Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Síða 28
40 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987. AndJát Arndís Skúladóttir lést 5. júní sl. Hún fæddist á Blönduósi 25. janúar 1911. Foreldrar hennar voru Skúli Jónsson og kona hans Elín Theo- dórs. Arndís giftist Hans Guðmunds- syni en hann lést 1967. þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Útför Amdísar verður gerð frá Dómkirkj- unni, í dag, kl. 13.30. Ingibjörg S. Jónsdóttir lést 3. júní sl. Hún fæddist á Staðarbjörgum 31. maí 1919. Foreldrar hennar voru hjónin Jón R. Jónsson og Guðrún Sveinsdóttir. Ingibjörg starfaði lengst af í eldhúsi Landspítalans. Útför hennar verður gerð frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, kl. 13.30. / ( Egill Th. Sandholt skrifstofustjóri, lést 5. júní sl. Hann fæddist 16. maí 1912, sonur hjónanna Stefáns Sand- holt og Jennyar Christensen. Egill lauk námi frá Verslunarskóla ís- lands og síðan framhaldsnámi í verslunarskóla í Brighton í Eng- landi. Hann starfaði lengst af á Lögfræðiskrifstofu Einars B. Guð- mundssonar og Guðlaugs Þorláks- sonar. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigríður Magnúsdóttir. Þeim hjón- um varð tveggja sona auðið. Útför Egils verður gerð frá Dómkirkjunni, í dag, kl. 15. Jarðaför Margrétar Magnúsdótt- ur Grönvold, Reynimel 23 sem andaðist 9. þ.m. í Landakotsspítala, fer fram frá Dómkirkjunni, mánu- daginn 15. júní, kl. 13.30. Guðjón Kristjánsson, Hafnargötu 101, Bolungarvík, verður jarðsung- inn frá Hólskirkju, Bolungarvík, laugardaginn 13. júní, kl. 14. Bjarni Jónsson, Foldahrauni 40 sem lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 9. júní, verður jarðsettur frá Landa- kirkju, laugardaginn 13. júní, kl. 11. ísey Skaftadóttir, Vestmannabraut 25, Vestmannaeyjum, er lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja laugar- daginn 6. júní, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum í dag, föstudaginn 12. júní, kl. 14. Elenora Þórðardóttir, Þórufelli 10, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hvalsneskirkju, laugardaginn 13. júní, kl. 14. Tímarit í gærkvöldi DV 19. júníer komiðút Ársrit Kvenréttindafélags Islands, 19. júní, er komið út í 37. skipti. Efni blaðsins er sem fyrr helgað málefnum jafnréttis milli kvenna og karla og kennir að þessu sinni margra gra'sa í því efni. „Ég hlakka til þess dags...“ er fyrirsögn á forsíðuviðtali við forseta Islands, frú Vigdísi Finnboga- dóttur. íþróttir og konur eru að öðru leyti það efni sem á stærstan hlut í blaðinu. „Ef Bjarni Fel væri kona...“ heitir ein nokk- urra greina í þessum efnisflokki og fjallar um þátt fjölmiðla í þeirri mynd sem al- menningur fær af íþróttum kvenna. Margt fleira er að fmna í blaðinu enda ritið 100 bls. og stærra en nokkru sinni áður. Það er litprentað að hluta og vandað hefur verið til útlits þess í hvívetna. Þá hlið annaðist Þórhildur Jónsdóttir auglýsinga- teiknari en ritstjóri blaðsins er Jónína Margrét Guðnadóttir. Upplag 19. júní hef- ur verið nær tvöfaldað að þessu sinni og í fyrsta skipti verður blaðinu nú dreift mun víðar en hingað til. Það verður fáan- legt í öllum blaðsölustöðum og bókabúð- um um land alit og á Reykjavíkursvæðinu og víða úti á landi verður blaðið einnig boðið í lausasölu af blaðsölufólki. - Fundiö