Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Page 3
FÖSTUDAGUR 12. JÚNl 1987. 3 Ólafur Guðmundsson, settur fræðslustjóri, kominn í stól Sturlu Kristjáhssonar sem var rekinn úr starfi. DV-mynd JGH Ólafur sestur í stólinn Jón G. Hauksson, DV, Akureyii Ólafur Guðmundsson, settur fræðslustjóri, hefur tekið til starfa á íræðsluskrifstofunni á Akureyri. Fylgdarmenn úr menntamálaráðu- neytinu mættu með Ólafi norður og var fundað með nokkrum starfsmönn- um skrifetofunnar. Enn er óvíst hve lengi Ólafur mun starfa á skrifstofunni en vilji starfs- fólksins er ótvíræður. Það vill hinn brottrekna Sturlu Kristjánsson aftur. Þrátt fyrir að hljótt hafi verið um málið síðustu daga er talið að það blossi upp innan tíðar. Kosningaloforð svikin: Ekkert mal- bikaðá Siglufirði í sumar Jón G. Haukssom, DV, Akureyri: Kosningaloforðin á Siglufirði frá því í fyrravor hafa verið svikin. Mál mál- anna var að gera átak í gatnamálum bæjarins en nú er komið á daginn að ekkert verður malbikað á Siglufirði í sumar. „Þetta eru okkur mikil vonbrigði," sagði Isak Ólafsson bæjarstjóri. „Nýi meirihlutinn ákvað að fara þessa leið enda erfitt um vik.“ ísak sagði að bæjarfélagið hefði boð- ið út 3,3 km gatnagerð og talið að greiðlega ætti að ganga að fá verktaka til að bjóða í verkið. Það gekk ekki eftir því tvö tilboð bárust og var ann- að þeirra 38 prósent yfir kostnaðará- ætlun og hitt 47 prósent yfir. Kostnaðaráætlunin var 38 milljónir króna. Bæjarstjóm ákvað í staðinn að skipta um jarðveg í þrem götum og malbika þær næsta haust. Missti 3 fingur Jón G. Haukssan, DV, Akureyit Sjómaður á rækjutogaranum Odd- eyri frá Akureyri missti 3 fingur í slysi um borð í togaranum þegar hann var við veiðar út af Norðurlandi um helg- ina. Slysið varð með þeim hætti að lestarlúga féll ofan á hönd sjómanns- ins. Eftir slysið sigldi togarinn til Gríms- eyjar og þaðan var flogið með hinn slasaða til Akureyrar. ÞAD MA LENGJA LÍFDAGA LOTTÓMIDANS. Það er ekkert auðveldara en að láta Lottómiðann endast lengur en í eitt skipti Á hverjum miða eru sérstakir reitir til þess að merkja í, ef óskað er eftir fleiri leikvikum með sama talnavali. Hægt er að velja um 2,5 eða 10 vikur. é ' w. Með þessu móti geta milljónirnar beðið eftir þér, þegar þú kemur heim úr sumarfríinu. Þú missir ekki af neinu, ef þú notfærir þér margra vikna*nöguleikann. Éin lítil ábending að lokum: Ef vinningur er leystur út á gitdistíma margra vikna miða, er nauðsynlegt að fá sérstaka endurnýjunarkvittun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.