Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Page 30
42 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. Andlát Franz Benediktsson lést 16. maí sl. Hann var fæddur á Dönustöðum, Laxárdal, Dalasýslu, 1S. febrúar 1896. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Helgadóttir og Benedikt Halldórsson. Franz stundaði lengst af sjómennsku. Hann var tvígiftur. Fyrri kona hans var Guðrún Matthí- asdóttir en hún lést eftir 18 ára sambúð. Síðari kona hans var Ellen Hallgrímsson. hún lést síðastliðið haust. Franz eignaðist einn son. Út- för hans verður gerð frá Fossvogs- kapellu í dag kl. 13.30. Jóhanna G. Guðlaugsdóttir lést 16. mai sl. Hún var fædd 19. ágúst 1924 á Ánabrekku í Mýrarsýslu, dóttir Elínar Margrétar Jónsdóttur og Guðlaugs Jónssonar. Jóhanna var tvígift. Fyrri maður hennar var Geir R. Gíslason og eignuðust þau 4 börn. Eftirlifandi eiginmaður Jóhönnu er Friðgeir Axfjörð. Útför hennar verð- ur gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Kristbjörg Torfadóttir, Rauðarár- stíg 7, lést í Borgarspítalanum 22. maí. Guðrún Jóhannsdóttir, Stóru- Tungu, Dalasýslu, lést í sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 21. maí. Róbert G. Jensen, Háengi 15, Sel- fossi, andaðist í Landspítalanum aðfaranótt 21. maí. Halldóra Halldórsdóttir frá Sóleyj- artungu andaðist í sjúkrahúsi Akraness 21. maí. Sólveig Jónsdóttir, Grettisgötu 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Selfosskirkju í dag, 25. maí, kl. 13.30. Þórður Sturlaugsson er látinn. Útför Sigurbergs E. Guðjónsson- ar, Hátúni 12, fer fram frá Fossvogs- kapellu þriðjudaginn 26. maí kl. 15. Þórarinn Jónsson, Gnoðarvogi 28, verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins miðvikudaginn 27. maí kl. 13.30. Sigurður Jónsson frá Efra-Lóni á Langanesi, síðar búsettur á Lokastíg 4, Reykjavík, lést í Landakotsspítala aðfaranótt 15. maí sl. Jarðarförin fer fram frá Hallgrímskirkju 26. maí nk. kl. 15. Karl Sigurður Sigfússon kaup- maður, Höfn, Hornafirði, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju i dag, 25. maí, kl. 14. Útför Fjólu Jónsdóttur, Fannborg 1, sem lést þann 16. maí sl. í Landspít- alanum, verður gerð frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 26. maí kl. 13.30. Kristján Jóhann Kristjánsson, Miðvangi 41, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, mánudaginn 25. mai, kl. 13.30. Sigurður Skúlason magister, Hrannarstíg 3, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 26. maí kl. 15. Súsanna María Grímsdóttir, Há- vallagötu 35, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 26. maí kl. 13.30. Tilkyimingar Tvö ný prestaköll í Reykjavíkurprófastdæmi Nú eftir helgina verða stofnuð tvö ný prestaköll í Reykjavíkurprófastdæmi. en samkvæmt lögum er gert ráð fyrir því að sem næst 4000 sóknarbörn séu í umsjón hvers sóknarprests. Er annars vegar um það að ræða að Digranessöfnuði verður skipt en nú við síðustu gerð þjóðskrár. 