Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. 9 DV Segjast hafa fellt nær þrjú þúsund kontraskæruliða Talsmenn herja sandinista í Nic- aragua segja að stjómarhermenn hafi fellt 2.790 skæruliða úr röðum kontra- hreyfingarinnar frá síðustu áramót- um. Humberto Ortega, vamarmálaráð- herra Nicaragua, sagði í gær að mannfall í röðum sandinista færi minnkandi samanborið við manntjón kontramanna, einkum vegna bóta í herrekstri og hertækni. I gær skýrðu kontraskæruliðar, sem njóta fulltingis Bandaríkjamanna, frá því að á þessu ári hefðu þeir fellt um þrjú þúsund stjómarhermenn. Vamarmálaráðherrann sagði í gær að kontrahreyfingunni gengi nú erfið- lega að finna liðsmenn í stað þeirra sem falla og særast. Sagði hann hreyf- inguna nú verða að nota kúgun, ógnanir og stórar peningaupphæðir til þess að fá menn til liðs við sig. Ortega sagði einnig að undanfamar vikur hefðu stjómarhermenn tekið til fanga skæruliða úr röðum kontra sem hefðu reynst aðeins tólf og þrettán ára gamlir. Ortega sakaði í morgun Bandaríkja- menn um að reka afskiptastyrjöld gegn stjómvöldum Nicaragua. Hann bætti við að þar sem næsta stig hem- Kontraskæruliði kemur fyrir jarðsprengju i Nicaragua. Kontrahreyfingin neitaði lengi vel öllum fréttum af því að hún notaði jarðsprengjur í baráttu sinni gegn stjómarher Nicaragua. Simamynd Reuter aðar Bandan'kjamanna gegn landinu væri innrás héldi stjómarherinn áfram að búa sig undir komu bandarískra hermanna. Ortega tilkynnti við sama tækifæri um stöðuhækkanir í hemum, þeirra á meðal að Rosa Paosos, sem er systir talsmanns kontraskæruliða í Miami, hefði nú fengið majorstign í stjómar- hemum. Múslimar fa takmark- aða sjálfsstjórn Ríkisstjóm Filippseyja hefur boðið múhameðstrúarmönnum á suðurhluta eyjanna takmarkaða sjálfsstjóm. Segja stjómvöld að þetta sé síðasta tilraun þeirra til þess að ná friðsam- legu samkomulagi við aðskilnaðar- sinna úr röðum múhameðstrúar- manna. Leiðtogar múhameðstrúarmanna hafa nú tillögur forsetans til athugun- ar, en samkvæmt þeim fengju tíu hémð sjálfsstjóm innan tveggja vikna. Corazon Aquino, forseti Filippseyja, undirritaði í gær tilskipun um að um einni milljón manna í fjallahémðum á norðuhluta eyjanna verði veitt tak- mörkuð sjálfstjórn þegar í stað. Nýskipan þeirra mála hefur verið til umræðu mánuðum saman og talið er að forsetinn hafi ákveðið að ganga frá þeim nú, til þess að málið dagaði ekki uppi í þingi landsins, sem kemur sam- an 27. júlí. Múhameðstrúarmenn segja nú að með tilboði sínu setji ríkisstjórn lands- ins þeim stólinn fyrir dymar. Verði þeir annað hvort að taka því eins og það stendur, eða taka afleiðingum frekari átaka og deilna. Um fimm milljónir múhameðstrúarmanna búa á Filippseyjum, flestir þeirra á suður- hluta eyjanna. Þeir vom fjölmennasti trúarhópurinn þar, en nú hafa fimmt- án milljónir kristinna manna tekið sér búsetu á svæðum þeirra. Talið er að tillögur stjórnarinnar feli i sér nær algera sjálfsstjórn mikils hluta eyjunnar Mindanao, sem er næststærst Filippseyja. Corazon Aquino, forseti Fiiippseyja, undirritar tilskipunina um takmarkaða sjálfsstjórn fyrir múhameðstrúarmenn á suðurhluta eyjanna. Simamynd Reuter Horfðu á eftir vinum í æðandi fljótið Óttast er að þrjátíu og átta manns hafi farist í flóðunum sem gengu yfir tjaldstæði í frönsku ölpunum nálægt landamærum Sviss á þriðjudaginn. Fundist hafa tuttugu lík en átján manns er saknað. Þyrla var notuð til þess að bjarga fólki úr fljótinu. Simamynd Reuter Þeir sem komust lífs af horfðu hjálp- arvana á vini og skyldmenni sviptast burt