Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
21
Iþróttir
Iþróttir
Brftish Open gotfmátíð hefst í dag:
„Nú spyrja bömin:
Komstu áfram
pabbi?"
- Tekst Tom Watson að vinna í sjötta skiptið?
„Þrátt fyrir að langt sc síðan ég
hef unnið mót er ég mjög bjartsýnn
á góðan árangur nú. Sjálfstraust
mitt hefur aukLst gífurlega mikið
eftir að ég hreppti annað sœtið á
US Open. Það yrði stórkostlegt að
sigra núna í sjötta skiptið og jafha
þar með met Harry Wardons," sagði
Tom Watson, einn frægasti og besti
ky lfíngur heims.
í dag hefst keppni á einu stærsta
golfmóti atvinnumanna í ár, British
Open. Allir bestu kylfingar heims
berjast þar til sigurs en þeir eru
• Severiano Ballesteros sést hér
horfa á eftir upphafshöggi sínu á
1. braut á æfingu í gær. Ballesteros
vann British Open siðast árið 1984.
Símamynd/Reuter
• Bemhard Langer, V-Þýskalandi,
hefur aldrei unnið British Open.
Hann varð í 2. sæti í fyrra og i 3.
sæti tvö árin þar áður.
Símamynd/Reuter
margir sem spá Tom Watson sigri
að þcssu sinni. Hann hefur fimm
sinnum unnið þetta stórmót, síðast
árið 1980 er mótið fór fram á Muir-
field velhnum í Skotlandi, sama velli
og leikið er á nú.
„Ég hef heyrt marga tala um að
ég sé að nálgast toppinn aftur en ég
geri mér grein fyrir því að ég verð
að vinna þetta mót til að staðfesta
það. í golfi sem öðrum íþróttum snýst
allt um að sigra. Þú færð lítið sem
ekkert fyrir annað sætið.“
„Konan sussaði á bömin en
ég hló“
Tom Watson hefur ekki unnið al-
vörugolfinót síðan 1984. Margir telja
hann einn vinsælasta kylfing í heimi
og stuðningsmenn hans eru ótrúlega
margir um allan heim. „Að vinna
ekki mót í allan þennan tíma var í
raun ekki mjög skemmtilegt en ég
held þó að það hafi lagst þyngra á
vini mína og fjölskyldu en mig sjálf-
an. Hér áður fyrr voru bömin mín
vön að apyrja hvort ég hefði unnið
þegar ég kom heim frá mótum. Núna
spytja þau oftast hvort ég hafi kom-
ist áfram á mótunum eftir 36 holur.
Móðir þeirra sussar yfirleitt á þau
en ég hlæ bara að þeim.“
„Hreiniega yndislegur arki-
tektúr“
Eins og fram kemur hér að framan
vann Watson síðast á British Open
árið 1980 á sama vellinum og leikið
er á nú. Watson hefur þetta að segja
um völhnn og frammistöðu sína
1980: „Þetta er stórkostlegur völlur,
hreinlega yndislegur arkitektúr.
Sandgrytjumíir eru einstaklega erf-
iðar, þær em svo djúpar að óstjóm-
lega erfitt er að ná kúlunni upp úr
þeim. Og það er varla hægt að taka
víti ef maður slær í þær. Röffið er
hrikalegt víða á vellinum og lítið
betra en sandgryfjumar. Vindurinn
mun spila mikið inn í árangur kepp-
enda að þessu sinni sem áður. Það
er nánast sama hvaða átt er, völlur-
inn er alltaf jafiicrfiður. Ef það
verður hins vegar logn, eins og verið
hefur hér síðustu daga, eiga mjög
margir möguleika á sigri.“
„Þá púttaði ég stórkostlega“
Watson heldur áfram: „Ég man að
• Jack Nicktaus, til vinstri, sést hér ræða vlð Greg Nomwn ð æfingu á
Muirfield veflinum i Skotlandi i gær. Norman vann British Open í fyrra.
Símamynd/Reuter
1980 púttaði ég stórkostlega. Það var
alveg sama hvar ég var á grfnunum,
allt fór oían í. Ef ég næ 75% ár-
angri á grínunum nú, miðað við
mótið 1980, á ég mikla möguleika á
sigri," sagði Tom Watson.
Kemur Paul Azinger enn á
óvart?