1. desember sl. voru 9530 í þeim söfnuði. fbúar hverfisins alls voru 10451 og í Fella- og Hólaprestakalli voru á sama tíma 9734 í þjóðkirkjunni af 10861 íbúum alls. Skipting Digranessafnaðar var ákveðin á fundi safnaðaráðs Reykjavíkurprófast- dæmis 1. mars sl. og einnig hefur verið endurrædd og ítrekuð samþykkt safnaða- ráðsins frá árinu 1975 um tvo söfnuði í því hverfi sem upphaflega nefndist Breiðholt þrjú. þ.e.a.s. Fellasöfnuð og Hólabrekku- söfnuð. Á yfirstandandi fjárlögum er gert ráð fyrir einu nýju prestsembætti í Reykjavík- urprófastdæmi en með samkomulagi kirkjuyfirvalda við fjármála- og kirkju- málaráðuneyti var ákveðið að bíða miðs árs með veitingu í bæði þessi prestaköll í stað þess að veita annað núna en hitt á næsta ári. Dómprófasturinn. séra Ólafur Skúlason. mun því efna til funda með sóknarfólki hinna nýju safnaða sem hér segir: 1 Digra- nesskóla fyrir hið nýja Hjallaprestakall, en mörk þess og Digranesprestakalls eru um Skálaheiði, á mánudagskvöld kl. 20:30 og í Fella- og Hólakirkju þriðjudagsdvöld á sama tíma fyrir Hólabrekkuprestakall. Á þessum fundum verður rætt um safnað- arstarfið og framtíðina og sóknarnefndir kosnar. Að lokinni kosningu sóknar- nefnda fá þær nokkurn frest til þess að ákveða hvort þær hagnýta sér það sem nýju lögin um prestkosningar bjóða upp á. að prestur sé kallaður. Sé það ekki gert mun biskup auglýsa hin nýju prestaköll til umsóknar. Þar til nýr prestur verður skipaður munu þeir séra Þorbergur Kristj- ánsson og séra Hreinn Hjartarson annast þjónustuna svo sem verið hefur, hvor í sínu prestakalli og með aukaþjónustu í þeim nýju. Náttúruskoðunarferð til Vest- mannaeyja Áhugahópur um byggingu náttúrufræði- húss fer náttúruskoðunarferð til Vest- mannaeyja helgina 29.-31. maí. Aðaltil- gangur ferðarinnar er að skoða sædýrasafnið þar og jafnframt að fara náttúruskoðunarferð um eyjarnar og um- hverfis þær. Leiðsögumenn verða Olafur Hreinn Sigurjónsson jarðfræðingur, Kristinn M. Öskarsson líffræðingur, Frið- rik Jesson safnvörður og íl. Einnig verður leiðsögn á leiðinni til Vestmannaeyja. f skoðunarferðum verður kynnt jarðfræði Eyjanna, lífríki, byggðasaga og fleira. Lit- ið verður á hraunhitaveituna undir leið- sögn kunnugra manna. Sædýrasafnið verður sérstaklega skoðað. Þá eru ráð- gerðar bátsferðir umhverfis Eyjarnar og fuglabjörg skoðuð frá sjó. Farið verður með Herjólfi frá Þorlákshöfn kl. 21 á föstu- dagskvöld 29. maí (rútuferð frá Umferðar- miðstöðinni kl. 19.30). Hægt verður að velja um brottför frá Vestmannaeyjum kl. 10 og kl. 18 á sunnudag. Þátttakendum gefst kostur á ódýrri gistingu í nýja Far- fuglaheimilinu, Faxastíg 38. Þeir sem hafa áhuga á þessari ferð hafi samband í síma 29475 frá kl. 10-13 og 17-18 í dag mánudag og þriðjudag og láti skrá sig. ÞAKKARÁVARP Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, fósturföður, tengda- föður, afa og langafa, ÓLA S. HALLGRÍMSSONAR, Stórholti 24. Guörún Ólafsdóttir, Ólafur Lárusson, Hulda Lárusdóttir, Stefán Jónasson, barnabörn og barnabarnabörn. í gærkvöldi i Eygló Bjarnadóttir danskennari: „Vor í íslenskri fjölmiðlun“ Hún er erfið samkeppnin sem hin- ir ýmsu fjölmiðlar landsins eiga í þessa síðustu sólardaga. Blíðviðris- dagar eins og þeir sem við höfum orðið aðnjótandi hljóta að draga verulega úr