Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 40
Eg ræð því hverjum ég ek í Bragganum - segir fjármálaráðherra Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri: Bifreiðamál ráðherranria hafa ver- ið mikið til umfjöllunar undanfarið. Hafa Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra og Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra lýst þvf yfir, ein ráðherra, að þau ætli ekki að nota ráðherrabifreiðar í rík- iseign. Sagðist Jón Baldvin ætla að keyra um á forláta Citroen Bragga. Þá hefur Jóhanna lýst því yfir að hún hyggist afþakka 20% fyrning- arfé sem ráðherrar á eigin bifreiðum eiga rétt á. Jón Baldvin var spurður hvort hann ætlaði að afsala sér fyrn- ingarfénu eins og Jóhanna. „Ég hef ekki leitt hugann að því, ég hef haft öðrum og þýðingarmeiri málum að sinna," sagði Jón. - Ætlar þú að nota Citroen Bragg- ann sem ráðherrabíl? „Þetta er minn einkabíll og ég ræð því sjálfur hvemig ég nota hann. Það verður hins vegar enginn bíll keyptur í fjármálaráðuneytið til að sinna gestum ráðuneytisins. Því er lokið hér með. Ef það þarf að fá góðan bíf þá em tif mjög þokkalegir leigubílar.“ Hvenær færðu Braggann? „Hann er ekki kominn til landsins ennþá en fyrst þú ert að spyrja um Braggann þá er höfuðkostur hans sá að það er hægt að skrúfa hann sundur og saman með einum skipti- lykli." -ES Sturla hættur við Jón G. Haukssan, DV, Akureyri: Sturla Kristjánsson, fyrrverandi fræðslustjóri á Norðurlandi eystra, hefúr dregið umsókn sína um stöðu '-'"ýfirkennara við barnaskólann á Dal- vík til baka. Samkvæmt heimildum DV mun ein ástæða þessa vera sú að Sturla ætlar að bíða og sjá hvort ný stefria verði tekin upp í fræðslustjóra- málinu af hálfu nýs menntamálaráð- herra. ÓVEIMJU LÁGT VERÐ OPIÐ TIL KL. 16.00 Á LAUGARDÖGUM Smiðjuvegi 2, Kópavogi. Símar 79866, 79494. LOKI Það er braggablús í fjármálaráðuneytinu! Neyðarúrræði fólks vegna lélegrar ijártiagsstöðu: Fjolskylda byr í tjaldi ofan við Hafnarfjörð Hjón ásamt tveimur unglingum hafa þurft að grípa til þess neyðarúr- ræðis að flytja í tjald. Hjónin eru komin yfir miðjan aldur. Konan er 100% öryrki. Hún er hjarta- og taugasjúklingur og er með lömunar- sjúkdóm. Konan getur ekki verið ein, hún getur ekki klætt sig hjálpar- laust, getur ekki staðið upp úr fleti sínu í tjaldinu án hjálpar. Auk þess þolir hún kulda illa. Þegar maðurinn fer til vinnu á morgnana þarf hann að koma konunni til vina eða ætt- ingjá. Blaðamaður DV hitti manninn og fór með honum að skoða „heimili" flölskyldunnar. Fjölskylda mannsins var ekki heima, hún var í afmælis- veislu í Reykjavík. Á leið til „heimil- isins“ sagði maðurinn að um síðustu mánaðamót hefðu þau þurft að flytja úr íbúð sem þau hefðu neyðst til að selja vegna lélegrar fjárhagsstöðu. „Upphafið af okkar óforum eru þau að ég veiktist f baki og hef sum árin misst allt að þrjá mánuði úr vinnu. Eftir að konan veiktist réð ég ekki lengur við þetta. Við tókum lán ofan á lán. Það var á slæmum tíma, lánin voru vfsitölutryggð. Eftir að þau fóru í vanskíl bættist endalaus lög- fræðikostnaður ofan á höfuðstólinn. Þegar ég sá í hvað stefhdi leitaði ég mér hjálpar, ég hefði þurft um fimm- tíu þúsund krónur að núvirði til að halda íbúðinni, en það fékkst ekkí,“ sagði maðurinn. Maðurinn sagðist vera algj ör