Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1987, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Britt Ekland _ mætti með ektamanninum, hor- aða Jimma, í fyrsta stóra vorpartí glitborgarbúa vestra og vöktu þau mikla athygli - að venju. Astin blómstrar ennþá hjá parinu og hefur samband þeirra slegið öll met hjá þotuliðinu. Ekki voru margir sem trúðu á langlífi ástar- ævintýrsins I upphafi, þvi Britt er bæði mun eldri en Slim Jim og svo þótti rokkarinn heldur villtur fyrir Ijóskuna. En Britt gafst ekki upp á elskunni sinni heldur klippti flugfjaðrirnar snarlega af kappan- um sem nú situr heima í stofu öll kvöld, sötrandi gosdrykki fyrir framan imbakassann. Í fyrrnefndu samkvæmi voru hjúin nægjusöm með afbrigðum og létu sér nægja einn sameiginlegan stól allt heila kvöldið. Brigitte Nielsen Rambó fór í þetta sama partí og Britt hin sænskættaða - að sjálfsögðu með sinn elskaða Rambó undir arminn. Gestum varð starsýnt á hina stút- mynntu og barmmiklu blondínu enda segir sagan að þessir tveir líkamspartar innihaldi meira af gerviefnum en bráðhollt getur tal- ist. Gitte sagði ekki orð allt kvöldið - brosti bara með sínum sílíkon- fylltu vörum til nærstaddra og klappaði Rambó sínum á kollinn. Sérfræðingar segja nefstækkun og iljaminnkun næstu mál á dag- skrá. Joan Collins þolir ekki sískrafandi karlmenn og er komin í súperþjálfun þegar þagga þarf niður í einum slíkum. Bragðið er víst eitt hægri handar vink - sem endar í þéttingsfastri klemmu. Frá fyrrum eiginmanni - Peter Holm - heyrist nú hvorki stuna né hósti og mun það vera ágætri þjálfun í hjónabandinu að þakka. Nýlega fór kvensan út að borða með ónefndum herramanni sem ekki hafði komist í hendur bombunnar áður. Hann var ræð- inn mjög og ánægður með borðdömuna þar til Joan ákvað að skrúfa fyrir skrafskjóðuna - með hefðbundinni aðferð. Kava- lerinn snöggþagnaði en hefur þegar þetta er ritað ekki ennþá látið í Ijósi neinar óskir um áfram- haldandi kynni þeirra tveggja. Bestu veigamar Hin árlega keppni barþjóna um besta kokkteilinn var haldin á Hótel Sögu fyrir skömmu og hlutskarpastur keppenda varð Ragnar Örn Pétursson. Hörður Sigur- jónsson lenti í öðru sæti en Guðmundur Sigtryggsson í því þriðja. Allmargt manna var á staðnum þegar keppnin fór fram og Ijósmyndari DV, KAE, tók meðfylgjandi myndir þegar hæst hóaði í þessari kokkteilakeppni bar- þjona það herrans ár áttatíu og sjö. Vinningshafinn hefur með afrekinu áunnið sér rétt til þess að taka þátt í al- þjóðlegri keppni barþjóna um besta kokkteilinn og hef- ur Islendingum vegnað vel í þeirri samkeppni til þessa. Dómnefndarmenn ræktu starf sitt af mikilli alvöru og stakri prýði. Matreiðslumeistarinn Sverrir Halldórsson að störfum. Band eða börkur? Hörður Sigurjónsson kann greinilega að kljúfa sítrónu- Riddari kokkteilareglunnar reyndist svo Ragnar Örn Pétursson. Hann börkinn á hárréttan máta enda lenti hann í öðru sæti. hlaut fyrsta sætið og formaður barþjónaklúbbsins BCI - Hafsteinn Egils- son - slær hressilega á öxlina á honum fyrir afrekið. Stefán Magnússon frá umboðsversluninni G. Helgason og Melsted hneigði sig djúpt fyrir Guðmundi Sigtryggssyni sem varð í þriðja sæti keppninnar. Lýsing að vild Myndlistarmaðurinn Einar Hákonarson er með sýningu á eigin myndlist að Kjarvalsstöðum þessa dagana og Ijóst er að lýsingin er honum ekki jafnljúf og hönnuði hússins. Einar leysir málið með þvi að treysta á kastara sem hann notar til þess að kasta réttu birtunni beint á verkin. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.