Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1987, Qupperneq 38
38
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1987.
Kvikmyndahús
Bíóborg
Angel Heart
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15
Arizona yngri
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Moskítóströndin
Sýnd kl. 7 og 9.
Krókódila Dundee
Sýnd kl. 5 og 11.05.
Bíóhúsið
Bláa Betty
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
Morgan kemur heim
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn
Allir á vakt
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Morguninn eftir
sýnd kl. 5, 7 og 9.
Blátt flauel
Sýnd kl. 9.
Litla hryllingsbúðin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Háskólabíó
Herdeildin
Sýnd kl. 7, 9.05 og 11.15.
Bönnuð innan 16, ára.
Laugarásbíó
Meiriháttar mál
sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Djöfulóður kærasti
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
Draumátök
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16. ára.
Regnboqinn
Hættuástacf
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Dauðinn á skriðbeltum
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 9.10 og 11.10.
Á toppinn
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05,
9.05, og 11.05
Gullni drengurinn
Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15.
Þrir vinir
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Hrafninn flýgur
Sýnd kl. 7.
Kvikmy ndas j óður
kynnir
Atómstöðin
Atomic Station
Leikstjóri: Þorsteinn Jónsson.
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Heiðursvellir
sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Wisdom
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 14 ára
TÆKI-
FÆRIN
eru
óteljandi
r
1
smáauglýsingum.
Kvikmyndir
DV
Gamall draumur sem
varð að veruleika
Ekki er seinna vænna að við fáum
að sjá kvikmyndina Under the Volc-
ano eða í lauslegri þýðingu Undir
eldíjallinu. Ein þrjú ár eru liðin frá
því hún var sýnd í Bandaríkjunum
og víðar um heim. Af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum hefur hún
ekki enn borist í kvikmyndahús
landsmanna. Bíóhúsið, sem fer sínar
eigin leiðir, ætlar hins vegar að
bæta úr því þegar líða tekur á suma-
rið enda mun hún falla vel inn í
þann kvikmyndastíl sem þar er verið
að skapa. Og er mjög jákvætt fram-
tak.
John Huston, hinn þekkti kvik-
myndaleikstjóri, á mestan heiðurinn
að baki þessari mynd ásamt þremur
frægum leikurum, þeim Jaqueline
Bisset, Anthony Andrews og Albert
Finney sem var útnefhdur til óskars-
ins fræga fýrir aðalhlutverkið. Hann
levsti það vel af hendi sem endranær.
Huston hefúr leikstýrt yfir 30 kvik-
myndum og unnið með svo til frá
byrjun öllum frægustu kvikmynda-
stjömum Hollywood. Síðast kom frá
honum Heiður Prizzis sem sópaði til
sín verðlaunum. Hann er enn að
þrátt fyrir að hann sé kominn yfir
áttrætt og sitji fastur í hjólastól, oft
fárveikur. Hann er með öðrum orð-
um nánast kominn á grafarbakkann
og gefst ekki upp.
U nder the Volcano er by ggð á sögu
Malcom Lowry sem kom út árið 1947
og er orðin sígild. Hún er ein af þeim
sögum sem Huston hefúr gengið með
í maganum í 30 ár. Á þessu tímabili
reit hann yfir 20 handrit að verkinu
og ræddi við marga sem vildu vera
í hlutverki konsúlsins. í gegnum tíð-
ina hafa mörg kvikmyndastúdíó og
einstaklingar reynt fyrir sér með að
gera handrit eftir sögunni en gengið
heldur hrösulega. Að lokum tókst
Gay Gallo vel til. Hann vann svo
að gerð myndarinnar ásamt John
Huston og fleiri fagmönnum.
Myndin gerist árið 1938 og spann-
ar sólarhring á degi dauðahátíðar í
Mexíkó þegar þrjár manneskjur
spila út síðustu stundum lífs síns
eftir að hafa upplifað fortíð sem ekki
var upp á marga fiska.
Þetta er saga sjálfseyðingar og
brostinna vona.
-Gkr
Urvalslið stendur að baki Under the volcano: Anthony Andrews, John Huston, Jaqueline Bisset og Albert Finney.