Tilkyniungar Orlof húsmæðra í Kópavogi verður á Laugarvatni vikuna 29. júní til 5. júlí nk. Tekið verður á móti pöntunum í s. 42546, Inga, 41084, Stefanía og 40576, Katrín. Borgarinn, ný plata Út er komin hljómplatan Borgarinn með Ingva Þór Kormákssyni. Ingvi hefur áður sent frá sér hljómplötuna Tíðindalaust..., en hún kom út árið 1983. Á þessari plötu Ingva koma fram ásamt honum Sverrir Guðjónsson, Eiríkur Hauksson, Diddú, Edda Borg, Guðmundur Hermannsson, Skarphéðinn Kjartansson, Þór Ásgeirs- son, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðjón Guðmundsson og Már Elísson. Margir hljóðfæraleikarar koma við sögu á Borg- aranum auk Ingva. Öll lög plötunnar eru eftir Ingva og um helmingur textanna. Aðrir textar eða ljóð eru eftir Þórarin Eldjám, Ragnar Inga Aðalsteinsson og Jóhann S. Hannesson. Hér er um býsna fjölbreytta hljómlist að ræða og má á plöt- unni fínna rokk, ballöður, samba, sving, reggae; bossa nova, bræðing og „new age“. Útgefandi er ITK en dreifmgu ann- ast Hljómdeild Fálkans- Taktur. Mikið lagt í sjómanna- daginn á Flateyri Sjómannadagurinn er einn aðal- hátíðisdagur Flateyringa. Mikið er lagt upp úr deginum af hálfú sjó- mannadagsráðsins á staðnum og yfirleitt mætir hver einasti kjaftur á hátíðahöldin. Klukkan hálfníu á sunnudag hefjast hátíðahöldin niðri við höfnina þar sem keppt verður í beitningu og bætingu neta. Þá munu hraustmenni plássins fara í koddaslag. Um tíuleytið er hópsigling fyrir krakkana og er þetta vanalega há- punktur dagsins hjá smáfólkinu. Klukkan eitt er svo skrúðganga að kirkjunni þar sem Lárus Þ. Guð- mundsson prófastur prédikar. Eftir messu sér slysavamadeild kvenna um kaffiveitingar. Upp úr fjögur verður kappróður og vænst er mikillar þátttöku. Eftir kapp- róðurinn er reiptog, stakkasund í sundlauginni; auk þess boðsund fyrir- tækja og bringusund. Vegleg verðlaun eru í boði. Þegar buslinu lýkur halda menn á íþróttavöllinn og fara þar i leiki og hlusta á skemmtiatriði flutt af Eddu Björgvinsdóttur, Eggert Þorleifssyni og Júlíusi Brjánssyni. Fjölskylduskemmtun hefst um kvöldið og flytur þar ávarp Guðjón Kristjánsson, formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins. Aldraður sjó- maður verður heiðraður og farið verður með gamanvísur. Þá mun Leik- félag Flateyrar flytja atriði úr Orða- belgnum. Deginum lýkur svo með dansleik þar sem Dolbý frá ísafirði leikur. 888 •‘-.í^ífæÍS! Mjása ertýnd Mjása er kisa með rautt merki um hálsinn þar sem á stendur nafn og heimilisfang, Hjaltabakki 22, sími 71252. Hún hefur ekki sést heima í viku og er hennar sárt saknað. Þeir sem hafa orðið varir við ferð- ir hennar eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 71252. Vinnupallarnir við Boðagranda 3. Maðurinn féll niður af þriðju hæð. DV-mynd S Féllaf þriðju hæð Málari féll úr stiga á vinnupalli við húsið að Boðagranda 3 seint í gærdag. Maðurinn mun hafa verið kominn upp að þriðju hæð hússins þegar hann féll. Hann var fluttur á slysadeild og liggur nú á sjúkrahúsi. Hann fékk alvarlega höfúðáverka við fallið. -sme 60 ára brúðkaupsafmæli eiga í dag, 12. júní, Guðrún Þórðardóttir og Jón Óskar Eðvaldsson, Ranakoti, Stokkseyri. Þau eru að heiman. Guðjón Petersen forstjórí: Þægileg gamanmynd Ég hlustaði og_ horfði á fréttir á öllum rásum. Ég náði einungis seinni