Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
Fréttir___________________________________________________________________________________ dv
Meðferðarstöðin Von Veritas í Danmörku:
Greiðslustöðvun framlengd
„Von Veritas er í fullurn rekstri,
stöðin hefur fengið greiðslustöðvun en
það er verið að vinna í þessu og árang-
urinn kemur í ljós á næstu vikum.
Hlutafjársöfnun er vel á veg komin
og bæði innlendir og erlendir aðilar
sem hafa áhuga á málefninu vilja setja
peninga í þetta,“ sagði Hendrik
Bemdsen, einn stofnenda sjúkrastöðv-
arinnar Von Veritas.
Sjúkrastöðin er staðsett í Hojreby á
Lálandi og mun vera pláss fyrir um
70 sjúklinga. Til starfseminnar var
keyptur gamall skóli og hann gerður
upp. Virðist svo vera sem kostnaður
af umbótunum hafi verið tvöfalt hærri
en reiknað var með. Þetta ásamt því
að um fjórðungur viðskiptavinanna
gat ekki greitt fyrir dvölina olli mikl-
um fjárhagsvandræðurn.
Þann 5. maí leiddu þessi vandræði
til greiðslustöðvunnar en iðnaðar-
mennimir, er sáu um lagfæringar á
skólanum, höfðu ekki fengið greitt
fyrir vinnu sína og kröfðust þess að
fyrirtækið yrði gert upp. „Fjárhæðin
sem okkur vantar er 2 milljónir dan-
skra króna og það er sennilega sú
upphæð sem við eigum í útistandi
reikningum. Við fjárfestum í fólki og
vorum of miklir hugsjónamenn. Af
þessu fólki eigum við litla von að fá
eitthvað til baka en kommúnur og ömt
em þó nú farin að borga meira og
meira með fólki sem ræður ekki við
kostnaðinn," sagði Hendrik Bemd-
sen.
Bjartsýnn á framhaldið
Hendrik Berndsen segir hlutafjár-
söfnunina vera vel á veg komna og
hann sé bjartsýnn á að það takist að
safna þeim 2 milljónum danskra króna
(um 11 milljónir íslenskra króna) sem
á vantar. Ef slíkt tekst er talið að
sjúkrastöðin komist yfir verstu erfið-
leikana.
Ef marka má danska fjölmiðla em
skuldir Von Veritas taldar vera um
8,6 milljónir danskra króna (48 millj-
ónir íslenskra króna). Hendrik
Bemdsen sagði að eignimar væm
mun verðmætari, stöðin ætti 3200 fer-
metra hús, fúllinnréttað með 70
herbergjum. Að auki væm þar 4 starfs-
mannahús. Þetta allt væri metið á um
12 milljónir danskra króna.
Hagnaður af rekstri
Þann 7. júlí fékk sjúkrastöðin
greiðslustöðvunina framlengda fram
til 28. ágúst og er mun fram að þeim
tíma allt vera reynt til að bjarga
sjúkrastöðinni frá gjaldþroti. „Þetta
er á réttri leið hjá okkur. Það er ekki
hægt að fá framlengingu á greiðslu-
stöðvun í Danmörku ef fyrirtækið er
ekki rekið hallalaust á meðan á þeim
greiðslustöðvuninni stendur. Það hef-
ur verið gert í 2 mánuði. Nú er
aukning á sjúklingum og það fer eng-
inn inn án þess að greiða fyrirfram,"
sagði Hendrik Bemdsen, en sá sem
nú rekur fyrirtækið og reynir að
bjarga því heitir Peter Scavenius og
vildi áður eignast hlut í sjúkrastöð-
inni. -JFJ
Ýmis sérkennifeg farartæki sjást á götum Reykjavíkur. Þetta furðulega hjól rakst Ijósmyndari DV á og vekur stýris-
útbúnaðurinn sérstaka athygli. DV-mynd JAK
Salmonellusýkingin:
Úr svínakjöti frá SS
Botnlangabólga í
70 % uppskurða
„Einkenni slíkrar sýkingar og botn-
langabólgu em svo lík að það er
ekkert óvenjulegt við það sem læknir-
inn gerði. Þegar svona sýking gekk
yfir í Stokkhólmi tóku þeir 10 fyrstu
sjúklingana og skám upp. Það er eng-
in áhætta tekin þegar minnsti gmnur
leikur á því að sjúklingur sé með botn-
langabólgu heldur gerð aðgerð. Þetta
er það alvarlegur sjúkdómur. í bestu
spítulum í heimi em ekki nema um
70 % þeirra sem skomir em upp við
botnlangabólgu sem raunvemlega
hafa klára botnlangabólgu, hitt geta
verið bólgnir eitlar og fleira,“ sagði
Ólafúr Ólafsson landlæknir um það
atvik að ung stúlka var skorin upp
vegna salmonellusýkingar.
