Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. 33 ^_____________Merming Kona talar til ástmanns Kristín Omarsdóttir: í húsinu okkar er þoka Eigin útgáfa, 1987, 100 bls. Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar, sem varð kunnur í vor fyrir verð- launaleikrit. Bókin er í einkar fallegri kápu eftir Lars Ámason. Hún geymir fimm Ijóðabálka, sá síð- asti er „Ljóðaleikur úr herberginu með efsta gluggann.“ Þar talast við elskendur í upphafinni, ljóðrænni ræðu. Raunar er það mest áberandi í allri bókinni að kona talar til ást- manns síns, lýsir tilfinningum sínum. Einn bálkurinn ber nöfn ýmissa kvenna, Yrsuvers, Hönnu- kviða o.íl., þar tala ýmislegar konur til manna sinna. Það hefur verið allt of lítið um það í íslenskum bók- menntum að losti birtist frá sjónar- miði kvenna, og er fagnaðarefni hve vandað það er hér. Lítum fyrst á sjálfsmynd konu í ljóðinu Hlaupa- stelpa. Þar er mest áberandi að hún líkir sér við ýmiss konar sjávarfang, vegna bragðs og útlits, þegar hún talar um þá líkamshluta sem mest verða fyrir atlotum 'makans. Bæði er um að ræða sjaldhafharkrásir (rækjur og kræklinga), en svo er hún líka ýsa og kartöflur, sem er íslenska orðalagið fyrir „daglegt brauð“ fað- irvorsins. Raunar liggja kræklingar fyrir hvers manns fótum við sjávar- síðuna, það er bara spumingin hvort hann kann að meta þetta, hvað hann gerir sér úr „gellum", krásir eða tros. Hér feitletra ég orð sem lúta að þessu. Höfundur notar sér vel tví- ræðni orða eins og gella: hluti fisks/bijóstastór kona; spírur: á kart- öflum/mjóir leggir. Það er frumlegt að líkja konunni við ferskt sjávar- fang, andstæðan er gamlar kleinur og greinilega er pabbinn á algerum villigötum með að nota hina gat- slitnu líkingu við blóm um stúlkuna. í þessum miðbálki talar hún um sig sem neysluvaming, en í fyrsta hlut- anum er hún virk, og í lok kvæðisins líka, leitar á, þefar uppi. Þar er áherslan á frjálsa hreyfingu í and- stæðu við hækjur, endurtekningam- ar minna á galdur, em seiðandi, og sýna þannig fiiunlegan mátt kon- unnar (bls. 10-12). HLAUPASTELPA Ég er hlaupastelpa og húmið býr í augum minum. Ég leita á nóttina. Varir rnínar drekka svita og þorsta; varir mínar blíðu blíðu, varir mínar fríðu fríðu. Tunga mín er töm og kann að hvolfa hugum; að eigir þú hugsanir, einsog grjót einsog spjót, þá renna þær niður dalinn, beint í sjó! Og ganga aldrei aldrei meir á hækjum sér inm þér. Munnur minn er kræklingur. Skaut mitt á bragðið einsog rækja. Brjóstin hvít og mjúk einsog gellur. Fætumir spírur, - alltaf á iði! Ég er glæný hlaupastelpa með eld í maganum og hlaupasting í hnjánum. Kristin Ómarsdóttir. Alveg nývaxin, - óx upp í fyrra! Pabbi kallar mig blóm og mamma skilur ekki bofs. Nei! Ég er ekki þurr kleina sem þú étur með mjólk. Ég er kræklingur, rækja og gella. - Ný kartafla um haust með salti og sméri. Húðin ísköld mjólk; stundum volg stundum flóuð. og nasir mínar hundóttar þefa þig og þefa þig uppi. - Ég veit alveg hvar við finnumst - Bókmenntir Örn Ólafsson Orðalagið „hundóttar nasir" mun eiga að sýna að talandinn sé þefvís eins og hundur. En þessi orðmyndun er óheppileg, því orð sem enda á -ótt- ur merkja: alsettur eða þrunginn því sem fyiTÍ hluti orðsins táknar: ból- óttur, fjöllóttur, krímóttur, göróttur. Samband kynjanna birtist líka í togstreitu, svo sem í kvæðinu langa: Leyndarmál stelpunnar og risans, þar er misrétti kynjánna jafhvel í titlinum. Ranghugmyndir