hluta frétta á rás 2 og þar sem ég taldi mig hafa misst af einhverju þar, þá hlustaði ég á allar fréttimar á rás 1. Eftir fréttir þurfti ég að fara á milli staða. Ég kveikti því á útvarp- inu í bílnum og hlustaði á einhverja poppstöð en veit ekki hverja þeirra. Það er nú einhvem veginn þannig með þessar nýju stöðvar, að maður getur hlustað í góða stund án þess að renna í gmn um hvaða stöð er að ræða, nema þá að skoða skalann og athuga á hvaða bylgjulengd mað- ur er. I þessu húsi sem ég var í, var ekki Guðjón Petersen möguleiki á að hlusta á útvarp eða að horfa á sjónvarp en þegar ég kom heim klukkan 10 settist ég niður og horfði á myndina Faðerni, á Stöð 2. Þetta var gamanmynd og mjög þægi- leg mynd miðað það sem manni er oftast boðið upp á í sjónvarpi, því hún var laus við allar blóðsúthell- ingar. Mesta friðsemdarmynd. Ég hafði hugsað með að horfa á umræðu og fréttaskýringarþáttinn um ráðherrafundinn en það fórst fýrir sökum gestagangs. Það varð því minna úr útvarpshlustun og sjónvarpsglápi en til stóð í upphafi og öll fjölmiðlanotkun varð mjög svo losarleg og á hlaupum. Spakmælið Ég er mjög hógvær í kröfum, alltaf ánægður með það besta. G.B. Shaw Styrkir til unglingaþjálfara 1 mars sl. auglýsti unglinganefnd ISÍ eftir umsóknum um styrki til unglingaþjálfara sem hyggjast sækja námskeið erlendis í sumar. Er þetta einn liður í starfi nefndar- innar til eflingar íþróttum barna og unglinga. Að þessu sinni bárust 28 um- sóknir frá þjálfurum 9 íþróttagreina. Veittir voru 3 styrkir að upphæð 25.000 hver og 3 aukastyrkir að upphæð 15.000 hver. Er þetta í fyrsta sinn sem aukastyrk- ir eru veittir. Þeir sem hlutu styrki að upphæð kr. 25.000 voru Pálmi Ágústsson, Sundfélaginu Ægi, til að kynna sér sund- þjálfun yngri aldurshópa hjá sundfélögum í Helsingborg. Ingvar S. Jónsson, Hauk- um, hlaut styrk til að sækja International basketball coaches school í Svíðþjóð. Guð- mundur Helgason, UMF Stjörnunni, hlaut styrk til að sækja námskeið hjá enska knattspymusambandinu. Jóhannes Bjarnason, KA, Magnús Teitsson, Stjörn- unni. og Eyjólfur Bragason, Þór, Vest- marutaeyjum, hlutu allir styrk að upphæð kr. 15.000 hver til að sækja Den nordiske handboldskole sem haldinn verður í Dan- mörku. Katrín Gunnarsdóttir, formaður unglinganefndar, afhenti styrkina á fundi nefndarinnar þann 22. mai sl. Kvennaráðgjöfin, Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, er opin þriðjudaga kl. 20-22. Sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir siíjaspellum, sími 21500, símsvari. Bikarmeistaramót í hesta- íþróttum. Nú um helgina verður haldið bikarmeist- aramót í hestaíþróttum að Víðivöllum. Þetta mót er sameiginlegt mót hesta- mannafélaganna á Stór-Reykjavíkursvæð- inu, þ.e.a.s. Gusts, Sörla og Andvara. Keppt verður í flokki barna, unglinga og fullorðinna. Keppnisgreinar eru 4; gangur, tölt, gæðingaskeið, hindrunarstökk og hlýðnikeppni. SI. vor hafa áðurnefnd félög haft sín deildarmót í hestaíþróttum og mæta 3 efstu keppendurnir frá félögunum með hesta sína að Víðivöllum. Mót þetta er stigasöfnun milli félaga, þannig að ljóst er að spennan verður í hámarki á Víðivöll- um um helgina. Aðgangur á svæðið er ókeypis og verður dansleikur í félags- heimilinu um kvöldið. Afrnæli

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.