upp samdægurs.