Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
31
Undratækið sem allir verða að eign-
ast sem vilja vera ökumenn með
ökumönnum. Harðsvíraðir kaupa-
héðnar hafa uppgötvað þörfina.
Af far-
símabraski
Einn liður í fyrstu efnahags-
aðgerðum nýrrar ríkisstjómar
var að leggja söluskatt á far-
síma. Nokkru áður en ríkis-
stjórnin tók við höfðu
fjölmiðlar fært almenningi
fréttir um að þessi aðgerð
vtéri á prjónunum og má segja
að fólk hafi heldur betur tekið
við sér. Sölumenn, er höndla
með þessi undratæki, sem eng-
inn bílstjóri getur verið án,
sögðust hafa unnið fram á
nótt við að afgreiða tækin og
vart haft undan. Fjölmargir
virðast hafa fengið sér einn
síma en einhverj ir létu sér það
ekki nægja. Hefur heyrst saga
af cinum sönnum „bisness-
manni“ sem sá sér leik á borði
og hamstraði töluverðan
fjölda af símum og býður nú
vinum og kunningjum á lægra
verði en út úr búð. Ætlar „bis-
nessmaðurinn“ sér að græða á
öllu saman, um 10.000 á síma
eða svo.
YfirtekurÁmi
Bíóhöllina?
Ef marka má klausu í
Skagablaðinu virðist aðsókn
Skagamanna á bíó vera heldur
dræm. Rekstrarstaða Bíóhall-
arinnar á Akranesi sé mjög'
erfið og stefni í lokun á næstu
vikum og mánuðum. Segist
Skagablaðið hafa heyrt því
fleygt að menn séu nú að velta
fyrir sér þeirri lausn að bjóða
einhverjum sterkum aðila að
leigja Bíóhöllina og sé þá helst
nefnt til nafn Arna Samúels-
sonar sem nú rekur Bíóhöll-
ina, Bíóborgina og Bíóhúsið í
Reykjavik.
Ekki verið
að fela
sannleikann
Stundumer því haldið fram
að auglýsendur dragi úr göil-
um þess sem þeir eru að
auglýsa eða ýki kostina.
Menn geti því hæglega keypt
köttinn í sekknum ef þeir fari
ekki að öllu með gát. Auglýs-
andi, sem auglýsti íbúð sína
til leigu um daginn var ekkert
að skafa utan af því er hann
auglýsti: „Lítil 2ja herbergja
risíbúð til leigu í Nóatúni, á
4. hæð, síðasta sort, nóg af
stigum, litlir þakgluggar, mik-
ið undir súð, dýr leiga.“
Steingrímur
gegn lauslæti
„íslendingar verða nú rétt
feðraðir á Norðurlöndum“
segir Tíminn á forsíöu í gær
og hampar Steingrími flokks-
formanni ákaft fyrir þessa
breytingu, enda ekki seinna
vænna að einhver tæki til
hendinni og spyrnti við fótun-
um gegn öllum þessum laus-
lætiskrógum sem ætla má að
séu á Norðurlöndum, af fyrir-
sögninni að dæma.
Lögreglan i Grindavík lenti víst illa
í þvi eins og þessir kollegar þeirra,
nú var þaö bara lögreglan sjálf sem
áttiallan hlutaðmáli.
Lögguárekstur
Víkurfréttir í Kcflavík segja
frá nokkuð neyðarlegum
árekstri í Grindavík á dögun-
um þegar ekið var á nýjan
lögreglubíl Grindavíkurlög-
reglunnar af gerðinni Toyota
Tercel. I ljós kom nefnilega
að tjónvaldurinn var lögregl-
an sjálf á gamla bílnum. Hafði
gamla bílnum verið bakkað
inn í hlið nýja bílsins í inn-
keyrslunni við lögreglustöð-
ina. Segir sagan að síðan megi
ekki setja gamla bílinn í inn-
keyrsluna heidur verði að
leggja honum einhvers staðar
annars staðar í nágrenni lög-
reglustöðvarinnar, heist langt
í burtu frá nýja bílnum.
Torskilin
íslenska
Fyrir skömmu kom út könn-
un sem nemendur við félags-
vísindadeild Háskólans gerðu
Sandkom
á viðhorfi fréttamanna til
sjálfra sín og sinna „koliega".
Mikið hefur verið skrafað og
skeggrætt um þessa könnun
og hafa ýmsir hent gaman að
ýmsu sem þar kemur fram.