er áin Bome breyttist í flóð eftir steypiregn. Einn hinna eftirlifandi seg- ist hafa séð fólk hrópandi á hjálp í húsvögnum á fleygiferð niður eftir ánni. I fyrstu var ekki hægt að koma því til aðstoðar þar sem það barst með leðju. Seinna var svo hægt að vaða út í ána og björguðust þá sumir með því að halda sér í reipi er strengt var yfir ána. Um fjörtíu manns var síðan bjm'g- að með þyrlu. Eftirlifendur leita að eigum sinum á tjaldstæðinu í frönsku ölpunum þar sem óttast er að þrjátíu og átta manns hafi farist i flóðum. Simamynd Reuter Útlönd Tengir sprengingamar stefnu slnni Mohammad Zia-ul-haq, foraeti Pakistan, sagði í gær að sú alda sprengitil- ræða, sem gengið hefúr yfir land hans undanfama mánuði, tengist stefiiu hans gagnvart Afganistan og skæruhemaði þeim sem staðið hefur þar um níu ára skeið. Zia sagði fréttamönnum í gær, á ftindi sem haldinn var vegna sprenging- anna sem urðu sjötíu og þrem að bana í höfuðborg landsins í fyrradag, að markmið þeirra sem standa að baki sprengjutilræðunum væri að skapa upplausnarástand í Pakistan. Sagði hann þetta stafa af stefiiu Pakistan gagnvart Afganistan en gaf ekki frekari skýringar á því. Zia sagði i gær að stjórnvöld í Pakistan myndu nú skera upp herör gegn hermdarverkamönnum í landinu og sagðist fidlviss um að þeir sem að tilræð- unum standa næðust fljótlega. Hvetur til friöarráðstefnu í Mið-Ameríku Utanríkisráðuneyti Hondúras endurtók í gær hvatningar sínar til þess að efnt yrði til nýrrar ráðstefnu um að koma á friði í Mið-Ameríku og bauðst til þess að halda ráðstefiiuna í strandborg einni í landinu. Sagðist utanríkisráðuneytið hafa sent bréf til aðalritara Sameinuðu Þjóð- anna og samtaka Ameríkuríkja þar sem boð um ráðstefhu í Tela í Hondúras er ítrekað. Sjö farast í sprengingu í Líbanon Sjö manns fórust og á áttunda tug raanna særðust í tveim sprengingum í líbönsku bæjunum Tripoli og Baalbeck í gær. Meðal hinna særðu eru sex sýrlenskir hermenn en Sýrlendingar hafa með höndum vfirstjóm beggja bæjanna. 1 Tripoli vom fjórar konur meðal hinna fóllnu og þeir sem særðust vom flest konur í verslunarerindum. Þar sprakk bifreið í loft upp við tveggja hæða verslanasamsteypu í einum af dýrari hlutum borgarinnar. í Ballbeck lét ein kona lífið og sjö manns meiddust þegar leigubifreið sprakk í loft upp við kvikmyndahús. Um tuttugu verslanir lögðust í rúst í sprengingunni í Tripoli, að sögn lögreglunnar. Hollendingar selja kvikmyndahúsakeðju Hollenskt fyTÍrtæki seldi í gær kvikmyndahúsakeðju. sem fyrirtækið hefur rekið i Suður-Afriku, og bætist því í hóp þcirra erlendu fyrirtækja sem á undanfomum mánuðum hafa hætt starfsemi sinni í landinu. Hollenska fyrirtækið átti þrjátíu og eitt kvikmyndahús í S-Afríku, flest í Jóhannesarborg. Þau vom i gær seld fyTÍrtækinu Century Entertainment sem fyrr á þessu ári var stofnað til að taka yfir bandarískt fyrirtæki í landinu. Undanfarin tvö ár hafa fjölmörg erlend fyTÍrtæki hætt starfeemi sinni í S-Afríku, flest vegna slæmrar afkomu en nokkur jafnframt vegna þrýstings frá andstæðingum kynþáttaaðskilnaðarstefnu stjómvalda í S-Afríku. Hækkað olíuverö vegna spennu á Persaflóa Áhyggjur vegna deilna Bandaríkjanna og íran á Persaflóa og ótti um að til átaka kunni að draga milli ríkjanna olli þvx í gær að verð á hráolíu hækkaði verulega og fór upp fyrir tuttugu og tvo doUara á tunnuna í fyrsta sinn siðan í janúar 1986. Allt virðist nú benda til þess að olíuverð fari aftur upp í tuttugu og fimm dollara á tunnuna áður en langt um líður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.