áhuga fólks á sjónvarpi og útvarpi. Það er enginn ósnortinn af lífinu og landinu meðan svona viðrar. Börn og fullorðnir eru úti fram á rauðanótt við garðvinnu og leiki og þeir sem eru svo heppnir að vera annaðhvort á grásleppu eða í sauðburði hafa þar fullkomna ástæðu til þess að vaka þessar fall- egu vomætur. Á dagskrá útvarpsins vom þó nokkrir liðir sem náðu eyrum mínum þrátt fynr blíðuna. Þar á meðal var bamastundin á Rás 2. Það er alltaf jafngaman að fylgjast með börnum hlusta á bamaefni í útvarpi. Á dagskrá Rásar 2 á sunnudags- kvöldum er þáttur sem ég hlusta oft á, það er þátturinn Dansgólfið. Þama er á ferðinni athyglisverð Eyglo Bjarnadóttir nýbreytni. Þessir þættir em til þess ætlaðir að gefa fólki tækifæri á að hlusta á góða danstónlist og em all- ar kynningar í höndum fagfólks. Þátturinn er einnig vettvangur fyrir alls kyns upplýsingar úr danslífinu hér á landi og er að mínu mati tíma- bær þjónusta og skemmtun fyrir allan þann fjölda Islendinga um allt land sem hefur dans að áhugamáli. Reyndar finnst mér sjónvarpi og út- varpi hafa farið fram að undanfömu hvað varðar þjónustu við fólk með mismunandi áhugamál. Það er ekki langt síðan knattspyrna og bolta- íþróttir vom eina íþróttaefnið sem sjónvarpið bauð upp á. En á dagskrá sjónvarpsins i gærkvöldi var einmitt gott dæmi um þessa nýbreytni, þátt- ur um bridge. Þó ég spili ekki bridge sjálf horfði ég af athygli á þáttinn og varð margs vísari, sérstaklega fannst mér athyglisvert hve stór hópur fólks hefur bridge sem áhuga- mál. Að endingu vil ég lýsa ánægju minni með það vor sem nú ríkir í íslenskri fjölmiðlun. Ástæða er til að óska þess að sem mest af þeim nýgræðingi sem hefur skotið upp kollinum á þeim vettvangi nái að þroskast og dafna. „Skátarnir á aukajasskvöldi í Heita pottinum“ Vegna fjölda áskorana hefur hljómsveitin „Skátarnir” ákveðið að láta undan þrýsti- hópum og halda „vormót“ sitt í Duushúsi í dag, mánudag 25. maí, kl. 21.30. Á þessu aukajasskvöldi Heita-pottsins munu gítar- leikarinn Friðrik Karlsson ljósálfur. bassaleikarinn Birgir Bragason ylfingur og trommuleikarinn Pétur Grétarsson skáti eingöngu leika eigið efni og m.a. kynna „Tannverk" hljómsveitarinnar Breyting á togveiðibannsvæði austur af Hvalbak Ráðuneytið hefur gefið út reglugerð um breytingu á togveiðibannsvæði því austur af Hvalbak sem sett var í mars sl. Samkvæmt þessari reglugerð opnast eystri hluti hólfsins 19. maí og markast bannsvæðið eftir það af eftirgreindum punktum: 1. 64“46.o9.7 N - 12°43'39.9 V 2. 64°45’06.4 N - 12°15’01.7 V 3. 64°22’45.2 N - 12°39’14.9 V 4i 64°21’04.1 N - 12°49’19.4 V 5. 64°35’17.6 N 12°55’49.0 V Ferðir á vegum starfs aldr- aðra Hallgrímskirkju Farin verður 4 daga ferð í Húnavatnssýslu dagana 13.-16. júlí. Lagt verður af stað mánudaginn 13. júlí kl. 9.30 frá Hallgríms- kirkju. Gist verður á Húnavöllum allar næturnar. Áætlað verð fyrir ferðina er kr. 10.000 fyrir þá sem gista í tveggja manna herbergjum en kr. 11.200 fyrir þá sem velja eins manns. Fararstjóri verður Dómhildur Jónsdóttir en leiðsögumaður sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, fyrrverandi prófastur Húna- vatnsprófastsdæmis. Ferð til Danmerkur á vegum „Ældre pá höjskole" verður dag- ana 5.