Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987. 11 DV Utlönd Málamiðlunar- tillaga um ólympíuleikana Alþjóða ólympíunefndin hefur lagt fram nýja málamiðlunartillögu í deil- unum milli Norður- og Suður-Kóreu, þar sem fjölgað er nokkuð þeim grein- um sem Norður-Kóreu standa til boða á leikunum í Seoul 1988. Tillögur þess- ar ganga þó Hvergi nærri jafnlangt og N-Kóreumenn hafa gert kröfur um og talið er ólíklegt að deiluaðilar gangi að þeim. Allt frá því að ákveðið var að ólymp- íuleikamir 1988 yrðu haldnir í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, hafa Norð- ur-Kóreumenn gert kröfur um að fá að halda hluta leikanna, keppni í að minnsta kosti átta greinum, þar á meðal knattspymu, borðtennis og bog- fimi. Hafa þeir hótað að beita sér fyrir því að kommúnistaríki taki ekki þátt í leikunum verði ekki gengið að þess- um kröfum þeirra. Undanfama tvo daga hafa fulltrúar alþjóða ólympíunefndarinnar átt fundi með aðilum frá báðum Kóreuríkjun- um. A gmndvelli þeirra viðræðna hafa nefndarmenn nú lagt fram nýjar mála- miðlunartillögur, þar sem N-Kóreu er boðið að halda borðtenniskeppni leik- anna að fullu sem og bogfimi, blak kvenna, hundrað kílómetra hjólreiða- keppni og eina umferð undanúrslita í knattspymu. Talsmenn Suður-Kóreu segjast ætla að íhuga tillögur þessar en segja jafn- framt að þolinmæði þeirra gagnvart N-Kóreumönnum sé nú á þrotum. Telja þeir sig hafa gengið lengra í sam- komulagsumleitunum sínum í máli þessu en fordæmi séu fyrir því ólymp- íuleikamir eigi að fara fram í Seoul og ekki tíðkist að færa einstakar greinar milli landa. Juan Antonio Samaranch, forseti alþjóða ólympíunefhdarinnar, sagði i gær að bæði Kóreuríkin yrðu að bregðast opinberlega við þessum mála- miðlunartillögum fyrir 17. september A ÍSLANDI I 20 AR Við lofum því sem skiptir mestu máli: GÓÐRI ÞJÓNUSTU Verð og tæknileg útfærsla við allra hæfi Borgartúni 20 Sími 2-67-88 næstkomandi og væri þetta lokatil- raun nefndarinnar til að miðla málum. Suður-Kóreumenn telja hættuna á því að kommúnistaríki hundsi ólymp- íuleikana í Seoul hverfandi litla, jafnvel þótt Norður-Kórea fengi ekki að halda neinn hluta þeirra. Mörg kommúnistaríki hafa þegar tilkynnt að þau muni mæta til leikanna. Chun Doo Hwan, forseti Suöur-Kóreu, á fyrsta fundi rikisstjórnar landsins eftir að skipt var um átta ráðherra hennar. Simamynd Reuter Hvítlaukspylsan laðar fram brosið Sláturfélagiö vill minna grillunnendur á þá staðreynd aö þeir sem reynt hafa grillaöa Hvrtlaukspylsu, (nýju pylsuna frá SS meö milda og Ijúfa kryddbragðinu), gefa henni brosandi sín bestu meðmæli. SS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.