Nær ógemingur er að spá fyrir um
úrsht á British Open að þessu sinni
sem endranær. Margir veðja á Wat-
son en aðrir, sem taldir eru hafa
mikla möguleika, eru Scott Simpson,
• Tom Watson, sem hefur fimm
sinnum unnið British Open, leikur
sér hér að gotfkúlunni fyrir æfinga-
hring i gær. Watson vann síðast
árið 1980.
Simamynd/Reuter
' Ip'
• Arnokf Palmer, lil hægri, sem
tvívegis hefur unnið British Open,
gantast hér við Fuzzy Zöller ettir
æfingahring i gaer.
Símamynd/Reuter
sem vann US Open fyrr í sumar,
Bemhard Langer, sem leikið hefur
mjög vel að undanfómu, Severiano
Ballesterös, sem alltaf er til alls lík-
legur, og svo er það álit margra að
Paul Azinger, sem nú tekur þátt í
þessu stórmóti í fyrsta skipti og hef-
ur verið í látlausri aókn undanfama
mánuði, geti komið verulega á óvart.
Sigurvegarinn á British Open í fyrra,
Greg Norman, er í lægð um þessar
mundir og hefur átt í sérstökum
vandrasðum með púttin. Hann gæti
þó vel tekið upp á því að sigra ann-
að árið í röð. Gömlu jaxlamir Jack
Nicklaus, Raymond Floyd og Lee
Trevino, em ekki taldir haía neina
möguleika á sigri en hafa ber þó í
huga að þeir Nicklaus og Floyd hafa
unnið glæsta sigra nú nýverið og
voru þá keimlíkir spádómar í gangi.
-SK |
Pétur Guðmundsson tekur stóðu Artic Gilmore hjá San Antonio:
Æðislegt
tækifæri"
- segir Pétur sem verður aðalmiðherji liðsins í NBA-deildinni
„Þetta er óneitanlega æðislegt tæki-
færi fyrir mig og líklega besta tækifæri
sem ég hef fengið til að sýna hvað i
mér býr í körfuboltanum á mínum
ferlisagði Pétur Guðmundsson, at-
vinnumaður í körfuknattleik hjá
bandaríska NBA-liðinu San Antonio
Spurs, í samtali við DV i gærkvöldi.
„Ég mun spila mjög mikið á
næsta keppnistímabili“
„Það er búið að selja Artic Gilmore
frá San Antonio til Chicago Bulls en
hann hefur verið aðalmiðheijinn hjá
San Antonio í mörg ár. Ég verð því
aðalmiðherji hjá liðinu í vetur, það
• Pétur Arnþórsson
við og stuttu seinna
lætur hér þrumuskot ríða af að marki Kefivíkinga eftir fallega sendingu frá Kristjáni Jónssyni. Þorsteinn Bjamason markvörður ÍBK kom engum vömum
lá knötturinn í neti heimamanna. DV-mynd G. Bender
Framarar brutu blað í Keflavík
- Keflavík-Fram 0-2. Fyrsti sigur Framara á heimavelli Keflvíkinga síðan árið 1976
Magnús Gislasan, DV, Suðumesjum:
Framarar brutu í gærkvöldi blað í sögu sinni í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Þá sigruðu þeir Keflvíkinga ,í Keflavík með tveimur mörkum
gegn engu. Ellefu ár eru liðin síðan áð Framarar unnu síðast sigur á
Keflvíkingum á þeirra heimavelli en Fram vann 1-2 árið 1976. Framar-
ar eru nú komnir með 14 stig í 1. deild og eiga inni frestaða leikinn
gegn Völsungi úr 8. umferð. Islandsmeistararnir eru sem sagt komnir
í toppbaráttuna eftir slæma byrjun og eru til alls líklegir
svaf vöm Keílvíkinga illa á verðinum
sem oftar í leiknum. Þar með vom
úrslitin ráðin. Heimamenn sóttu
nokkuð í lokin en uppskám ekki laun
erfiðis síns.
Pétur Ormslev bestur á vellin-
um
I liði Fram var Pétur Ormslev mjög
góður og var hann besti maður'vallar-
ins í þessum leik. Janus var mjög
traustur í vöminni en annars má segja
að allir leikmenn hafi átt góðan leik.
Framliðið er mjög heilsteypt og greini-
lega á mikilli uppleið þessa dagana.