-21. ágúst. 20 manns 60 ára og eldri verða í hópnum. Vegna forfalla eru 3 sæti laus. Fararstjóri verður sr. Lárus Hall- dórsson. Þeir sem áhuga hafa á þessum ferðum eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Dómhildi Jónsdóttur sem fyrst, í síma 39965. Allir lífeyrisþegar geta tekið þátt í þessum ferðum. Sumaráætlun SVR tekur gildi mánudaginn 1. júní nk. með breyttum tímaáætlunum á leiðum 02-12. Ný leiðabók er til sölu á Lækjartorgi, Hlemmi og Grensási. Farþegar eru hvattir til að kynna sér sumaráætlunina í tæka tíð. Háskólafyrirlestur Dr. Joan Maling, prófessor í málvísindum við Brandeisháskóla í BandarÍKjunum, flytur opinberan fyrirlestur í boði heim- spekideildar Háskóla íslands þriðjudaginn 26. maí 1987 kl. 17.15 í stofu 423 í Áma- garði. Fyrirlesturinn nefnist „Existential Sentences in Swedish and Icelandish: the role of argument-structure", og verður fluttur á ensku. Joan Maling hefur fengist við rannsóknir á íslenskri málfræði og skrifað greinar um þær í innlend og erlend tímarit. Núna á vormisseri var hún Ful- bright-sendikennari í málvísindum í heimspekideild. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Bahá’íar kynna viðhorf sín til friðarmála Bahá’í samfélagið í Kópavogi gengst fyrir kynningarviku dagana 25.-30. maí á við- horfum Bahá’í trúarinnar til friðarmála. Þessi kynning er upphafið að sams konar starfsemi í sumar vítt og breitt um landið, sem landskennslunefnd Bahá’ía stendur að í samvinnu við andleg svæðisráð Bahá’- ía á Islandi, sem nú eru 12 talsins. Fimmtudaginn 28. og föstudaginn 29. maí gefst almenningi kostur á að kynnast inni- haldi þessa ávarps því að þá verður opið hús í Hamraborg 5 (sal Framsóknarílokks- ins) frá kl. 20.30-23. Á meðan á kynningar- vikunni stendur verður sýning á Bahá’í bókum í Bókasafni Kópavogs. Bahá’íar verða þar viðstaddir frá kl. 17-20.30 til að svara fyrirspurnum um afstöðu þeirra til friðarmála og aíhenda þeim sem þess óska ávarpið að gjöf. Þeir sem komast ekki á þessar kynningar geta fengið upplýsingar um Bahá’í trúna með því að skrifa til Andlegs svæðisráðs Bahá’ía í Kópavogi. Pósthólf 467 eða hringja í síma 45462. Á þjóðarskrifstofu Bahá’ía, Óðinsgötu 20 I Reykjavík, er einnig hægt að fá upplýsing- ar og er opið þar á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17-20 og er síminn (91) 26679. Fimleikamál í brennidepli Fimleikasamband Islands boðar til ráð- stefnu sunnudaginn 31. maí nk. Ráðstefn- an verður haldin í húsi Iþróttasambands íslands í Laugardal og hefst kl. 10 árdeg- is. Ráðstefnan fjallar um fimleika í nútíð og framtíð. Öllum fimleikafélögum lands- ins hefur verið boðið að senda fulltrúa á ráðstefnu þessa. Ennfremur er ráðstefnan opin öllu áhugafólki um fimleika. Þátt- taka skal tilkynnast til Margrétar Bjamadóttur, sími 43323, eða Dagnýjar Ólafsdóttur, sími 673307. Sæbjörgu fagnað með gjöfum í Vestmannaeyjum Sæbjörg, slysavarnaskóli sjómanna, hefur verið með námskeið í öryggismálum fyrir sjómenn í Vestmannaeyjum. Við