Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Page 14
14
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987.
Spumingin
Hvernig líst þér á Sjálfstæð-
isflokk, Alþýðuflokk og
Kvennalista í stjórn saman?
Indriði Indriðason rithöfundur: Ekki
vel, ég hef ekki trú á því að þessir flokk-
ar geti starfað saman, það eru allt of
ólík sjónarmið er gi-eina þá að. Ég
mvndi vilja hafa Sjálfstæðis-, Fram-
sóknar- og Alþýðuflokk saman.
Gunnar Ævarsson tækniteiknari: Bara
vel þó það séu vTnis lión í veginum
hvað varðar samræmingu stefnu flok-
kanna og þá sérstaklega varðandi
utanríkisstefau Kvennalistans. Að
öðru levti hef ég trú á því að þetta
gangi upp.
Guðmundur Gunnarsson, formaður
Félags íslenskra rafvh'kja: Mjög vel,
þetta er góð kokkteilbanda. Þó ég
myndi kannski fremur kjósa að hafa
Framsókn sem þriðja flokkinn í staðinn
fyrir Kvennalistann.
Ólöf Eliasdóttir húsmóðir: Ég held bara
ágætlega, þetta er ekkert verra en hvað
annað.
Bergljót Rist nemi: Ég veit ekki,
kannski ekki beinlínis þessa samsetn-
ingu. En ég vil taka fram að ég er
mjög hlynnt því að Kvennalistinn verði
í næstu ríkisstjóm hverjir svo sem sam-
starfsflokkamir verða.
Gunnlaugur Dan Ólafsson skólastjóri:
Mér líst bara vel á það. Þetta em flokk-
ar sem einna helst gætu komið sér
saman um heilsteypta stjóm á næsta
kjörtímabili.
Lesendur
DV
Afnotagjaldahækkun
með valdboði
„Það gengur ekki lengur að ríkið geti kúgað fólk til þess að greiða þjón-
ustuna sem það vill ekki. Ríkið getur þá alveg eins látið útbúa lykilkerfi
eins og Stöð 2...“
Jakob skrifar:
Sá ráðherra sem hækkar afnota-
gjöld Ríkisútvarpsins um 67% með
einu pennastriki þarf ekki að hafa
áhyggjur af auknu atkvæðafylgi í
framtíðinni.
Sennilega er það mikill meirihluti
landsmanna sem er mótfallinn þess-
ari ofsahækkun sem þýðir að hver
áskrifandi útvarps- og sjónvarps hjá
ríkinu þarf að greiða kr. 2.800 fyrir
ársfjórðunginn þegar hækkunin hef-
ur öll tekið gildi í ár.
Þau rök að þessir tveir miðlar,
hljóðvarp og sjónvarp, veiti „lífs-
nauðsynlega þjónustu" er meirihátt-
ar tímaskekkja hjá ráðherra. Það
má svo sem segja að þetta eigi að
hluta til við um hljóðvarpið en alls
ekki um sjónvarp sem getur engu
hlutverki gegnt nema að vera af-
þrevingarmiðill sem ríkissjónvarpið
er þó alls ekki.
Og rökin fyrir því að um 13%
hækkunarinnar fari til sjónvarpsins
vegna dagskrár á fimmtuöögum eru
einnig tilbúningur því ekki stendur
til að hefja útsendingar fyrr en í
haust en hækkunin kemur til fram-
kvæmda strax. Og ekki er víst að
nokkur fimmtudagsdagskrá verði
yfirleitt því áður en slíkt kemur til
framkvæmda á mikið vatn eftir að
renna til sjávar í formi viðræðna og
vinnudeilna við starfsfólk ef að lík-
um lætur.
Enda er ekkert nauðsynlegt að rík-
issjónvarpið sé með dagskrá á
fímmtudögum nú eftir að Stöð 2 kom
til sögunnar.
Þegar svo er komið að lagður er
nýr viðbótarskattur á landsmenn í
formi afnotagjalda sem engin þorf
er fyrir nema til að halda úti staðn-
aðri dagskrá ríkissjónvarpsins
hlýtur að vera komið að þeim tíma-
mótum að fólk um allt land krefjist
þess að geta afþakkað þjónustu sjón-
varps frá ríkinu ef það vill hana
ekki.
Það gengur ekki lengur að ríkið
geti kúgað fólk til þess að greiða
þjónustuna sem það vill ekki. Ríkið
getur þá alveg eins látið útbúa lykil-
kerfi eins og Stöð 2 og látið þá greiða
sem óska eftir þessari lífsnauðsyn-
legu þjónustu sem ríkissjónvarpið
veitir.
