Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 8
8 • FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. Utlönd Sfjómannynduii hafin á ftalíu Baldur Rabertsaan, DV, Geitúa: Sósíalistar ha& samþykkt að vinna með kristilegum demókrötum í fimm flokka stjóm en með nokkr- tim skilyrðum þó. Segja þeir að kristilegir demó- kratar verði að samþykkja nýjar hugmyndir til að endurbæta slæmt ástand í landinu. Stefiia verði að því að bæta efhahag landsins sem er að hruni kominn svo og auka atvinnu- tækifæri á Suður-Ítalíu. Mikilvæg- ast þykir þeim að kristilegir demókratar hætti yfirgangi og leggja sósíalistar áherslu á að jafhvægi ríki í stjómarsamstarfi. Kommúnistar, sem verða í stjóm- arandstöðu, em mjög neikvæðir í garð nýrrar fimm flokka stjómar og spá slQcri stjóm ekki langlifi. Segja þeir hana eingöngu vera neyðarúr- ræði kristilegra demókrata til að vinna tíma. Hægt sé að finna betri leið til að stjóma landinu. Hundrað farast í hvirfilbyl f'.***•?* yJtEfc. T'í - "Í-riU' I Meira en hundrað manns fórust eða er saknað eftir að fellibylurinn Theima gekk yfir suðurhluta Suður-Kóreu í nótt, að því er ríkisútvarp landsins skýrði frá í morgun. Sagt var að staðfest væri að fjörutíu og tveir heföu látið lífið, þar á meðal sjö manna fjölskylda sem varð undir vegg er hrundi undan átökum stormsins. Sextíu og sex manns var saknað, margra þeirra á hafi úti, þar sem fiskibát- ar sukku í miklu hafróti. Hvirfilbylurinn Thelma olh mestum usla í suð-vesturhluta landsins, ná- lægt hafharborginni Pusan, en þar býr hálf fjórða milljón manna. Tuttugu og tveggja sjómanna frá Pusan er saknað. Síðustu fregnir herma að Nakdong-fljót hafi flætt yfir bakka sína. Útvarpið sagði í morgun að yfir tuttugu þúsund hektarar ræktaðs lands væm undir vatni eftir Thelmu og vfða féllu aurskriður. Tannvtðgerðlr á fíi Fílar þurfa stundum þjónustu tannlækna, ekki síður en mannfólkið. Einn af filum dýragarðsins í Kronberg í Vestur-Þýskalandi, braut aðra skögul- tönn sína fyrir nokkm. Tannbrotinu fylgdi sársauki og að auki þurfti að sótthreinsa sárið, svo fillinn var deyfður á meðan tannlæknirinn sinnti ajúkl- ingnum. Fillinn mun svo fá gervitönn áður en langt um líður. Fréttamenn í Suður-Kóreu í verkfalli Um eitt hundrað fréttamenn sjónvarpsstöðvar í Suður-Kóreu em nú í verkfalli sem þeir segja að muni standa þar til yfirmaður þeirra, sem skipað- ur er af stjómvöldum, láti af störfum. Fréttamennimir, sem starfa fyrir Munhwa sjónvarpsstöðina, segja að ríkis- stjóm landsins hafi haft óhæfileg afskipti af fréttaflutningi stöðvarinnar og krefjast þess að yfirmaður sá sem sér um ritskoðunina láti af störfum. Sá hinn sami var áður talsmaður forseta landsins. Síðastliðinn þriðjudag gáfu fréttamennimir yfirmanninum tveggja daga frest til að segja af sér, en þar sem hann sinnti ekki kröfum þeirra hafa þeir nú gripið til verkfalls um óákveðinn tíma. Um hundrað og tuttugu stjómcndur dagskrárefiiis, annars en frétta, sögðu f gær að þeir myndu ganga til liðs við verkfallsmenn í dag. Olla dúkkur og Olla hamborgarar Ólafúr Amaison, DV, New Yorfc Ólafur Arnarson, DV, New York Gærdagurinn byrjaði heldur óbjörgulega fyrir Reagan forseta. John Poindexter, fyrrum öryggisráðgjafi forsetans, sagði þá að í desember 1985 hefði Reagan skrifað undir plagg sem fjallaði um bein skipti á vopnum og gíslum. Poindexter sagðist hafa eyði- lagt skjalið 21. nóvember síðastliðinn því hann óttaðist að það myndi skaða forsetann. Reagan hefur ítrekað sagt að vopna- salan til Iran hafi ekki verið ætluð sem lausnargjald fyrir gíslana í Líbanon heldur hefði tilgangurinn verið sá að koma á samskiptum við hófsöm öfl í Iran. Þessi uppljóstrun Poindexters kemur sér illa fyrir forsetann en í gær sögðu talsmenn Hvíta hússins að for- setinn myndi ekki eftir að hafa undirritað neitt slíkt plagg. Eftir því sem leið á daginn fór at- burðarásin að snúast forsetanum í hag. Poindexter lýsti því skýrt yfir að hann hefði aldrei sagt forsetanum frá því að hagnaður frá vopnasölunni til Irans væri notaður til aðstoðar kontraskæmliðunum í Nicaragua. Við þessi orð Poindexters var þungu fargi létt af starfsmönnum Hvíta hússins og líklega flestum Bandaríkjamönn- um. Reagan hafði þetta að segja: „Er þetta eitthvað nýtt? Þetta er ég búinn að vera að segja í sjö mánuði.