skólaslit Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum, sem fóru fram í Básum laugardaginn 16. þ.m., var Sæbjörg og áhöfn hennar boðin sérstaklega velkomin og fagnað þeim áfanga sem náðst hefur. Við þetta tæki- færi var Árni Johnsen, fyrrverandi, alþingismaður, sæmdur gullmerki SVFl í þakklætisskyni fyrir stóran þátt hans í því að skipið var afhent félaginu til þessa starfs á sínum tíma, svo og fyrir margvís- leg störf hans í þágu öryggismála og fræðslumála sjómanna. Eftir skólaslitin fóru gestir um borð í Sæbjörgu og var skipið opið almenningi til skoðunar. Við það tækifæri afhenti Sveinn Tómasson gjafabréf f.h. Kiwanisklúbbsins Helgafells fyrir tveimur Sigmundar-gálgum og einnig gjafabréf f.h. vélsmiðjunnar Þórs fyrir ein- um Sigmundar-gálga og uppsetningu gálganna þriggja á skipinu. Þá afhenti Jóhann Friðfinnsson peningagjöf að fjár- hæð 275.000 tii slysavarnaskólans frá Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja., Sjó- mannadagsráði, Sjómannafélaginu Jötni, Tryggingamiðstöðinni hf.. Utvegsbænda- félagi Vestmannaeyja, Vélstjórafélagi Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæ. Sömuleiðis afhenti Sigurður Einarsson forstjóri kr. 50.000 frá fyrirtæki sínu og Rósa Magnúsdóttir, f.h. Slysavarnadeild- arinnar Eykyndils, kr. 300.000 til skipsins. Að lokum fékk skipið að gjöf upphleypt kort af Vestmannaeyjum frá Björgunarfé- lagi Vestmannaeyja. Haraldur Henrysson, forseti SVFÍ, og Þorvaldur Axelsson, skip- stjóri og deildarstjóri SVFl, tóku við og þökkuðu fyrir hinar rausnarlegu gjafir. Gefið og þegið Komið er út hjá Iðunni afmælisrit til heið- urs dr. Brodda Jóhannessyni en hann varð sjötugur á síðasta ári. Ber ritið heitið „Gefið og þegið“ og inniheldur fjölda greina um kennslu- og uppeldismál eftir ýmsa fræðimenn. Dr. Broddi Jóhannesson var skólastjóri Kennaraskólans árunum 1962-1971 og síðan rektor Kennarahá- skóla íslands fram til ársins 1975. Á því 13 ára tímabili, sem hann sat við stjórn- völ, áttu sér stað miklar og gagngerar breytingar á íslenskri kennaramenntun sem hann átti drjúgan þátt í að móta og er þeirri þróun m.a. gerð skil í bókinni. Jafnframt er þar að finna ítarlega skrá um prentuð rit dr. Brodda, en auk annarra starfa hefur hann skrifað nokkrar bækur og fjölda greina í blöð og tímarit. Ritnefnd bókarinnar skipuðu Þuríður J. Kristjáns- dóttir, Kristín Indriðadóttir, Loftur Guttormsson, Sigurjón Björnsson og Svanhildur Kaaber. Prentsmiðjan Oddi prentaði. Nám í mannlegri tækni Peter Kemp, lektor við Kaupmannahafn- arháskóla, heldur opinberan fyrirlestur á vegum verkfræðideildar og raunvísinda- deildar háskólans þriðjudaginn 26. maí. Fyrirlesturinn nefnist Nám í mannlegri tækni, en fyrirhugað er að setja á laggirn- ar námsbraut í þeirri grein við Kaup- mannahafnarháskóla. Peter Kemp er þekktur danskur fræðimaður og heim- spekingur. Hann hefur birt fjölda greina og bóka. Fyrirlesturinn verður fluttur í Odda, stofu 101, kl. 17.15 og verður á dönsku. Afmæli 70 ára afmæli á í dag, mánudaginn 25. maí, Þórður Arason, Ljósheim- um 2, Reykjavík. Hann er erlendis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.