Ríkissjónvarpið á þá líka að láta
landsmenn njóta þessarar þjónustu
ókeypis svona tvo klukkutíma á dag
svo það eigi þess kost að horfa á
þessa „lífsnauðsyn!" Hvað með allan
þann tíma sem ríkissjónvarpið send-
ir ekki út? Er þá engin lífsnauðsyn
á dagskrá?
Auðvitað er sjónvarp ríkisins ekki
þess umkomið að veita neins konar
lífsnauðsynlega þjónustu. Það er
einungis hljóðvarpið sem það getur
með sinni 24 klst. vakt.
Tökum saman höndum og krefj-
umst þess að fá lykil á útsendingar
ríkissjónvarpsins.
Eni sólarlandaférðir
eingöngu fyrir bamafólk?
Kristín Guðmundsdóttir skrifar:
Svo furðulegt sem það má vera
þá virðast sólarlandaferðir fyrst og
fremst vera stílaðar upp á fólk með 2
böm. Þetta sér maður í verðlagi sólar-
landaferða sem tryggir hjónum með 2
böm lægsta verðið.
Ég og maðurinn minn stöndum nú
frammi fyrir þeim vanda að vera bam-
laus og þurfum því að greiða mun
hærra verð fyrir vikið. Ja, bamleysið
getur lýst sér í ýmsu en að það skuli
lýsa sér í verðlagi sólarlandaferða er
lélegt og óheiðarlegt sölutrikk gagn-
vart þeim sem barnlausir em.
Ekki vantar auglýsingamar um hin
geysihagstæðu kjör fyrir tvo einstakl-
inga, lágmarkið er á bilinu 22-25 þús.
fyrir 2 vikur en svo stendur neðan-
máls með litlu prentuðu letri: Þetta
verð gildir fyrir tvo einstaklinga með
2 böm. Á meðan bamlaus hjón þurfa
að borga lágmark 36-34 þús fyrir sömu
ferð. Þetta getur verið um 10 þús. kr.
meira á einstakling sem verður að telj-
ast gífurlegur verðmunur og getur
ráðið úrslitum um hvort maður hefur
efhi á ferðinni eða ekki.
Mér finnst þetta mjög óheiðarlegt
sölutrikk að hjón skuli verða að borga
meira fyrir sína ferð vegna þess að þau
séu bamlaus og legg til að þetta verði
tekið til endurskoðunar.
Okkur bamlausa fólkið langar jú
kannski líka í sólarlandaferð og það
á bestu kjörum!
' v'-:'
„Ja, barnleysið getur lýst sér í ýmsu en aö það skuli lýsa sér i verðlagi sólarlandaferða (sem eru mun dýrari) er lélegt
og óheiðarlegt sölutrikk gagnvart þeim sem bamlausir eru.“
Hjóli stolið
í Árbænum
Sigrún Axelsdóttir hringdi:
Hjóli var stolið af blaðaburðar-
strák DV á þriðjudaginn er hann
var að bera út blaðið.
Lagði hann hjólinu fyrir utan
Coca -Cola verksmiðjuna í Árbæn-
um til að fara með blaðið upp á
kaffistofuna þar. Þetta var aðeins
vikugamalt BMX hjól, Team Lux
Us, gulllitað.
Þeir sem einhverjar upplýsingar
geta veitt um þennan atburð eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við lögregluna í Árbænum.
Hverfumfrá
láglaunstefnunni
Jón Trausti Halldórsson hringdi:
Eftir að hafa horft á þáttinn í
sjónvarpinu um vímulausa æsku
get ég ekki orða bundist og óneit-
anlega vill maður kerrna láglauna-
stefriunni um hvemig komið er
fyrir ungmennunum.
Vegna þess hve lág launin eru
þurfa báðir foreldrar að vinna
myrkranna á milli til að reyna að
ná endum saman. Það gefst því
einfaldlega lítill tími til að sinna
því mikilvæga hlutverki sem upp-
eldi er.
Láglaunastéfha getur aldrei leitt
neitt nema slæmt af sér, launafólk-
ið or óánægt og getur ekki gegnt
þeim frumskyldum sem ætlast er
til að foreldrar gegni.
Vegna þessara lágu launa verða
báðir foreldrar að vinna meira en
góðu hófi gegnir og auðvitað bitn-
ar það fyrst og fremst á börnunum
sem stundum leiðast út í þá vit-
leysu að sniffa eða eitthvað álíka.
Þegar fjölskyldan getur ekki veitt
bömunum nægilegt aðhald má
alltaf búast við að þau fari í ein-
hverja vitleysu.
Besta lausnin á velflestum vanda-
málum þjóðfélagsins er því að snúa
við blaðinu. Það hefur sýnt sig að
dæmið gengur ekki upp höldum
við öllu lengur í þessa láglauna-
stefriu.