Á ferðalagi
Bóla og bölvun Akrahrepps
Við kotið Bólu í Skagafirði er skáld-
ið Hjálmar Jónsson kenndur. Á sinni
löngu æfi bjó Bólu-Hjálmar þó ekki
lengi á Bólu. Árin þar urðu samt
afdrifarík og þar gerðist atburður sá
er stóð sem fleinn í holdi skáldsins
og brennimerkti manninn Hjálmar
Jónsson.
Hjálmar hafði tvö ár um fertugt
þegar hreppstjóri Akrahrepps heim-
sótti hann veturinn 1838. Á Bólu bjó
Hjálmar með konu sinni Guðríði.
Erindi hreppstjórans var að leita
stolinna sauða 'hjá þeim hjónum.
Enn þann dag í dag er ekki ljóst
hver kom orðrómnum um sauðast-
uldinn á kreik. Ásamt fylgdarmönn-
um leitaði hreppstjórinn í bæjar- og
útihúsum Bólu. Eftir drjúga stund
fann yfirvaldið kjötkagga, hálffalinn
í taði sem notað var til eldiviðar.
Útskýringar hjónanna á Bólu voru
ekki teknar gildar og var ákveðið
að innsigla kassan uns frekari rann-
sókn færi fram. Kertisstubbur var
notaður til að innsigla kjötið. Fórst
aðkomumönnum það ekki betur en
svo að um kvöldið kveiknaði í kotinu
á Bólu og brann mikið. Þennan vet-
ur sat skáldið svipt ærunni á
skaðbrenndu heimili. Þótt Hjálmar
og Guðríður væru sýknuð af þjófn-
Við Bólu. Minnismerki um Hjálmar í forgrunni.
aði dæmdi almannarómur hjónin
hart og óvægið. Þau hjónin hrökk-
luðust frá Bólu nokkru síðar.
Það sem eftir lifði æfinnar var nær
samfelld þrautganga fyrir skáldið og
orðsnillinginn Hjálmar Jónsson.
Skáldgáfa Hjálmars naut sína
hvað best þegar hann orti gráglettn-
ar níðisvísur og bölbænir. Ungur var
hann dæmdur í varðhaldsvist fyrir
níðkveðlinga um kvensemi og trúar-
hræsni klerks eins. Kveðskapurinn
varð að ákímnisorðum þegar prest-
urinn síðar missti hempuna fyrir að
geta vinnukona sinni bam.
Kveðja Hjálmars til Akrahrepps
vitnar um hug skáldsins til heima-
sveitarinnar:
Eftir fimmtíu ára dvöl
í Akrahreppi, ég má nú deyja
úr sulti, nakleika, kröm og kvöl!
kvein mitt ei heyrist, skal því þegja.
Félagsbræður ei fmnast þar,
af frjálsum manngæðum lítið eiga,
eru því flestir aumingjar,
en illgjarnir þeir, sem betur mega.
Þetta er fyrsta erindið af sex og
birtist það fyrst árið 1870 og hefúi
Skagfirðingum löngum sviðið und-
Smáauglýsinga-
síminn er
27022.
LUKKUDAGAR
16. júli
7658
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.
Vinningshafar hringi i sima
91-82580.
Útvarp - Sjónvarp
Bylgjan á morgun kl. 12.10-14.00
Hámarkshraði
á hádegi
„Ég ætla að spila 78 snúninga
gullkorn á þar til gert verkfæri. Það
jaðrar líklega við þau hraðatakmörk
sem lögreglan setur í umferðinni
svona rétt fyrir helgar. Bylgjunni
hafa borist fjölmagar plötusendingar
frá því stöðin fór í loftið. Rúsínan í
pylsuendanum var forláta grammó-
fónn, framleiddur í Middlesex á
framanverðri öldinni.
Ég ætla að skella nokkrum ekta
grammófónplötum á tryllitækið.
Þær snúast einungis á 78 snúningum
og eru stökkar sem kex, eins og vera
ber. Ekkert rafmagn er heldur í þess-
ari Middlesex uppfinningu. Fónninn
er handsnúinn og satt best að segja
þarf töluverða lagni við að koma
honum af stað. Ef það tekst er ör-
uggt að gullkom á borð við Laugar-
dagskvöld með MA kvartettinum
hljómi á Bylgjunni á hádegi á morg-
un. Og það jafnvel oftar en einu
sinni,“ sagði Þorsteinn.
DV
Þorsteinn Vilhjálmsson.