Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Page 2
2
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987.
Fréttir
Hannes Hlffar, heimsmeistari unglinga í skák, kominn heim:
99Atfti ekki von
á þessum árangri“
og grenjandi Ijón á bakinu. Því stóð
hann sig með mikilli prýði. Ég gerði
frá upphafi ráð fyrir að hann yrði í
einhveiju af fimm efstu sætunum en
sigurinn kom þægilega á óvart,“ sagði
Guðmundur Siguijónsson stórmeistari
í samtali við DV.
Guðmundur sagði að aðbúnaður
hefði verið mjög góður á mótinu og
ekki undan neinu að kvarta i því sam-
bandi. Hjá honum kom fram að þessi
árangur gæfi Hannesi ekki áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli en hins veg-
ar hlyti hann að launum FIDE meist-
aratitil sem ekki væri mjög hátt
skrifuð tign meðal skákmanna.
Aðspurður um möguleika Hannesar
á að halda heimsmeistaratigninni að
ári sagði Guðmundur að slíkt hefði
enginn gert áður og í sjálfu sér engin
ástæða til þess að rembast við það.
Þessi titill nú væri staðreynd og stór-
kostlegt að Islendingur væri í annað
sinn handhafi hans.
Skák eina
tómstundagamanið
Meðal þeirra sem tóku á móti Hann-
esi var móðir hans, Sesselja Friðriks-
dóttir. Hún sagði í samtali við DV að
frammistaða sonarins hefði komið sér
á óvart en hún væri mjög hreykin af
honum. í máli hennar kom fram að
skák væri eina tómstundagaman
Hannesar og væri mikið teflt á heimil-
inu enda kynnu báðir bræður hans
mannganginn og vel það.
Það er ekki á hveijum degi sem ís-
lendingar eignast heimsmeistara en
Hannes Hlífrr Stefánsson vann það
afrek að verða heimsmeistari er hann
varð efstur á heimsmeistaramóti ungl-
inga, 16 ára og yngri. í skák í Inns-
bruck í Austurríki. Hannes sigraði
Frakkann De Graeve í síðustu skák
sinni og hlaut þar með 9.5 vinninga
af 11 mögulegum. Næstur honum kom
Adams frá Englandi með 9 vinninga.
..Ég átti ekki von á þessum árangri
enda margir erfiðir andstæðingar á
mótinu," sagði Hannes Hlífar Stefáns-
son í samtali við DV í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar skömmu eftir komuna til
landsins i gær.
í flugstöðinni biðu hans fjölskylda
hans og forráðamenn Skáksambands
íslands sem afhentu honum blóm og
þökkuðu honum sigurinn.
Aðspurður sagði hann að Adams
hefði verið erfíðasti andstæðingur sinn
á mótinu en hvað aðra skákmenn þar
varðaði sagði hann að sér hefði komið
á óvart hve rússneska keppandanum
gekk brösuglega. „Hann er að vísu
aðeins 12 ára gamall og þetta er í
fyrsta skipti sem hann teflir utan Sov-
étríkjanna."
Aðspurður um hveijar hann teldi
líkurnar á að halda titlinum að ári
sagði Hannes að það yrði mjög erfitt
og líklega nær ómögulegt, allavega
vissi hann ekki um neinn skákmann
sem hefði tekist slíkt.
Undirbúningur Hannesar fyrir mó-
Hlíf Bjarnadóttir, amma Hannesar, og Sesselja Friðriksdóttir, móðir hans, voru meðal þeirra sem tóku á móti honum.
DV-myndir BG.
tið stóð í nokkrar vikur og naut hann
dyggrar aðstoðar Guðmundar Sigur-
jónssonar stórmeistara sem var honum
til halds og trausts í Austurríki. Sagði
Hannes að sigur sinn væri honum
ekki hvað síst að þakka.
Mikil pressa
„Hannes var undir mikilli pressu
allt mótið, með andstæðinga sína eins
Hannes fékk einnig blóm frá ungum félögum sínum i skák-
hreyfingunni.
Sesselja, móðir Hannesar, smellir á hann rembingskossi.
Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari var Hannesi til halds
og trausts á heimsmeistaramótinu.
Ladan var allmikið skemmd eftir áreksturinn, eins og sjá má á myndinni.
DV-mynd S.
Harður árekstur
Harður árekstur varð á gatnamót-
um Vesturlandsvegar og Höfðabakka
á laugardagskvöld. Lada bifreið, sem
var á leið um Vesturlandsveg, keyrði
á aftanívagn vörubifreiðar sem var á
leið upp Höfðabakka. Ökumaður og
farþegi Lödu bifreiðarinnar voru flutt-
ir á slysadeild, en þeir munu ekki hafa
hlotið alvarleg meiðsl.
Deilt um afrétt
í Mývatnssveit
Jón G. HaukssoruDV; Akureyri:
„Það er klárt mál, við náum ekki
í féð þama inn eftir og ég efast ekk-
ert um að þetta mál geti farið í
hart,“ sagði Valgeir Illugason, bóndi
í Reykjahlíð í Mývatnssveit, í gær.
Upp er komin deila vegna þess að
Reykjahlíðarbændur slepptu þrjátíu
kindum vestur undir Jökulsá á Fjöll-
um í svokölluð Mellönd. Reykjahlíð-
arbændur eiga þennan afrétt.
Valgeir sagði að þeir hefðu verið
með fé þama í fjölda mörg ár. Þetta
væm hlunnindi sem þeir yrðu að
nýta og þetta væri í raun undirstaða
þeirra búskapar að þeir gætu rekið
fé þangað.
- Er ekki nauðsynlegt að hvíla
landið og rækta það upp?
„Það má segja að landið hafi breyst
á þessum slóðum í þau fimmtíu ár
sem ég hef verið bóndi. Landið þama
hefur sums staðar gróið en annars
staðar hefur það blásið upp.“
Hafið þið gert eitthvað til að
græða landið?
„Nei, við höfum ekki gert neitt í
því ennþá.“
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
í gær hefur ekki komið formleg kæra
til embættisins um að taka þetta mál
fyrir. „Við höldum að okkur hönd-
um, ég tel að málið skýrist á morgun,
mánudag," sagði Daníel Guðbjöms-
son, lögregluvarðstjóri á Húsavík.
„Það hefur enginn áhuga á nýju
Auðkúlumáli," sagði Daníel og bætti
við að sveitarstjóm Skútustaða-
hrepps hefði samþykkt að ekki yrði
rekið á afrétt austan við Námaskarð
og alveg undir Jökulsá á Fjöllum.
„Það hefur komið til tals að láta þá
ná í féð en það yrði þá Landgræðsl-
an og landbúnaðarráðuneytið sem
fæm þess á leit við sýslumannsem-
bættið héma,“ sagði Daníel.