Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR 16. JÚLl 1987.
Neytendur
Hægt að spara í
matarinnkaupum
með hagsyni
- segir Bvyndís Schram sem fylgist með heimilisbókhaldi DV
„Ég kæri mig ekki um að eyða allt-
of miklum hluta launanna í matar-
kaup og mér tekst að halda
matarkostnaðinum í skefjum. Ég
kaupi grænmeti og ávexti, fisk og kjöt
og það vill svo til að það verður ekki
lagður neinn söluskattur á þessar
matartegundir," sagði Bryndís
Schram, eiginkona nýja fjármálaráð-
herrans, Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar, í samtali við DV.
Fjármálaráðherra vitnaði til heimil-
iskostnaðar á neytendasíðu DV í
sjónvarpsviðtali á dögunum og okkur
lék forvitni á því að vita hvort Bryn-
dís hefði fylgst með bókhaldinu hjá
okkur.
„Jú, ég hef fylgst með því. Ég hef
borið mig saman við það og ekki verið
svo langt frá þvi oft á tíðum,“ sagði
Bryndís.
Hún er í reikningi þar sem hún
kaupir allar matvörur nema fiskinn,
sem hún segist kaupa sjálf hjá fisk-
sala. Meðaltalskostnaðurinn í matar-
kaupunum hefur verið milli 5 og 7
þúsund kr. á mánuði á mann frá því
í desember. Bryndís taldi að fiskkaup-
in næmu svona 5-6000 kr. á mánuði.
„Að vísu segja krakkamir að ég sé
óskaplega nfsk, en það virðast allir
vel haldnir hjá mér og alla vega er
enginn svangur. Ég hef það fyrir reglu
að kaupa sjálf inn til heimilisins. Það
er áreiðanlega góð regla. Einnig hef
ég það fyrir reglu að fara aldrei svöng
út í búð til innkaupa. Svo hef ég alltaf
haft áhuga á að spara í mat. Ég á
mörg systkini og er með langlægstan
matarreikninginn af þeim.
T.d. hef ég ekki efni á því að kaupa
kindakjöt einu sinni í viku í matinn
og ég kaupi aldrei nautakjöt nema
hakk. En það er hægt að búa til mjög
góða rétti úr hakki, t.d. ýmsa ítalska
rétti. Stundum kaupi ég unghænur,
en úr þeim er hægt að búa til gómsæt-
ar máltíðir. Þannig fæ ég í matinn
handa okkur öllum fyrir 400 kr. í stað-
inn fyrir að lambalæri fyrir 1000 kr.
Langflesta daga vikunnar erum við
með fisk á borðum.
Fiskur gefur svo miklu meiri mögu-
leika heldur en kjöt. Ég set fiskinn
mikið í ofn og hef eitthvað gott með,
eins og t.d. banana. Svo bý ég alltaf
til sósur því ég er svo veik fyrir sósum.
Auðvitað er steikta ýsan eins og
mamma gerði alltaf ofsalega góð, en
ýmsar aðrar tegundir eru líka góðar.
Karfi er t.d. líka mjög góður, alveg
frábær fiskur. Gott að sjóða hann í
mysu og búa til góða sósu og hafa
hrísgrjón með. Ég nota mikið af grjón-
um.
Ég held að það sé okkur öllum fyrir
bestu að kaupa matinn sem náttúru-
legastan. Það er gaman að búa til
fjölbreytta rétti úr einföldu hráefni.
Ég hef ákaflega gaman af því að búa
til mat en ég baka aldrei," sagði
Bryndís.
„Ef fólk kærir sig um er hægt að
halda útgjöldunum niðri. En það verð-
ur ekki gert með því að eyða og eyða
hugsunarlaust."
- Hvað með ríkisbúskapinn? Ætl-
arðu að hafa áhrif á fjármálaráðherr-
ann í sparnaðarátt?
„Hvað er ríkisbúskapurinn annað
en heimili? Ég get ekki gert annað en
að gefa fjármálaráðherranum góð
ráð,“ sagði Bryndís Schram.
-A.BJ.
Heimilisbókhald DV:
Tölurnar ötrúlega lágar
- segir bréfntari sem notar mun hæni upphæðir i mat og hreinlætisvörur
„Síðan um 1970 hef ég haldið
heimilisbókhald og fylgst vel með
öllum útgjöldum heimilisins, sérs-
taklega vegna þess að á þessu
tímabili hef ég keypt tvær íbúðir og
á ennþá báðar.“
Þannig hefst bréf frá Skúla Helga-
syni, sem fylgdi með upplýsingaseðli
hans fyrir júní, en Skúli hefur ekki
sent okkur seðil áður. Hann talaði
hins vegar við okkur fyrr í vor. Og
bréfið heldur áfram:
„Þar sem ég var matsveinn á sjó
í mörg ár er ég þrælvanur öllum
innkaupum til heimilis og þykist
fylgjast allvel með verðlagi. Vegna
þessa er ég alveg undrandi á þeim
tölum sem birtar eru annað slagið á
síðunni hjá ykkur og er sagt meðal-
tal um eyðslu ýmissa fjölskyldna á
mann pr. mánuð i mat og hreinlætis-
vörur.