Ólafur sagði, varðandi salmonellu-
sýkinguna á ættarmótinu, að land-
læknisembættið ynni í samvinnu við
Hollustuvemd ríkisins og heilbrigðis-
fúlltrúa að því máli og fylgdist grannt
með framvindu mála. Gerður hefði
verið listi yfir gestina á ættarmótinu
og ætti að taka sýni úr öllum þeim er
starfa að matvælagerð svo og öllum
þeim er hafa veikst. „Það má leggja
áherslu á að fólk sem þama var sendi
inn sýni og hafi samband við sína
heilsugæslustöð og fái upplýsingar um
hvemig best sé að haga sér. Þetta
leggst misjafhlega á menn og fólk þarf
ekki að verða veikt. Allir sem hafa
verið eitthvað slappir ættu að fara í
próf,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagði að fúndið yrði hvaðan
þessi sýking kæmi og fólk fengi síðan
upplýsingar um það. Hins vegar fynd-
ist ekki alltaf hvaðan smit kæmi. Á
meðan salmonella væri orðin hluti að
lífríkinu gætu svona tilfelli alltaf kom-
ið upp.
-JFJ
^ Salmonellusýkingín:
Óvissan verst
„Það er enginn vafi á því að það
em sömu bakteríur í svínakjötinu og
fólkinu sem sýktist og því em yfir-
gnæfandi líkur á að uppruninn sé úr
svínakjötinu," sagði Ólafur Stein-
grímsson, yfirlæknir á sýkladeild
Rannsóknarstofnunar Háskólans.
Sýni, sem tekið var úr hráu, frystu
svínakjöti frá Sláturfélagi Suðurlands
í Reykjavík, hefur reynst innihalda
salmonellusýkla af sömu tegund og
greinst hefur í sjúklingum sem veikt-
ust eftir ættarmótið. í bréfi frá Holl-
ustuvemd segir að stofnunin, í
samráði við fyrirtækið, hafi gert allar
tiltækar öryggisráðstafanir til að
tryggja öryggi ffamleiðsluvara úr
sama hráefni.
Mönnum í heilbrigðisstétt finnst lík-
legt að sýkillinn hafi borist inn í
eldhús hótelsins með svínakjötinu og
mengað önnur matvæli með áhöldum
eða á annan hátt. Gunnar Rafn Jó-
hannsson, heilsugæslulæknir í Búð-
ardal sagði: „Þegar fólk fær sýkta
vöm þá býður þetta hreinlega hætt-
unni heim, þó að hreinlætis sé gætt.“
-JFJ
Ástæðulaust að loka
„Með það sem við höfum í höndun-
um teljum við ástæðulaust að loka
hótelinu vegna gmnsemdanna. Við í
heilbrigðisnefndinni tökum þessa ák-
vörðun í samráði við landlækni út frá
okkar þekkingu á málinu og erum
ábyrgir fyrir okkar ákvörðunum,"
sagði Gunnar Rafn Jóhannsson, heil-
sugæslulæknir í Búðardal.
Gunnar sagði að enn væri ekkert
hægt að segja um hvers konar smitun
væri að ræða, hvemig hún hefði bor-
ist til fólksins eða hvort hótelið væri
eitthvað tengt henni.
Frá Ólafi Steingrímssyni, yfirlækni
sýkladeildar Rannsóknarstofnunnar
háskólans, fengust þær upplýsingar
að salmonellan hefði fundist í fleiri
sýnum og virtist vera um sömu salm-
onellutegund að ræða hjá öllu. Það
væri frekar sjaldgæf tegund sem ekki
hefði orðið vart við hérlendis í 5 ár
og nefnist salmonella enteritdis.
JFJ
Kjaftshöggið á Hótel Bovg:
Albert greiddi Bnari
tæplega 200 þúsund
„Málinu lauk með því að ég tók
peningatilboði frá Albert Guð-
mundssyni þar sem hann greiðir
allan útlagðan kostnað við tann-
viðgerðina og hluta af þeim miska-
bótum sem ég fór ffarn á,“ sagði
Einar Ólason Ijósmyndari í samtali
við DV.
Einar hafði kært Albert Guð-
mundsson vegna kjaftshöggs sem
Albert gaf honum á Hótel Borg
nokkrn fyrir kosningar og leiddi
höggið til þess að tönn brotnaði í
Einari.
Albert greiðir Einari tæplega
200.000 krónur samtals en Einar
hafði farið ffam á 70.000 krónur
vegna tannviðgerðar og 250.000 í
miskabætur.