Annar angi á málinu er þó
sá að niðurstaða könnunar-
innar er skrifuð á svo lærðu
máli að það getur reynst
venjulegum leikmönnum tor-
velt að lesa út úr því. Til að
mynda segir á einum stað þar
sem verið er að ræða um
launakjör fjölmiðlamanna:
„Fylgistuðullinn r getur tekið
gildi á bilinu frá -1,0 til 1,0 og
táknar fyrri talan fullkomlega
neikvæða fylgni tveggja
breyta, en hin síðari fullkom-
legajákvæðafylgni. r = 0,0
táknar hins vegar að ekkert
samband sé milli tveggja
breyta.“
Bjarg-
vætturinn
Dagbækur hafa jafnan vak-
ið athygli forvitinna þótt
misjöfn séu leyndarmálin sem
þær búa yfir. Ung mennta-
skólastúika, sem var að
ferðast í fyrsta skipti í út-
löndum, hélt dagbók. Einnar
viku innfærsia hljóðaði svo:
„Mánudagur: Skipstjórinn
bauð mér í kvöidverð. Þriðju-
dagur: Ég var allan morgun-
inn í brúnni hjá skipstjóran-
um. Miðvikudagur:
Skipstjórinn kom með uppá-
stungu sem ekki hæfir manni
í hans stöðu. Fimmtudagur: I
kvöld hótaði skipstjórinn að
sökkva skipinu ef ég yrði ekki
við bón hans. Föstudagur: I
dag bjargaði ég lífi fimm
hundruð manns.“
Umsjón
JónasFr. Jónsson
ALLT NÝIR BILAR
Framhjóladrilinn, sparneytinn og
htjóólatur 4 manna smábill sem
hentar vel til styttri ferða i og kringum
Reykjavik.
Góður 4-5 manna bíll sem býður upp
á meiriþægindi og hentar vel til lengri
íerða.
Rumgóður 5 manna jeppi sem býður
upp á mikil þægindi fyrir ökumann og
farþega jafnt i akstri innanbæjar svo
og á ógreiðfærari vegum.
Lipur 4 manna jeppi sem hentar vel i
btönduðum akstri á þjóðvegum og
ógreiðfærari vegum.
Framhjóladrifinn 4-5 manna bíll sem
hentar vel jafnt til lengri og styttri
feröa.
Lipur 4 manna jeppi með miklu
farangursrými. Hentar einnig vel sem
sendibill.
Bi r u A. L El GA
} BÍIALEIGA ARNARFLUGS HF. j
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Keflavík. Sími 92-50305.
Reykjavíkurflugvelli, sími 91-29577.
HELUSSANDUR
DV óskar eftir að ráða umboðsmann á Hellisandi frá
1.8/87.
Upplýsingar í síma 93-6764 og 91 -27022.
Bílaleiga RYS. h/f
Sigtúni 5 -s* 19400
FYRIRTÆKI - STOFNANIR
LJÚFFENGIR MATARBAKKAR
Matseðill
Kabarett
Vikuna 13.-17. júlí
Mánudagur
Ávaxtasúpa.
Saltaður lambavóðvi með
kartöflusalati.
Síld með rúgbrauði og
smjori.
Þriðjudagur
Vanillubúðingssúpa.
Blandað kjötálegg, brauð,
smjor, salat, egg o.fl.
Miðvikudagur
Súpa Espagnole.
Smjördeigsbotn m/rækju-
salati.
Blandaðir ostar og kex.
Fimmtudagur
Brauðsúpa m/þeyttum
rjóma.
Baconrúlla m/kryddsósu,
hrisgrjónum og salati.
Föstudagur
Sveppasúpa.
Brauð m/roast beef og re-
molaði. Steiktur laukur.
Desert.
Matseðill
Vikuna 13.-17. júlí
Mánudagur
Ávaxtasúpa.
Karrýkrydduð djúpsteikt
fiskflök m/cocktailsósu, hrá-
salati og hvitum kartöflum.
Þriðjudagur
Vanillubúðingssúpa.
Rjómagúllach m/kartöflu-
mús, sultu og snittubrauði.
Miðvikudagur
Súpa Espagnole.
Lambalærissneiðar „barbe-
ecue“. Framreitt m/steiktum
kartöflum, grænmeti og
kryddsmjöri.
Fimmtudagur
Brauðsúpa m/þeyttum
rjóma.
Nýr soðinn lax m/hvitum
kartöflum, tómötum, agúrk-
um, sítrónu og smjöri.
Föstudagur
Sveppasúpa.
Londonlamb m/sykurbrún-
uðum kartöflum, hrásalati
og rjómasósu. Desert.
Verði ykkur að góðu
SENDUM
Leitið tilboða
HV eitingamaðurinn
sími: 686880.