Farrell í sérflokki hjá ÍBK
Peter Farrell var langbestur í liði
Framarar unnu mjög verðskuldaðan
sigur á Keflvíkingum í gærkvöldi að
viðstöddum 1186 áhorfendum. Þeir
sóttu nær látlaust í byijun leiksins og
fengu byr undir báða vængi á 9. mín-
útu leiksins er heimamenn skomðu
sjálfsmark. Viðar Þorkelsson lék þá
upp að endamörkum, gaf fasta og lága
sendingu fyrir mark Keflvíkinga. Inn-
an markteigs hrökk knötturinn í fætur
Guðmundar Sighvatssonar og í netið.
Eftir markið sóttu Framarar nokkuð
en brátt fóm Keflvíkingar að láta
meira að sér kveða og undir lok fyrri
hálfleiks vom Keílvíkingar oft að-
gangsharðir við mark Framara sem
vörðust vel og höfðu forystuna í leik-
hléi.
Rólegur síðari hálfleikur
Það var ekkert sem benti til þess að
Keflvíkingar ætluðu sér að jafna met-
in í upphafi síðari hálfleiks. Liðið lék
illa lengst af og nánast eins og sundr-
aður her. Engu að síður áttu heima-
menn nokkur marktækifæri en Friðrik
Friðriksson var ávallt á réttum stað í
marki Fram. íslandsmeistaramir áttu
einnig sín færi og það kom fáum á
óvart er þeir gulltryggðu sigurinn á
74. mínútu leiksins. Kristján Jónsson
lék þá með knöttinn upp vinstri kant-
inn og gaf síðan gullfallega sendingu
á fyrrum félaga sinn í Þrótti, Pétur
Amþórsson. Hann tók laglega við
knettinum og skoraði af miklu öryggi
með góðu skoti af stuttu færi. Þar
Selfoss skoraði eftir
aðeins tuttugu sekúndur
Sveirm A Sigurðssan, DV, Selfossi:
Selfyssingar komu á óvart er þeir
sigurðu Víkinga, efsta lið 2. deildar,
2-1, á íslandsmótinu í knattspymu
á Selfossi í gærkvöldi. Selfyssingar
vom mun betri í leiknum og upp-
skám samkvæmt því. Þessi sigur var
þeim kærkominn því staða þeirra í
deildinni var orðin frekar slæm.
Leikur liðanna í gærkvöldi hafði að-
eins staðið yfir í 20 sekúndur þegar fyrsta
mark leiksins var staðreynd og voru
Selfyssingar þar að verki. Jón Gunnar
Bergs braust upp að endamörkum og gaf
góða sendingu fyrir markið. Elías Guð-
mundsson sem tók við sendingunni átti
skot í vamarmann Víkings og jiaðan
barst knötturinn til Jóns Birgis Kristj-
ánssonar sem skoraði.
Eftir markið átti Jón Gunnar meðal
annars skalla í stöng. Stuttu síðar var
Jón Birgir í dauðafæri en brást bogalist-
in.
Á 20.mínútu komst einn leikmanna
Víkings inn í sendingu og átti gott skot
að marki en Hreiðar Sigtryggsson mark-
vörður héit ekki knettinum sem barst
til Jóns Bjama Guðmundssonar sem
fylgdi vel á eftir og átti ekki í erfiðleikum
að jafna metin.
I seinni hálíleik sóttu Selfyssingar
linnulítið. Á 70. mínútu komst Jón
Gunnar Bergs inn fyrir vöm Víkings og
skoraði með góðu skoti frá vítateig, sig-
urmark leiksins.
Bestir í liði Selfoss vom Þórárinn In-
gólfsson og Heimir Bergsson en annars
var það liðsheildin sem skóp þennan
mikilvæga sigur.
Hjá Víkingum var Jón Otti Jónsson
markvörður besti maðurinn.
Áhorfendur vom um 400 og frekar
slakur dómari leiksins var Sæmundur
Víglundsson. -JKS
• Fyrra mark Fram í gærkvöldi oröið staðreynd. Viðar Þorkelsson (dökkklæddur til hægri)
hefur spyrnt knettinum fyrir mark ÍBK og Guðmundur Sighvatsson, ÍBK, liggur í markteign-
um eftir að hafa skorað i eigið mark. DV-mynd G. Bender
ÍBK í gærkvöldi en Jóhann Magnús-
son lék einnig vel og hafði góðar gætur
á Ragnari Margeirssyni. Vömin er
veikasti hlekkur liðsins sem í gær-
kvöldi virkaði sem sundurlaus her. I
heild verða leikmenn ÍBK að taka sig
verulega á ef þeir ætla að spjara sig í
næstu leikjum í deildinni.