bind- indismaður. Fyrir tólf árum var hann stórreykingamaður en hætti þá að reykja, vín þykir honum vont og notar það ekki. Félagsmálastofri- un í Hafharfirði hefur lítið getað gert til hjálpar. Fyrst eftir að fjöl- skyldan missti íbúðina bjó hún á hótelum á kostnað Félagsmálastofii- unar. Því varð hún að hætta vegna þess hversu hótelin eru bókuð. Eitt hótel í Reykjavík, sem hafði her- bergi, neitaði alfarið að hýsa fjöl- „Heimili fjölskyldu. Konan er 100 % öryrki. DV-mynd KAE skylduna þegar hún sagðist vera frá Félagsmálstofhun. Lengst hafa þau verið sex daga á sama hótelinu, það var á Hótel Garði, „þar var gott að vera, þetta var eins og á heimili, en því míður gátiim við ekki verið þar lengur vegna þess hversu mikið var bókað þar,“ sagði maðurinn. Hvemig er með matseld, þvotta og fleira sem venjuleg fjölakylda þarf með? „Við emm upp á aðra komin hvað þetta varðar. Það er andstyggi- legt, en ég vil segja að við höfum mætt geysilegri velvild hjá mörgura. Við höfiím átt kost á einni íbúð, það var um áttatíu fermetra íbúð sem var efnalaug áður. Það vom engir gluggar í herbergjunum né á baðinu. Það hefði kannski verið í lagi, en leigan var tuttugu þúsund á mánuði og eitt ár fyrirfram, við það ræð ég bara ekki. Það gerir okkur líka erfið- ara fyrir að konan getur ekki gengið upp og niður stiga, í mesta lagi tvær til þrjár tröppur.“-sme Flest hendir nú í umferðinni. Hvað skildi ökumaður Cadillacsins hafa verið aö hugsa. Akkúrat ekki neitt. Þaö var enginn ökumaður á bilnum og verður ekki. Cadillacinn verður meðal innanstokksmuna á nýjum veitinga- stað í Kringlunni. DV-mynd KAE Veðrið á morgun: Hæg aust- anáttá landinu Á morgun verður hæg austlæg átt á landinu og hiti tíu til fimmtán stig. Skúrir verða með suðaustur- og austurströndinni og norðantil á Vestfjörðum en víðast þurrt ann- ars staðar. „ Hafskipsmálið: Akæiu vísað frá í Sakadómi Ákæm ríkissaksóknara á hendur þremur fyrrverandi forráðamönnum Hafskips og endurskoðanda félagsins var vísað frá dómi í Sakadómi Reykja- víkur í morgun. Meginástæða frávísunarinnar er skyldleiki ríkissaksóknara, Hallvarðs Einvarðssonar, við einn þáverandi bankaráðsmanna Útvegsbankans, Jó- hann Einvarðsson. Sakadómur tók ekki til greina þær vanhæfisástæður verjenda að ríkissaksóknari væri van- hæfur vegna lánveitinga úr Lífeyris- sjóði opinberra starfsmanna eða vegna ummæla hans um málið á meðan á rannsókn þess stóð hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins. Bragi Steinarsson saksóknari lýsti því yfir í Sakadómi í morgun að hann kærði þennan úrskurð til Hæstaréttar. _________________________^ Helgi og Mar- geir í öðru sæti Á skákþingi Norðurlanda í gær vann Margeir Jón Ij og Helgi gerði jafntefli við Salmi frá Finnlandi. Mortensen frá Finnlandi og Schneider frá Svíþjóð eru nú efstir í landsliðsflokki með þrjá og háifan vinning en Helgi, Margeir og Tissdal frá Noregi em í öðm sæti með tvo og hálfan vinning. Nú hafa fjórar um- ferðir verið tefldar í landsliðsflokki. KGK Héðinn efstur Héðinn Steingrímsson er enn efst- ur á skákmótinu í Puerto Rico en í gær var þar tefld sjötta umferðin og gerði hann þá jafntefli við Eran Liss frá ísrael. Þetta er fyrsta jafntefli Héðins en hann hefur ekki tapað skák á mótinu. KGK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.