“ Þar með var stóm spumingunni í þessu máli svarað. Poindexter ^agði að hann hefði að yfirlögðu ráði ekki sagt forsetanum frá tilfærslu fiárins vegna þess að það gæti skapað pólítísk vandræði fyrir forsetann ef málið kæmist upp. Poindexter sagðist hins vegar hafa talið sig hafa vald til þess að heimila aðgerðina án þess að ráð- færa sig við forsetann og jafnframt að Fyrir jólin koma á markaðinn Olla og Betsy dúkkur i Bandaríkjunum. Simamynd Reuter Mikið Olla North-æði hefúr gripið um sig í Bandaríkjunum. Hugsa marg- ir sér gott til glóðarinnar og ætla að græða á vinsældum hans. I New York hafa lengi verið vinsæl- ar samlokur sem kallaðar eru „Hero“ sem á íslensku þýðir hetja. Nú eru slíkar samlokur kallaðar „Ollie North Hero“ og seljast eins og heitar lumm- ur. Einnig em Olla North hamborgar- amir vinsælir. Það er mælt með því að menn kaupi einn, selji hann næsta manni með hagnaði, kaupi annan og gefi síðan kontraskæruliðunum hagn- aðinn. Einnig mega nú dúkkurnar Ken og Barbie fara að vara sig. Fyrir næstu jól munu koma á markaðinn í Banda- ríkjunum Olla og Betsy dúkkur en Betsy er eiginkona Norths. North- dúkkan verður íklædd einkennisbún- ingi ofursta. Þungu fargi var létt af Reagan og starfsmönnum Hvita hússins i gær er John Poindexter lýsti því yfir að forsetinn hafi ekki vitað um kontragreiðslurnar. Simamynd Reuter hann væri sannfærður um að forsetinn hefði samþykkt tilfærslu íjárins ef hann hefði verið beðinn um það. Poindexter tók á sig fúlla ábyrgð og sakir í þessu máli og sagðist hafa ve- rið í nánu sambandi við Oliver North um þetta mál. Robert McFarlane, fyr- irrennari Poindexters, tók annan pól í hæðina er hann bar vitni fyrr í vi- kunni. Sagði hann að North hefði stjórnað hlutunum án samráðs við sig. Flestum þykir þessi skýring McFarla- nes mjög ótrúleg. Með vitnisburði Poindexters í gær er ljóst að Reagan þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þingið ákæri hann fyrir lögbrot og að hann þurfi að víkja úr embætti. Nú getur hann snúið sér að verkefnum sem bíða, svo sem af- vopnunarsamkomulagi við Sovétríkin. „Reagan undirritaði skjal um skiptin“ Yfirgáfu brfreiðir sínar syndandi Guðrún Hjartardóttir, DV, Ottawa: Eftir hitabylgju er gengið hefúr yfir Kanada síðastliðinn hálfan mánuð, þar sem hvert hitametið á fætur öðru hefur verið slegið, tók loks að kólna og rigna nú í vikunni. Rigndi eins og hellt væri úr fötu í nokkrar klukku- stundir á þriðjudaginn. Til stórvandræða kom í Montreal síðla dagsins er rigningamar gengu þar yfir. A rúmlega tveimur klukku- stundum mældist rigningin 56 centi- metrar. Frárennsliskerfi borgarinnar gat með engu móti tekið á móti öllu þessu vatni á svo skömmum tíma enda fóru öll lægstu svæði borgarinnar á kaf. Verst komu flóðin niður á umferð- Mikil flóð urðu í Montreal i Kanada í fyrradag vegna rigninga og ollu þau miklu tjóni og umferðartrutlun- um. Þurftu margir bilstjórar að yfirgefa bifreiðar sinar syndandi. Simamynd Reuter inni, neðanjarðarlestir stöðvuðust sem og næstum öll umferð á hraðbrautun- um. Strætisvagnaferðir lögðust að mestu niður. Þannig háttar til í Mon- treal að víða liggja vegir lágt og talsvert er um undirgöng. Lentu bíl- stjórar þar í hinum mestu vandræðum og urðu margir að yfirgefa bíla sína syndandi enda komst vatnshæðin upp i allt að fjóra metra. Svo hörmulega vildi til í einu slíku tilfelli að áttræður maður drukknaði í bifreið sinni er hann var að reyna að komast út. Hálfgert neyðarástand ríkti í Mon- treal langt fram á nótt því vatnselgn- um fylgdi stormur og þrumuveður. Fuku tré um koll og rafmagnslínur slitnuðu. Að minnsta kosti tvö hundr- uð og fimmtíu þúsund manns voru án rafmagns. Enginn hefúr enn áætlað það tjón sem orðið hefur af völdum þessa vatns- veðurs en öruggt er að það skiptir tugum milljóna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.