• Leikinn dæmdi Kjartan Ólafsson
og fórst honum starfið vel úr hendi.
-SK
Golffréttir:
• Birgir Marinósson. GA. fór holu
í höggi á Jaðarsvelli á Akurevri í
gær. Atvikið átti sér stað á 18. braut
og notaði Birgir sjö-tré í draumahögg-
ið. Hann hefur áður farið holu i höggi
á sömu braut.
• Nissan stigamótið í golfi fer fram í
Grafarholti um næstu helgi. Mótið gefur
stig til landsliðs. Þátttökurétt hafii karlar
með 8 og lægra í forgjöf og konur með 17
og lægra. Leiknar verða 72 holur. Skrán-
ing fer fram í síma 82815 og 84735 og lvkur
henni á morgun kl. 18.00. Bakhjarl mótsins
er Ingvar Helgason, umboðsmaður Nissan
á íslandi.
KSÍ fékk sfyrk
Knattspymusamband Evrópu hefur ákveðið að
styrkja fimm smáþjóðir í Evrópu; ísland, Luxemb-
urg, Möltu, Liechtenstein og Kýpur að upphæð 160
þúsund þýskra marka sem renna á til unglinga-
starfsemi þjóðanna.
Hlutur hverrar þjóðar verður því um 650 þúsund
íslenskra króna. Ekki er að efa að þessi styrkur
kemur Knattspymusambandi íslands í góðar þarf-
KSÍ rak knattspymuskóla á Laugarvatni í fyrra-
sumar fyrir unga knattspymumenn og í kjölfar
þess sótti KSÍ um styrk og fékk hann. Frétt um
þetta efni birtist í vestur þýska íþróttablaðinu Kic-
ker á dögunum.
-JKS
Leiftur í 2. sæti 2. deildar
- Leiftur vann Þrótt, 3-0 og UBK vann Einherja, 2-0
Leiftur frá ólafsfirði heldur
áfram að koma á óvart. í 2. deild-
Halldór Guðmundsson þriðja mark
Leifturs og gulltryggði sigurinn.
inni í knattspymu en í gærkvöldi
sigruðu þeir Þrótt, 3-0, á Ólafsfirði
og eru þar með komnir i annað
sætið í déildinni.
Óskar Ingimundarson skoraði fyrsta
markið á 17. mínútu eftir fyrirgjöf frá
bróður sínum Steinari. Á 33. mínútu
var Gústaf ómarsson felldur innan
vitateigB af rnark verði Þróttar og víta-
spyrna da>md og úr henni skoraði
Sigurbjöm Jukobsson.
1 seinni hállleik pressuðu Þróttarar
stíft fyrstu tuttugu mínútumar og
sköpuðu sór nokkur tækifæri án j>ess
þó að skora. Á 72. minútu skoraði
Sigur Breiðabliks f baráltu-
leik
Breiðablik sigraði Einherja frá
Vopnafirði, 2 0, i Kópavogi í gær-
kvöldi í miklum banittuleik. Ólafttr
Bjömsson skoraði fyrra mark Breiða-
bliks undir lok fyrri luilfleiks eftir
aukaspymu. í síðari hálíleik bætti
Ólafur við öðm marki úr vítaspymu.
Fyrr í leiknum fengu Breíðabliksmenn
vitaspjTnu en þá vnrði markvörður
Einheija spymuna frá Jóni Þóri Jóns-
syni.
-.IKS
mun mikið mæða á mér og ég fæ mjög
mikið að spila. Þetta verður mikil og
góð reynsla fyrir mig og ef ég stend
mig vel þá aukast mínir möguleikar í
deildinni verulega. Ég er mjög bjart-
sýnn á sjálfan mig. Ég hef æft gífurlega
mikið eftir að ég gekkst undir upp-
skurðinn við bakmeiðslunum og er í
miklu betri æfingu núna en á sama
tíma í fyrra. Ég lyfti á morgnana og
æfi síðan og spila á daginn. Þetta er
stíf dagskrá en ég hef ekkert fundið
fyrir meiðslunum aftur og er staðráð-
inn í að standa mig í stykkinu," sagði
Pétur.
