Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Side 29
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. 41 Meiming Ristur og ristar Sýning Gunnsteins Gíslasonar að Kjarvalsstöðum Gunnstcinn Gíslason er eini myndlistarmaður á landinu sem að staðaldri leggur fyrir sig þá ævagömlu tækni, múrristu eða sgraffito. I tengslum við sýningu sína að Kjarvalsstöðum hefur Gunn- steinn gefið út bækling með upplýs- ingum um múrristu. Þar segir meðal annars: Uppistaðan...er fínmulinn hvítur marmari, kalk og sérstakir steinlitir sem notaðir eru í steypu- hræruna. Þannig eru mismunandi lituð múrlög lögð hvert yfir annað, allt eftir því hve margir litir eiga að vera í myndinni. Síðasta lagið er yfirleitt hvitt. Að þessu loknu er vinnuteikning fest á múrinn og framkölluð í blauta steypuna. Mynd- in er síðan skorin til með beittum hníf og litir og form skafin fram. Þegar allur raki er horfinn úr steyp- unni má verja hana með blöndu af hreinu bývaxi og paraffinvaxi sem brætt er inn í múrinn.“ Þótt sjálfur hafi ég sáralitla þekk- ingu á innviðum múrristu þykist ég geta greint á henni ýmsa annmarka íyrir sjálfstæðan myndlistarmann. Sem veggskreyting hlýtur hún að þurfa að taka tillit til umhverfisins að töluverðu leyti, auk þess sem lit- rófið er takmarkað, a.m.k. ef miðað er við málaralist og grafík. Þar að auki hlýtur tæknin að hafa óþarflega mikil áhrif á handbragð listamannsins, kannski meiri en í mörgum öðrum greinum myndlistar. Miðsvæðis í listinni Eg á við að listamaður, sem hneig- ist til hvatlegrar, afstrakt-expres- sjónískrar myndgerðar, ætti ekki Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson auðvelt með að tjá sig í múrristu. Listamenn á gagnstæðum væng, nákvæmir raunsæismenn, gætu heldur ekki notað sér ristuna. Það sem ég er að reyna að segja er að hún er sennilega tilvalin fyrir þá sem eru miðsvæðis í listinni, hafa tileinkað sér hálf-afstrakt myndmál. skýra formgerð og harða teikningu. Það má telja Gunnsteini til tekna að hann gerir hvort tveggja í senn, að snúa þessum formrænu „tak- mörkunum" múrristunnar sér í hag með fjölbreyttu formspili og leýsa hana úr viðjum veggjarins. Það gerir hann með því að smíða stálumgjarðir utan um stevpuna þannig að múrristan verður eins og hver önnur lágmynd í farangrinum. Umgjarðir Umgjarðimar gera Gunnsteini einnig fært að brjóta upp hinn hefð- bundna, ferhymda mvndflöt og teygja óreglulega lagaða múrristuna í allar áttir. Þar með er umgjörðin Gunnsteinn Gíslason við uppsetningu á sýningu sinni. orðin hluti af myndbyggingu hvers verks og Gunnsteinn eykur hlut hennar enn frekar með því að búa til úr umgjörðunum sérstakar ein- ingar. til að mynda ristar. sem ríma við og styðja við múrristuna. Með þessum aðferðum er Gunn- steinn á góðri leið með að lýsa yfir fullveldi múrristunnar. Ég hef grun um að með þessum nýmælum standi listamaðurinn á tímamótum í list sinni. Það verður fi'óðlegt að frlgjast með framvind- unni. A sýningu Gunnsteins að Kjarv- alsstöðum er að finna röskan tug verka. en henni lýkur sunnudaginn 31. maí. -ai ■« —Æ", CHEVROLET MONZA er framhjóladrifinn og rúmgóður fjölskyldubíll, hannaður af vesturþýsku hugviti og tækni, með mýkt og snerpu Chevroletsins. Auk þess er hann sérlega styrktur, með hlífðarpönnu, stærri hjólbarða og fjölmargt annað er hentar sérstaklega íslenskum akstursaðstæðum. Chevrolet Monza er ríkulega búinn aukahlutum, en verðið er þó broslega lágt. Verð frá kr. 453.000. Góðir greiðsluskilmálar. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.