karlsins um konuna stafa af því, hann býr til mynd af henni, jákvæða eða nei- kvæða eftir því hvernig hún horfir við hans vilja. Takið eftir hve biblíu- legt orðalagið verður þegar hann skreytir hana skv. sínuni hugmynd- um, það minnir á tilbeiðslu Ljóða- ljóða (bls. 16): Hann var eitt sinn vondur viö mig. vildi ekki sjá mig. En ég fór ekki. Ég beið. Hann skreytir mig, vefur mitti mitt slæðum, málar augun og varirnar, segir mér að ganga hring, dáist að verki sínu, kyssir mig fyrir og faðmar mig segi ég eitthvað fallegt. Hann veit aldrei hvert ég fer. ALDREl! því ég er með njálg. þarf að skjótast um. tipla á háhælaskóm, trítlandi hænuskref. veifandi hönd. Hann eltir mig. Eltir mig lengra en nokkuj- annar. Faðmur hans er mjúkur en þegar hann tekur um mig þéttings þéttings fast og ég heyri allar sinamar strekkjast um mig þá veit ég hvað hann hefur þui-ft að hugsa mikið og margt. Haim bvr mig til og ég á hfaupum bv til ævintvi'ið um okkur. '' (.’•) Hér ríkir háðið þegar stúlkan þyk- ist bara þylja staðrevndir. hún ályktar uni andlega yfirburði mannsins af vöðvastvrknum. það er ríkjandi karlmennskudýrkun í hnot- skum. Mynd hennar. ..trítlandi. tiplandi. með njálg". er auðvitað sköpuð af slíktmi ..risa”. og mikil beiskja f orðum hennm- tun að hann hrósi henni fyrir að vera sú mynd sem hann gerir af henni. Ævintýrið sem hún skapar upp úr slíku sam- bandi getur ekki átt sér mikla stoð í raunveruleikanum. Það er stígandi í bókinni. hún er ein heild. Dæmin sem ég tók eru úr fyrsta bálki hennar, Fólk, en bókinni lýkur í ástaralgleymi þar sem mis- réttið er horfið (sjá t.d. bls. 80): Hún: Það var dagur. Hann: Það var nótt. Hún: Og við sáumst. Hann: Ég sá þig. Sá þig svo vel að ég hélt ég væri kominn með ný augu. Aidrei fyrr sá ég svona vel. Hún: Það skeði um dag. Hann: Það skeði um nótt. Hún: Sólin skein. Hann: Og tunglið. Hún: Og við sáumst. (Þögn) Ekki er hægt að hafa fleiri orð urn þessa bók, en vonandi hafa lesendur séð að full ástæða væri til að kynna sér hana betur. Sendum í póstkröfu um allt land. Verslunin eiöivf Langholtsvegi 111 104 Reykjavík 0) 6870*90 Stærsta sérverslun landsins með veiðivörur. Veiðimenn! Við bjóðum ykkur að skoða fjöl- breyttasta úrval landsins í veiðivörum. Úrvalið hefur aldrei verið meira. Lítið inn. SALA - LEIGA Leigjum einnig allan viðleguútbúnað. Höfum fengið til sölu mjög vönduð þýsk hústjöld. Ný tegund af tjalddúk, vatnsþéttur og slitgóður. Verð aðeins kr. 34.900. Einnig 4 manna vel hönnuð kúlutjöld með himni kr. 5.500. Tjaldaleigan, Sportleigan gegnt Umferðarmiðstöðinni, sími 13072. Sidsel koddi Rangt Venjulegur koddi RÉTTI K0DDINN fyrirfólká öllum aldri Sidsel koddinn gefur fullkom- inn stuðning fyrir hálsliðina. Fyrirbyggir og linar stirðleika í herðum og hálsi. • Koddann má handþvo i volgu vatni. • Koddaver fylgir. Sidsel koddinn hefur fengið góðar viðtökur hjá sjúkra- þjálfurum hér á landi og erlendis Sendum í póstkröfu um allt land. Sendingarkostnaður innifalinn. Geymið auglýsinguna. r—----------------------------------------------------------i | Pontunarseðill: IGeriö svo vel að senda mér............................stk. Natn.................................................... I Heimili................................................. | Póstnr......................Staður...................... j FINNBOGI KARLSSON, pósthólf 9145, 129 Reykjavík, sími 91-76731

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.