• Mál Péturs hafa heldur betur þró-
ast á annan veg en haldið var í fyrstu
þegar hann var keyptur til Spurs. Þá
var honum ætlað sama hlutverk og
hjá LA Lakers, staða varamiðherja.
Sá orðrómur komst á kreik hér á landi
fyrir skemmstu að Spurs hefði keypt
mjög góðan miðherja, David Robinson
að nafni, og að hann myndi veita Pétri
mikla keppni. Pétur hafði þetta að
segja um málið í gærkvöldi: „Þetta er
alls ekki rétt. Robinson á eftir að vera
í bandaríska sjóhemum næstu tvö
árin þannig að hann mun alls ekki
leika með okkm- á næstunni hvað sem ‘
síðar verður.
-SK
• Pétur Guðmundsson, atvinnumaður hjá San Antonio Spurs:„Ég er ákveðinn
i að standa mig í stykkinu hjá Spurs
á næsta keppnistímabili."
DV-mynd Valdís Óskarsdóttir
Staðan
Staðan í 1. deild eftir leikinn i Kefla- vík í gærkvöldi er þannig: Keflavík-Fram 0 2
Valur 9 5 3 1 17-6 18
KR 9 4 4 1 16-6 16
Akranes.... 9 5 1 3 13-11 16
Þór Ak 9 5 0 4 16-15 15
Fram 8 4 2 2 10-7 14
KA 9 3 2 4 7-8 11
Keflavík.... 9 3 2 4 15-20 11
Völsungur 8 2 3 3 9-10 9
Víðir 9 0 6 3 4-12 6
FH ....:...9 1 1 7 7-19 4
• Næstu leikir: ÍA-FH á morgun
föstudag, KR-KA. Þór-Fram og ÍBK-
Völsungur á sunnudag og Valur-
Viðir á mánudag.
Staðan i 2. deild eftir leikina i gær-
kvöldi er þannig:
Selfoss-Víkingur.................2-1
Leiftur-Þróttur.................3-0
Breiðablik-Einherji....
....2-0
Vikingur.....9
Leiftur......9
ÍR...........9
Þróttur R....9
Breiðablik...9
ÍBV.....:....9
Selfoss,.....9
Einherji.....9
KS...........9
ísafjörður...9
18-12 19
12-6 16
18-14 14
18-17 13
10-9 13
15-15 13
17-19 12
3 10-14 12
4 13-17 11
0 8 10-18 3
• Næstu leikir: iBl-KS, Einherji-ÍR.
UBK-Þróttur, Leiftur-Víkingur og
Selfoss-ÍBV, allir á laugardag.
r Speedie tií~1
bikarmeist-
ara Coventry
„Ég er þakklátur stjórum Co-
ventry að gefa mér teekifæri til
að sýna hvað í mér býr í 1. deild-
inni. Ég vona að ég verði hér
næstu tíu árin.“ sagði skoski
landsliðsmaðurinn David Spe-
edie eftir að harrn skrifaði undir
samning við Coventry í gær. Bik-
armeistaramir greiddu Chelsea
750 þúsund stórlingspund fyrir
hinn 27 ára Speedie og er það
metupphæð hjá Coventry. 47
railljónir króna. Mesta upphæð
áður 250 þúsund sterlingspund
fyrir Gar>- Collier 1979.
David Speedie missti stöðu sína
í liði Chelsea sl. vetm:. mest
vegna skapbresta. Newcastle og
Celtic höfðu um tíma áhuga á
leikmanninum en ekkert varð þó
af þvi að hann færi til þessara
liða. John Sillett, hinn glaðværi
liðsstjóri Coventry, nældi svo í
Speedie. Sillett telur að hann
geti orðið stórhættulegur mið-
herji með Cyrille Regis.
Hinn óvænti sigur Coventty i
bikarkeppninni hefur feert félag-
inu miklar tekjur og það hefur
því efhi á að kaupa Speedie nú.
Aðgöngumiðasala er nú á fullu
hjá Coventn' og fyrirframsala er
nú um cinni milljón sterlings-
punda meiri en á sama tíma í
fyrra.. -hsímj