Annaðhvort lýgur fólkið eða þá
að það sleppir ýmsu. Ekki gæti ég
lifað af 5000 kr. á mánuði.
Við erum tvö í heimili, bæði komin
yfir sextugt, alin upp á kreppuárun-
um og höfum aldrei tileinkað okkur
neinn lúxus.
Síðastliðið ár voru meðalútgjöd
okkar á mann í mat og hreinlætis-
vörur 18.300 kr. eða 9.150 kr. á hvort.
Enn hefur dýrtíðin hækkað þessi
útgjöld svo, að ég gæti vel trúað að
þessi upphæð, sem eytt var í júni,
verði nálægt meðaltali þessa árs.
Vegna alls þessa fullyrði ég að eitt-
hvað er meira en lítið gruggugt við
þær tölur sem ég hef séð birtar hjá
ykkur undanfarið.
Eða eins og Shakespeare sagði:
„Something is rotten in the state of
Denmark."
Með bestu kveðju, Skúli Helgason
prentari."
Upplýsingar frá fólkinu
Þær tölur, sem birtar eru á neyt-
endasíðunni úr heimilisbókhaldinu,
koma frá lesendum víðs vegar af
landinu. Okkur er lífsins ómögulegt
að rengja þær tölur. Oftar en ekki
hefúr komið upp sú staða að ná-
kvæmlega sömu tölur hafa komið
upp sem meðaltal á einstakling á
fleiri en einum stað á landinu. Þar
að auki höfum við tekið þátt í bú-
reikningahaldinu og fengið svipaða
niðurstöðu.
Hins vegar er það áreiðanlega rétt,
eins og einnig hefúr komið fram í
viðtölum við fólk sem er með lágar
tölur í heimilisbókhaldinu, að það
sparar eftir fremsta megni.
Þeir sem taka þátt í heimilisbók-
haldinu kaupa t.d. ekki nema
ódýrustu ávextina eins og epli, app-
elsínur og banana. Þeir kaupa ekki
ávaxtaskyr heldur venjulegt skyr.
Þeir kaupa yfirleitt ekki jógúrt, búa
hana annaðhvort til sjálfir eða nota
súrmjólk í staðinn. Þeir kaupa ekki
dýrasta kjötið á markaðinum og láta
sér ekki detta í hug að kaupa áleggs-
bréf nema stöku sinnum, en kg af
því kostar á annað þúsund kr.
Þessir hagsýnu heimilishaldarar
láta heldur ekki eftir sér að kaupa
grænmetið þegar það er aldýrast og
notast mest við það sem er ódýrast
eins og hvítkálið. Þeir kaupa þá
annað grænmeti þegar verðið á því
er lægst.
Þá viljum við enn einu sinni benda
á mikilvægi þess að með þvi að
skrifa niður allt sem keypt er er
auðvelt að sjá hve miklum upphæð-
um hefur verið eytt í hvaða vöruteg-
undir og þannig skera niður ef
ástæða þykir til. -A.BJ.
Enn um kol
Verslunin Ellingsen hafði samband
við okkur vegna umfjöllunar um kol
í síðustu viku. Þar var gefið upp verð
á kolum í ýmsum verslunum, m.a. hjá
Ellingsen.
í greininni var sagt að ódýrustu
kolin í versluninni kostuðu 395 krónur
í þriggja kílóa pokum. Verslunin mun
hafa ódýrari kol á boðstólum og kosta
þau 265 krónur hver þriggja kílóa
poki.
Ellingsen var einnig með dýrustu
kolin af þeim verslunum sem haft var
samband við. Þetta munu vera mjög
sérstök harðpressuð kol sem ná mjög
háu hitastigi og eru reyklaus og því á
engan hátt sambærileg við aðrar al-
gengari kolategundir. -PLP
Bryndís að koma heim úr búðarferð, en hún hefur fyrir reglu að fara jafnan sjálf
i verslunarferðir og lelur sig spara verulega með þvi.
DV-mynd Brynjar Gauti
U pplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. |
Nafn áskrifanda________________________________________ j
Heimili________________________________________________ j
i
Sími
Fjöldi heimilisfólks_______ j
i
Kostnaður í júní 1987: !
____________________________________________________ i
Matur og hreinlætisvörur kr. ___________________
Annað kr. ___________________ I
I
AHs kr. i
Munið að senda inn upplýsinga-
seðilinn fyrir heimilisbókhald DV