„Ég hefði helst kosið að þetta hefði
aldrei gerst og þar af leiðandi ég
aldrei þurft að ráða mér lögfræðing
til aðstoðar. Einnig hefði ég kosið
að ég hefði aldrei þurft að kæra Al-
bert Guðmundsson. Ég vona líka að
þetta kveði niður þær gróusögur að
Albert hafi greitt mér háar penin-
gaupphæðir vegna þessa,“ sagði
Einar.
„Ég er feginn því að þetta mál er
úr sögunni því það hefúr valdið fjöl-
skyldu minni óþægindum og mér
sársauka og vinnutapi," sagði Einar
Ólason.
-ój
„Ég hræðist það að hver dagur sem
líður án niðurstöðu frá yfirvöldum sé
okkur í óhag. Tímaklukkan gengur á
okkur með réttu eða röngu og það er
ekki jákvæður sláttur. Það má segja
að óvissan sé verst,“ sagði Kjartan
Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofú
ríkisins, sem rekur hótelið að Laugum
í Dalasýslu þar sem ættarmótið fór
fram.
Kjartan sagði að aldrei í þau 10 ár,
sem hann hefði verið í þessu starfi,
hefði komið upp nokkur matareitrun
á neinum af þeim 20 veitingastöðum
sem Ferðaskrifstofan rekur enda hafi
hreinlæti alltaf verið í 1. sæti. „Ég á
erfitt með að trúa því að þetta sé ffá
okkur komið þegar 10% veikjast.
Helmingur eða meira af fólkinu var
með eigið nesti og bjó í eigin tjöld-
um,“ sagði Kjartan.
„Þetta hefur nú verið skoðað í 8
daga og ekki enn fundist vottur um
að þetta tengdist hótelinu á nokkum
hátt. Það er því alveg eins líklegt í
dag að þetta sé ekkert frá okkur kom-
ið en þá eru líka líkur á að við fáum
aldrei hreinsun því að heilbrigðisyfir-
völd eru treg til að gefa út hreinsikvitt-
un,“ sagði Kjartan og bætti því við
að hættan væri að fólk dæmdi hótelið
án ástæðu. Það gæti allt eins verið
farið á hausinn þegar niðurstaðan
fengist, ef svo færi væri það þeirri
manneskju að þakka sem hefði hlaup-
ið með málið í fjölmiðla.
„Það kemur ekki til greina að loka
hótelinu. Það væri sama og að stað-
festa að við tryðum því að við værum
að selja eitraðan mat,“ sagði Kjartan
um þá spumingu hvort komið hefði
til tols að loka hótelinu á meðan rann-
sókn færi ffam. Kjartan sagði að
heilbrigðisfulltrúi Vesturlands og heil-
sugæslulæknirinn á staðnum hefðu
ekki séð neina ástæðu til þess heldur.
Þeir hefðu gert úttekt á eldhúsi, birgð-
um og kæli og ekki séð neitt athuga-
vert við það heilbrigðislega séð.
Enginn hefði orðið veikur á hótelinu
hyorki fynr né eftir þetta ættarmót.
„Ég held að niðurstaða mín sé sú að
þeir hlytu að vera búnir að finna það
út ef það væri,“ sagði Kjartan Lárus-
son.
JFJ
Tiyggingar:
MatareHnin undanskilin
„Samkvæmt skilmálum um ferða-,
slysa- og sjúkratryggingar fást engar
bætur vegna sjúkdóms, slyss eða ffá-
falls af völdum matareitrunar eða
drykkjareitmnar,“ sagði Birgir Lúð-
víksson deildarstjóri tjónadeildar
Almennra trygginga. Birgir sagði að
skilmálar þessir væm samræmdir hjá
tryggingafélögunum og því gæti ekk-
ert af því fólki sem sýktist af salmon-
ellu fengið bætur frá tryggingunum.
Ef það vildi fá tjón sitt bætt yrði það
að sækja bætumar samkvæmt al-
mennum skaðabótareglum.
»Ég get ekki annað en svarað al-
mennt um þessi mál. Ef maður veikist
af völdum eitmnnar í mat, sem hann
hefur keypt hjá kaupmanni eða veit-
ingahúsi, þá em mestar líkur á því að
hann eigi skaðabótarétt því að telja
verður að allstrangar reglur gildi um
bótaábyrgð manna í þessum tilfell-
um,“ sagði Amljótur Bjömsson,
prófessor við lagadeild Háskóla -Is-
lands, þegar hann var inntur eftir því
hver staða fólks er veiktist af völdum
matareitmnnar væri samkvæmt
skaðabótareglum. -JFJ