Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Qupperneq 13
f
13
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987.
Neytendur
Fitusýrur:
Ur hverju? Til hvers?
Fitusýrur eru gerðar úr frumefnun-
um kolefni, vatnsefni og súrefni.
Fitusýrur eru keðjur gerðar úr þessum
frumefnum og eru keðjurnar mismun-
andi langar. Fer lengd þeirra eftir
fjölda kolefna.
Fitusýrur í mjólkurvörum eru að
megninu til með 6-8 kolefni en í kjöti
og fiski eru fitusýrurnar með 14 kol-
efni eða lengri.
Mettaðar og ómettaðar
fitusýrur
Fitusýra kallast mettuð vegna þess
að hún inniheldur öll þau vatnsefni
sem hægt er að .tengja við kolefnin.
Ómettaðar fitusýrur kallast þær fitu-
sýrur sem hafa misst 2, 4, 6 eða 8
vatnsefni. Kallast fitusýra einómettuð
ef hún hefur tapað 2 vatnsefnum en
fjölómettuð ef hún hefur tapað fleiri
en tveimur.
Mismunur á þessum fitusýrum hefúr
vakið áhuga fólks vegna þess að fólki
með of háa blóðfitu eða fólki, sem
hefur fengið hjarta- og æðasjúkdóma,
er ráðlagt að draga úr neyslu á mett-
aðri fitu en auka neyslu á ómettaðri
fitu og þá sérstaklega fjölómettaðri
fitu. (T.d. sleppa smjöri og nota mjúkt
smjörlíki eða jurtaolíu í staðinn.)
Myndl
Myndin sýnir 3 gerðir fitusýra. Tak-
ið eftir því að mismunur fitusýranna
liggur í fjölda tvítengja í fitusýrunum.
Allar fitusýrumar innihalda 18 kol-
efni.
A. Þessi fitusýra er mettuð. Á þessa
fitusýru vantar engin vatnsefni.
Fitusýran heitir sterínsýra. Ekkert
Gunnar Kristinsson
matvælafræðingur
- MATUROG
HOLLUSTA-
H H H H H H H H H H H H H H H H H 0
H-C- l -c- c- 1 -c- i -c- 1 •c- -c- -c— -c- C- -c- -C- -c— -c- C — c- 1 -c- II C-O-H
H H H H H H H H H H H H H H H H H
H 1 H H 1 H H H H H 1 f H H H H H H H 0 ii -C-O-H
H-C- -c- -C- -c- -c- -C- -c- -c- -C = c- -c- -C- —c- -C- -c- -c- —c-
H H H H H H H i H H H H H H H H H H
H I H l H H H l H r H H H H H H H 0
H-C- -c- 1 -c- -c- -c- -c = C- -c- -c = c- -c- -c- -c- -c- 1 -c- 1 -c- -c- II -C-O-H
H H H H H H H H H H H H H H H H H
tvítengi er til staðar.
B. Þessi fitusýra er einómettuð. Af
þessari fitusýru er búið að fjar-
lægja tvö vatnsefni og komið er
eitt tvítengi. Fitusýran heitir olíu-
sýra og finnst meðal annars í
ólífuolíu.
C. Þessi fitusýra er gölómettuð. Af
þessari fitusýru er búið að fjar-
lægja 4 vatnsefni og komin eru tvö
tvítengi. Fitusýran heitir línólsýra
og finnst í mörgum fitutegundum,
bæði í jurta- og dýraríkinu. Mest
finnst þó af henni í jurtaolíu eins
og t.d. sólblómaolíu, maísolíu og
matarolíu. Hún kallast lífsnauð-
synleg fitusýra.
Allt feitmeti og oliur innihalda
blöndu affitusýrum, þ.e. mettaðar fitu-
sýrur, einómettaðar fitusýrur og
fjölómettaðar fitusýrur. Hlutfall
hverrar fitusýru fer eftir fæðutegund-
um. Mest er af ómettuðum fitusýrum
í jurtaolíum en minnst í þeytikremi
Lífsnauðsynlegar fitusýrur
Lífsnauðsynlegar fitusýrur eru þær
fitusýrur sem líkaminn myndar ekki
sjálfúr. Hann verður því að fá fitusýr-
umar úr matnum. Línolsýran er
lífsnauðsynleg fitusýra. Nokkur sjúk-
dómseinkenni hafa verið rakin til
skorts á línólsýru en þau eru aðallega
roði í húð og erting í húðinni (Dermat-
itis). Það kemur fram vegna bó'- j eða
sýkingar í húð. Vanti ungabörn linól-
sýrur kemur fram vaxtartruflun. Sé
línólsýra sett í fæðið hverfa þessi ein-
kenni.
Flest daglegt fæði. bijóstamjólk og
fæði fyrir ungabörn inniheldur línól-
sýru. Þeir hópar sem hugsanlega geta
þjáðst af línólsýruskorti eru ungaböm
sem neyta eingöngu mjólkurdufts sem
ekki inniheldur línólsýruna og fólk
sem hefur lengi verið með næringu í
æð sem ekki inniheldur línólsýru.
Ég vil taka það fram að roði í húð
þarf ekki endilega að vera af völdum
línólsýruskorts. Roði getur komið
fram vegna skorts á öðrum efnum sem
nauðsynleg eru fyrir húðina og fæst
ekki úr því skorið nema með rann-
sókn.
Aðrar lífsnauðsynlegar fitusýrur eru
línólensýra og arakidonsýra. Báðar
þessar fitusýmr eru framleiddar úr lín-
ólsýru í líkamanum.
Prostaglandín
Lífsnauðsynlegu fitusýrurnar
mynda efni, prostaglandín, sem líkjast
hormónum. Þessi efni hafa mjög mis-
munandi virkni í líkamanum. Þekkt
eru um 100 prostaglandín í líkam-
anum. Eitt prostaglandín víkkai' og
dregur saman blóðæðar. Annað
prostaglandín hefur áhrif á flutning
taugaboða. Sérstakt prostaglandín
brevtir svörun líkamsvefja við horm-
ónum i líkamanum og enn eitt er í
brjóstamjólkinni og verndar ungaböm
fyrir mvndum sára í meltingargangin-
um.
Gunnar Kristinsson
matvælafræðingur
Fæst í heíls-
og hálfs íítra
umbúðum.
Nú fást þessar einstöku
eldhúsrúllur á tilboðsverði.
Hafðu ætíð það besta á borðum.
ss